Morgunblaðið - 20.09.2010, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2010
Ákvörðun umhverfisráðherra umsynjun staðfestingar á aðal-
skipulagi vegna Urriðafossvirkjunar
hefur nú verið ógilt.
Umhverfisráðherra fór ekki aðlögum. Sú
dómsniðurstaða kom
ekki á óvart. Bent
hefur verið á að
ákvörðun ráðherra
væri í senn yfirgang-
ur og lögleysa.
Við ákvörðun sínahorfði ráðherra aðeins á þau
pólitísku markmið sín að stöðva
virkjanaframkvæmdir hvað sem það
kostaði.
Einhvern tímann hefðu stjórn-málamenn á borð við Svandísi
Svavarsdóttur látið stór orð falla um
slíka ráðherra. Það reynist erfiðara
nú, þegar ráðherrann heitir Svandís
Svavarsdóttir.
Í stað stóryrða er málið tekið til at-hugunar í ráðuneytinu. Þá verð-
ur væntanlega skoðað hvort einhver
leið er til að tefja framgang þess
frekar.
Lengi er von í þeim efnum þegarráðherrar núverandi ríkis-
stjórnar eru annars vegar. Um-
hverfisráðherra tók sér til að mynda
ellefu mánuði í að kveða upp hinn
ógilta úrskurð þrátt fyrir að augljóst
hafi verið að miklu skipti að úr-
skurða sem fyrst svo aðalskipulagið
gæti tekið gildi.
En málið hefur ekki aðeins kost-að tíma og þar með óbeint pen-
inga. Svandís Svavarsdóttir var
dæmd til greiðslu málskostnaðar
stefnanda að fjárhæð kr. 1.450.000.
Þau útgjöld eru óvæntur glaðningur
til skattgreiðenda frá ráðherra sem
gengur of langt.
Svandís
Svavarsdóttir
Yfirgangur
umhverfisráðherra
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 19.9., kl. 18.00
Reykjavík 9 skýjað
Bolungarvík 4 skýjað
Akureyri 5 skýjað
Egilsstaðir 0 skýjað
Kirkjubæjarkl. 7 léttskýjað
Nuuk 5 léttskýjað
Þórshöfn 7 skúrir
Ósló 15 heiðskírt
Kaupmannahöfn 12 skýjað
Stokkhólmur 13 heiðskírt
Helsinki 12 léttskýjað
Lúxemborg 16 heiðskírt
Brussel 15 léttskýjað
Dublin 16 skúrir
Glasgow 15 skýjað
London 17 léttskýjað
París 20 heiðskírt
Amsterdam 16 skýjað
Hamborg 13 skýjað
Berlín 16 léttskýjað
Vín 16 skýjað
Moskva 12 heiðskírt
Algarve 25 skýjað
Madríd 26 léttskýjað
Barcelona 23 léttskýjað
Mallorca 26 léttskýjað
Róm 23 léttskýjað
Aþena 27 heiðskírt
Winnipeg 12 léttskýjað
Montreal 17 léttskýjað
New York 23 heiðskírt
Chicago 18 léttskýjað
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
20. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:06 19:38
ÍSAFJÖRÐUR 7:09 19:44
SIGLUFJÖRÐUR 6:52 19:27
DJÚPIVOGUR 6:35 19:08
Kristín Ágústsdóttir
Neskaupstaður | Kristín Salín Þór-
hallsdóttir blakkona er einn af
bestu uppspilurum landsins. Hún
var líka liðtæk í uppskipun sl.
fimmtudag þegar grænlenska skip-
ið Erika kom til Norðfjarðar með
300 tonn af skeljasandi frá Póllandi
sem notaður verður á nýjum
strandblakvelli blakdeildar Þróttar
í Neskaupstað.
Eftir smávægilega byrjunarörð-
ugleika við að finna vellinum stað
hefur hann nú verið staðsettur ofan
viðhið nýja tjaldstæði bæjarins.
Ekki hefur enn verið hægt að spila
á vellinum þar sem almennilegan
strandblakssand hefur skort. Nú
horfir til betri vegar og sagði
Apostol Apostolov, þjálfari ung-
mennalandsliðs kvenna í blaki, sem
einnig tók þátt í uppskipuninni, að
þetta væri eðalfínn blaksandur.
Fjölmargir hafa lagt hönd á plóg
við uppbyggingu blakvallarins og
gaf Síldarvinnslan m.a. flutninginn
á sandinum og Samvinnufélag út-
gerðarmanna í Neskaupstað gaf
sandinn. Auk þess sem sveitarfélag-
ið Fjarðabyggð, gamlir og nýir
blakarar og aðrir velunnarar hafa
lagt hönd á plóg.
Gert er ráð fyrir að vígja völlinn
formlega með strandblakmóti.
Uppspilarinn skipar upp Kristín
Salín með 2 tonn af sandi í pokum.
300 tonn
af pólskum
skeljasandi
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Guðlaugur Óskarsson hefur mætt í
réttir í Borgarfirði í haust með tvo
gráa hesta ættaða frá Hofsstöðum í
Hálsasveit og er annar undir trússi
frá hinum landsfræga hestamanni,
Höskuldi heitnum Eyjólfssyni. Til-
gangurinn er að kynna hugmynd að
minnisvarða um Höskuld í Reykholti
og safna fyrir honum.
Guðlaugur segir að aðdraganda
þessa framtaks megi rekja aftur til
ársins 1978, þegar séra Geir Waage
sótti um Reykholt. Guðlaugur var þá
skólastjóri á Kleppjárnsreykjum og
fór með Geir til vinar síns, Höskuld-
ar á Hofsstöðum, til að falast eftir at-
kvæði hans. „Hann taldi sig ekki
hafa ástæðu til að skipta sér af
prestskosningum en það fór svo að
ég fékk Geir til að lofa okkur því að
ef við kysum hann myndi hann koma
upp hestarétt í Reykholti svo við
gætum komið ríðandi til kirkju,“
segir Guðlaugur.
Geir hefur staðið við sitt því hlaðið
hefur verið hrossagerði í brekkunni
við kirkjuna í Reykholti og stendur
til að nefna það Höskuldargerði.
Riðið til kirkju
Höskuldur lést á árinu 1994, á 102.
aldursári.
Guðlaugur telur tilvalið að reisa
Höskuldi minnisvarða við gerðið.
Páll Guðmundsson, myndhöggvari í
Húsafelli, hefur tekið að sér að
höggva hestamanninn í stein.
Guðlaugur vakti athygli þegar
hann kom í Fljótstungurétt og Odds-
staðarétt á dögunum með tvo gráa
hesta, annan undir trússi sem Hös-
kuldur gaf honum á sínum tíma.
Margir hafa skrifað sig á styrktar-
lista eða reitt fram fjármuni til að
standa undir kostnaði við verkefnið.
Guðlaugur segir að svo vel hafi geng-
ið að ljóst sé að minnisvarðinn muni
rísa. Þó á hann eftir að fara í Þver-
árrétt sem er á mánudag.
Þeir sem leggja málefninu lið fara
ekki tómhentir heim því Guðlaugur
gerði myndir í vor og sumar með
Gísla syni Höskulds á gæðingnum
Hauki sem nú er 29 vetra og Ingimar
Sveinssyni á Hvanneyri á gæðingi
hans Pílatus sem er 26 vetra. Báðar
kempurnar eru á níræðisaldri og
voru ásamt hestum sínum stolt Vest-
lendinga á hestasýningu Borgfirð-
inga sem haldin var í reiðhöll Fáks í
Reykjavík fyrir átján árum.
Ákveðið hefur verið að afhjúpa
bautasteininn og vígja Höskuldar-
gerði 17. júní á næsta ári. Dagurinn
er valinn vegna þess að oft hefur ver-
ið margt í kirkju þann dag þar sem
sú hefð hefur skapast í sókninni að
ríða til kirkju á þjóðhátíðardaginn og
tók Höskuldur oft þátt í því.
Reisa Höskuldi minnisvarða
Söfnunarátak Sr. Geir Waage tekur á móti Guðlaugi við Fljótstungurétt.
Ljósmynd/Jónína Eiríksdóttir
Opinber heimsókn forseta Slóvakíu,
Ivan Gašparoviè, hófst í gær með
fundi með forseta Íslands, Ólafi
Ragnari Grímssyni, Jóhönnu Sig-
urðardóttur forsætisráðherra og
Össuri Skarphéðinssyni utanrík-
isráðherra. Heimsóknin er stutt en
Gašparoviè fer utan aftur í dag.
Á blaðamannafundi sem haldin
var á Bessastöðum síðdegis í gær
skýrðu forsetarnir frá því sem helst
var rætt á fundi þeirra. Þar bar Evr-
ópumál einna hæst, en forsetarnir
ræddu kosti og galla Evrópusam-
bandsaðildar. Slóvakar vilja fúsir
miðla Íslendingum af reynslu sinni,
verði úr inngöngu Íslands í ESB.
Einnig ræddu forsetarnir hugs-
anlega samvinnu landanna tveggja á
sviði orkumála og var áhersla lögð á
hreina orku. Slóvakía er á einu
helsta jarðhitasvæði Austur-
Evrópu. Samvinna í menningar-
málum, menntun, vísindum, ferða-
mennsku og rannsóknum var einnig
rædd.
Í gær var kvöldverðarboð forset-
anum til heiðurs og í dag fundar
hann meðal annars með þingmönn-
um. annalilja@mbl.is
Ræddu kosti og galla ESB
Forsetar funda Ivan Gašparoviè,
forseti og Ólafur Ragnar Grímsson.