Morgunblaðið - 20.09.2010, Page 13

Morgunblaðið - 20.09.2010, Page 13
VIÐTAL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þetta er þess virði. Ekki vildi ég eiga þetta allt eftir. Maður myndi ekki ráðast í þessar framkvæmdir núna,“ segir Eiríkur Egilsson, kúa- bóndi á Seljavöllum í Hornafirði. Eiríkur og Elín Oddleifsdóttir, kona hans, byggðu nýtt fjós á árinu 2005 og hafa þrefaldað framleiðsluna. Gengisbundið lán sem tekið var vegna framkvæmdarinnar tvöfald- aðist á ellefu mánaða tímabili. Ráðist var í fjósbygginguna á Seljavöllum að vel athugðu máli og hún átti sér nokkurn aðdraganda. Upphafið má rekja til þess að Eirík- ur og Hjalti bróðir hans, sem höfðu rekið félagsbú með kýr og kart- öflur, skiptu búinu upp í tvær ein- ingar á árinu 1999. Áður höfðu þeir skipt með sér verkum í tvö ár. Ei- ríkur tók við kúabúinu og fór strax að huga að uppbyggingu. Það var meðal annars und- irbúið með því að kaupa helming af bústofni og greiðslumarki foreldra Elínar sem voru að bregða búi í Hrunamannahreppi. Þau voru þá komin í 250 þúsund lítra framleiðslu á ári en notuðu til þess gömul hús. Þannig þurfti að reka hluta kúnna kvölds og morgna á milli húsa til mjalta. Með svo mikla framleiðslu töldu þau rétt að stíga skrefið og byggja nýtt fjós og kaupa mjalta- þjón. Jafnframt þurfti að breyta eldra fjósi þannig að það hentaði fyrir geldneyti. Þá þurfti að auka ræktun og bæta við vélum. Breytti í gengisbundið lán Eiríkur segir að þau hafi átt fyrir hluta af fjárfestingunni en þó þurft að taka nokkuð stórt lán í árs- byrjun 2006. Það var í íslenskum krónum og á ágætum kjörum í upp- hafi, 4,7% vöxtum. Vextir hækkuðu mikið eftir það. „Á árinu 2007 voru þeir orðnir 9% á sama tíma og verðstöðvun var á mjólkuraf- urðum. Við sáum ekki fram á að geta staðið undir afborgunum af láninu,“ segir Eiríkur. Þau breyttu tveimur þriðju hlutum lánsins í geng- isbundið lán sem svo tvöfald- aðist á ellefu mánuðum. „Það á eftir að koma í ljós hvernig farið verður með þetta lán. Við höfum náð að standa í skilum með allar okkar greiðslur en það er ekki hægt að gera margt annað á meðan. Það þarf að vera hægt að halda við byggingum og tækjum og erfitt að gera það á meðan greiðslubyrðin er svona þung,“ segir Eiríkur en tekur fram að hann trúi ekki öðru en að gengisbundnu lánin verði leiðrétt, í samræmi við dóm Hæstaréttar frá því í vor, á hliðstæðu bílaláni. „Það eru eflaust margir bænd- ur í vandræðum og verr staddir en við og þá sérstaklega þeir sem eru með bestu framleiðsluaðstöðuna. En manni sárnar það að þurfa að borga af peningum sem maður hef- ur aldrei tekið að láni og aldrei séð, á sama tíma og þeir sem kveiktu í öllu saman virðast ekki þurfa ekki að standa skil á sínu. Ég held að þjóðfélagið hafi aldrei verið órétt- látara en nú,“ segir Eiríkur. Þrátt fyrir þessar hremmingar með lánið sér Eiríkur ekki eftir því að hafa ráðist í fjósbygginguna. Segir að ekki væri gott að eiga hana eftir nú. Þá skipti margt meira máli en peningarnir. „Það er fyrir öllu að hafa góða heilsu og eiga gott líf og fjölskyldu. Vinnuaðstaðan skapar meiri lífsgæði fyrir fjölskylduna og bústofninn.“ Allir lúti sömu leikreglum Eiríkur og Elín hafa kvóta fyr- ir um 300 þúsund lítra framleiðslu á ári. Þau framleiða umfram það og fá fyrir það verð sem fæst fyrir út- fluttar afurðir en hafa hug á því að bæta við kvótann. Eiríkur er ósáttur við um- ræðuna um mjólkurframleiðsluna að undanförnu. „Það er ótrúlegt að Alþingi skuli heykjast á því í tvö ár að framfylgja lögum sem það setti sjálft fyrir rúmum áratug,“ segir Eiríkur og vísar til frumvarps um refsiákvæði vegna vinnslu ut- ankvótamjólkur. „Menn verða að sitja við sama borð innan grein- arinnar. Það er engin sanngirni í því að ég kaupi kvóta fyrir 100 milljónir en bóndinn á næsta bæ geti framleitt og selt sína mjólk án þess að eiga kvóta. Allir verða að fylgja sömu leikreglum.“ Eiríkur tekur það fram að hann hafi ekkert á móti nýjum mjólkurstöðvum. Það geti verið styrkur í þeim. Allir verði þó að kaupa mjólkina á sömu forsendum og vinna hana eftir gildandi lögum. Hvergi betra að búa Búum með hefðbundinn bú- skap hefur fækkað í Hornafirði, eins og víða í sveitum landsins, en búin jafnframt stækkað. Fólk eldist og ekki er alls staðar fólk til að taka við. Eiríkur segir þó hvergi betra að búa en í Hornafirði og hefur trú á framtíðinni. Ferðaþjónusta hefur eflst og segir hann að það styrki byggðina. „Hér er allt fyrir hendi til að blómlegt mannlíf geti þrifist og víða ónýtt tækifæri í byggðarlag- inu,“ segir Eiríkur. Vildi ekki eiga eftir að byggja upp  Eiríkur og Elín á Seljavöllum undirbjuggu vel byggingu nýs fjóss  Gengisbundið lán gerir þeim lífið leitt Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Betri lífsgæði Þótt lánið hafi hækkað sér Eiríkur Egilsson ekki eftir því að hafa byggt upp búið. Öllum líður betur, bæði skepnum og þeim sem vinna störfin. FRÉTTIR 13innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2010 Í FYRIRTÆKJAVIÐSKIPTUM H a u ku r 0 4 .1 0 Guðni Halldórsson viðskiptalögfræðingur, gudni@kontakt.is Arnór H. Arnórsson rekstrarhagfræðingur, arnor@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, lögg. verðbr.- og fasteignasali, brynhildur@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Jens Ingólfsson rekstrarhagfræðingur, jens@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hdl. sigurdur@kontakt.is Leit að heppilegum fyrirtækjum eða kaupendum. Verðmat fyrirtækja. Viðræðu- og samningaferli. Gerð kaupsamninga og tengdra samninga. Fjármögnun fyrirtækjaviðskipta. Við teljum að eftirfarandi fyrirtæki geti verið fáanleg: • • • • • Forgangslisti er nýjung fyrir kaupendur og fjárfesta. Skráning á www.kontakt.is SÉRFRÆÐINGAR • Skráðu þig á forgangslista og við sendum þér reglulega upplýsingar í tölvupósti um tækifæri sem við getum ekki sett í auglýsingar. Upplýsingar og skráning á www.kontakt.is. • Lítið bakarí í góðu hverfi. Ársvelta 40 mkr. Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki sem þjónar mest matvælaiðnaðinum. Ársvelta 75 mkr. • Heildverslun með neytendavörur (ekki matvæli). EBITDA 80 mkr. Engar skuldir. • Þjónustufyrirtæki með yfir 500 fyrirtæki og stofnanir í föstum viðskiptum. Ársvelta150 mkr. • Rótgróið glerfyrirtæki. Ársvelta 80 mkr. • Framleiðslufyrirtæki með eigin verslanir. Með yfir 50% markaðshlutdeild og góða vaxtamöguleika. Ársvelta um 400 mkr. • Grænlenskt byggingarfélag með góða verkefnastöðu. • Þekkt heimilisvöruverslun með eigin innflutning. Ársvelta 80 mkr. • Vélsmiðja með góða verkefnastöðu. 7 starfsmenn. • Rótgróin heildverslun sem selur tæknivörur og rekstrarvörur til opinberra stofnanna. EBITDA 15 mkr. • Tvö iðnfyrirtæki sem henta vel til sameiningar. Sameinuð ársvelta um 150 mkr. og EBITDA um 25 mkr. Viðkomandi kaupandi þyrfti að leggja fram um 20 mkr. í peningum og um 20 mkr. fasteignaveð til að ná meirihluta í báðum fyrirtækjunum. Mikil orka fer forgörðum á stóru búi. Bændurnir á Seljavöllum hafa því hug á að nýta hitann frá skepnunum og kartöflunum til að hita upp íbúðarhúsin. Með því geta þeir lækkað rafmagnsreikninginn. Bjarni Jakobsson, rafiðnfræðingur á Höfn, vinnur með bændunum að athugun á hagkvæmni þess að nýta orkuna. Ætlunin er að nota varmadælu til að nýta lofthitann í fjósi og geldneytahúsi og hitann frá mjólkurkæli og kælivélum í kart- öflugeymslum. Til viðbótar er ætlunin að brenna öllu sorpi sem til fellur á búinu og nýta hitann frá brennslunni. Orkan verður notuð til að hita upp tvö íbúðarhús og vatn í fjós, kjötvinnslu og kartöfluvinnslu. „Rafmagn hefur hækkað gífurlega mikið á síðustu tveimur árum. Ef hægt er að nýta á hagkvæman hátt eitthvað sem til er á jörðinni, er sjálfsagt að gera það,“ segir Ei- ríkur. Kýr og kartöflur hita upp húsin VILJA NÝTA ALLA ORKU SEM BEST „Við vorum að velta því fyrir okkur hvort ekki væri hægt að auka tekj- urnar og skapa fleiri störf. Við hugs- uðum um ný verkefni svo börnin okkar gætu unnið hér heima á sumr- in,“ segir Elín Oddleifsdóttir, bóndi á Seljavöllum. Hún og maður henn- ar, Eiríkur Egilsson, hafa komið upp lítilli kjötvinnslu á bænum og vinna kjöt af nautgripum sem til falla á kúabúinu. Elín ræður ríkjum í kjötvinnsl- unni. Hún úrbeinar og snyrtir til steikurnar. „Ég fæ að hjálpa til við að hakka og pakka,“ segir Eiríkur. Elín segir að í gegn um tíðina hafi fólk oft falast eftir kjöti hjá þeim. Þau ákváðu að láta á þetta reyna og innréttuðu kjötvinnslu í gömlu kart- öflugeymslunni. Þau fengu aðstoð hjá Matarsmiðju Matís á Höfn við að taka fyrstu skrefin. Elín segir að vel hafi gengið að fá leyfi fyrir vinnslunni og engar sérstakar hindranir verið í vegi þess. „Það eru auðvitað settar kröf- ur um aðstöðu og hreinlæti sem verður að uppfylla. Það er eðlilegt enda vill maður hafa slíka hluti í lagi. Þú setur ekki afurð á markað sem ekki er í lagi,“ segir hún. Eingöngu er unnið kjöt af naut- gripum frá Seljavallabúinu. Með því eykur fjölskyldan verðmæti afurða búsins og skapar sér aukna vinnu. Meginhluti afurðanna er seldur á Hornafirði, ýmist í gegn um mat- vælamarkað sem þar er starfræktur eða beint til neytenda. Margir kaupa sér fjórðung úr skrokki enda er það hagkvæmast. helgi@mbl.is Kjötvinnsla eykur verðmæti afurða búsins Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Verðmæti Kjötvinnslan var ekki síst stofnuð til að skapa sumarvinnu fyrir börnin. Elín Oddleifsdóttir snyrtir hér til steikur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.