Morgunblaðið - 20.09.2010, Side 23

Morgunblaðið - 20.09.2010, Side 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2010 boð enda hvorki gsm símar né net- tengdar tölvur aðgengilegar á þeim tíma. Þau hjón voru dugleg að veiða silung og þegar við komum til þeirra í Gripdeild voru þau alltaf að gera ýmsar tilraunir með vinnslu á honum. Dvöl þeirra hjóna í Grip- deild upplifði ég alltaf sem nauð- synlegan hluta af sumarfríi þeirra þar sem þau voru frá öllum manna- ferðum, í algjörri ró, veiddu í mat- inn og hlóðu batteríin. Ég hafði raunar engan skilning á því að þau vildu eyða stærstum hluta sumar- frísins ár hvert upp á fjöllum og hafa ekkert annað en íslenskt veð- ur, vatn til að veiða í og fjöll. Í dag skil ég þetta mjög vel og sæki sjálf í slíkar aðstæður. Þegar við fjölskyldan fórum til Reykjavíkur dvöldum við oft á heimili Gunnlaugs og Bertu í Hvassaleiti. Ég man vel eftir því völundarhúsi og setti gjarnan á minnið, hvert ég fór um húsið svo ég rataði til baka, sérstaklega átti þetta við um kjallarann. Í minning- unni fannst mér alltaf svo hátíðlegt að koma heim til þeirra, þau áttu svo mikið af bókum, flottum hús- gögnum og voru sérlega góðir gest- gjafar. Síðustu ár hefur Gunnlaugur ver- ið sjúklingur og samskipti rofnað. Þó er sterk minning í hjarta mínu um sérlega hjartahlýjan mann sem vildi öllum vel. Fyrir hönd fjölskyldunnar á Grund votta ég aðstandendum mína dýpstu samúð. Stefanía Katrín Karlsdóttir. Jæja, þá er móðurbróðir okkar fallinn frá. Sá þriðji af fimm systk- inum. Móðir okkar Nanna og elsta systirin, Kæja, kvöddu fyrir nokkru. Og eftir eru þau Unna og Mansi. Við tímamót sem þessi fyll- ist hugurinn af minningarbrotum. Gunnlaugur Snædal fæðingalæknir var alla tíð í miklum hávegum hjá okkur. Enda hvernig má annað vera, hann tók á móti okkur öllum piltunum á fæðingardeildinni. Mamma og Gunnlaugur fæddust bæði á Eiríksstöðum á Jökuldal. Og þannig háttaði til að meðan hin systkinin voru búsett eystra voru mamma og Gunnlaugur búsett á höfuðborgarsvæðinu. Ætíð var náið samband milli þeirra tveggja enda var það svo að þegar Gunnlaugur var við nám í Skandinavíu fór mamma með þangað til að hafa gætur á tveimur eldri sonum Gunn- laugs og Bertu heitinnar konu hans, þeim Jóni og Kristjáni. Mun víst ekki hafa veitt af. Ekki er hægt að fullyrða um hvort náið samband þeirra systkina hafi orðið til þess að mömmu fæddust einnig þrír synir. Þegar sá síðasti af þess- um sex var að fæðast þótti víst nóg komið af strákum, svo mjög að Gunnlaugur sagði við systur sína: Neinei, Nanna mín! Þessi ljómandi fína stelpa… nei, þetta er enn einn strákurinn. Fastur liður í jólahaldi voru veg- leg boð á jóladag að heimili Gunn- laugs og Bertu í Hvassaleitinu. Jól- in voru einfaldlega óhugsandi án þeirra. Þar lék Gunnlaugur á als oddi, sagði gamansögur, vitnaði í Góða dátann Svejk eða Ástríks- bækurnar jöfnum höndum. Og ef verulegt fjör færðist í leikinn á efri hæð hússins dró hann klarinettuna fram og spilaði eitthvað með einum eftirlætis músíkanti sínum, Benny Goodman. Þó Gunnlaugur væri menntaður ytra og búsettur í Reykjavík leitaði hugur hans ávallt austur á æsku- slóðirnar. Og fyrir um fjörutíu ár- um ákvað hann að byggja veiðihús á Jökuldalsheiði við Gripdeild, á landi ættaróðalsins, og dreif for- eldra okkar með í þær framkvæmd- ir. Það var enn til að treysta böndin og var mikið ævintýri. Þetta var fyrir tíma 38 tommu dekkjanna og var Gunnlaugur eflaust með þeim fyrstu til að uppgötva töfra hálend- is Íslands. Þetta veiðihús stendur enn, byggt að mestu leyti úr tveim- ur rússneskum trékössum utan af Volgubifreiðum sem fluttar voru til landsins – húsið er minnisvarði um þá góðu tíma sem systkinin og fjöl- skyldur þeirra áttu á heiðinni. Gunnlaugur frændi var hafsjór af fróðleik um örnefni og sögu lands- ins í smáu sem stóru. Ógleymanlegt var þegar við ókum með honum og Unnu frænku fyrir tólf árum upp Jökuldalinn í tengslum við ættar- mót sem haldið var í Hlíðinni. Hann þuldi upp gamansögur tengd- ar hverjum stað sem hjá var ekið. Þá kom einnig fram enn eitt áhuga- mála Gunnlaugs sem var akstur góðra bíla – þó talsvert yngri mað- ur en hann sæti undir stýri þótti honum aksturinn frekar varfærn- islegur miðað við aðstæður. Gunn- laugs verður sárt saknað og við bræður sendum samúðarkveðjur til aðstandenda hans og vina. Jakob, Atli og Stefán Grétarssynir. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Soffía. Gunnlaugur Snædal var sérstak- lega vel gerður maður til líkama og sálar enda af góðu foreldri kominn og hlaut vandað uppeldi á stóru menningarheimili í austfirskri sveit. Hann var ungur sendur suður til framhaldsnáms og vann fyrir nám- inu heima á sumrin, meðal annars með vörubílakstri. Frá þeim tíma er mér minnisstætt, er ég fékk far með honum yfir Fjarðarheiði, en hann var að færa bændum á Efri- Jökuldal fóðurbæti, hversu létt hann fór með 200 punda síldar- mjölssekki þannig að við lá að ég öfundaði hann. Gunnlaugur var karlmenni og hörkuduglegur, reglumaður og sóttist námið vel. Vegna mannkosta var hann snemma valinn til forystu í læknastétt og líknarfélögum og vann öll þau störf af lagni og vand- virkni. Sérgrein sína stundaði hann af áhuga, lauk ungur doktorsprófi og hélt áfram vísindastörfum svo lengi sem heilsan leyfði. Í tímans rás hlaut hann verðskuldaðan frama sem yfirlæknir og prófessor og fékk fjölda heiðursviðurkenn- inga eftir því sem árin liðu. En meiru skipti kannski hversu dáður hann var af sjúklingum sínum og samstarfsfólki. Gunnlaugur átti því láni að fagna að eignast góðan lífsförunaut sem var stoð hans og stytta í lífinu. Berta og Gunnlaugur voru svo samrýnd að vinir þeirra nefndu þau aldrei nema í sama orðinu. Við átt- um samleið með Bertu og Gunn- laugi í hálfa öld, bundumst vin- áttuböndum þegar í læknadeildinni, fylgdumst að í framhaldsnámi í Danmörku og Svíþjóð og var aldrei svo langt á milli okkar að við hitt- umst ekki reglulega og eltum jafn- vel hvor annan. Eftir heimkomuna unnum við báðir alla starfsævi okkar á Land- spítalanum og saman keyptum við okkur læknastofu í Domus Medica. Við byggðum með vinum okkar raðhúsalengju í Hvassaleitinu, sem þá var nánast úti í sveit, og þar bjuggum við í sátt og samlyndi í hartnær fjörutíu ár. Eiginkonur okkar ólu upp börnin, sem öll voru á sama reki, á meðan við karlarnir unnum og einhvern veginn varð líf okkar svo samofið að við lá að yrði eitt. Minnisstæðar eru heimsóknir okkar til þeirra Gunnlaugs og Bertu í fjallakofa þeirra við Grip- deild í Jökuldalsheiði þar sem þau undu sér í sumarfríum við veiði- skap og heimsóknir til frændfólks og vina og fáum höfum við kynnst sem voru gestrisnari en þau. Gam- an var að sjá Gunnlaug þar vaða og synda með silunganetið um vatnið enda var hann syndur sem selur. Það var mikið áfall fyrir okkur öll þegar Berta lést árið 1996. Gunnlaugur varð aldrei samur maður þótt hann bæri sig vel og naut hann þá umhyggju sona sinna og fjölskyldna. Síðustu árin bjó hann og naut góðrar hjúkrunar í Sóltúni 2. Alltaf sami ljúflingurinn, æðrulaus og þakklátur; maður sem öllum þótti vænt um. Undir lokin var hann hættur að þekkja okkur þegar við komum í heimsókn. Það var sárt en minningin lifir um góð- an dreng sem alltaf var glaður, góður og ekki síst – skemmtilegur. Við vottum sonum hans og fjöl- skyldum þeirra samúð okkar. Blessuð sé minning Gunnlaugs Snædal. Lovísa og Jón Þorsteinsson. Gamall vinur og starfsfélagi, Gunnlaugur Snædal, er fallinn frá. Mér er bæði ljúft og skylt að minn- ast hans með nokkrum orðum. Gunnlaugur var glæsimenni, bjartur yfirlitum og þannig í fasi að eftir var tekið. Hann hóf lækn- isstörf um miðja síðustu öld og varð fljótt mjög vinsæll og naut virðingar sjúklinga og samstarfs- fólks. Hann var meðal þeirra fyrstu sem sinntu krabbameinsleit hér á landi og kann það að hafa leitt til þess að síðar varð hann formaður bæði Krabbameinsfélags Reykja- víkur og Krabbameinsfélags Ís- lands. Hann hafði aflað sér góðrar menntunar og reynslu erlendis á sviði kvensjúkdóma og fæðingar- hjálpar og aðal-starfsvettvangur hans varð innan veggja Fæðing- ardeildar Landspítalans er seinna varð Kvennadeild og þar hlaut hann starfsframa sem sérfræðing- ur, yfirlæknir og prófessor. Gunnlaugur var einn af stofn- endum félags íslenskra kvensjúk- dómalækna, formaður í félagi áhugamanna um sögu læknisfræð- innar auk formennsku og starfa í þágu íslenskra lækna, en öll þessi störf leiddu af sér umfangsmikil samskipti erlendis. Fljótlega eftir að Gunnlaugur hóf störf á Fæðingardeildinni var orðið ljóst að auka þyrfti við byggingar til þess að svara aukinni þörf um þjónustu við konur. Var þá ráðist í stækkun og endurbætur á húsnæði Ljósmæðraskóla Íslands og hafin undirbúningsvinna að stækkun kvennadeildarinnar eins og hún er í dag. Átti Gunnlaugur ríkan þátt í öllum þessum framkvæmdum. Einn þátturinn var tilkoma vökudeildar, sem opnuð var samhliða kvenna- deildinni, mæðravernd fékk stór- bætta aðstöðu og við tilkomu geislatækis gjörbreyttist krabba- meinsmeðferð kvenna. Gunnlaugur var farsæll í starfi og frumkvöðull á mörgum sviðum. Hann var gæfumaður í einkalífinu, kvæntist Bertu sinni ungur og voru þau hjónin samhent og höfðingjar heim að sækja. Ég á margar minn- ingar frá gleðistundum með þeim hjónum bæði hérlendis og erlendis. Berta féll frá fyrir 14 árum og var öllum harmdauði. Hygg ég að ein- veran hafi verið Gunnlaugi erfið en að lokum hvarf hann í þann heim, sem fáir þekkja eða skilja. Viðburðaríkri ævi er lokið. Aðstandendum öllum sendi ég samúðarkveðjur og kveð minn gamla vin. Jón Þorgeir Hallgrímsson. Að loknu merku og göfugu æfist- arfi hefur okkar góði vinur, Gunn- laugur Snædal læknir, lagt upp í sína hinstu ferð – ferðina sem okk- ar allra bíður. Margar ljúfar minn- ingar koma upp í hugann við þessi tímamót. Við Gunnlaugur hittumst fyrst haustið 1940 þegar hann kom bros- andi inn í stofu þriðja bekkjar í MR sem þá var að vísu til húsa í Há- skólabyggingunni við Suðurgötu, því að breska hernámsliðið hafði lagt undir sig gamla Menntaskóla- húsið. Fljótlega tókst góður vin- skapur með okkur og vorum við samrýndir á menntaskólaárunum. Gunnlaugur var einlægur og skemmtilegur félagi, orðheppinn, glaðsinna og hrókur alls fagnaðar þegar það átti við. Hann hafði áhuga á tónlist, spilaði á klarinett og á háskólaárum sínum spilaði hann í lítilli danshljómsveit stúd- enta. Hann var líka ágætlega hag- orður og samdi tækifærisvísur og hnyttin smákvæði. Eftir stúdents- prófið fylgdumst við að í lækna- deildinni. Haustið l948 kvæntist hann Bertu Jónsdóttur, en hún var einstaklega elskuleg kona, og varð það honum til mikillar gæfu. Þegar háskólanámi okkar lauk sumarið 1951 fylgdumst við Gunn- laugur áfram að í sérnámi, fyrst í Danmörku og nokkrum árum síðar í Svíþjóð, og urðu fjölskyldur okkar þá mjög nánar. Margra skemmti- legra samverustunda með þeim hjónum er að minnast frá þessum árum, svo sem hjólatúra og ferða- laga í Danmörku, heimsókna, veisluboða og næturgistinga hjá sameiginlegum vinum okkar í Sví- þjóð. Og ógleymanlega skemmtilegt var ferðalag fjölskyldnanna heim til Íslands sumarið 1957. Fyrst nokk- urra daga heimsókn í Kaupmanna- höfn og svo ferðalag með glæsiskip- inu Gullfossi til Reykjavíkur með viðkomu í Leith í Skotlandi Margar eru þær gleðistundir sem við höfum átt saman eftir að fullorðinsárin og alvara lífsins tóku við, stundir sem einskæra gleði vekja að rifja upp. Alltaf var það tilhlökkunarefni að eiga von á að hitta þau hjón, Bertu og Gunnlaug og vera í návist þeirra, þar sem menningarlegur andblær hlýju og gamansemi var í hásæti. Gunnlaugur var glæsimenni á velli, alltaf hress í viðmóti, traust- vekjandi, bjartsýnn og skemmtileg- ur, en það sem einkenndi fram- komu hans og skapgerð þó öðru fremur var hvað hann var uppörv- andi og jákvæður, og það var hon- um jafn eiginlegt þótt erfiðleikar steðjuðu að. Góðviljaður var hann og hjálpfús og einstakt ljúfmenni. Við Hjördís kveðjum Gunnlaug með innilegu þakklæti fyrir trygga og ævilanga vináttu og söknum kærs vinar og samferðamanns. Við sendum börnum hans og fjölskyld- um þeirra samúðarkveðjur og biðj- um þeim blessunar. Tryggvi Þorsteinsson. Kveðja frá Krabba- meinsfélaginu Lífshlaup Gunnlaugs Snædal var samofið sögu Krabbameinsfélagsins í marga áratugi og hann gegndi margvíslegum störfum fyrir félagið. Gunnlaugur kom heim frá sérnámi árið 1957 og hóf þá störf, ungur, vaskur og áhugasamur sérfræðing- ur, á almennri leitarstöð sem Krabbameinsfélagið var þá að koma á fót. Þar starfaði hann til ársins 1964. Samhliða því uppbygg- ingarstarfi lagði hann lokahönd á doktorsrannsókn sína og varði í desember það ár doktorsritgerð sína um brjóstakrabbamein á Ís- landi allt frá 1911. Rannsóknin byggðist á viðamikilli gagnaöflun og var sú vinna mikilvægt framlag til rannsókna Krabbameinsskrár- innar á fjölskyldufylgni sjúkdóms- ins og fleiri þáttum. Á þessum ár- um var lagður grunnur að merku vísindastarfi á vegum Krabba- meinsfélagsins sem hefur vaxið og dafnað æ síðan. Gunnlaugur tók virkan þátt í félagslegu starfi Krabbameinsfélagsins. Hann var formaður Krabbameinsfélags Reykjavíkur í þrettán ár, frá árinu 1966 þar til hann var kosinn for- maður Krabbameinsfélags Íslands árið 1979. Því starfi gegndi hann í níu ár við góðan orðstír og þótti framsýnn og baráttuglaður fyrir hönd félagsins. Það var í for- mennskutíð Gunnlaugs, árið 1982, sem Krabbameinsfélagið réðst í fyrstu stóru landssöfnunina, og landsmenn studdu hana með ráðum og dáð. Fyrir söfnunarféð var keypt hús félagsins við Skógarhlíð, sem enn hýsir Krabbameinsfélagið og öfluga starfsemi þess. Segja má að undir forystu Gunnlaugs hafi fé- lagið vaxið úr litlu áhugamanna- félagi upp í það stóra félag með fjölbreytileg verkefni sem það er nú. Árið 1988 var Gunnlaugur kjör- inn í heiðursráð Krabbameins- félagsins og átti þar sæti allar göt- ur síðan. Það eru ekki mörg ár síðan hann kom síðast á fund til okkar, nokkuð farinn að eldast en naut samvista við fyrrverandi sam- starfsmenn. Það geislaði af honum eins og áður. Það var gott að eiga samskipti við Gunnlaug í erli dags- ins. Hann var hlýr maður í fram- komu, brosmildur, góðviljaður og kurteis svo af bar. Gunnlaugur var vakinn og sofinn yfir málefnum Krabbameinsfélagsins og taldi aldrei eftir að leggja sitt af mörk- um. Hans verður minnst sem eins af helstu forystumönnum félagsins og manns sem ótrauður lagði lið baráttumálum þess. Virðing og þakklæti speglast í allri umræðu um störf Gunnlaugs hér hjá okkur. Fyrir hönd Krabbameinsfélags Ís- lands og Krabbameinsfélags Reykjavíkur sendum við samúðar- kveðjur til fjölskyldu Gunnlaugs Snædal. Sigríður Snæbjörnsdóttir, formaður Krabbameinsfélags Íslands, Nanna Friðriksdóttir, formaður Krabbameinsfélags Reykavíkur. Gunnlaugur Snædal vinur minn og samstarfsmaður frá 1960 til 1993 er látinn eftir nokkurra ára veikindi, en best man ég hann glað- an og reifan, fljótan til að taka til hendinni þegar mest á reyndi. Engan lækni hef ég séð gera keis- araskurð jafn snöggt og hann. Un- un var á að horfa er þeir stóðu hvor sínum megin við skurðarborð- ið og unnu saman, hann og Jón Hannesson læknir, það var alveg frábært, hröð handtök og var sem einn maður væri. Á fyrstu árum Gunnlaugs á fæðingardeildinni var sérfræðingur ekki í húsinu nema í dagvinnu, en var á bakvakt heima. Þá þurfti að meta rétt hvenær kalla skyldi út lækninn. Tíminn varð ótrúlega stuttur frá útkalli þar til læknirinn birtist tilbúinn í verkið sem beið hans. Gunnlaugur var aðstoðarlæknir, deildarlæknir, yfirlæknir og pró- fessor, kennari við LMSÍ á þeim tíma sem við unnum saman, þannig að samstarf okkar var mjög mikið og náið. Eins og þau sex ár sem unnið var að skipulagi á viðbygg- ingu við gömlu Fæðingardeildina. Mættum við yfirleitt vikulega á fundum með arkitektum, verkfræð- ingum, læknum og öðru starfsfólki deildarinnar sem til var kallað. Ég var svo lánsöm að kynnast fjöl- skyldu Gunnlaugs, Bertu konu hans og sonunum þrem, þeim Jóni, Kristjáni og Gunnlaugi (litla), en hann var viss um að flaggað væri fyrir sér á afmælisdaginn sinn þ. 17. júní. Það var gaman að því. 1966 var lítill hópur saman kom- inn í London í ellefu daga. Það voru Gunnlaugur og kona hans og tveir eldri synirnir, Ása frænka mín og tveir læknar af fæðing- ardeildinni. Við gerðum margt skemmtilegt saman, fórum víða, meðal annars í tívólí, þar sem ég var viljug að hoppa á milli tækja með þeim Jóni og Kristjáni. Mér fannst eins gam- an og þeim og það var mikið hleg- ið. Þau hjón Gunnlaugur og Berta voru miklir höfðingja heim að sækja og það var ánægjulegt að koma á heimili þeirra. Þar kom ég bæði með eiginmanni mínum svo og samstarfsfólki deildarinnar. Rausnarskapinn var ekki langt að sækja en ég hef eftir tengdaföður mínum, sr. Sigurjóni Jónssyni, sem fermdi Gunnlaug, að Eiríksstaða- heimilið hafi verið mikið myndar- og menningarheimili og vel tekið á móti gestum og gangandi. Þetta staðfestir Máni og fleiri, sem ég hef kynnst, sem kynntust þessu ágæta heimili. Berta kemur alltaf upp í huga minn er ég hugsa til Gunnlaugs, en SJÁ SÍÐU 24

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.