Morgunblaðið - 20.09.2010, Page 28
28 MENNINGFólk
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2010
Næstkomandi laugardag, þann
25. september, verður ein-
leikur Kára Viðarssonar,
Hetja, endurfrumsýndur í
Landnámssetrinu. Verkið var
sýnt á Rifi á Snæfellsnesi fyrr í
sumar en verður nú fært um
set og sett á svið í Borgarnesi.
Hetja er gamanleikur
byggður á Bárðarsögu Snæ-
fellsáss og fjallar um þá feðga
Bárð Snæfellsás, landnámsmann á Snæfellsnesi,
og Gest son hans. Rétt eins og sagan er verkið ýkt
og ótrúlegt og reynir á ímyndunarafl áhorfand-
ans. Hetja er þroskasaga um feðga, fyrir feðga og
alla þá sem þekkja feðga eða tengjast feðgum á
einhvern hátt. Sýningin er klukkutíma löng.
Leiklist
Hetja flytur sig í
Landnámssetrið
Kári Viðarsson
Um þessar mundir stendur yfir
sýning á ljósmyndum Gísla
Hjálmars Svendsen í kaffihúsi
Gerðubergs. Myndirnar tók
Gísli síðastliðin tvö ár á ferðum
sínum um landið. Gísli Hjálmar
er fæddur í Tromsö í Noregi
1959 en fluttist ungur til Ís-
lands með móður sinni. Í til-
kynningu segir að hann hafi
eignast sína fyrstu ljós-
myndavél árið 1980 og fengið
tilsögn hjá Leó Jóhannessyni ljósmyndara á Ísa-
firði og myndað markvisst í áratug. Eftir nokkurt
hlé greip hann aftur í vélina 2007 en hann leggur
um þessar mundir einnig stund á nám í lögfræði.
Sýningin Ísland í ramma stendur til 31. október.
Ljósmyndasýning
Ísland í ramma í
Gerðubergi
Ein af myndum
Gísla.
Þann 23. september næstkom-
andi munu Benedikt Krist-
jánsson tenór og Miklos
Dalmay halda söngtónleika í
Selinu á Stokkalæk. Á efnis-
skránni eru lög eftir Karl O.
Runólfsson og Dichterliebe eft-
ir Schumann. Tónleikarnir
hefjast kl. 20.
Sunnudaginn 26. september
kl. 16 ætla svo Rut Ingólfs-
dóttir fiðluleikari og Richard
Simm píanóleikari að flytja lög eftir Árna Björns-
son, Mozart, Beethoven og César Frank.
Aðgangseyrir er sá sami á báða tónleikana, 2
þúsund krónur, og panta má miða í símanúmerum
487-5512 og 864-5870.
Tónleikar
Fiðla, píanó og
söngur í Selinu
Benedikt
Kristjánsson
Rithöfundurinn Hanif Kureishi
mun hljóta Pen/Pinter-verðlaunin
í ár en þau eru veitt í minningu
leikskáldsins Harold Pinter. The
Times valdi Kureishi sem einn af
50 bestu bresku rithöfundunum
eftir 1945 en hann vann meðal
annars Whitbread-verðlaunin fyr-
ir bókina The Buddha of Sub-
urbia. Hann hlýtur verðlaunin
fyrir að vera óhræddur við að
segja sannleikann um lífið í fjöl-
menningarlegum heimi. Ekkja
Pinter, lafði Antonia Fraser, var
meðal þeirra sem sátu í dóm-
nefnd.
Mexíkóska blaðakonan Lydia
Cacho hlýtur verðlaun sem veitt
eru alþjóðlegum blaðamönnum
sem þykja hafa sýnt hugrekki
með skrifum sínum og hafa mátt
þola ofsóknir vegna þeirra. Hún
var handtekin og henni hótað líf-
láti eftir að hún gaf út bók árið
2005 um félagskap manna sem
misnotuðu börn í Cancun en
nokkrir þeirra voru vel þekktir
menn í viðskiptalífinu.
Hvor tveggja verðlaunin verða
afhent í British Library þann 20.
október næstkomandi.
Síðasti verðlaunahafi Pen/
Pinter-verðlaunanna var leik-
skáldið Tony Harrison.
Kureishi Hlýtur Pen/Pinter-
verðlaunin í ár.
Kureishi og
Cacho
verðlaunuð
Eru óhrædd við að
segja sannleikann
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
„Einhvern tíma fékk ég þá hugmynd
að það gæti verið gaman að vita um
hvað fólk talar á ættarmóti,“ segir
Anton Helgi Jónsson um nýja ljóða-
bók sína Ljóð af ættarmóti. „Ég hef
gert nokkrar gerðir af þessari bók,
fyrst fyrir tíu árum og reyndi líka að
skrifa sögu um það hvað gerist á
ættarmóti, en niðurstaðan af þessum
tilraunum mínum er þessi ljóðabók.“
Spurður um umfjöllunarefni bók-
arinnar segir Anton Helgi: „Þetta
eru eintöl fólks, það eru engar um-
hverfislýsingar í bókinni en ýmislegt
er gefið í skyn. Ætli þarna sé ekki
verið að fjalla um þetta stóra ætt-
armót sem við erum á: lífið sjálft.
Ég er mikill áhugamaður um ang-
ist manneskjunnar og hvernig þungi
tilverunnar leggst á hana. Í bókinni
er ég að fjalla um almenna lífsangist.
Ég held samt að margt í bókinni sé
fyndið og ég tók eftir því um daginn
þegar ég las upp úr henni að fólk hló
á vissum stöðum.“
Ljóð af ættarmóti er fimmta ljóða-
bók Antons Helga, en fyrsta ljóða-
bók hans kom út árið 1974. Hann
segist eiga þó nokkurt efni sem hann
hafi ekki birt opinberlega. „Ég hef
alltaf verið að yrkja fyrir mig, þann-
ig að ég á slatta af dóti, en ég hef
ekki fundið hjá mér sérstaka þörf
fyrir að sýna það. Það er allt í lagi að
eiga þetta sjálfur. Það er heldur ekki
allt svo gott sem maður gerir.“
Anton Helgi hefur sent frá sér
eina skáldsögu, Vinur vors og blóma,
sem kom út 1982. „Ég hef tvisvar
reynt að skrifa skáldsögu en ekki
verið ánægður með afraksturinn. Ég
gæti samt trúað því að skáldsaga
eigi eftir að koma,“ segir hann.
Hann er að vinna að leikriti en segist
ekki vilja ræða það nánar á þessu
stigi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Anton Helgi „Í bókinni er ég að fjalla um almenna lífsangist. Ég held samt
að margt í bókinni sé fyndið,“ segir Anton um Ljóð af ættarmóti.
Áhuga-
maður um
angist
Ljóð og leikrit
» Anton Helgi Jónsson fædd-
ist árið 1955. Fyrsta ljóðabók
hans, Undir regnboga, kom út
árið 1974. Árið 1994 sýndi
Leikfélag Reykjavíkur leikrit
hans Ófælna stúlkan. Anton
Helgi hlaut árið 2009 Ljóðstaf
Jóns úr Vör fyrir ljóð sitt Ein-
söngur án undirleiks.
Ný ljóðabók frá Antoni Helga
Sagan segir af
kjarnafjölskyldu í
Kópavogi sem stundar eigin
rekstur 31
»
Þjóðleikhúsið stendur sig velí því að kynna leik-skólabörnum þann galdursem leikhúsið og leiklistin
ein kunna að laða fram. Auðvitað er
þetta skylda hússins og nokkuð sem
til má ætlast, en það breytir því ekki
að svona hefur þetta ekki alltaf verið
og því ber að þakka sérstaklega fyrir
þann myndarskap sem hér er í gangi
og þann metnað og virðingu sem
liggur í framtakinu.
Þórhallur Sigurðsson er listrænn
stjórnandi barnaleikhúss Þjóðleik-
hússins, Kúlunnar. Þórhallur getur
verið stoltur af sínu starfi og ekki efa
ég að stjórnendur hússins eru kátir
með Þórhall því það er glæsibragur á
starfsemi Kúlunnar og lágvöxnu
leikhúsgestunum sem þangað flykkj-
ast í hópum er sýnd virðing og vin-
semd og það atlæti að óþarfi er að
óttast dvínandi aðsókn í húsið á kom-
andi áratugum.
Nú býður Þjóðleikhúsið 4 til 5 ára
leikskólabörnum að koma, fyrir
krónur núll, að horfa á ævintýrið
Karlsson, Lítill, Trítill og fuglarnir,
það er mikil saga og mettuð boðskap.
Undirritaður fylgdist með því þeg-
ar börn af fjórum leikskólum
streymdu til leikhússins, prúð í
skipulegum röðum og leiddust tvö og
tvö. Sást þar fátt af meintu agaleysi
þjóðarinnar. En hinir agalausu eru
víst eldri og ef marka má hegðun
þeirra undanfarin ár og allt til þessa
dags hefur ævintýrið Karlsson, Lít-
ill, Trítill og fuglarnir alveg farið
framhjá þeim.
Í þessu ævintýri er fjallað um
græðgina, nískuna, hrokann og
heimskuna og er þá fátt eitt nefnt.
En einnig kemur fram að breyti
maður vel gagnvart sínum minnstu
bræðrum og málleysingjum og deili
með öðrum og hreyki sér ekki upp,
þá farnist manni vel. Þetta er ekki
flókið. En verra að fara eftir því –
eða hvað?
Friðrik Friðriksson leikstýrir
þessari sýningu og hefur ásamt leik-
urunum Baldri Trausta og Lilju
Guðrúnu unnið handritið. Það fylgir
að mestu ævintýrinu en leyfir sér
líka að skjótast til hliðar við það með
bráðfyndnum innskotum og
skemmtilegri fræðslu. Krakkarnir fá
að taka þátt án þess að hlaupið sé
með þá þátttöku út í öfgar og þessi
stund sem ætluð er til skemmtunar
og fræðslu líður notalega áfram af
því að allt er fram borið af trú-
mennsku og vandvirkni. Leikmynd
er einföld og sniðug. Leikhljóð pass-
andi og söngur hófstilltur. Þau Lilja
Guðrún og Baldur Trausti gefa sig
öll í leikinn og draga ekki af sér í per-
sónusköpun enda áhorfendurnir
kröfuharðir og vilja ekkert hálfkák í
dramatískri túlkun; hvort heldur er
verið að leika fugl eða ferlega
skessu. Baldur þjónar einnig hlut-
verki sögumanns og hann féll aldrei í
þann fúla pytt að tala til barnanna
eins og þar væri saman komin hjörð
af fáráðlingum – en því miður verður
maður stundum vitni að slíku þegar
fullorðnir þurfa að eiga orðastað við
barnahóp.
Ég fór glaðari (kannski ekki afrek
þegar ég á í hlut) og betri maður
(meira mál í mínu tilfelli) af fundi við
Karlsson, Lítinn, Trítil og fuglana í
Kúlunni þann fagra haustmorgun 16.
september 2010. Börnin af hinum
ýmsu leikskólum sem eiga eftir að
sjá þetta ævintýri lifna í vetur geta
strax byrjað að hlakka til.
Es: ekki eru gefnar stjörnur fyrir
þessa sýningu enda er hún ekki á
sömu forsendum á leikhúsmark-
aðnum og aðrar. Hitt er svo annað að
hún á alveg inni eina stjörnu fyrir
hvern leikhúsgest (hverja þá
stjörnu) sem sér hana í vetur. Reikn-
aðu svo!
Frábært framtak
– fín sýning
Morgunblaðið/Ernir
Ævintýri Leikskólabörn eiga eftir að hafa gaman af sögustundinni.
Þjóðleikhúsið – Kúlan
Karlsson, Lítill, Trítill og fuglarnir
Frumsýning 16. september 2010
Sögustund í Kúlunni þar sem leik-
skólabörn kynnast töfrum leikhússins.
Leikstjórn og hljóðmynd: Friðrik Frið-
riksson. Leikmynd: Tryggve J. Eliassen
Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson
Handrit: Spunnið úr ævintýrinu Karls-
son, Lítill, Trítill og fuglarnir – Friðrik
Friðriksson, Baldur Trausti Hreinsson
og Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir.
GUÐMUNDUR S
BRYNJÓLFSSON
LEIKLIST