Morgunblaðið - 25.09.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.09.2010, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 2 5. S E P T E M B E R 2 0 1 0  Stofnað 1913  224. tölublað  98. árgangur  FORMFAGUR AFRAKSTUR NOSTURS NÝTT HJARTA, LIFANDI LOFTBÓLUFJALL FÆR ENN GÆSAHÚÐ TÍU ÁRUM SÍÐAR SUNNUDAGSMOGGINN BRONSIÐ ÍÞRÓTTIRFLUGUHNÝTINGAR 10  Heimaþjónusta borgarinnar setti á fót nýtt úrræði í sumar fyrir fólk sem hefur einangrast félagslega og misst tökin á lífi sínu. Þjónustan gengur út á að farið er inn á heimili sem drabbast hafa niður, þeim komið í mannsæmandi horf og reynt að rjúfa félagslega ein- angrun einstaklinga. Vel hefur tekist til, t.d. í tilfelli konu á átt- ræðisaldri sem vart hafði farið út af heimili sínu í þrjú ár. Félagsleg einangrun helst gjarnan í hendur við fátækt. »26 Reynt að rjúfa fé- lagslega einangrun  Stjórnun uppsjávarveiða Íslend- inga skilar góðum árangri sam- kvæmt niðurstöðum rannsóknar sem unnin var með tilstyrk Nor- rænu ráðherranefndarinnar. Upp- sjávarveiðar Íslendinga, Norð- manna, Færeyinga, Dana og Breta voru bornar saman. „Niðurstaðan er að hér séu sköp- uð mestu möguleg verðmæti úr þessari auðlind og meira að segja komast þeir að þeirri niðurstöðu að það væri hægt að bæta verulega af- komu hinna landanna með því að leyfa Íslendingum að veiða stærri hluta af uppsjávaraflanum í Norð- austur-Atlantshafi gegn gjaldi. Lykillinn að þessum árangri er framseljanlegur kvóti útgerðarfyr- irtækja,“ segir Daði Már Kristó- fersson, dósent við HÍ. »20 Hámarksverðmæti af uppsjávarveiðum  Þrátt fyrir umsögn allsherj- arnefndar um að lög um ráðherra- ábyrgð standist stjórnarskrá Íslands eru formaður hennar, Róbert Mars- hall, og fulltrúar Sjálfstæðisflokks sammála um að ekki eigi að ákæra ráðherrana fyrrverandi. „Við vorum fyrst og fremst að fjalla um það hvort lögin um ráðherraábyrgð og landsdóm stæðust 70. grein stjórn- arskrárinnar og komumst að þeirri niðurstöðu að svo væri. Það voru þau álitaefni sem til okkar var beint og við svörum þeim en tökum enga afstöðu til ákæranna,“ segir Róbert. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks skila sér- áliti í dag. »6 Standast 70. grein stjórnarskrár SKEMMTUM OKKUR INNANLANDS ÍSLENSKA/SIA .I S/ FL U 51 58 8 09 /1 0 FLUGFELAG.IS Margt var um manninn á Vísindavöku Rannís sem haldin var í gærkvöldi en síðasti föstudagur í september er dagur evrópska vísindamannsins. Á vökunni var ýmislegt á boðstólum fyrir áhuga- menn um vísindi og vísindamenn framtíðar- innar. Meðal annars bauð Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness gestum að prófa stjörnusjónauka og skoða Satúrnus, reyndar á ljósmynd þar sem ekki viðraði vel til stjörnuskoðunar. Morgunblaðið/Ómar Vísindamenn framtíðarinnar kíktu á Satúrnus Ágúst Ingi Jónsson Guðmundur Hermannsson Fram kemur í greinargerð sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrr- verandi utanríkisráðherra, sendi þingmönnum í gær að hún hafi skrif- að undir yfirlýsingu til norrænna seðlabanka í maí 2008 vegna þess að Jóhanna Sigurðardóttir, þáverandi félagsmálaráðherra, var farin af fundi þegar skrifað var undir. Jóhanna samþykk „Yfirlýsingin fól í sér áform um tilteknar aðgerðir á sviði efnahags- mála, í starfsemi Íbúðalánasjóðs og gagnvart bönkunum. Það sem að ríkisstjórninni sneri var fyrst og fremst ábyrg stefna í ríkisfjármál- um og breytingar á Íbúðalánasjóði. Ég skrifaði undir yfirlýsinguna sem oddviti Samfylkingarinnar vegna þess að Jóhanna Sigurðardóttir, sem kölluð hafði verið til fundar vegna þessarar yfirlýsingar hinn 15. maí 2008, var farin af fundi þegar skilaboð komu frá norrænu seðla- bankastjórunum um að það þyrfti að ganga frá yfirlýsingunni þegar í stað. Ég skrifaði undir þar sem málefni Íbúðalánasjóðs heyrðu undir félags- málaráðherra Samfylkingarinnar og ég hafði gengið úr skugga um að ráðherrann var samþykk því sem í yfirlýsingunni fólst. Með þeim hætti gekkst ég í skuldbindingu fyrir því að unnið yrði að málefnum Íbúða- lánasjóðs í samræmi við það sem fram kom í yfirlýsingunni – sem var og gert,“ segir í greinargerð Ingi- bjargar Sólrúnar. Í þingsályktunartillögu meiri- hluta þingmannanefndar, sem fjallaði um skýrslu rannsóknar- nefndar Alþingis, er m.a. lýst þeirri afstöðu að Ingibjörg Sólrún hafi brotið lög um ráðherraábyrgð með því að bregðast skyldu sinni um að halda ráðherrafundi um mikilvæg stjórnarmálefni. Sérstök ástæða hafi meðal annars verið til þess í kjölfar yfirlýsingar til sænsku, dönsku og norsku seðla- bankanna, sem undirrituð var 15. maí. Hafi Ingibjörgu Sólrúnu borið skylda til að fylgja þessari yfirlýs- ingu eftir innan ríkisstjórnarinnar. Ingibjörg Sólrún segir að það sé aðeins á valdi forsætisráðherra að boða til ráðherrafunda. Þá segir hún rangt að undirritun fyrrgreindrar yfirlýsingar hafi verið embættisverk utanríkisráðherra. „Ég dreg ekki úr því að í undirrit- uninni fólst skuldbinding okkar allra sem undir hana rituðum en hún upp- hefur samt ekki þá skiptingu verk- efna og ábyrgðar sem er grundvöll- ur íslenskrar stjórnskipunar,“ bætir Ingibjörg Sólrún við. Skrifaði undir fyrir Jóhönnu  Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sendir þingmönnum greinargerð  Undirritun yfirlýsingar til norrænna seðlabanka ekki embættisverk utanríkisráðherra MFullkunnugt um fundinn »2 Samfylkingin Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir og Jóhanna Sigurðardóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.