Morgunblaðið - 25.09.2010, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 25.09.2010, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2010 Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Íslenska bíómyndin Brim verður sýnd í lok Alþjóðlegu kvikmyndahátíð- arinnar í Reykjavík um næstu helgi. Þetta er frumsýning myndarinnar en Árni Ólafur Ásgeirsson leikstýrir henni. Myndin er byggð á samnefndu leik- riti Jóns Atla Jónassonar sem frum- sýnt var árið 2004. Brim gerist um borð í línuskipi sem velkist um á haf- inu og er komið alla leið út á Banka í lok verks. Verkið segir frá sjö manna áhöfn skipsins og samfélagi þeirra um borð. Þegar stelpa kemur til liðs við áhöfnina breytist ýmislegt; valda- jafnvægi riðlast og sýn sjómannanna hvers á annan. Einsog skrifað var í Morgunblaðinu um verkið á sínum tíma; „Gleði, depurð og draumar áhafnarinnar renna saman við brælu hafsins og rótleysi tilverunnar í ljúf- sárum, mannlegum gleðileik“. Haft var eftir Jóni Atla um verkið: „At- burðirnir sem eiga sér stað í verkinu byggjast allir á sannsögulegum at- burðum héðan og þaðan, bæði af minni upplifun og annarra. Þetta eru allt atburðir sem hafa gerst í einni eða annarri mynd; ekkert endilega á sama bátnum eða á sama tíma. Þetta er at- laga að sjómannakúltúrnum, ég er að reyna að gera honum skil.“ Raunsæisverk Þetta raunsæisverk sem sett var upp af Vesturportshópnum heillaði Árna Ólaf það mikið að hann talaði við leikarana um það hvort þau ættu ekki að gera bíómynd úr þessu. Þau sam- mæltust um það og nú sex árum seinna sjá áhorfendur afrakstur þessa samstarfs. Allur hópurinn lagði sitt af mörkum við skrif handritsins en Ottó Geir Borg hafði yfirumsjón með því. Mögu- leikar kvikmyndarinnar voru nýttir til hins ýtrasta enda hægt að búa til mjög dramatískt og dýna- mískt umhverfi um þetta efnismikla verk með myndforminu. Listamennirnir sjóveikir Árni Ólafur viðurkennir að eitthvað hafi verið um sjóveiki í hópnum með- an á tökum stóð. „Við vorum með vana sjómenn með okkur, annars hefðum við örugglega aldrei komið til baka. Það hljómar ekki gæfulega að einhverjar listaspírur úr 101 Reykja- vík séu að belgja sig úti á ballarhafi,“ segir hann. Kvikmyndahópurinn gat ekki notað sjóveikispillur því fólk varð svo dasað af þeim að ekkert varð úr leik eða vinnu. En að sögn Árna urðu þau því færari í að útbúa ýmiskonar mixtúrur gegn sjóveiki. Myndin verður frumsýnd á laug- ardaginn, 2. október. Þá fá aðstand- endur myndarinnar að sjá hana í fyrsta sinn og aðstandendur kvik- myndahátíðarinnar enda er þetta lokasýning hátíðarinnar. Mánudaginn 4. október fer hún síðan í almennar sýningar í fimm bíóhúsum. Drama Hið dýnamíska umhverfi sjómannsins hefur sjaldan verið notað í íslenskri kvikmyndagerð en nú er breyting þar á. Sjómaðurinn kvikmyndaður  Íslensk bíómynd um drama á hafi úti frumsýnd um næstu helgi á RIFF Árni Ólafur Ásgeirsson fæddist í Reykjavík 1972. Hann nam leik- stjórn við pólska kvikmyndaskól- ann í Lodz. Þaðan útskrifaðist hann 2001. Árni vann í hinum og þessum kvikmyndaverkefnum á Íslandi, þar sem hann vann sig upp í að vera fyrsti aðstoðarleik- stjóri í stuttmyndum, auglýs- ingum og þremur kvikmynd- um, áður en hann leikstýrði sinni fyrstu kvikmynd í fullri lengd, Blóðbönd. Um næstu helgi verður frumsýning á hans annarri bíómynd, Brim. Árni Ólafur Ásgeirsson LEIKSTJÓRINN Árni Ólafur Ásgeirsson Enron-hneykslið reið yfirBandaríkin árið 2001 þeg-ar bandaríski orkurisinnEnron varð galdþrota. Enron var með mörg járn í eldinum, fjárfesti í fjölmörgum fyrirtækjum af ólíku tagi. Þetta var upphaflega stöndugt fyrirtæki, stofnað 1985, en fáum árum síðar settust áhættusækn- ir stjórnendur við stjórnvölinn. Þeir fóru offari í fjárfestingum og lifðu fram í tímann án innistæðu. Tálmynd- in virtist fullkomin. Stjórnendur földu gríðarlegt tap með sýndarfjárfest- ingum, rangfærslum og bókhalds- brellum og nutu dyggrar aðstoðar eins stærsta endurskoðunarfyr- irtækis heims sem þeir tóku með sér í fallinu. Hluthafar töpuðu nærri 11 billjónum dollara og um 20 þúsund starfsmenn töpuðu gífurlegum fjár- hæðum í formi lífeyris. Fallið var hátt og forsprakkarnir og stjórnendur En- ron, Kenneth Lay, Jeff Skilling og Andrew Fastow, þurftu að gjalda fyr- ir græðgi sína og fjársvik. Margt í sögu Enron minnir á fjármálakrepp- una hér á Íslandi þótt hvergi sé minnst á þessi líkindi í uppsetningu Borgarleikhússins. Þó dylst engum að þetta verk á sannarlega mikið skylt við íslenskan veruleika. Enron er þriðja leikrit hins unga höfundar, Lucy Prebble. Verkið var frumsýnt árið 2009 í Royal Court í London og hlaut strax gífurlega at- hygli. Höfundi tekst að gera hinn flókna fjármálaheim aðgengilegan al- menningi um leið og hann skyggnist í innra líf þeirra persóna sem þátt tóku í þessum hildarleik. Áhorfendur fá innsýn í hvernig fyrirtækið óx og hvernig það hrundi. Verkið er mjög vel skrifað og lýsir myrkum hliðum mannlegs eðlis á óvæginn hátt. Leik- ritið Enron sýnir áhorfendum glöggt firringu mannsins, ranghugmyndir, endalausa trú á peninga og fjár- málaheiminn þar sem karllæg gildi tröllriðu öllu. Í þessum heimi skipti öllu að vera áræðinn og töff. Í hlutverki Jeffs Skillings er Stefán Hallur Stefánsson. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Stefán leikur hlutverk skúrksins en þetta er hans allra besta frammistaða hingað til. Hann túlkar frábærlega hinn siðblinda fjár- málasnilling og nær meira að segja að öðlast örlitla samúð í lok verksins. Stundum virðist sem Stefán trúi í al- vörunni á það sem persóna hans hefur að segja og hægt er að ímynda sér að auðvelt hafi verið að hrífast með þess- um manni og hugsjónum hans. Berg- ur Þór Ingólfsson fer með hlutverk fjármálastjórans, Andy Fastow. Fa- stow virðist vera ómannblendinn og ekki allra, þó venjulegur náungi sem fær tækifæri til að sanna sig innan fyrirtækisins og nýtir sér það til fulln- ustu. Bergur nær að draga upp trú- verðuga mynd af hinum fullkomna tækifærissinna. Hjalti Rögnvaldsson fer ágætlega með hlutverk stjórnar- formannsins Kenneths Lay, forríks viðskiptajöfurs, sem er siðblindan uppmáluð. Hann vílar ekki fyrir sér að múta fólki, flokkum eða stjórn- málamönnum. Hjalti er bæði hógvær og yfirvegaður í túlkun sinni. Jóhanna Vigdís Arnardóttir fer með hlutverk Claudiu, persónu sem er uppspuni höfundar en er fulltrúi þeirra sem sviknir voru af þremenningunum. Hún er kona með bein í nefinu, nýtir sér bæði kynþokka sinn og greind til að ná markmiðum sínum. Jóhanna Vigdís gerir persónunni góð skil svo sem vænta mátti enda hefur hún mikla sviðsnærveru. Leikarahópurinn myndar góða samstæða heild og ýmsir bregða sér í ólík gervi. Vert er að minnast sér- staklega á leik Vals Freys Ein- arssonar og Halldóru Geirharðs- dóttur. Valur er öryggið uppmálað í hlutverki sínu sem lögfræðingur Skill- ings og Halldóra hefur þann eig- inleika að geta bæði verið í framlínu leikara á sviði en einnig látið lítið fyrir sér fara í stórum hópi. Bæði kómík og drama leikur í höndum hennar og hér sýnir hún það vel í sínum hlutverkum. Aðrir leikarar stóðu sig með prýði og var gaman að sjá ný andlit á sviði Borgarleikhússins. Danshreyfingar sem hannaðar eru af Sveinbjörgu Þórhallsdóttur voru skemmtilegar og einfaldar og var hópurinn mjög sam- stilltur í þeim. Annað sem var eftirtektarvert er að framsögn var til fyrirmyndar hjá öll- um leikurunum. Tungutakið var lipurt og þýðing Eiríks Arnar Norðdahl á verkinu góð og tilgerðarlaus. Leikmynd Barkar Jónssonar var snjöll. Þrír stórir kassar sem virtust hvíla á öðrum minni kössum sem hægt var að færa til að vild. Stöku sinnum virtust stærri kassarnir (fyr- irtækið Enron) vera í lausu lofti og stundum hvíldi það á stöflum af köss- um fullum af skuldum fyrirtækisins. Þessi táknmynd var undirstrikuð af myndbandshönnun Gideons Kiers. Þeir félagar hafa unnið saman áður og hefur samstarf þeirra oft heppnast mjög vel. Það gerir það einnig hér. Áhrifaríkum myndum eða mynd- skeiðum er varpað á leikmyndina og beinlínis gæða hana lífi. Lýsing Þórð- ar Orra Péturssonar styður við leik- mynd og myndband á hógværan hátt. Tónlist Sigtryggs Baldurssonar og Helga Svavars Helgasonar er kraft- mikil á köflum en lágstemmd þegar það á við og er það vel. Torbjørn Knudsen er þeim félögum stuðningur með hljóðmynd sem er ansi áhrifarík. Búningar Helgu Stefánsdóttur eru í heildina góðir. Þarna er mikið um jakkaföt og dragtir, dæmigerð „við- skipta-outfit“. Sumir búningar eru þó betur heppnaðir en aðrir og fannst mér kannski vanta flottheitin á sumar kvenpersónurnar. Þetta var jú aðal- þotulið Bandaríkjanna á sínum tíma. Stefán Jónsson leikstjóri hefur hér fengið einstaklega bitastætt verkefni í hendurnar og unnið mjög vel úr því. Stefán er oft pólitískur í leikstjórnar- verkum sínum og þarna fær hann greinilega að njóta sín. Leikritið En- ron er áhrifamikið verk og sýningin er einstaklega kraftmikil og skemmtileg. Búktal Halldór Gylfason í hlutverki endurskoðanda í Enron. Borgarleikhús Enron eftir Lucy Prebble bbbbm Leikarar: Stefán Hallur Stefánsson, Jó- hanna Vigdís Arnardóttir, Halldóra Geir- harðsdóttir, Lára Jóhanna Jónsdóttir, Bergur Þór Ingólfsson, Ellert A. Ingi- mundarson, Halldór Gylfason, Valur Freyr Einarsson, Hjalti Rögnvaldsson, Hilmar Guðjónsson, Vigdís Gunn- arsdóttir, Viktor Már Bjarnason, Walter Grímsson og Áslaug Lárusdóttir. Leik- stjórn: Stefán Jónsson. Frumsýning 23. sept. á Stóra sviði Borgarleikhússins. INGIBJÖRG ÞÓRISDÓTTIR LEIKLIST Bóla sem sprakk  Plötusnúðakeppni verður haldin á Nasa í kvöld. Húsið verður opnað klukkan 21:00, en keppnin sjálf fer í gang klukkan 21:30. Keppnin er op- in öllum á aldrinum 20 ára og eldri. Kynnir kvöldsins er hinn marg- rómaði Erpur Eyvindarson aka Blaz Roca. Dómnefndina skipa Jón Atli // Sexy Lazer, Margeir // Jack Schidt, Arnviður // Exos, Sóley // DJ Sóley, Hjalti // Casanova. Sjá www.djkeppni.is. Plötusnúðakeppni fer fram á NASA í kvöld Fólk  Í ljósi fréttar um að Skjár bíó sé að fara að bjóða áskrifendum sínum að leigja staka þætti af þáttaröðinni The Event ber að geta þess að þáttaröðin verður á dagskrá Stöðv- ar 2. Sýningar hefjast á mánudag- inn og strax að lokinni sýningu verður þátturinn í boði fyrir áskrif- endur á Stöð 2 Frelsi en degi síðar til útleigu í Skjá Bíó. Þess má geta að aldrei áður hefur tekist að hefja sýningar á nýrri leikinni erlendri þáttaröð svo nálægt heimsfrumsýn- ingu erlendis. Stöð 2 frumsýnir The Event hérlendis RIFF | ALÞJÓÐLEG KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK Fólk46 MENNING

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.