Morgunblaðið - 25.09.2010, Blaðsíða 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2010
Sverrir Kristinsson,
framkvæmdastjóri,
lögg. fasteignasali
Guðmundur
Sigurjónsson,
lögfræðingur,
lögg. fasteignasali
Þorleifur St.
Guðmundsson,
lögg. fasteignasali
Kjartan Hallgeirsson,
lögg. fasteignasali
Geir Sigurðsson,
lögg. fasteignasali
Hilmar Þór
Hafsteinsson,
lögg. leigumiðlari,
lögg. fasteignasali
Magnús Geir
Pálsson,
sölumaður
Þórarinn M.
Friðgeirsson,
lögg. fasteignasali
Jóhanna
Valdimarsdóttir,
gjaldkeri
Elín Þorleifsdóttir,
ritari
Reykjavík
Frá 1957
Elsta starfandi fasteignasala landsins
S : 5 8 8 9 0 9 0 • S í ð u m ú l a 2 1 • 1 0 8 R e y k j a v í k w w w. e i g n a m i d l u n . i s
HÚSNÆÐI ÓSKAST
Sóleyjarrimi - nýlegt raðhús Falleg
og vel skipulagt 208,1 fm nýlegt raðhús á
tveimur hæðum. Eignin skiptist í á neðri hæð;
forstofu, gestasnyrtingu, tvær stofur og eld-
hús. Á efri hæð; fjögur svefnherbergi, sjón-
varpsstofu, baðherbergi og þvottaherbergi.
Mikil lofthæð er á neðri hæðinni. Hiti er í gólf-
um. Afgirtur hellulagður suðurgarður. Hiti er í
hellulögðu bílaplani. Skipti á 2ja til 4ra her-
bergja íbúð kemur til greina. V. 49,8 m. 4697
Frostafold - laus strax Rúmgóð 6 her-
bergja 141,2 m2 íbúð á efstu hæð auk 24,5
m2 bílskúrs, samtals 165,7 fm Fjögur svefn-
herbergi. Íbúðin er á 3. og 4. hæð með frá-
bæru útsýni og stórum suðursvölum. V. 27,9
m. 6027
Andrésbrunnur - laus strax Nýleg 3ja
herbergja íbúð á 2. hæð í góðu lyftuhúsi
ásamt stæði í þriggja bíla bílageymslu. Húsið
er fallegt og stendur á góðum stað. Um er að
ræða góða og vel skipulagða íbúð í nýlegu
þriggja hæða lyftuhúsi. V. 21,9 m. 6003
Tröllakór - bílskýli - laus strax
Glæsileg vel skipulögð nýleg 3ja herbergja
102 fm íbúð á 3.hæð í nýlega álklæddu lyftu-
húsi ásamt stæði í bílageymslu. Flísar á gólf-
um. Vandaðar innréttingar. Fallegt útsýni.
Laus strax, lyklar á skrifstofu. V. 22,9 m. 6025
Skrifstofubygging óskast - staðgreiðsla
Skrifstofubygging - 2000-3000 fm óskast til kaups. Staðgreiðsla. Traustur aðili hefur
beðið okkur að útvega 2000-3000 fm skrifstofubyggingu í Reykjavík. Staðgreiðsla í
boði. Nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson í síma 861-8514
Einbýlis- og raðhús í Fossvogi óskast
Höfum fjársterka kaupendur að góðum einbýlis- og raðhúsum í Fossvogi. Allar nánari
upplýsingar veita Kjartan Hallgeirsson í síma 824-9093 eða Sverrir Kristinsson í síma
861-8514.
Einbýlishús í Vesturborginni óskast.
Æskileg stærð 400-500 fm Traustur kaupandi óskar eftir 400-500 fm einbýlishúsi í
Vesturborginni. Góðar greiðslur í boði.
Einbýlishús í Þingholtunum óskast - staðgreiðsla
Óskum eftir 300-400 fm einbýli í Þingholtunum. Verð mætti vera á bilinu 80-150 millj-
ónir. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
Einstaklega fallegt og vel
skipulagt 219,4 fm einbýli á
tveimur hæðum ásamt inn-
byggðum tvöföldum 46,7 fm
bílskúr. Samtals er eignin
266,1 fm auk geymslu í risi
sem er óskráð. Eignin skipt-
ist í á jarðhæð; forstofu,
þvottaherbergi, eldhús, hol,
stofu, borðstofu, stofu, þrjú
svefnherbergi og baðher-
bergi. Á efri hæð er alrými
með 20 fm útsýnissvölum.
Húsið stendur á 1.297,0 fm
lóð. V. 65,0 m. 6023
EYKTARHÆÐ 7 - GLÆSILEG EIGN
Efri sérhæð auk bílskúrs
við Vatnsholt í Reykjavík,
samtals 160,6 fm Um er
að ræða fallegt hús með
grónum og fallegum garði.
Íbúðin sjálf er upprunaleg
að innan og þarfnast
standsetningar. Tvennar
svalir eru á íbúðinni. V.
29,9 m. 6020
VATNSHOLT 4 - SÉRHÆÐ MEÐ BÍLSKÚR
Fallegt og vel staðsett
306 fm einbýli í Garða-
bæ með innbyggðum
bílskúr. Arinn er í stofu.
Eldhúsinnrétting er
vönduð og með granít á
borðum. Nýlegt planka
parket á hluta hússins.
Fallegur garður, m.a.
nýleg og vegleg girðing
við lóðarmörk. V. 67,0
m. 6035
ÁSBÚÐ - STÓRT OG RÚMGOTT
Fallegt endaraðhús á
2.hæðum samt. 213,7 fm
Bílskúr 30,9 fm Húsið hefur
verið talsv. endurn. m.a.
endursteinað að utan. Nýl.
eldhús, baðherbergi, inni-
hurðir og fleira. Laust strax.
Lyklar á skrifstofu.
V. 36,9 m. 6026
VESTURBERG - ENDARAÐHÚS - LAUST STRAX
Mjög flott 3ja herbergja
107,4 m2 endaíbúð á
efstu hæð í 3ja hæða
fjölbýli við Rauðamýri 3 í
Mosfellsbæ. Tvennar
svalir. Hátt til lofts. Mik-
ið útsýni. Björt íbúð.
Þetta er glæsileg og
björt íbúð með útsýni til
fjalla og út á sjó.
Íbúðin er laus og eru
lyklar á Eignamiðlun. V.
22,5 m. 6028
RAUÐAMÝRI 3 - MIKIL LOFTHÆÐ
194,5 fm raðhús á fjórum pöllum ásamt 19,5 fm bílskúr á eftirsóttum stað í Fossvogi. Út-
búin hefur verið sér íbúð á neðsta pallinum og er lokað á milli íbúða. Víða er komið að við-
haldi. Húsið er laust strax. V. 42,9 m. 6032
OPIÐ HÚS MÁNUDAG FRÁ KL. 17:00 - 18:00
HJALLALAND 13 - RÚMGOTT RAÐHÚS
Vandað 265,3 fm par-
hús á mjög góðum
stað á Seltjarnarnesi.
Glæsileg afgirt timbur-
verönd og heitur pottur
. Húsið skiptist m.a. í 4-
5 svefnherbergi, þrjár
stofur, arinn. Endurnýj-
uð baðherb. Sérhönn-
uð lýsing. Hiti í gólfum.
Góður bílskúr m. milli-
lofti.
V. 65 m. 4847
EIÐISMÝRI - GLÆSILEGT PARHÚS.
OPIÐ HÚS
OPIÐ HÚS
OPIÐ HÚS
OPIÐ HÚS MÁNUDAG FRÁ KL. 17:00 - 18:00
OPIÐ HÚS MÁNUDAG
FRÁ KL. 17:00 - 18:00
www.gisting.dk/gisting.html
sími: 499 20 40 (Íslenskt símanúmer)
Ódýr gisting í Kaupmannahöfn
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 1200
Með dómum
Hæstaréttar 16. júní
2010, í málum nr. 92/
2010 og 153/2010, var
komist að þeirri nið-
urstöðu að kaupleigu-
samningar þeir, sem
um var deilt í mál-
unum, væru um lán í
íslenskum krónum,
sem bundið væri við
gengi tiltekinna er-
lendra gjaldmiðla, og að slík geng-
istrygging væri óheimil eftir ófrá-
víkjanlegum reglum laga nr.
38/2001 um vexti og verðtryggingu.
Þann 16. september sl. var kveð-
inn upp dómur í Hæstarétti í máli
nr. 471/2010 (vaxtadómur) þar sem
tekist var á um vaxtakjör sam-
kvæmt kaupleigusamningi sem ein-
staklingur gerði við Lýsingu hf.
vegna bifreiðakaupa þess fyrr-
nefnda. Ágreiningslaust var í mál-
inu að gengistryggingarákvæði
samningsins væri ógilt. Niðurstaða
Hæstaréttar er flestum kunn,
þ.e.a.s. að vextir samkvæmt samn-
ingnum skyldu, frá lántökudegi,
taka mið af lægstu óverðtryggðu
vöxtum sem Seðlabanki Íslands
ákveður.
Áhugavert er hins vegar að velta
því fyrir sér, hvort niðurstaðan í
vaxtamálinu hefði hugsanlega get-
að orðið önnur ef aðili samningsins
hefði verið fyrirtæki en ekki ein-
staklingur. Að mati undirritaðra
eru sterkar vísbendingar hvað
þetta varðar að finna í forsendum
dómsins. Er þar einkum tvennt
sem rétt er að vekja sérstaka at-
hygli á.
Annars vegar telur Hæstiréttur
ástæðu til að taka sérstaklega fram
í forsendum dómsins, að niðurstaða
réttarins, varðandi ólögmæti geng-
istryggingar í hæstaréttarmál-
unum frá 16. júní sl., sé reist á því
að hún brjóti í bága við ófrávíkj-
anlegar reglur vaxtalaga, en sé
hvorki byggð á ákvæðum samn-
ingalaga nr. 7/1936 né ólögfestum
reglum fjármunaréttar um ógild-
ingu samninga. Hins vegar kemur
fram í forsendum dómsins, að bein
og órjúfanleg tengsl séu milli hins
ólögmæta ákvæðis um geng-
istryggingu og fyrirmæla um vexti
samkvæmt samningnum, sem leiði
til þess að líta verði framhjá
ákvæði samningsins um vaxtahæð.
Hæstiréttur telur því að atvikum
svari til þess að samið hafi verið
um að greiða vexti af láninu án
þess að tiltaka hverjir þeir skyldu
vera. Af þessu leiði að líta verði til
4. gr. vaxtalaga þar sem fram kem-
ur að þegar svo stendur á skuli
gilda lægstu óverðtryggðu vextir
Seðlabanka Íslands á hverjum
tíma.
Í framangreindu hlýtur að felast
að það hefði engu breytt, hvað
varðar ágreining um vexti sam-
kvæmt samningnum, þótt aðili
málsins hefði verið fyrirtæki en
ekki einstaklingur, enda niðurstaða
réttarins ekki reist á sjónarmiðum
um neytendavernd. Eðli máls sam-
kvæmt hljóta ennfremur sömu
„beinu og órjúfanlegu tengslin“ að
vera á milli hins ólögmæta geng-
istryggingarákvæðis og vaxta sam-
kvæmt samningnum, sama hverjir
samningsaðilar eru.
Það er því eindregin skoðun
undirritaðra að vaxtadómur
Hæstaréttar taki jafnt til ein-
staklinga og fyrirtækja þegar um
hliðstæða samninga er að ræða og
þann sem um var deilt í málinu.
Þrátt fyrir að fyrirhuguð lagasetn-
ing efnahags- og viðskiptaráðherra
sé góðra gjalda verð, þá gefa for-
sendur Hæstaréttar ekki tilefni til
þeirrar aðgreiningar milli ein-
staklinga og fyrirtækja sem þar er
áformuð. Þvert á móti sýnist ein-
boðið að sama niðurstaða eigi að
gilda óháð því hver á í hlut.
Hugleiðingar um fordæmis-
gildi vaxtadóms Hæstaréttar
Eftir Einar Huga
Bjarnason og
Jóhann H. Hafstein
» Það er því eindregin
skoðun undirritaðra
að vaxtadómur Hæsta-
réttar taki jafnt til ein-
staklinga og fyrirtækja
þegar um hliðstæða
samninga er að ræða
Einar Hugi
Bjarnason
Höfundar eru lögmenn hjá ERGO
lögmönnum.
Jóhann H.
Hafstein