Morgunblaðið - 25.09.2010, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 25.09.2010, Blaðsíða 25
FRÉTTIR 25Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2010 Áfrýjunarnefnd í Noregi ákvað í gær að kanna skyldi á ný mála- reksturinn gegn Arne Treholt sem sakfelldur var á níunda áratugnum fyrir að njósna fyrir KGB, leyni- þjónustu Sovétmanna og þiggja fé af íröskum njósnurum. Fram hafa komið ásakanir um að lögreglan hafi falsað sönnunargögn í málinu gegn Treholt. Helen Sæ- ter, sem fer fyrir nefndinni, sagði að þótt málið yrði nú kannað betur væri ekki þar með sagt að réttar- höldin yrðu endurtekin. Ákvörðun um það yrði tekin síðar en hún vildi engu spá um það hve langan tíma könnunin tæki. Sæter sagði að ásakanirnar á hendur lögreglunni væru mjög alvarlegar en hún er m.a. sögð hafa falsað mynd af tösku með peningum. Treholt lýsti í gær mikilli ánægju með þróun mála en hann hefur þrisvar reynt að fá mál sitt tekið upp á ný, síðast 2005. kjon@mbl.is Athuga Treholt- málið á ný Niðurstaðan gæti orðið ný réttarhöld Spjall Treholt (lengst t.v.) með tveim vinum í KGB Sovétmanna. Kristján Jónsson kjon@mbl.is Belgísk kona og þjálfaður fallhlífar- stökkvari, Els Clottemans, kom í gær fyrir rétt í borginni Tongeren, sökuð um að hafa myrt keppinaut sinn í ástamálum með því að valda tjóni á fallhlíf keppinautarins. Clottemans harðneitar þessum ásökunum. Konan sem dó hét Els van Doren og var 38 ára gömul. Hún og hin ákærða stukku í nóvember 2006 ásamt tveim öðrum fallhlífarmönn- um úr 4000 metra hæð yfir Zwart- berg-héraði og létu sig falla niður í um þúsund metra hæð en þá var ætl- unin að opna fallhlífarnar og svífa til jarðar. Konurnar tvær og ástmaður- inn, sem í fréttum er aðeins nefndur Marcel S., héldust í hendur í loftinu en slepptu þegar réttri hæð var náð. Þegar van Doren hugðist kippa í strenginn kom í ljós að hann hafði verið skorinn í sundur og varafall- hlífin opnaðist ekki heldur. Van Doren féll til jarðar í húsa- garði í þorpinu Opglabbeek og dó þegar. Hún var með upptökuvél á hjálmi sínum og sýndi myndin fall hennar þar til yfir lauk. Clottemans, sem er 26 ára, var handtekin í janúar 2007 en þá hafði lögreglan slegið því föstu að strengirnir hefðu verið skornir í sundur. Clottemans er sögð hafa tryllst af reiði þegar í ljós kom að kærastinn væri farinn að vera með van Doren. Ástardrama og morð? Reuters Ákærð Clottemans er réttarhöldin hófust í Tongeren í Flandern í gær.  Belgísk kona sögð hafa rutt keppinaut sínum um ástir karlmanns úr vegi með því að eyðileggja fallhlíf Um 930 þúsund sjómenn hafa undirritað áskor- un til ríkja heims um að þegar í stað verði gripið til hnattrænna aðgerða gegn sjó- ránum, að sögn BBC. Voru 12 kassar með und- irritunum afhent- ir fulltrúum Sameinuðu þjóðanna á alþjóðlega siglingadeginum. Sjórán eru einkum tíð við strend- ur Vestur-Afríku og sums staðar í Austur-Asíu, einnig í grennd við strönd Sómalíu í Austur-Afríku. Sómalskir sjóræningjar hafa nú alls 354 sjómenn í haldi. Alþjóðlegur hópur var settur á stofn í fyrra til að berjast gegn sjóránum á Adenflóa og við Sómalíu. Taka herskip frá mörgum löndum þátt í eftirliti á þessum slóðum. kjon@mbl.is Vilja að bund- inn verði endi á sjórán Ógnin Sómalskir sjóræningjar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.