Morgunblaðið - 25.09.2010, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 25.09.2010, Blaðsíða 14
BAKSVIÐ Andri Karl andri@mbl.is Mikið er um vel rekin lítil og meðalstór fyrir- tæki hér á landi sem jafnvel hafa flotið í gegn- um ólgusjó í áranna rás og gætu staðið af sér allt annað en slíka holskeflu sem gengis- tryggðu lánin eru þeim. Þetta segir Ferdinand Hansen, verkefnastjóri gæðastjórnunar hjá Samtökum iðnaðarsins. Hann segir fyrirtækin mörg hver blómleg ef miðað er við þær for- sendur sem gefnar voru þegar lánin voru tek- in. Hæstaréttarlögmaðurinn Björn Þorri Viktorsson segir ljóst að jafnræðisreglan sé mölbrotin ef lagasetning á borð við þá sem við- skipta- og efnahagsráðherra boðar nær fram að ganga. Í tilkynningu frá efnahags- og viðskiptaráð- herra frá sextánda þessa mánaðar segir: „Út frá sanngirnissjónarmiðum er talin þörf á að skýra lögmæti gengisbundinna lána til fyrir- tækja. […] Rík neytendasjónarmið hníga að því að einstaklingar fái meiri vernd en fyrir- tæki. Jafnframt eru miklir almannahagsmunir fyrir því að kostnaður falli ekki á skattborgara vegna lána fyrirtækja.“ Fínn rekstur miðað við forsendur Heildarvirði gengistryggðra lána til fyrir- tækja hefur verið áætlað um 841 milljarður króna. Mörg þeirra fyrirtækja eru lítil og munu aldrei koma til með að ráða við að greiða lán sín að fullu til baka. Ferdinand segir að Samtök iðnaðarins hafi góða yfirsýn yfir sviðið og fari meðal annars út í mörg þeirra, sem eft- ir því óska, kynnist rekstrinum og geri úttekt. „Kannski ekki endilega fjárhagslegri stöðu en rekstrarlegri stöðu og hvort gera megi betur.“ Ferdinand segir að lögð sé áhersla á að fyrirtækin séu með eins góðan og vandaðan rekstur og stígandi sé í því að stjórnendur vilji geta sýnt það út á við. Hann segir að það geti meðal annars skipt sköpum þegar kemur að skuldaaðlögun. „Hluti af þessu er að menn fylgjast með því sem þeir bera úr býtum og þannig að þeir eru alltaf að skoða eigin afkomu og sjá þá hvað þeir geta staðið undir miklu; eru með það svart á hvítu á hvaða forsendum þeir geta lifað af og hvaða ekki. Það voru fyrst og fremst ekki mistök að hafa tekið of há lán, heldur að lánin hafi hækkað svo mikið. Og mjög mörg fyr- irtæki gætu verið að borga af upprunalegu láni, enda inni í þeirra reiknimódeli.“ Ferdinand segir rekstur fjölmargra fyrir- tækja fínan miðað við þær forsendur sem gefnar voru á sínum tíma. „En svo brestur allt og menn geta raunar verið með fínan og flott- an rekstur þrátt fyrir það en það er þrátt fyrir það aldrei möguleiki að standa undir þessari auknu greiðslubyrði sem menn töldu sig ekk- ert vera að stofna til. Þegar menn telja sig geta borgað milljón á mánuði í afborganir en svo eru þær allt í einu orðnar þrjár eru for- sendur brostnar. Jafnvel þó maður sé með fyrirtaks rekstur.“ Margir óánægðir Björn Þorri er með málsókn í bígerð sem um 60-70 fyrirtæki standa að, en í nafni eins til að fá fordæmi. Það er vegna gengistryggðra fjármögnunarleigusamninga sem sumir eru upp á tugi milljóna króna. „Það er hrikalegt hvað við horfum upp á þar. Það er fullkomið samráð milli fjármögnunarfyrirtækja þar um, að skýra þessa samninga þannig að þeir eigi ekki við dómana sem féllu í júní, þ.e. að þeir séu ekki ólögmætir. Þeir hanga enn á því að þetta séu leigusamningar en ekki lánssamn- ingar. Þeir byggðu raunar einnig á því í kaup- leigusamningunum en því var hafnað.“ Hvað varðar fyrirhugaða lánasetningu tek- ur Björn Þorri fram að hann hafi ekki séð frumvarpið en skjólstæðingar hans séu margir hverjir mjög óánægðir með það sem gefið hef- ur verið út. Meðal annars eru það vörubíl- stjórar og tækjaeigendur sem reka tæki sín á eigin kennitölu en teljast ekki neytendur. „Nú liggur ólögmætið fyrir með almennum hætti og lögin eiga ekki aðeins við um neyt- endur og einstaklinga. Þetta eru almenn lög sem gilda í landinu. Og af hverju boðar efna- hags- og viðskiptaráðherra þá áframhaldandi fullkomna óvissu um fyrirtækin í landinu. Fyrirtæki sem eru með um 70% skulda sinna í erlendum lánum.“ Björn Þorri segir furðulegt ef niðurstaðan verði sú að stjórnvöld ætli að beita einhverjum öðrum viðmiðum gagnvart neytendum og fyrirtækjum og vonar að það verði ekki raun- in. Vel rekin fyrirtæki falla einnig Morgunblaðið/Ernir Þrýstingur Seinagangur við úrlausn skuldavanda fyrirtækja hefur verið gagnrýndur og þrýst er nú á að skuldaaðlöguninni verði hraðað.  Mörg lítil og meðalstór fyrirtæki blómleg ef miðað er við þær forsendur sem gefnar voru þegar gengistryggð lán voru tekin  Hæstaréttarlögmaður spyr hvers vegna boðuð er óvissa um fyrirtækin Seinagangur gagnrýndur » Almar Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Félags atvinnurekenda, gagnrýnir banka fyrir seinagang við úrlausn skuldavanda fyrirtækja, að sögn RUV. » Hann óttast að bankar fari á svig við verklagsreglur og mismuni fyrirtækjum. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2010 www.svfr.is Umsóknarfrestur er til 29.september 2010. Eftirfarandi ársvæði og tímabil eru til forúthlutunar: Norðurá I: 21. júní – 8. ágúst Norðurá II: 6. júlí – 2. ágúst Hítará I: 8. júlí – 13. ágúst Laxá í Aðaldal - Nessvæðið: 1. júlí – 5. sept Laxá í Dölum: 12. júlí – 10. sept Langá á Mýrum: 24. júní – 27. ágúst Leirvogsá: 8. júlí – 2. ágúst Straumar: 28. júní – 3. ágúst Laxárdalur og Mývatnssveit*: 29. maí – 31. ágúst *Athugið að allt tímabilið er boðið í forúthlutun. Það sem ekki selst í forúthlutun fer í Söluskrá 2010. Umsóknarfrestur til að sækja um veiðileyfií forúthlutun fyrir veiðisumarið 2011 er til 29.september n.k. Í forúthlutun geta allir sótt um veiðileyfi, félagsmenn sem utanfélagsmenn og fyrirtæki. Skriflegumumsóknum skal skila til skrifstofu SVFR,Háaleitisbraut 68 eða með tölvupósti til svfr@svfr.is eða halli@svfr.is 2011 Forúthlutun fyrir veiðileyfa sumarið Hér hefur verið jöfn og góð veiði þrátt fyrir nokkuð erfiðar aðstæður síðustu vikur,“ sagði Rafn Valur Al- freðsson leigutaki Miðfjarðarár í gær, en eins og sjá má í töflunni um aflahæstu laxveiðiárnar hefur verið frábær veiði í Miðfirðinum. Í fyrra- dag höfðu veiðst 3.795 laxar og er veiðin ekki langt frá metinu í fyrra, er veiddust 4.004. Nú er næstsíð- asta holl vertíðarinnar við veiðar. „Síðasta holl var með 98 laxa og gærdagurinn gaf rúmlega 30,“ sagði Rafn en veitt er á tíu stangir í Miðfjarðará. Veiðin hefur verið best í efri hluta Austurár og Vest- urár og segir hann hlutfall stórlax- ins í ánni afar gott. Sex yfir tuttugu pund „Þegar 3.400 laxar höfðu verið færðir til bókar fórum við yfir stærðirnar. Þá voru 2.100 þeirra smálaxar eða undir 70 cm. 620 lax- anna voru á bilinu 70 til 80 cm, 590 laxar voru 80 til 90 cm, 80 laxar voru 90 til 100 cm langir og þá voru sex laxar lengri en einn metri,“ sagði Rafn. Haffjarðará á Snæfellsnesi end- aði í 1978 löxum, sem er næstbesta veiði í ánni en sumarið 2008 veidd- ust 2010 laxar. „Við erum mjög ánægð með sum- arið,“ sagði Einar Sigfússon annar eigandi árinnar. „Það er gríðar- mikið af fiski í ánni – og mikið af stórum löxum. Þannig veiddust nokkrir um og yfir 20 pundin, sá stærsti var 23 pund. Við byrjuðum að sleppa stórum laxi sumarið 1996 og það hefur sýnt sig að það borgaði sig. Það þótti sérkennilegt þá en er orðið almennt viðmið í dag.“ efi@mbl.is Hátt hlutfall stórlaxa í Miðfirði og í Haffjarðará  Laxveiðinni er víðast hvar að ljúka þessa dagana Aflahæstu árnar Eystri-Rangá (18) Ytri-Rangá & Hólsá (20) Miðfjarðará (10) Þverá + Kjarará (14) Blanda (8) Norðurá (14) Langá (12) Selá í Vopnafirði (7) Haffjarðará (6) Grímsá og Tunguá (8) Laxá í Dölum (6) Laxá í Aðaldal (18) HofsámeðSunnudalsá (8) Víðidalsá (8) Vatnsdalsá íHúnaþingi (8) Veiðivatn (Stangafjöldi) Veiði Lokatölur 2009 4229 10749 4004 2371 2413 2408 2254 1993 1622 1339 1430 1117 1143 2019 1520 Staðan 22. september 2010 5720 5519 3795 3760* 2777* 2279* 2156 2023 1978* 1859 1664 1430 1186* 1180 1170 *=Lokatölur 2010

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.