Morgunblaðið - 25.09.2010, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 25.09.2010, Blaðsíða 24
FRÉTTASKÝRING Kristján Jónsson kjon@mbl.is Kínverjar hrósa nú sigri eftir að Jap- anar ákváðu í gær að láta lausan skipstjóra á kínverskum togara en maðurinn hefur verið í haldi í tvær vikur. Saksóknari í Japan sagði að deilan hefði slæm áhrif á sambúð þjóðanna og auk þess virtist skip- stjórinn, Zhan Qixiong, ekki hafa haft einbeittan brotavilja heldur gert sig sekan um fljótfærni. En athygli vekur að Kínverjar virðast hafa ákveðið að beita viðskiptaþvingunum til að knýja Japana til að láta mann- inn lausan. Kínverjar hafa ákveðið tang- arhald á japönskum iðnaði vegna þess að megnið af vissum efna- samböndum og málmum, sem notuð eru t.d. í háþróuðum vindmyllum og tvinnbílum, er unnið úr námum í Kína. Sjálfir neita Kínverjar að þeir hafi hætt að selja Japönum þessi hrá- efni sem skipta sköpum fyrir iðnfyr- irtækin þar sem mjög erfitt er að nota önnur efni. En viðskiptaráð- herra Japans, Akihiro Ohata, sagði í gær að japönsk fyrirtæki kvörtuðu undan því að frá því á þriðjudag hefðu umrædd hráefni ekki borist frá Kína. Boði á heimssýningu aflýst Japönsk stjórnvöld sökuðu upp- runalega skipstjórann um að hafa viljandi ögrað tveimur strandgæslu- skipum nærri óbyggðum eyjaklasa í Kínahafi sem löndin tvö deila um enda olíulindir á svæðinu. Kínverjar fordæmdu handtöku skipstjórans og heimtuðu að honum yrði strax sleppt lausum. Málið er afar viðkvæmt og ljóst að ráðamenn í Peking voru tilbúnir að ganga langt til að sýna vanþóknun sína. Þannig var fundi milli leiðtoga landanna í New York aflýst og einnig hefur Wen Jiabao forsætisráðherra hætt við að bjóða 1.000 ungum Jap- önum á heimssýninguna í Sjanghæ í vikunni, að sögn Financial Times. Fjórir Japanar með myndavélar voru handteknir á miðvikudag nærri „hernaðarsvæði“ í Hebei í Kína og eru enn í haldi meðan mál þeirra er í rannsókn. Stjórnvöld í Tókýó sögðu mennina starfsmenn japansks bygg- ingafyrirtækis, Fujita. Það hafi ætlað að bjóða í verk sem snerist um að eyða efnavopnum frá seinni heims- styrjöldinni og nauðsynlegt að taka myndir til að átta sig á aðstæðum. Líklegt verður að teljast að tengsl séu á milli málsins og deil- unnar um skipstjórann en japanskir ráðamenn fara þó varlega og segja það ekki víst. Japönum gremst hins vegar mörgum það sem þeim finnst vera allt of harkaleg viðbrögð, hroki og offors af hálfu Kínverja. Þumalskrúfa á Japana?  Japönsk hátæknifyrirtæki eru háð sjaldgæfum hráefnum frá Kína og fullyrt er að viðskiptin hafi verið stöðvuð vegna deilu um Kínverja í haldi Japana Reuters Mikilvæg Rafhlaða í Toyota Prius tvinnbíl á sýningu í Japan. Örlítið af hráefnunum, sem nú berast ekki lengur frá Kína, er m.a. notað í raf- hlöður tvinnbíla. Dýr og fágæt efni » Um 93% umræddra hrá- efna eru unnin í Kína. Nokkur dýrmætustu efnin geta kostað nær 100 þúsund kr. kílóið. » Efnin eru notuð í marg- víslegan varning. Nefna má glerframleiðslu, rafhlöður, hvarfakúta, litlar flúrperur og tölvuskjái. 24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2010 Rosa Rabelo (t.h.), sem er fangi í kvennafangels- inu El Buen Pastor í Bogota, höfuðborg Kólumb- íu, fagnar eftir að hafa sigrað í fegurðarsam- keppni. Áður en fangarnir gengu á sviðið var leitað vandlega á þeim að fíkniefnum og notaðir hundar. Helsti keppinautur Rabelo var ung kona sem handtekin var vegna morðs á tveim kaup- sýslumönnum. El Buen Pastor (Góði hirðirinn) er stærsta kvennafangelsi Kólumbíu. Kjörin fegurst allra fanga Reuters Tillaga Þjóðverja um að lagt yrði bann við borun eftir olíu á miklu hafdýpi var dreg- in til baka á fundi OSPAR-ráðsins sem fylgist með lífríki sjávar á norðaustanverðu Atlantshafi í Berg- en í gær. 15 ríki eiga aðild að OSPAR, þ. á m. Ísland. Norðmenn, Bretar og Danir, sem fara með utanríkismál Grænlendinga, munu hafa þrýst á um að tillagan yrði dregin til baka en allar þessar þjóðir eiga mikilla hags- muna að gæta varðandi borun eftir olíu og gasi. Talsmaður norska orku- málaráðuneytisins benti á að rétt væri að bíða þess að birt yrði skýrsla Bandaríkjaforseta í janúar um Deepwater Horizon-slysið á Mexíkó- flóa áður en gripið yrði til róttækra aðgerða og banns. kjon@mbl.is Banna ekki borun  Vilja sjá skýrslu um Deepwater Horizon Bandarísk kona, Teresa Lewis, sem dæmd var fyrir að skipu- leggja morð á eig- inmanni sínum og stjúpsyni, var tek- in af lífi með eitur- sprautu aðfara- nótt föstudags í Virginíu. Hún var 41 árs. Lewis varð fyrsta konan sem tekin er af lífi í sambandsríkinu síðan 1912. Lewis hafði afar lága greind- arvísitölu, 72, og átti erfitt með allan lærdóm en var samt talin sakhæf. Tvímenningar sem frömdu morðin að undirlagi Lewis voru dæmdir í lífstíð- arfangelsi en Lewis hlaut dauðadóm fyrir að hafa skipulagt morðin. Hún borgaði morðingjunum fyrir verkið með kynlífi og peningum. Lewis varði síðustu stundunum í lífi sínum með andlegum ráðgjafa og ættingjum í fangelsinu í borginni Jarratt. Áður en hún var tekin af lífi spurði hún hvort stjúpdóttir hennar, Kathy Clifton, sem er dóttir hins myrta eig- inmanns hennar, væri á staðnum. Clifton var í herbergi þar sem hægt er að fylgjast með aftökunni í gegn- um glervegg. „Ég vil að Kathy viti að ég elska hana og að mér þykir þetta mjög leitt,“ sagði Lewis. kjon@mbl.is Kona tek- in af lífi í Virginíu Teresa Lewis  Dæmd fyrir að skipuleggja morð Óvenju skæður og háþróaður tölvu- ormur, Stuxnet, hefur komist inn í tölvukerfi fjölda orkuvera og verk- smiðja víða um heim á undanförnum mánuðum, að sögn Financial Times. Segir blaðið að markmiðið með orm- inum virðist vera að láta hann valda alvarlegum skemmdum. Íranar munu hafa orðið meira fyr- ir barðinu á orminum en aðrar þjóð- ir. Velta menn fyrir sér hvort kjarn- orkuver þeirra geti verið skotmarkið. „Það eru engar getgátur þegar sagt er að þetta sé fyrsta stýrða tölvuvopnið,“ segir Joe Weiss, bandarískur sérfræðingur. Orm- urinn getur falist og beðið eftir hent- ugum tækifærum, þá gefur hann nýjar skipanir til búnaðar sem allt í einu fer að gera allt þveröfugt við það sem hann myndi annars gera, að sögn sérfræðinga. Ormurinn breið- ist út með því að notfæra sér áður óþekkt göt á Windows-kerfi Micro- soft. kjon@mbl.is Tölvuárás á Íran?  Ormurinn Stux- net ræðst á orkuver – Lifið heil Lægra verð í Lyfju www.lyfja.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 51 31 9 09 /1 0 Flux flúormunnskol – fyrir alla fjölskylduna Flux fluormunnskol 500 ml Verð: 1.209 kr. Verð nú: 967 kr. Flux junior munnskol fyrir börn 250 ml Verð: 829 kr. Verð: 663 kr. 20% afsláttur* *gildir til 15. okt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.