Morgunblaðið - 25.09.2010, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 25.09.2010, Blaðsíða 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2010 Í dag kveðjum við yndislega konu, Þór- önnu Sigríði Jósafats- dóttur frá Siglufirði. Leiðir okkar Þórönnu lágu saman þegar við hóf- um báðar nám í leikskólafræðum í Kennaraháskólanum haustið 2000, þá báðar komnar á miðjan aldur. Við mynduðum vinahóp með Önnu Björk, Magdalenu Rögnu og Dag- björtu sem saman studdum hver aðra í náminu. Ég man að Þórönnu fannst hún í upphafi alveg vera að missa móðinn og var hrædd við að takast á við námið. Þá stöppuðum við í hana stálinu, blésum í glæð- urnar og áfram hélt hún því það var seigla í henni Þórönnu. Hún lét aldrei verkefni frá sér fyrr en á síð- ustu mínútu því það átti að vera eins fullkomið og hægt var enda kláraði hún námið með glæsibrag. Ég minnist dagsins þegar hún útskrif- aðist, hvað hún ljómaði af gleði yfir sigrinum að ná þessum áfanga. Hún sem hafði helgað líf sitt börnum var nú komin með tækifæri til að sækja fram á völlinn. Ég hvatti Þórönnu til að skipta um vinnustað og koma til okkar í leikskólann Rjúpnahæð, sem hún gerði. Þar var hún deildarstjóri á Lóuhreiðri þangað til hún fór í sumarfrí í sumar en átti ekki aft- urkvæmt vegna veikinda. Á Lóu- hreiðri var hún eins og unga- mamma, gætti þess að öllum ungunum í hreiðrinu liði vel og sýndi hverju barni mikla virðingu og kærleik. Í lok dags, þegar öll börn voru farin heim, var ekki óal- gengt að sjá Þórönnu eyða löngum tíma í að dytta að og snurfusa deild- ina enda bar Lóuhreiður af, alltaf allt á sínum stað og puntað með ein- hverju dúlleríi hennar Þórönnu til að gera hlýlegt. Syngur lóa suður í mó sætt um dáin blóm. Alltaf er söngurinn sami með sætum fuglaróm. (Páll Ólafsson) Ég sendi eiginmanni Þórönnu, Jónsteini, og fjölskyldu hennar inni- legar samúðarkveðjur. Kristín Þórisdóttir. Elskulega Þóranna mín. Það var mjög sárt að horfa upp á þær þján- ingar er voru lagðar á þig og sárt að horfa á þig hverfa alveg frá okkur. Í þeim raunum öllum komu mann- kostir þínir svo vel í ljós og á meðan þú gast varstu að reyna að gefa okk- ur öllum af þér. Hetjuleg barátta þín var algjör, þú tókst einn dag í einu og lagðir líf þitt í hendur Guðs og þeirra er önnuðust þig. Um læknana og hjúkrunarfólkið sem önnuðust þig fórst þú fallegum orð- um. Í huga mínum er fyrst og fremst Þóranna Sigríður Jósafatsdóttir ✝ Þóranna SigríðurJósafatsdóttir fæddist á Siglufirði 23. desember 1947. Hún lést á krabba- meinsdeild Landspít- alans 14. september 2010. Útför Þórönnu fór fram frá Grafarvogs- kirkju 24. september 2010. þakklæti fyrir að hafa kynnst þér og fengið að vera vinur þinn í öll þessi ár. Vinátta þín hefur verið mér mikils virði. Að eiga góðan vin og vináttu, sem er án nokkurra skilyrða, er eitt af því dýrmætasta, sem hægt er að eignast. Heimilið ykkar Jónsteins bauð alla velkomna og allt gert til þess að öllum liði þar vel, enda mynd- arskapur þinn annálaður. Hlaðið borð af góðgæti og oftast leyndist þar eitthvað sem maður fékk hvergi annars staðar. Allir áttu að borða vel og þá varst þú ánægð. Fyrsta minning mín um þig er af lokkaprúðu litlu stúlkunni er stóð álengdar og horfði á okkur eldri krakkana í leikjum á Hafnarhæð- inni. Þar var nú mikið líf og fjör, boltaleikir, sippað, hoppaður parís og ræningjaleikirnir vinsælu. Auð- vitað fékkstu að vera með. Ég flutti suður og leiðir okkar skildi. Seinna, þá báðar ungar kon- ur og komnar með elstu drengina okkar, lágu leiðir okkar saman aft- ur. Síðan þá hefur vinátta okkar verið óslitin í áratugi, vinátta er aldrei hefur skuggi fallið á. Við gerðum margt skemmtilegt, fórum á tónleika, í leikhús og á óp- erur, þú elskaðir dramatískar óp- erur. Áhugi þinn var mikill á tónlist, myndlist og ekki síst á hönnun allri. Þar lágu áhugasvið okkar saman eins og í svo mörgu öðru. Á fullorðinsárum fórst þú í erfitt nám og leystir það með glæsibrag, eins og allt sem þú tókst þér fyrir hendur, elsku vinkona. Fjölskyldan þín, heimilið ykkar og velferð son- anna var þér alltaf efst í huga. Þar sló hjarta þitt. Litlu vinirnir þínir á leikskólan- um sjá á eftir góða kennaranum sínum. Vininum er umgekkst þá af þeirri alúð og hlýju er lítil börn þurfa svo mikið á að halda þegar þau feta sín fyrstu skref í nýju um- hverfi. Ég kveð þig, elsku Þóranna, í síð- asta sinn með einlægum trega og þakka þér fyrir allt. Þú munt lifa í hjarta mínu. Fjölskyldunni allri sendi ég inni- legar samúðarkveðjur. Þín Katla. Með söknuð í hjarta kveðjum við samstarfskonu og vin okkar hana Þórönnu. Á lífsleiðinni mætum við mörgu fólki, flestir hafa áhrif og gera þar með líf okkar dýrmætt og fagurt. Þóranna var ein þeirra sem höfðu áhrif á okkur með einstakri gæsku sinni og hjartahlýju. Árið 2002 tók Þóranna ákvörðun um að breyta um vinnustað eftir að hafa átt langan feril á öðrum leikskóla. Hún ákvað að ganga í lið með okkur að stofnsetja leikskólann Rjúpna- hæð og varð hluti af öflugu deild- arstjórateymi. Þóranna vann með yngstu börnunum og sýndi þeim og foreldrum ávallt mikla hlýju og um- hyggju. Hún lagði ríka áherslu á að það sem skipti mestu máli væri kærleikurinn, nærgætni, hlýja, natni og umhyggja. Þóranna var elskuð af foreldrum þeirra barna sem fengu að njóta krafta hennar og dáð af þeim börnum sem nutu sam- vista við hana. Hún hugsaði alltaf fyrst og fremst um þarfir hvers og eins barns. Þóranna var fagurkeri mikill og allt það sem hún snerti varð að gulli. Hún gaf sig af heilum hug í starf sitt og hafði alltaf nægan tíma fyrir samstarfsfólk sitt. Þau voru ófá skiptin sem hún var lengur í vinnunni til þess eins að gera deildina sína fína og huggulega. Þegar við rifjum upp allar yndislegu stundirnar sem við áttum með henni hlýnar okkur um hjartarætur. Við kveðjum þig með tregans þunga tár sem tryggð og kærleik veittir liðin ár. Þín fórnarlund var fagurt ævistarf og frá þér eigum við hinn dýra arf. Móðir, dóttir, minningin um þig er mynd af því sem ástin lagði á sig. (Guðrún Jóhannsdóttir frá Brautarh.) Við munum varðveita allar þær gleðistundir sem við upplifðum með Þórönnu. Munu þær veita okkur huggun í sorginni og styrk um ókomna tíð er við minnumst hennar. Fjölskyldu Þórönnu færum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Við biðjum Guð að gefa ykkur styrk í sorginni og gleði í minningum ykk- ar. Fyrir hönd starfsfólks Rjúpna- hæðar, Hrönn Valentínusdóttir leikskólastjóri. Elsku Þóranna. Mamma sagði okkur að þú værir dáin og farin upp til himna. Prest- urinn kom í skólann og sagði okkur að þú værir farin eins og blómin fara þegar það er orðið kalt úti. Breki vildi fara að ná í þig og blóm- in í skýjunum. Seinna skiljum við hvað er að vera farin en við finnum að við söknum þín. Takk fyrir allar hlýju stundirnar, söngstundirnar og að láta okkur líða svo vel þetta fyrsta ár okkar í leikskólanum. Við kveðjum þig með laginu sem þú kenndir okkur: Fann ég á fjalli fallega steina. Faldi þá alla, vildi þeim leyna. Huldi þar í hellisskúta heillasteina, alla mína unaðslegu óskasteina. Atli Freyr og Breki Freyr á Lóuhreiðri. Það var um vorið 1962 þegar ég var á fimmtánda árinu að ég stóð tilbúinn og beið eftir að hótelstjórinn í Fornahvammi sækti mig. Ég var ráðinn til ýmissa sveitastarfa hjá Gunnari og Lilju sem ráku Hótel Fornahvamm. Ég hafði aldrei komið í Borgarfjörð og vissi lítið hvert ég var að fara eða hvað beið mín annað en sveita- störfin, sem ég þekkti sæmilega. Svínarækt var stunduð þarna og slíku hafði ég aldrei komið nálægt og ég held ég hafi ekki borðað svínakjöt fyrr en þarna. Þarna hitti ég gott fólk sem tók mér vel, margt fór úrskeiðis í byrjun en lærðist í rólegheitum, Gunnar vissi alveg hvernig hann vildi að hlut- irnir væru unnir, hann var mikið snyrtimenni, vinnuumhverfið átti að vera í lagi, grísirnir áttu að vera hreinir og það var ekki vandamál með það þegar hann Gunnar Níels Guðmundsson ✝ Gunnar NíelsGuðmundsson var fæddur á Gríms- stöðum í Landeyjum 16. júní 1924. Hann lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund 13. september 2010. Útför Gunnars fór fram frá Áskirkju 21. september 2010. hafði kennt mér þetta, þá gerði ég eins og hann. Þannig sýndi hann í verki hvernig ætti að gera það. Mér leið vel hjá þeim hjónum, það var líka mikið af fólki að vinna á hótelinu og oft var mikið fjör. Ég hugsa oft til þessa tíma og viss ljómi er yfir þessari dvöl minni þarna. Einnig fannst mér alltaf gaman að hitta Gunnar og Lilju. En síðast þegar ég hitti þau saman þá þekkti Gunnar mig ekki, hann var þá orð- inn sjúklingur. Gunnar vann Fornahvammi vel og honum var annt um jörðina, hann ræktaði hana vel, byggði jörðina vönduðum gripahúsum og fóðurhúsum ásamt vélageymslu. Það var honum erfitt að sjá svo jörðina drabbast niður. Við spjöll- uðum oft um það og að gaman væri að fá jörðina og vinna hana í gamla ástandið aftur. Ég þakka Gunnari fyrir sinn þátt í minni þroskasögu sem gerir mig auðugri fyrir vikið. Ég sendi Lilju og fjölskyldu mínar dýpstu samúðarkveðjur og megi ævikvöld þitt Lilja mín verða þér bjart og ljúft. Guðjón H. Finnbogason. Veit þá engi, að eyjan hvíta á sér enn vor, ef fólkið þorir guði að treysta, hlekki hrista, hlýða réttu, góðs að bíða? Fagur er dalur og fyllist skógi og frjálsir menn, þegar aldnir renna; skáldið hnígur og margir í moldu með honum búa, en þessu trúið. (Jónas Hallgrímsson) Þetta ljóð er ritað í gamalli af- mælisdagbók sem ég á, sem gefin var út á lýðveldisárinu 1944. Þetta ljóð ber upp á 16. júní, en þann dag var Bogi föðurbróðir minn fæddur árið 1929. Ég hef oft hugsað um að það hlýtur að vera gott að eiga af- mæli þennan dag. Alltaf frí daginn eftir. Bogi var 15 ára á þessu herrans ári 1944. Unglingur að alast upp í Skerjafirðinum, sem var hálfgerð sveit, en þangað fluttu þau árið 1937. Þar bjó hann með ömmu og afa, Herborgu og Ingimar, og tveimur eldri bræðrum, pabba og Gunnari. Þarna er seinni heims- styrjöldin í algleymingi. Bogi varð stúdent frá MR og fór síðan í lögfræði í HÍ. Eftir það nám fór hann til námsdvalar til Þýska- lands og Sviss. Enda var hann vel mæltur bæði á þýsku og frönsku. Það var gaman að hlusta á hann fara á flug á góðum stundum, hvort sem það var á þýsku eða frönsku. Það kom alltaf glampi í augun á mömmu og pabba, þegar þau rifj- uðu upp heimsókn sína til Boga ár- ið 1955 til Hamborgar í Þýskalandi. Þau minntust þessa tíma með mik- illi gleði og ánægju. Undanfarna daga hef ég hugsað mikið til jólaboðanna í Skerjafirð- Bogi Ingimarsson ✝ Bogi Ingimarssonfæddist 16. júní 1929 í Reykjavík. Hann lést 4. ágúst síð- astliðinn á hjúkr- unarheimilinu Drop- laugarstöðum. Bogi var jarðsung- inn frá Háteigskirkju þriðjudaginn 17. ágúst 2010. inum, sem amma og afi héldu. Þetta voru glæsileg boð í alla staði. Rjúpnalyktin lá í loftinu og heimsins besti heimagerði ís var á borðum. Þar var setið til borðs í nokkra klukkutíma og heimsmálin rædd vítt og breitt. Við yngri kynslóðin höfð- um nú ekki alltaf þol- inmæði til að sitja svona lengi. Þá var stundum stungið af niður í kjallara og öll þau skúma- skot sem þar voru könnuð. En þeim gestum sem sátu við þetta borð fer óðum fækkandi. Nú síðast Bogi frændi minn. En þetta lifir svo sterkt í minn- ingunni og er eitthvað sem kemur ekki aftur. Ég held að það blundi í okkur öllum fortíðarþrá. Að ylja sér við eitthvað sem var, en kemur ekki aftur. Það var alltaf stíll yfir Boga. Hann var heimsmaður, enda hafði hann víða farið. Hann vílaði ekki hlutina fyrir sér ef því var að skipta og var flottur á því. Ég minnist ótal skemmtilegra stunda gegnum árin, sem ljúft er að rifja upp og minnast. Bogi og Sigrún áttu margar góð- ar stundir í sumarhúsi sínu í Mjóa- nesi við Þingvallavatn. Þar nutu þau þess að slaka á og hafa það huggulegt. Þau ferðuðust líka víða um heiminn og voru þá nokkrar vikur í einu. Bogi naut þess alltaf að vera í sól og sumaryl. Á síðustu misserum hafði Bogi átt við veikindi að stríða. Við mamma heimsóttum hann í vor og þá sá ég að það var af honum dreg- ið. En samt brá gamla glampanum fyrir í augunum á honum, sem ég kannaðist svo við. En það kemur alltaf að leiðarlokum og við verðum að sætta okkur við það. Elsku Sigrún, Siggi, Benni og Úlla. Við fjölskyldan sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur. Minningin um Boga frænda mun lifa og verða okkur kær. Auður Ingimarsdóttir. Alvöru blómabúð Allar skreytingar unnar af fagfólki Kransar • Krossar • Kistuskreytingar Sími: 553 1099 • Fax: 568 4499 Heimasíða: www.blomabud.is Netfang: blomabud@blomabud.is Minn elskulegi og góði frændi Guðbjörn Már er látinn langt um aldur fram. Ég trúði þessu ekki þeg- ar systir mín hringdi og tilkynnti mér þetta. Við komum heim til þín og sáum lögreglubíl, og þá var eins og hjartað væri rifið úr mér. Við sem vorum saman kvöldið áður að plana afmælið þitt. Tilhlökkunin hjá þér var mikil, að borða með fjölskyldunni og síðan í pool með mér, þetta er svo óraunverulegt. Guðbjörn Már Rögnvaldsson ✝ Guðbjörn MárRögnvaldsson fæddist í Reykjavík 12. september 1991. Hann lést þann 11. september 2010. Útför Guðbjarnar Más var gerð frá Digraneskirkju 24. september 2010. En manni verður hugsað um allar góðu stundirnar sem við áttum saman, þegar þú varst yngri varstu eins og litli bróðir minn. Gleymi aldrei þegar ég kenndi þér að slamma við Guns’n roses, þú varst rétt rúmlega tveggja ára og alltaf fjörugur og brosandi. Þegar þú varst lítill fékk ég sem betur fer oft að passa þig, það voru miklar gleðistundir. Ég minnist þín brosandi eins og síð- asta sinn sem ég sá þig, þrátt fyrir að ég sakni þín meira en orð fá lýst. Ég veit að nú ertu hjá mömmu og hún hugsar um þig, elsku frændi. Þinn frændi, Hallur Örn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.