Morgunblaðið - 25.09.2010, Page 2
„Það er í sjálfu sér ekkert launung-
armál að rannsókn á báðum þessum
óhöppum leiðir í ljós að menn sofna
við stýrið. Það er grunnorsök þessara
óhappa,“ sagði Sigurður Brynjúlfs-
son, yfirlögreglumaður á Húsavík,
spurður um strand mótorbátsins Há-
eyjar 24. september sl. og línubátsins
Lágeyjar í mars.
„Þetta eru samningslausir bátar.
Það eru ekki til kjarasamningar fyrir
þá. Menn eru löngu búnir að sprengja
þá utan af sér. Það er alltaf verið að
setja nýjar og meiri línur í þá. Menn
vaka sig vitlausa með þessu álagi.
Þetta endar náttúrlega með ósköp-
um,“ segir Hlynur Þór Birgisson sjó-
maður um mikið álag á áhafnir línu-
báta undir 15 tonnum víðsvegar um
landið. „Menn sofa jafnvel ekki meira
en 12 til 16 tíma á viku. Ef menn ætla
að róa einn sólarhring á þessum bát-
um – róður er kannski 20 tímar að
jafnaði – þá eru bara fjórir tímar eftir
í sólarhringnum,“ segir Hlynur Þór.
baldura@mbl.is
Svefnleysi
skýrir strand
tveggja báta
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Gangur málsins á næstunni verður
sá að nú mun ráðuneytið taka að sér
að vinna upp frumvarp eða frumvörp
um breytingar á stjórn fiskveiða. Ætl-
unin er að því verki verði lokið, þannig
að slíkt verði hægt að leggja fyrir Al-
þingi fyrir jólafrí. Er þá ætlunin að
breytingarnar geti orðið að lögum á
vorþingi þannig að ný skipan mála
taki gildi á fiskveiðiárinu 2011/12,“
sagði Jón Bjarnason, sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra, í ávarpi á
aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva í
gær.
Boðar víðtæka samvinnu
„Það olli mér vissulega vonbrigðum
að sumir skyldu segja sig frá vinnunni
tímabundið, en hins vegar fagna ég
því að vinnuhópurinn var fullskipaður
að lokum. Ég hef nú undir höndum
skýrslu vinnuhópsins,“ sagði Jón sem
kvaðst skilja að margar spurningar
vöknuðu við þessi orð hans. Svaraði
hann því svo til að ráðuneytið myndi
leita ráðgjafar á ýmsum sviðum og
hafa „samráð við aðila utan ráðuneyt-
is sem og á hinum pólitíska vettvangi“.
Ráðherra vék að þeirri ákvörðun
sinni að fela Hafrannsóknastofnun að
hefja undirbúning að nýtingarstefnu
fyrir þorsk. Hann hyggist „setja á
laggirnar samráðsvettvang um nýt-
ingarstefnuna, sem í ættu sæti m.a.
fulltrúar stjórnvalda, atvinnugreinar-
innar og fiskifræðinga“.
Frumvarpið liggi
fyrir á haustþingi
Sjávarútvegsráðherra boðar breyt-
ingar á fiskveiðikerfinu á næsta veiðiári
Fátt er skemmtilegra en að ganga um Laugardalinn í góðu veðri á haustin
þegar trén skarta sínu fegursta. Útlit er fyrir rigningu í höfuðborginni um
helgina þannig að regngallar og regnhlífar ættu að koma að notum.
Morgunblaðið/Golli
Haustganga í trjágöngum
Laufskrúð í Laugardalnum
Rúmlega tvítugum karlmanni sem
var handtekinn í Landbúnaðarhá-
skólanum á Hvanneyri í fyrrinótt var
sleppt í gær að lokinni skýrslutöku og
bíður nú ákæru fyrir hótanir og
mögulega einnig frelsissviptingu.
Aðfaranótt föstudags ógnaði mað-
urinn þremur skólasystkinum sínum
með hnífi og fór svo að þau flúðu inn í
nálægt herbergi og læstu að sér.
Maðurinn lét dólgslega, barði á
dyrnar og viðhafði hótanir svo kallað
var á lögreglu sem handtók mann-
inn, en hann var undir áhrifum
áfengis. Þremenningarnir, tveir
karlar og ein kona á þrítugsaldri,
sluppu við líkamleg meiðsl en eitt
þeirra var flutt með sjúkrabíl á
sjúkrahúsið á Akranesi vegna and-
legs áfalls.
Að sögn Ágústs Sigurðssonar rekt-
ors hefur manninum verið vísað úr
skólanum og af nemendagörðunum.
„Krakkarnir bera sig þokkalega og er
ástandið hér eftir atvikum. Drengur-
inn er búinn að taka sitt dót og er far-
inn af staðnum.“ ingibjorgrosa@mbl.is
Ógnaði skólasystkinum sínum
Jón vitnaði í
erindi Kristjáns
Hjaltasonar á ís-
lensku sjávar-
útvegsstefn-
unni. Þar hefði
komið fram að
stóraukin hlut-
deild ferskra
afurða gæti gefið 8-10 ma. kr. í
viðbót. Hægt væri að láta sjávar-
útveginn vaxa um 50 milljarða á
næstu fimm árum.
Sóknarfæri
50 MILLJARÐAR Á 5 ÁRUM
Jón Bjarnason
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanrík-
isráðherra, segir í greinargerð sem hún hefur sent
þingmönnum, að hún hafi gert öllum þingmönnum
Samfylkingarinnar grein fyrir því, að hún hefði set-
ið fund með ráðherrum og seðlabankastjóra 7. febr-
úar 2008 þar sem rætt var um íslensku bankana.
Þessi fundur er meðal annars nefndur í þingsálykt-
unartillögum, sem liggja fyrir Alþingi um málshöfð-
un á hendur fyrrverandi ráðherrum.
Í greinargerðinni, sem Ingibjörg Sólrún hefur
sent þingmönnum, segir að hún hafi sem oddviti
Samfylkingarinnar beitt sér í kjölfar fundarins 7.
febrúar. Á tveimur þingflokksfundum hafi hún gert
viðskiptaráðherra og öðrum þingmönnum flokksins
glögga grein fyrir því að hún hefði setið þennan
fund og þar hafi verið rætt um málefni íslenska fjár-
málamarkaðarins og stöðu íslensku bankanna.
„Í kjölfar fundarins ræddum við að auki saman
um stöðuna almennt, þ.e. forsætisráðherra, við-
skiptaráðherra, fjármálaráðherra og utanríkisráð-
herra, og ákváðum að halda fund með fulltrúum
fjármálafyrirtækja í Ráðherrabústaðnum þar sem
við vorum öll viðstödd.
Viðskiptaráðherra var því fullkunnugt um fund-
inn með seðlabankastjóra 7. febrúar og gerði hvorki
athugasemdir við mig né – eftir því sem ég best veit
– við forsætisráðherra, að hafa ekki verið boðaður
til hans. Sömu sögu er að segja um aðra ráðherra
Samfylkingarinnar og reyndar þingflokkinn allan,“
segir Ingibjörg Sólrún.
„Þá hljóti hún að grípa til varna“
Hún gagnrýnir í greinargerðinni þingsályktun-
artillögu Magnúsar Orra Schram og Oddnýjar
Harðardóttur, fulltrúa Samfylkingarinnar í þing-
mannanefndinni. Þau leggja til að Ingibjörg Sólrún
verði ákærð en ekki Björgvin G. Sigurðsson, fyrr-
verandi viðskiptaráðherra, á þeirri forsendu, að
gögnum og upplýsingum um stöðu fjármálakerf-
isins hafi verið leynt fyrir honum.
Ingibjörg Sólrún segist ekki gera athugasemdir
við að þingmennirnir vilji ekki ákæra Björgvin en
þegar hún standi andspænis því, að málsvörn hans
og fulltrúa Samfylkingarinnar í þingmannanefnd-
inni byggist á að fella sök á hana, þá hljóti hún að
grípa til varna.
Hún segir að ótrúlegustu rökin sé að finna í þess-
ari setningu: „Útilokun viðskiptaráðherrans náði
hámarki þegar utanríkisráðherra ákvað að honum
yrðu ekki kynntar aðgerðir ríkisvaldsins vegna
lánabeiðni Glitnis banka sunnudaginn 28. septem-
ber 2008.“ Segir Ingibjörg Sólrún að hér sé um að
ræða mjög alvarlega fullyrðingu og hún hljóti að
gera þá kröfu til fulltrúa Samfylkingarinnar í þing-
mannanefndinni að þau upplýsi hvað þeir hafi fyrir
sér í þessu.
Þessa helgi hafi verið fundað stíft, fyrst í Seðla-
bankanum og síðar í forsætis- og fjármálaráðuneyt-
inu, um málefni Glitnis án þátttöku ráðherra Sam-
fylkingarinnar. Hún hafi verið í New York að búa
sig undir heilaskurðaðgerð sem framkvæmd var
mánudagsmorguninn 29. september. „Þegar ég
frétti fyrst frá utanaðkomandi aðila eftir hádegi á
sunnudegi af fundarhöldunum í forsætisráðu-
neytinu hafði ég samband við forsætisráðherra
og sendi Össur Skarphéðinsson, staðgengil
minn, til að kanna stöðuna. Það voru efalaust
mistök af minni hálfu en nokkuð langt seilst að
telja að þar hafi verið um refsivert brot að ræða,“
segir Ingibjörg Sólrún. gummi@mbl.is, aij@m-
Fullkunnugt um fundinn
Ráðherrar og þingmenn Samfylkingar vissu um fund með seðlabankastjóra
Ingibjörg Sólrún gagnrýnir fulltrúa Samfylkingarinnar í þingmannanefndinni
MMeira á mbl.is
Kyudo: Bogfimi þar sem
skotið er á mark af
28 metra færi.
Kennarar: Tryggvi Sigurðsson,
Kyoshi 6. dan.
Elsa Guðmundsdóttir
4. dan.
Þessi grein á sér einstaka menn-
ingarlega hefð og er stunduð af
miklum fjölda fólks á öllum
aldri, í Japan og annars staðar.
Upplýsingar í símum
553 3431 og 897 8765
Japönsk bogfimi
„Til marks um málatilbúnaðinn
er að í umræðum um málið á Al-
þingi hefur Atli Gíslason, for-
maður þingmannanefndarinnar,
fullyrt í þrígang að ráðherrar hafi
fengið upplýsingar um það á
þessum fundi að bankarnir ættu
níu mánuði ólifaða. Þetta er
rangt og styðst hvorki við vitn-
isburð ráðherranna sem sátu
fundinn né minnispunkta frá
fundinum. Því hlýt ég að spyrja á
hvaða gögnum þessi fullyrðing
formanns þingmannanefnd-
arinnar byggist,“ segir Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir meðal annars
í greinargerð sinni og vísar til
fundarins 7. febrúar 2008.
Hún hefur kynnt efni
greinargerðarinnar fyrir
þeim þremur fyrrverandi
ráðherrum öðrum, sem
meirihluti þingmanna-
nefndar leggur jafn-
framt til að verði
ákærðir.
Á hverju
er byggt?
MÁLATILBÚNAÐURINN
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Lögreglan á Egilsstöðum stöðvaði
sama manninn tvisvar í gær með
aðeins klukkustundar millibili fyrir
of hraðan akstur. Heildarsektin
hljóðaði upp á 75 þúsund krónur og
segir lögreglan manninn hafa iðr-
ast aðeins í seinna skiptið sem hann
var stöðvaður en lítið hafi farið fyr-
ir iðruninni í fyrra skiptið.
Tekinn tvisvar fyrir
hraðakstur sama dag
Morgunblaðið/Erlingur B. Thoroddsen