Morgunblaðið - 25.09.2010, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2010
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Risavaxið verkefni blasir við aðilum
vinnumarkaðarins þegar kemur að
endurnýjun kjarasamninga í haust.
Undirbúningur er í fullum gangi úti í
félögum og samböndum en ASÍ fær
væntanlega það verkefni að stilla
upp hvaða kostir eru í stöðunni.
Flestir virðast nú þeirrar skoðun-
ar að útilokað sé að ætla að komast í
gegnum þessa lotu, nema reynt verði
að ná einhverri heildstæðri niður-
stöðu. Eina leiðin sé að koma á þrí-
hliða samráði aðila vinnumarkaðar-
ins og stjórnvalda. En vandinn er sá
að sú leið virðist ófær í dag. Verka-
lýðshreyfingin ber lítið sem ekkert
traust til ríkisstjórnarinnar, frost er
í samskiptunum.
Í umræðum hefur verið áberandi
mest áhersla á að fundnar verði leið-
ir til að auka og verja kaupmáttinn.
Það verði þó ekki gert nema þrýst
verði á aðgerðir til að styrkja gengi
krónunnar. Fá verði ríkisvaldið og
Seðlabankann að borðinu. Sumir
nefna einnig að Alþingi verði að taka
ábyrgð á hugsanlegu samkomulagi,
„þannig að þegar fram í sækir verði
ekki einhverjir þar sem setja allt í
uppnám vegna óábyrgrar afstöðu
eða noti tækifærið til lýðhylli“, eins
og Guðmundur Ragnarsson, formað-
ur Félags vélstjóra og málmtækni-
manna, orðar það í pistli um stöðuna.
Spá auknu atvinnuleysi í vetur
Þá eru uppi miklar áhyggjur af
fjárhagsstöðu sveitarfélaga. Við
blasi að ef böndum verður ekki kom-
ið á fjármál sveitarfélaganna megi
búast við að gjaldskrárhækkanir
steypist yfir um áramótin og þurrki
út kjarabæturnar áður en blekið nær
að þorna á nýgerðum samningum.
Nær öll aðildarfélög Starfsgreina-
sambandsins veittu því umboð til að
ganga frá viðræðuáætlunum við við-
semjendur. „Við heyrum það mjög
ákveðið að fólk vill verja kaupmátt-
inn, sjá einhverjar launahækkanir,
það leggur mikla áherslu á atvinnu-
málin og skattamálin eru líka mjög
ofarlega í huga fólks. Það eru allir
komnir út fyrir öll endimörk í skatt-
lagningu. Það verður sú krafa sem
snýr að stjórnvöldum númer eitt, tvö
og þrjú,“ segir Kristján Gunnarsson,
formaður SGS, spurður um áherslur
sem fram hafa komið að undanförnu.
Aðrir viðmælendur nefna einnig
erfiða glímu við stjórnvöld um vel-
ferðarmálin. Fjárlagafrumvarpið
kemur fram næsta föstudag. Boðað-
ur er stórtækur niðurskurður og bú-
ast megi við að bætur almannatrygg-
inga verði áfram frystar. Og atvinnu-
málin verða sem fyrr stórmál enda
útlitið dökkt því ASÍ spáir vaxandi
atvinnuleysi á komandi vetri.
„Menn horfa líka til þess að bank-
arnir eru að setja fyrirtæki út á
markaðinn sem eru ennþá yfirskuld-
sett, þannig að það er verið að setja
bankana á beit á allt lausafé sem er í
landinu. Það verða ekki greidd laun
fyrir það. Það er eiginlega allt um-
hverfið undir,“ segir Finnbjörn Her-
mannsson, formaður Samiðnar.
Sjá aðeins eina og illfæra leið
Öll áhersla á kaupmáttinn Óttast að gjaldskrárhækkanir sveitarfélaga um áramót þurrki jafnskjótt
út kjarabætur nýrra samninga Kröfur gegn skattaálögum settar á oddinn að sögn formanns SGS
Morgunblaðið/Eggert
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Hvalvertíðinni er lokið í ár. Hval-
bátarnir tveir, Hvalur 8 og Hvalur
9, komu með fjórar langreyðar til
Hvalfjarðar í gærmorgun, en þær
voru veiddar vestur af landinu í
fyrradag. Hvalbátunum hefur nú
verið lagt til vetrardvalar á sinn
gamla stað við Ægisgarð í Reykja-
vík.
Að sögn Kristjáns Loftssonar,
forstjóra Hvals hf., veiddust alls 148
langreyðar á vertíðinni í sumar. Er
þetta nokkru meira en á vertíðinni í
fyrra, en þá veiddust 125 hvalir.
Þetta er athyglisvert í ljósi þess að
vertíðin hófst heldur seinna í ár en í
fyrra. Vetíðinni nú lýkur hins vegar
á nákvæmlega sama tíma og í fyrra.
Að sögn Kristjáns er spáin fyrir
næstu daga óhagstæð og því var
ákveðið að slá botninn í hvalveið-
arnar núna. Eins hefur það sitt að
segja að myrkrið var farið að hamla
veiðum.
Kristján segir að almennt hafi
vertíðin í sumar gengið vel. Hval-
irnir héldu sig nær landi en í fyrra
og því var styttra fyrir hvalbátana
að sækja þá. „Ég er mjög ánægður
með hvernig vertíðin gekk,“ segir
Kristján. Alls störfuðu um 150
manns við veiðar og vinnslu í sumar
hjá Hval hf. Starfsmenn hvalstöðv-
arinnar í Hvalfirði munu á næstu
dögum ganga frá stöðinni fyrir vet-
urinn.
Heimilt er að veiða 150 langreyð-
ar á ári. Flytja má 20% kvótans
milli ára og því voru 25 dýr flutt frá
fyrra ári til vertíðarinnar í sumar.
27 dýra kvóti mun svo flytjast til
vertíðarinnar 2011.
148 langreyðar veiddust
á hvalvertíðinni í sumar
Veiðar Síðustu langreyðarnar komu
á land í Hvalfirði í gærmorgun.
Svandís Svav-
arsdóttir um-
hverfisráðherra
segir að engin
mál séu ófrá-
gengin hjá sér í
tengslum við suð-
vesturlínu vegna
fyrirhugaðra
endurbóta í ál-
veri Alcan í
Straumsvík til að
auka afkastagetuna í 228 þúsund
tonn. „Það er ekkert óafgreitt á
mínu borði,“ segir hún.
Guðmundur Ingi Ásmundsson,
aðstoðarforstjóri Landsnets, segir
að vegna endurbótanna byggi
Landsnet spennustöð við Búðar-
hálsvirkjun og um 6 km langa línu.
Tryggja þurfi raforkuflutning til
Alcan til framtíðar og hafi verið
samið við Hafnarfjarðarbæ um
skipulagið, en hægt sé að afhenda
nauðsynlega orku með núverandi
mannvirkjum. steinthor@mbl.is
Svandís er alveg
með hreint borð
Svandís
Svavarsdóttir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
stöðvaði kannabisræktun í húsi í
Hafnarfirði í gær. Við húsleit á
áðurnefndum stað fundust um 30
kannabisplöntur á lokastigi rækt-
unar. Á sama stað var einnig lagt
hald á ýmsan búnað sem tengist
starfsemi sem þessari. Húsráðandi,
karl á fertugsaldri, játaði aðild sína
að málinu.
Ræktun stöðvuð
Fjármálaráðuneytið hefur
skuldbundið sig til að útbúa og
gera aðgengileg launagögn úr
launavinnslukerfi ríkisins sem
varða félagsmenn í heildar-
samtökum ríkisstarfsmanna.
Þetta gerir þeim kleift að fylgj-
ast með framgangi kjarasamn-
inga og launaþróun skv. sam-
komulagi um upplýsingagjöf frá
ríkinu til samtakanna sem gert
var í gær. Er það liður í fram-
kvæmdaáætlun kjarasamninga.
Launagögn
aðgengileg
SAMKOMULAG HJÁ RÍKINU
Alþjóðleg brjóstagjafavika stendur nú yfir og af
því tilefni boðuðu Íslensku brjóstagjafasamtökin
til fjöldagjafar á Kaffitári í gær. Í tengslum við
vikuna verður málþing í dag í Mími, Skeifunni 8,
þar sem m.a. verður fjallað um fyrstu brjósta-
gjöfina og kengúrumeðferð nýbura.
Morgunblaðið/Golli
Móðurmjólkin mikilvægt nesti í upphafi lífsgöngunnar