Morgunblaðið - 25.09.2010, Page 8

Morgunblaðið - 25.09.2010, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2010 Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-ráðherra og Össur Skarphéð- insson utanríkisráðherra fóru utan í vikunni í brýnum erindagjörðum.    Hér á landi var ríkisstjórnin ívanda og Samfylkingin engd- ist sundur og saman af innanflokks- meinum vegna landsdómsmála. Sem betur fer létu þau Jóhanna og Össur það ekki stöðva sig.    Bæði höfðu mikilvæg skilaboð aðkoma á framfæri við umheim- inn, sem hafði þurft að bíða lengi eftir sjónarmiðum Jóhönnu um þús- aldarmarkmið SÞ.    Í ávarpi sínu lagði hún ríkaáherslu á að slá skjaldborg um hina verst settu í heiminum, eins og hnykkt er á í fréttatilkynningu for- sætisráðuneytisins.    Össur Skarphéðinsson fylgdi svoræðu Jóhönnu eftir af stakri eljusemi. Jóhönnu hafði ekki tekist að komast í heimsfréttirnar með brýnt erindi sitt, en Össur kom því á framfæri á sinn hátt.    Þýska blaðið Die Zeit greindi fráframlagi Össurar með mynd- birtingu af innleggi hans þar sem hann hlýddi á talsmann einnar af fá- tækustu þjóðum heims.    Þar féll Össur í svo djúpa íhugunað eftir var tekið. Þýska blaðið taldi þetta raunar til marks um áhugaleysi Vesturlanda á fátækt í heiminum, en það er fjarstæða.    Framlag Össurar til lausnar erf-iðra vandamála er engu lakara í svefni en vöku. Í heimspressunni STAKSTEINAR Veður víða um heim 24.9., kl. 18.00 Reykjavík 10 skýjað Bolungarvík 9 skýjað Akureyri 9 skýjað Egilsstaðir 8 skýjað Kirkjubæjarkl. 9 skýjað Nuuk 12 skýjað Þórshöfn 7 skýjað Ósló 5 skúrir Kaupmannahöfn 16 heiðskírt Stokkhólmur 13 léttskýjað Helsinki 15 skýjað Lúxemborg 12 skúrir Brussel 15 léttskýjað Dublin 11 léttskýjað Glasgow 12 léttskýjað London 12 skýjað París 16 skýjað Amsterdam 16 léttskýjað Hamborg 16 skúrir Berlín 22 heiðskírt Vín 21 léttskýjað Moskva 12 léttskýjað Algarve 25 léttskýjað Madríd 23 léttskýjað Barcelona 25 léttskýjað Mallorca 25 léttskýjað Róm 18 skúrir Aþena 22 léttskýjað Winnipeg 8 skýjað Montreal 11 alskýjað New York 23 þoka Chicago 15 alskýjað Orlando 29 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 25. september Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:20 19:20 ÍSAFJÖRÐUR 7:25 19:25 SIGLUFJÖRÐUR 7:08 19:08 DJÚPIVOGUR 6:49 18:49 Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð- herra tók í fyrradag þátt í ráðstefnu kvenleiðtoga í New York, þar sem yfirskriftin var „Konur sem mikil- vægt afl í lýðræðislegri stjórnsýslu“. Forseti Litháens, Dalia Grybaus- kaite, og forseti Finnlands, Tarja Halonen, voru gestgjafar ráðstefn- unnar. Michelle Bachelet sem ný- lega tók við embætti fram- kvæmdastjóra stofnunar Sameinuðu þjóðanna um málefni kvenna og for- setar Líberíu og Kirgistans voru meðal ræðumanna í pallborði. Forsætisráðherra hefur nýlega þekkst boð um að gerast meðlimur í Ráði kvenleiðtoga. Ráðið er vett- vangur núverandi og fyrrverandi kvenleiðtoga, þ.e. forseta og for- sætisráðherra. Meðal þeirra eru Angela Merkel, Mary Robinson og Gro Harlem Brundtland. Vigdís Finnbogadóttir var einn helsti hvatamaður og stofnandi ráðsins. Tók þátt í ráðstefnu kvenleiðtoga heims Fundur Jóhanna ræðir við Ellen Johnson Sirleaf, forseta Líberíu. Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæslu- varðhald til 22. október að kröfu lög- reglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli almanna- hagsmuna. Maðurinn, Gunnar Rún- ar Sigurþórsson, hefur játað að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana 15. ágúst. Gunnar Rúnar var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í ágúst en það rann út í gær. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði fram kröfu um fjögurra vikna áframhald- andi gæsluvarðhald og féllst Héraðs- dómur Reykjavíkur á kröfuna. Gunnar Rúnar unir niðurstöðunni. Friðrik Smári Björgvinsson, yfir- maður rannsóknardeildar lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali við mbl.is í gær að málið væri enn í rannsókn. Það væri hins vegar í meginatriðum upplýst. Þá sagði Friðrik að niðurstaðna rannsókna á DNA-sýnum af skóm Gunnars Rúnars og á hnífi, sem fannst við smábátahöfnina í Hafnar- firði, væri enn beðið. Gæsluvarðhald var framlengt Sex aðilar sitja í gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umfangs- miklu fjársvikamáli. Þeir voru hand- teknir í síðustu viku og úrskurðaðir í gæsluvarðhald í framhaldinu, mis- lengi þó. Þegar er búið að úrskurða einn þeirra í áframhaldandi gæslu- varðhald og í gær var annar úrskurð- aður í áframhaldandi gæsluvarðhald. Í síðarnefnda tilvikinu var fallist á kröfu um tveggja vikna gæsluvarð- hald, eða til 8. október, og á hana var fallist í héraðsdómi. Fólkið er talið hafa svikið út um 270 milljónir króna með því að fá endurgreiddan virðisaukaskatt af upplognum framkvæmdum. Látið var líta út fyrir að um milljarði hefði verið varið til að endurbæta tvö hús. Eigendur húsanna voru grunlausir um svikin. Meðal þeirra sem eru í gæsluvarðhaldi er starfsmaður ríkis- skattstjóra. Fjársvikamálið rannsakað áfram Sp ör eh f. s: 570 2790www.baendaferdir.is A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R Haustlitir í Svartaskógi 13. - 20. október HAUST 8 Vínakrar, kastalar og skógar er nokkuð sem við kynnumst í þessari skemmtilegu ferð til Þýskalands og Frakklands. Fljúgum til Frankfurt og ökum inn í Svartaskóg þar sem við gistum í 7 nætur. Förum í áhugaverðar skoðunarferðir og má þar nefna Freiburg, sem hefur að geyma eitt af meistaraverkum gotneska tímans, Strasbourg, þar sem hægt er að fara í siglingu á ánni Ill eða ganga um Litla Frakkland, eitt elsta hverfi borgarinnar og einnig til Colmar í Alsace héraðinu sem hefur að geyma Litlu-Feneyjar. Ökum „Vínslóðina“ í Alsace þar sem við þræðum ótal falleg smáþorp s.s. Ingersheim, Sigolsheim, Ribeauvillé og Riquewihr, þar sem væri upplagt að fara í vínsmökkun. Síðan ökum við Klukkuveginn í Svartaskógi og komum við á verkstæði þar sem gauksklukkur eru búnar til. Ökum einnig fallega leið að stöðuvatninu Bodensee, sem tilheyrir Þýskalandi, Austurríki og Sviss, en vatnið er stærsta vatn Þýskalands og eitt þeirra stærstu í Mið–Evrópu. Endum svo ferðina á að heimsækja heilsubæinn Baden-Baden. Fararstjóri: Pavel Manásek Verð: 148.800 kr. á mann í tvíbýli. Mikið innifalið! Innifalið: Flug, skattar, hótelgisting, allar skoðunarferðir með rútu, hálft fæði og íslensk fararstjórn. Hálftfæðiogallarskoðunarferðir innifaldar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.