Morgunblaðið - 25.09.2010, Page 44
44 MENNINGFréttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2010
Verk mánaðarins heitir dag-
skrá sem flutt verður reglulega
á Gljúfrasteini, safni Halldórs
Laxness. Svonefndur
„Soffíuhópur“ ríður á vaðið
með dagskrá sem hann kallar
Bók nr. 1 og flutt verður kl.
16:00 á morgun.
Soffíuhópur er upprunninn í
Félagsmiðstöðinni Hæðargarði
31 þar sem Soffía Jakobsdóttir
leikari hefur síðastliðin fimm
ár leiðbeint í framsögn. Undir hennar stjórn hefur
orðið til sjö manna hópur sem hefur komið fram
mjög víða og flutt upplestrardagskrár. Á Gljúfra-
steini verður flutt dagskráin Bók nr. 1 sem er
helguð Halldóri Kiljan Laxness.
Bókmenntir
Soffíuhópur með
verk mánaðarins
Halldór
Laxness
Birna Hallgrímsdóttir píanó-
leikari og Hafdís Vigfúsdóttir
flautuleikari spila verk eftir
Faure, Bach og Gluck í tónlist-
arguðsþjónustu í Seltjarnar-
neskirkju á morgun. Hafdís
hefur komið fram sem einleik-
ari með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands og hafnaði í apríl sl. í
öðru sæti í alþjóðlegri flautu-
keppni, Le Parnasse, í París.
Birna hefur á undanförnum ár-
um haldið fjölmarga einleikstónleika m.a. í Saln-
um í Kópavogi og í Norræna húsinu. Hún hlaut
önnur verðlaun í Epta píanókeppninni árið 2006.
Tónlistarguðsþjónustan hefst kl. 11. Prestur er
Sigurður Grétar Helgason.
Tónlist
Hafdís og Birna í
Seltjarnarneskirkju
Hafdís
Vigfúsdóttir
Sænskur kvennakór, The vocal
ensemble Cantus, heldur tón-
leika í Bústaðakirkju kl. 16:00 í
dag. Allir eru velkomnir og að-
gangur er ókeypis. Kórinn var
stofnaður sem kór með ungu
fólki árið 1970 og hefur starfað
ötullega síðan. Kórinn hefur
komið að flutningi stórra verka
ásamt öðrum kórum. Þar má
nefna Messias eftir Händel og
Gloria eftir Vivaldi. Á síðasta
ári flutti kórinn tónlist eftir Mendelssohn í tilefni
af því að 200 ár voru liðin frá fæðingu tónskálds-
ins. Stjórnandi kórsins er Sven Edsfors organisti í
Arnäs kirkju í Örnsköldsvik í Norður-Svíþjóð.
Flutt verða verk yngri sem eldri meistara.
Tónlist
Sænskur kvenna-
kór í Bústaðakirkju
Sven
Edsfors
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Myndlistarmennirnir Ragnar Jónasson og Tómas
Lemarquis opna í dag kl. 17 sýningu á verkum sín-
um í galleríi Kling & Bang þar sem ýmsum miðlum
er flétt saman; málverkum, skúlptúr, ljósmyndum,
klippimyndum og myndbandsverkum. Sýninguna
nefna þeir Luminous en þeir hafa áður sýnt saman
með Kling & Bang, árið 2005 og áttuðu sig þá á því
að þeir ættu sameiginlegt áhugasvið, andleg mál-
efni í víðum skilningi. Báðir hafa áhuga á því að
kanna mörk mismunandi vídda og má þar nefna
mörk vitundar og dulvitundar eða þessa heims og
annarra, eins og segir í tilkynningu um sýninguna.
Efnið nálgast þeir þó með ólíkum hætti en beita
báðir blöndu af kímni og alvöru.
Myndir sem birtast þegar maður lokar
augunum
Tómas og Ragnar eiga báðir að baki myndlist-
arnám við Listaháskóla Íslands, Tómas útskrif-
aðist 2003 og Ragnar ári síðar. Blaðamaður ræddi
við Tómas um sýninguna og einnig leiklistina,
danska sjónvarpsþætti sem hann lék nýverið í.
– Þið eigið þetta sameiginlega áhugasvið, andleg
málefni í víðasta skilningi. Hvernig birtist það í
sýningunni?
„Þetta eru mörg ólík verk. Ég sýni bæði klippi-
myndir og vídeóverk og hann er með málverk,
skúlptúr, hljóðverk og ljósmyndir þannig að þetta
eru ólíkar birtingarmyndir sama umfjöllunarefnis.
Það sem ég er að gera með þessari bíómynd líkist
því að fara inn í huga manns, allar þessar myndir
sem birtast manni þegar maður lokar augunum,
t.d. þegar maður er við það að sofna, þessi hugs-
anatengsl. Myndin á kannski ekki að vera um hug-
ann heldur eins og hugurinn sjálfur, svolítið eins
og trans. Myndirnar fara hratt fram og ég blanda
svo saman við þær eins konar glerborg, skúlptúr
sem ég hef gert og tekið upp líka,“ segir Tómas.
Skúlptúrinn sé táknrænn fyrir kyrrðina sem fær-
ist yfir hugann.
Tómas segir verk Ragnars fjalla líka um hugann
og þessar myndir sem flæði fram en hann byggi á
sannsögulegum atvikum um fólk sem á tímabili
var hrætt um að hægt væri að lesa huga þess.
„Hann bjó til konsert sem heitir „Aluminatie“, eins
og aluminium, til að reyna að einangra manneskj-
una þannig að ekki sé hægt að komast inn í hugs-
anir hennar.“ Þannig sé manneskjan loki sig af til
að verða fyrir vitrun eða einfaldlega til að loka sig
af.
Klippimyndir sínar sýnir Tómas í ljósakassa.
Tómas sýndi einmitt klippimyndir á útskriftarsýn-
ingu sinni í L.H.Í. og segir hann tengingu að finna
í hinum nýju klippimyndum við það verk. „Þetta
hefur þróast dálítið mikið. Í klippimyndunum er ég
að reyna að sýna einhvern annan heim, í annarri
vídd eða tengt draumum
jafnvel.“ Í myndbands-
verki hans, „Mysterium
tremendum“, sé fólk m.a.
að troða í sig, borða af-
skaplega mikið og segir Tóm-
as það myndlíkingu, fólk sé allt-
af að troða einhverju í sig, tónlist
eða einhverju öðru, til að þurfa ekki að
hugsa eða horfast í augu við sjálft sig.
Morgunblaðið/RAX
Hugljómun Myndlistarmennirnir Tómas Lemarquis og Ragnar Jónasson í galleríi Kling&Bang í gær. Tómas og Ragnar kanna í verkum sínum mörk mis-
munandi vídda, vitundar og dulvitundar, þessa heims og annarra. Verkin eru unnin í ólíka miðla, m.a. málverk, skúlptúr, ljósmyndun og myndband.
Um óravíddir hugans
Tómas Lemarquis og Ragnar Jónasson opna sýninguna Luminous í galleríi
Kling & Bang Tómas lék nýverið í dönskum sjónvarpsþáttum með Kim Bodnia
Í tengslum við sýningu Hafnar-
borgar Að drekka mjólk og elta fólk
stendur Þjóðfræðistofa fyrir mál-
þingi um húmor sem samfélagsrýni
og valdatæki þjóðfélagshópa.
Á þinginu fjalla fræði- og lista-
menn um ýmsar birtingarmyndir
húmors í menningar- og samfélags-
legu samhengi. Málþingið hefst kl.
15:00 í dag.
Meðal þeirra sem þátt taka í mál-
þinginu er Kristinn Schram, for-
stöðumaður Þjóðfræðistofu, sem
flytur erindi sem kallast Húmor,
vald og samfélag. Hann segir að
listamenn séu vitanlega mispólitískir
og beinar ádeilur á ríkjandi valdhafa
hafi ekki alltaf verið mjög áberandi í
myndlist á Íslandi. „Pólitískur húm-
or í myndlist hefur þó lengi beinst að
mikilvægum málefnum svo sem
reynsluheimi kvenna og jafnvel
stöðu Íslands í valdabrölti heims-
veldanna. Í nútímanum eru verk
Ilmar Stefánsdóttur ágætt dæmi um
hið fyrra en verk Hlyns Hallssonar
um hið síðara. Kímni er vissulega
öflugt vopn gegn valdhöfum en um
gagnsemi þess er þó deilt. Húmor
getur líka verið vopn valdahafanna
því með gríni fá málefnin oft á sig
hversdagslegan blæ og geta dregið
úr spennu og óánægju. Annars getur
líka verið erfitt að greina hvar list
endar og einhverskonar hversdags-
legur veruleiki tekur við. Þannig
mætti skilja forsetaframboð Snorra
Ásmundssonar á sínum tíma sem
listrænan gjörning en um uppgang
Besta flokksins gegnir öðru máli.
Hvar grínið endar og alvaran tekur
er viðvarandi spurning þegar menn
taka völdin með húmorinn að vopni.“
Aðspurður hve langt muni líða
þangað til Íslendingar geti hlegið að
kreppunni segir Kristinn að stund-
um sé sagt að grín sé summan af
hörmungum plús tíma. „Það er þó
erfitt að segja hversu langt þarf að
líða áður en við getum gantast með
háalvarleg mál. Til að mynda töluðu
margir um „dauða íroníunnar“ eftir
árásina á tvíburaturnana á sínum
tíma. Slíkar yfirlýsingar eru þó iðu-
lega úr lausu lofti gripnar og það
verður að segjast að glottið var ekki
lengi að færast yfir varir margra Ís-
lendinga eftir að kreppan skall á.
Kímni er í raun ekki eitthvað sem
við grípum til þegar erfiðleikar eru
um garð gengnir. Það er mitt í flók-
inni atburðarás sem húmor er hvað
mest aðkallandi og er iðulega not-
aður til þess að greina og vinna úr
erfiðri reynslu.“
Húmor,
vald og
samfélag
Málþing Þjóðfræði-
stofu um húmor
Morgunblaðið/Golli
Grín Kristinn flytur erindi sem kall-
ast Húmor, vald og samfélag.
Það var bara ein
vinnuregla við stofn-
un hljómsveitarinnar. Allt
mátti. 47
»
Tómas hefur nýlokið leik í dönskum saka-
málaþáttum, Den som dræber, og leikur þar
rússneskan mafíósa, Uri, sem starfar fyrir
mafíuforingja sem einn þekktasti leikari
Dana, Kim Bodnia, leikur. Í þáttunum segir af
rannsóknarlögreglukonu og réttarsálfræðingi
sem reyna að hafa hendur í hári fjöldamorð-
ingja. Mikið er lagt í þættina og í aðal-
hlutverkum eru Jakob Cedergren (sem lék í
kvikmynd Dags Kára Péturssonar, Voksne
mennesker), Laura Bach, Lars Mikkelsen og
Lærke Winther. Bodnia hefur m.a. leikið í
kvikmyndunum Nattevagten, Pusher og Blee-
der. Hann hefur oftar en ekki leikið kaldrifj-
aða náunga. Blaðamaður spurði Tómas hvern-
ig hefði verið að vinna með Bodnia.
„Hann er alveg frábær
náungi,“ segir Tómas.
Bodnia sé ekki með
neina stæla eða grobb
heldur ljúfur í viðkynn-
ingu, eins og oft eigi við um
góða leikara. Þættirnir verða
sýndir á næsta ári og segist Tómas
halda að einnig eigi að vinna kvikmynd
upp úr þeim. Þá stendur til að sýna
þættina í Svíþjóð, Noregi og Þýskalandi.
Bodnia laus við
stæla og grobb
Í DÖNSKUM SAKAMÁLAÞÁTTUM
www.this.is/klingogbang Kim Bodnia