Morgunblaðið - 25.09.2010, Blaðsíða 52
LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 268. DAGUR ÁRSINS 2010
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 590 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2218
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Grunsamlegir menn taka myndir
2. Teresa Lewis tekin af lífi
3. Andlát: Jóhann Ágústsson
4. Tældi unga stúlku með gjöfum
Leikarinn og myndlistarmaðurinn
Tómas Lemarquis lék í dönskum
sakamálaþáttum með einum þekkt-
asta leikara Dana, Kim Bodnia, og
opnar sýningu í Kling&Bang. »44
Lék með Kim Bodnia
í sakamálaþáttum
Pablo Francisco verður með uppi-
stand í Broadway 3. október nk. Við-
burðurinn er hluti af uppistands-
ferðalagi Franciscos
sem ber heitið Funkin
off the Wall. Franc-
isco þykir prýðileg
eftirherma og fer
m.a. mikinn í túlk-
un sinni á vöðva-
tröllinu og rík-
isstjóranum Arnold
Schwarzenegger.
Francisco með uppi-
stand í Broadway
Fyrstu tónleikar Kammerúsík-
klúbbsins á starfsárinu 2010-2011
verða á morgun í Bústaðakirkju kl. 20
eins og venjulega. Á efnisskránni
verða þrjú píanótríó: eftir Schumann,
Brahms og einþáttungur eftir Þórð
Magnússon sem hann kallar Scherzo.
Flytjendur verða Trio Nordica, þær
Auður Hafsteinsdóttir, Bryndís Halla
Gylfadóttir og Mona Kontra.
Tónleikar Kammer-
músíkklúbbsins
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 10-15 m/s og talsverð rigning sunnan- og vestanlands,
annars hægari og úrkomulítið. Lægir og dregur úr úrkomu vestast á landinu eftir hádegi.
Á sunnudag Suðaustan 13-18 m/s við suðvestur- og vesturströndina, annars víða 8-13.
Rigning sunnan- og vestanlands en úrkomulítið á N- og A-landi. Hiti 10 til 16 stig.
Á mánudag Sunnan 5-10 m/s og rigning suðaustanlands, skúrir vestanlands en hægari
og víða bjart norðanlands. Hiti svipaður.
Úrslitin á Íslandsmótinu í úrvalsdeild
karla, Pepsi-deildinni, ráðast í dag
þegar lokaumferðin fer fram. Breiða-
blik, ÍBV og Íslandsmeistaralið FH
eiga möguleika á því að landa þess-
um eftirsótta titli. Sigurður Grét-
arsson, fyrrverandi leikmaður og
þjálfari Breiðabliks, er sannfærður
um að Kópavogsliðið landi titlinum í
fyrsta sinn í sögu félagsins. »2
Þriggja liða barátta um
Íslandsmeistaratitilinn
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Áætlað er að heildarkostnaður við
Bolungarvíkurgöng verði um 6,5
milljarðar króna. Göngin verða
opnuð við hátíðlega athöfn í dag.
Upphaflega var gert ráð fyrir
því að jarðgöngin myndu kosta um
5 milljarða, á verðlagi 2007. Það
hefur að mestu staðist, samkvæmt
upplýsingum Hreins Haralds-
sonar vegamálastjóra. Þó hefur
kostnaður aukist um 300-400 millj-
ónir kr. vegna aukins kostnaðar
við styrkingu ganganna í veikum
jarðlögum. Með verðlagsbreyt-
ingum verður heildarkostnaður
um 6,5 milljarðar.
Dagskrá verður í dag við báða
gangamunna. Ögmundur Jón-
asson samgönguráðherra og
Hreinn Haraldsson vegamála-
stjóri klippa á borða við ganga-
munnann í Bolungarvík klukkan
13.30. Síðan verður ekið í gegnum
göngin og bæjarstjórarnir mætast
Hnífsdalsmegin. Þar verður hin
akreinin opnuð og eftir það verða
göngin opin fyrir almenna umferð.
Hátíðardagskrá verður í
Íþróttahúsinu í Bolungarvík og
síðan jarðgangafagnaður með
kvöldskemmtun og dansleik á
sama stað. » 12
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Kostnaður við
jarðgöngin
6,5 milljarðar
Hátíð í Bolungarvík í tilefni dagsins
Skilti fjarlægt Ekki er lengur þörf fyrir skilti sem sýnir veðuraðstæður á
Óshlíð. Það fær nýtt hlutverk á Súðavíkurvegi.
5,4 kílómetrar
» Óshlíðargöng eru um 5,1 km
löng í bergi og heildarlengd
vegskála er um 0,3 km.
» Göngin eru því samtals 5,4
km löng og halla rúm 2% til
beggja enda.
Reykjavíkurflugvelli til sjálfrar aðgerðarinnar
á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg, og
allt þar til sjúkraþjálfarinn var mættur til
Kjartans til að hefja endurhæfinguna, strax
daginn eftir ígræðsluna. Einstæðar myndir
sýna þegar gamla hjartað var fjarlægt úr
Kjartani, nýtt hjarta grætt í og byrjaði að slá.
Þá lýsir eiginkona Kjartans, Halldóra, þeirri
lífsreynslu að fylgja sínum heittelskaða í erfiða
aðgerð og í spítalasvítu meðan eiginmaðurinn
jafnar sig. En þótt aðgerðin sé yfirstaðin bíður
Kjartans mikil vinna í endurhæfingu og styrk-
ingu svo hann komist aftur í golf og badmin-
ton.
Rétt fyrir klukkan tvö hinn 26. ágúst fékk
Kjartan Birgisson símhringingu um að mæta í
hjartaígræðslu til Svíþjóðar. Snemma næsta
morgun var nýtt hjarta farið að slá í brjósti
hans. „Þetta hefur gengið ótrúlega vel og
lengst af á undan áætlun,“ segir Kjartan í við-
tali við Pétur Blöndal í Sunnudagsmogganum.
Og Kjartan finnur mun á hjörtunum. „Ég finn
mikinn, jákvæðan mun. Hitt var náttúrlega há-
vaðaseggur en þetta er talsvert rólegra. Það
heyrist minna í því.“
Kristinn Ingvarsson ljósmyndari fylgdi
Kjartani utan og myndaði allt ferðalagið, frá
hjartnæmri kveðjustund dætra Kjartans á
Morgunblaðið/Kristinn
Kveðjukoss Hjarta fer og hjarta kemur.
Munur á hjörtunum
Strákarnir í U17 ára drengjalandslið-
inu í knattspyrnu fögnuðum góðum
sigri gegn Tyrkjum, 2:0, í öðrum leik
sínum í undankeppni Evrópumótsins
en riðillinn sem Ísland spilar í er leik-
inn hér á landi.
Liðin mættust í Víkinni og skoruðu
Hjörtur Hermannsson og Oliver Sig-
urjónsson mörk Íslands í leiknum
sem bæði komu í seinni hálfleik en
Tyrkir enduðu leikinn með aðeins níu
menn inni á vellinum. » 1
Góður sigur á Tyrkjum í
undankeppni EM
Hólmfríður Magnúsdóttir, landsliðs-
kona í fótbolta, leikur til úrslita um
bandaríska meistaratitilinn í fótbolta
með Philadelphia Independence. FC
Gold Pride verður mótherji Hólm-
fríðar í úrslitaleiknum í Kaliforníu á
sunnudaginn. »1
Hólmfríður keppir til
úrslita um titilinn