Morgunblaðið - 06.10.2010, Side 10
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Íslendingar eru svo opnir fyr-ir því að prófa eitthvað nýtt ogþeir hafa tekið staðnum okkarmjög vel. Þeir kunna vel að
meta brasilíska matinn og sumir
segja að það sé draumi líkast að
borða matinn sem ég elda,“ segir Sil-
bene Dias og skellihlær, en hún er
eigandi og aðalkokkur á brasilíska
veitingastaðnum Brasilia við Skóla-
vörðustíg. Hún stendur ekki ein í
brúnni því Marcia, systir hennar, er
einnig í fullu starfi á veitingastaðn-
um.
„Við unnum báðar á öðrum veit-
ingastöðum, bæði á Kaffi Oliver og
Kaffi Sólon, en svo fórum við að velta
fyrir okkur hvort við ættum ekki að
opna okkar eigin stað með alvöru
brasilískum mat. Við slógum til og
opnuðum rétt fyrir jólin í fyrra. Við
erum nefnilega sterkar konur, rétt
eins og hún móðir okkar,“ segja þær
og hlæja sínum bjarta hlátri, en hlát-
ur er þeim greinilega í blóð borinn,
þær eru alltaf brosandi og ein-
staklega hláturmildar.
Eldamennskan er ástríða
Brasilísku systurnar eru báðar
fjarska góðir kokkar og hafa eldað frá
því þær voru stelpur. Og auðvitað var
það sterka mamman þeirra sem
kenndi þeim að elda. „Í svona stórum
systkinahópi er óhjákvæmilegt að
læra snemma að elda. Við erum líka
aldar upp við hefð þar sem matur
skiptir miklu máli. Heima í Brasilíu
er alltaf verið að elda og allir borða
saman,“ segir Silbene og bætir við að
fyrir henni sé eldamennska ástríða.
„Ég elska að elda og maturinn
hér á veitingastaðnum okkar er því
ekki bara matur, heldur búa í honum
allar þær tilfinningar sem ég set í elda-
mennskuna. Ég hef alla tíð haft brenn-
andi áhuga á matargerð, ég var ekki
nema átta ára þegar ég eldaði mín
fyrstu grjón og ég man hvað ég var
hamingjusöm þegar allir í fjölskyld-
unni smökkuðu og hrósuðu mér. Það
var mjög tillitssamt af þeim, því þegar
ég smakkaði sjálf komst ég að því að
grjónin voru brimsölt og þá skildi ég
hvers vegna allir drukku svona mikið
vatn með þeim,“ segir Silbene og hlær
innilega að minningunni.
„En mér fór hratt fram og á ung-
lingsaldri var ég farin að elda mjög
góðan mat fyrir yngri systkini mín.
Seinna lærði ég svo matargerð hjá
færum kokkum í Brasilíu.“
Þær Silbene og Marcia segja
brasilíska matargerð og matarhefð
mjög ólíka því sem er á Vestur-
löndum.
„Heima í Brasilíu borðum við
ekki hamborgara í öll mál. En við
borðum aftur á móti mikið af grjón-
um og baunum, reyndar á hverjum
degi, en líka mikið af kartöflum, kjúk-
lingi og eggjum. Við blöndum líka öllu
saman, viljum hafa þetta litríkt og
margslungið á einum og sama disk-
inum, rétt eins og karnival. Mörgum
finnst til dæmis skrýtið að við borð-
um bæði kartöflur og grjón með
kjöti.“
Eru vanar að vera
umvafðar fólkinu sínu
Silbene kom fyrst til Íslands fyr-
ir fimm árum en Marcia fluttist hing-
að fyrir þremur árum. Þær systur
eru aldar upp í stórum systkinahópi,
systurnar eru sjö og bræðurnir tveir,
þær eru því vanar að hafa mikið af
sínu fólki í kringum sig. Silbene seg-
ist hafa verið mjög einmana hér á Ís-
landi til að byrja með. „Ég sá að
tvennt var í stöðunni, að flytja aftur
til Brasilíu eða reyna að fá eitthvað af
mínu fólki til að flytja hingað til mín.
Sterkar konur, rétt
eins og mamman
Þær eru brosmildar brasilísku systurnar sem eiga og reka saman veitingastaðinn
Brasilia við Skólavörðustíg. Þær ólust upp í stórum systkinahópi og lærðu því
snemma að elda. Í þeirra heimalandi skiptir matur miklu máli og hann er eld-
aður af ástríðu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nóg að gera Silbene matreiðir hinn gómsæta fiskrétt Muqueca Bahiana.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2010
Bára Hlín er ung íslensk kona sem
hefur haldið úti bloggsíðunni: bar-
ahlin.blogspot.com, frá því í janúar á
þessu ári.
Yfirskriftin hennar er: Það er mikil
synd að drepa fagra hugsun.
Bára Hlín er dugleg við að birta
myndir af fallegri innanhússhönnun
sem vissulega gleður augun. Einnig
birtir hún stemningsmyndir, til dæm-
is haustmyndir bæði úr náttúrunni,
inni á heimilum sem og fatnaði, skóm
eða fylgihlutum.
Hún setur líka inn linka á önnur
blogg eða síður sem henni finnst
áhugaverðar og birtir myndir af þeim,
gott dæmi þar um er vefsíðan
www.bkids.typepad.com, en þar má
meðal annars fá frábærar hugmyndir
að barnaherbergjum.
Vefsíðan www.barahlin.blogspot.com,
Haust Ein af fallegu haustmyndunum á blogginu hennar Báru Hlínar.
Synd að drepa fagra hugsun
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
„Vetrarstarfið byrjaði eiginlega á
laugardaginn var, með gömlu-
dansaballi. Böllin verða sjö í vetur,
það næsta í nóvember og svo aftur í
janúar,“ segir Friðjón Hallgrímsson,
formaður skemmtinefndar Félags
harmonikuunnenda í Reykjavík
(FHUR).
Vetrarstarf FHUR sam-
anstendur af hljómsveitaræfingum,
dansleikjum og skemmtifundum.
Félagið heldur dansleiki í Breið-
firðingabúð. Þar er ávallt mikið fjör
og vel mætt til dans- og vinafunda.
Félagsmenn hafa aðallega leikið fyrir
dansi. Friðjón segir félagið yfirleitt
halda mörg böll yfir vetrartímann og
þau takist alltaf mjög vel, séu afar vel
sótt.
„Við verðum líka með þrjá
skemmtifundi í vetur í Iðnó kl. 15 á
sunnudögum, það eru tónleikar og
svo dans á eftir. Við vorum líka með
þetta þar í fyrra og það var mjög
skemmtilegt, enda draumur að vera í
Iðnó,“ segir Friðjón. Á skemmtifund-
unum koma fram spilarar á öllum
aldri og í vetur verður lögð áhersla á
ungu harmonikuleikarana. Næsti
skemmtifundur verður haldinn 24.
október og eru allir velkomnir á með-
an húsrúm leyfir.
Spurður út í vinsældir harm-
ónikunar segir Friðjón að það séu
mjög margir að læra á harmóniku og
það sé meira notað af henni í hljóm-
sveitum nú en bara fyrir tuttugu ár-
um.
„Það er miklu meira um hana en
var en hún er ekki mikið notuð sem
aðalhljóðfæri eins og um 1960, nema
á gömludansaböllunum, þá leikur
hún aðalhlutverkið,“ segir Friðjón.
Hann segir þrjú hundruð til þrjú
hundruð og fimmtíu félagsmenn vera
í FHUR. „Það fjölgar minna en við
vonumst eftir en við reynum að halda
fjöldanum í horfinu. Félagsmennirnir
hafa elst svolítið.“
Hljómsveit er starfrækt innan
félagsins og eru alltaf æfingar á mið-
vikudagskvöldum í sal Þjóðdans-
afélagsins í Mjódd frá kl. 19 til 20.30.
Stjórnandi hljómsveitarinnar er
Reynir Sigurðsson.
„Hljómsveitin hefur verið starf-
rækt í félaginu nánast frá upphafi
þess, síðan 1977. Það voru tólf manns
í hljómsveitinni í fyrra og verða fjór-
tán til sextán í vetur. Við erum að æfa
fyrir ellefta landsmót íslenskra harm-
onikuunnenda sem verður haldið á
Hellu næsta sumar,“ segir Friðjón.
Fyrir þá sem hafa áhuga á að
ganga í FHUR er símanúmer félags-
ins að finna í símaskránni.
Tónlist og dans
Öflugt vetrar-
starf hjá FHUR
Spilað Frá hátíðinni Nú er lag sem Félag harmonikuunnenda í Reykjavík
hélt í Árnesi um verslunarmannahelgina og hóf þar með 33. starfsár sitt.
Í kvöld klukkan átta sýnir Konfúsíus-
arstofnunin Norðurljós kínversku
gullaldarmyndina Gyðjuna (Shennü)
frá árinu 1934. Sýningin verður í Nor-
ræna húsinu en leikstjóri hennar er
Wu Yonggang.
Í fréttatilkynningu segir að myndin
sé um afdrif nafnlausrar konu í
Sjanghæ sem neyðist til að sjá sér og
ungum syni sínum farborða með
ástundun vændis. Í titli myndarinnar,
Gyðjan, er falin tvíræð tilvísun. Í
Shanghai var „gyðja“ (shennü)
slanguryrði yfir vændiskonur en jafn-
framt vísar titillinn til hins guðlega
flekkleysis sem einkennir persónu
móðurinnar. Í myndinni er varpað
ljósi á þær andstæður og þá mis-
skiptingu sem einkenndu Sjanghæ
fjórða áratugarins en borgin var þá
fimmta stærsta borg heims, þekkt
fyrir stórbrotið menningar- og
skemmtanalíf og hún ýmist nefnd
„París Asíu“ eða „hóruhús Asíu“.
… sjáið kínversku gyðjuna
Móðurást Gyðjan ásamt syni sínum.
Endilega …