Morgunblaðið - 25.11.2010, Síða 1
F I M M T U D A G U R 2 5. N Ó V E M B E R 2 0 1 0
Stofnað 1913 276. tölublað 98. árgangur
–– Meira fyrir lesendur
fylgir
með
Morgu
nblaði
nu í da
g
EINN AF STÓRU
KLASSÍSKU
KONSERTUNUM
ARI ELDJÁRN
OG GLÍMAN
VIÐ LENNON
Á SJÖTTA HUNDRAÐ
UNGRA KEPPENDA
Á SILFURLEIKUM
VIÐSKIPTABLAÐ OG AUG-
LÝSINGABLAÐIÐ FINNUR.IS BARNASTARF ÍR ÍÞRÓTTIREINLEIKUR HELGU ÞÓRU 32
Ögmundur Jónasson, dóms- og mannréttindaráðherra,
segist hafa trú á að hægt verði að finna lausn varðandi
kosningu til stjórnlagaþings sem samtök blindra og
sjónskertra sætti sig við. Lausnin feli í sér að blindir
komi með aðstoðarmann til að kjósa og að aðstoðar-
maður undirriti yfirlýsingu áður en hann fer inn í kjör-
klefann. Meginkrafa blindra var að fulltrúi kjör-
stjórnar færi ekki með blindum inn í kjörklefann.
Ögmundur sagði ráðuneytið ekki vilja víkja frá því
grundvallaratriði að í slíkum tilvikum sé einhver form-
leg aðkoma fulltrúa kjörstjórnar að málinu, en hug-
myndin sé að aðstoðarmaður undirriti yfirlýsingu.
Ögmundur sagði að framtíðarmarkmiðið væri að
blindur einstaklingur gæti kosið hjálparlaust einn í
kjörklefanum. Það væri auðveldara að tryggja það ef
kosningin væri rafræn. Hann sagðist ætla að setja á
stofn starfshóp á næstu dögum sem fengi það verkefni
að finna fyrirkomulag sem dygði til frambúðar.
Gísli Helgason og Ragnar Aðalsteinsson hæstarétt-
arlögmaður áttu fund með Ögmundi í gær þar sem far-
ið var yfir kröfur blindra, en þeir hafa dregið í efa að
kosning til stjórnlagaþings sé lögleg. egol@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Fulltrúi kjörstjórnar fer ekki
með blindum inn í kjörklefann
Ekki er hægt að
halda því fram að
friður og sátt ríki
innan VG, í kjölfar
átakamikils flokks-
ráðsfundar hreyf-
ingarinnar um síðustu
helgi.
Nær væri að segja að sátt ríkti um
það að slá innri ágreiningi á frest
um óákveðinn tíma, eða fram til
næsta landsfundar.
Viðmælendur Morgunblaðsins
eiga von á því að til uppgjörs komi á
næsta landsfundi, þar sem stefna
flokksins um Evrópusambandið
verði helsta átakamálið. Á þeim
fundi muni afstaða fulltrúa af lands-
byggðinni skipta sköpum.
agnes@mbl.is »12
Óánægjan í VG
kraumar undir niðri
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Tollgæslan tók í gær bíl til skoðunar
sem fluttur var til landsins með
flutningaskipi, en í honum voru not-
uð reiðtygi, beisli,
skítug leður-
stígvél og fleira.
Bannað er sam-
kvæmt lögum að
flytja notuð reið-
tygi og reiðföt til
landsins en með
þeim geta hrossa-
sjúkdómar borist
til landsins.
Grunur leikur á
að hestapestin
sem hefur valdið miklu tjóni í hesta-
mennsku á þessu ári hafi borist til
landsins með þessum hætti. M.a.
varð að aflýsa hestamannamótum,
tjón varð í ferðaþjónustu og hestar
drápust.
Guðni M. Sigurðsson hjá emb-
ætti tollstjóra segir erfitt að skilja að
menn í hestamennsku geri sig seka
um svona lagað í ljósi þess sem gerð-
ist varðandi hestapestina. Hann seg-
ir þetta skýrt brot á lögum. „Það er
mjög alvarlegt mál að gera þetta.
Það þarf ekki mikið til að smit-
sjúkdómar í hrossum berist hingað
til lands. Það kemur manni því tals-
vert á óvart að menn sem eru í þess-
ari grein séu að draga með sér skít-
ug reiðtygi til landsins.“
Dýralæknir frá Matvælastofn-
un skoðaði bifreiðina í gær. Rann-
sókn á málinu er ekki lokið. Brot á
lögum um dýrasjúkdóma og varnir
gegn þeim varða sektum og fangelsi.
Flutti inn
notuð
reiðtygi
Tollgæslan stöðv-
aði bíl hestamanns
Hestar Hestapest-
in olli miklu tjóni.
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Frá ársbyrjun 2008 hefur Útlend-
ingastofnun vísað 123 útlendingum af
landi brott vegna þess að þeir hlutu
hér refsidóma eða að meðaltali 41 á
ári. Þetta er mikil fjölgun frá fyrri ár-
um því á fjórum árum, 2004-2007, var
alls 77 vísað af landi brott af þessu til-
efni eða að meðaltali 19 á ári.
Hlutfall borgara innan EES sem
hefur verið vísað úr landi hefur aukist
mjög undanfarin 3-4 ár en um leið
verður að hafa í huga að þeim fjölgaði
hér hröðum skrefum fram til ársins
2008. Áður var mun óalgengara að
borgurum innan EES væri vísað af
landi brott en á síðustu þremur árum
hefur fleiri EES-borgurum verið vís-
að brott vegna þess að þeir fengu
refsidóma heldur en borgurum utan
EES.
Þegar útlendingar utan EES óska
eftir dvalarleyfi hér á landi biður
stofnunin þá um sakavottorð en ekki
þegar þeir óska eftir endurnýjuðu
vottorði. Stofnunin hefur ekki heimild
til að biðja EES-borgara um sakavott-
orð, nema af rökstuddu tilefni. Raunar
þurfa EES-borgarar ekki dvalarleyfi,
þeim nægir að skrá sig hjá Þjóðskrá.
Fjölda EES-borgara vísað út
Brottvísanir 1. janúar 2004 - 24. nóvember 2010
2007 2008 2009 2010 2007 2008 2009 2010
Ríkisborgarar utan og innan EES Ástæður brottvísunar
Innan EES
Utan EES
Brot á útl.lögum Ólögm. dvöl
Refsidómur Synjun á hæli
14 13
3029
18
26
33
16
4
0
17
48
34
41
3
7
44 2 0
6 4
1
4
Á þremur árum var 123 útlendingum
vísað brott í kjölfar refsidóma hér á landi
MVísað úr landi fyrir mansal »13
Ragnar Árna-
son, prófessor í
hagfræði við Há-
skóla Íslands,
segir nánast all-
ar ákvarðanir
ríkisstjórn-
arinnar í efna-
hagsmálum hafa
verið rangar.
Hann segir að
rangt hafi verið
að hækka skatta og flækja skatt-
kerfið eins og gert hefur verið og
eins hafi verið rangt að skera ekki
meira niður í útgjöldum ríkisins en
raun ber vitni.
Hann segir að þessar ákvarðanir,
sem og gjaldeyrishöftin, dragi mátt
úr efnahagslífinu á tímum þar sem
bráðnauðsynlegt sé að ná upp raun-
verulegum hagvexti svo hægt sé að
greiða niður erlendar skuldir þjóð-
arinnar. Gjaldeyrishöftin séu í raun
fölsun á gengi krónunnar og vinni
gegn þessu markmiði. »Viðskipti
Segir ákvarðan-
ir ríkisstjórnar-
innar rangar
Ragnar
Árnason