Morgunblaðið - 25.11.2010, Page 2

Morgunblaðið - 25.11.2010, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2010 H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 1 0 -1 9 4 3 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Þyrla danska flughersins, Agusta Westland EH101, tók þátt í æfingu með stjórnstöð, flug- deild og varðskipi Landhelgisgæslunnar á Faxa- flóa í gær. Hún er ein fullkomnasta þyrla á Norður-Atlantshafi og er á æfingaferðalagi sem hófst 15. nóvember í Norður-Noregi og lýkur á Grænlandi á morgun. Danski flugherinn á fjór- tán þyrlur af tegundinni EH101 og átta þeirra eru notaðar við leitar- og björgunarstörf. Danska þyrlan Agusta Westland EH101 á æfingu með Landhelgisgæslunni Morgunblaðið/Árni Sæberg Ein öflugasta þyrla á Norður-Atlantshafi í heimsókn Guðmundur Sv. Hermannsson og Egill Ólafsson „Það er allt rangt við þetta frum- varp,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í um- ræðu um frumvarp Ögmundar Jón- assonar, dóms- og mannréttindaráð- herra, um breytingar á lögum um landsdóm. Ögmundur sagði breyt- ingarnar miða að því að tryggja að málsmeðferð samræmdist mann- réttindasáttmála og einnig væru breytingarnar tæknilegs eðlis. Frumvarpið felur í sér fimm breytingar á lögunum um landsdóm, en veigamest er að gert er ráð fyrir að dómarar sem hafa byrjað meðferð máls skuli ljúka því þó að kjörtímabil þeirra sé á enda, en kjörtímabili átta dómara lýkur á næsta ári. Ögmund- ur sagði að með þessu væri verið að tryggja að lögin samræmdust mann- réttindasáttmála Evrópu. Það væri ekki gott að Alþingi færi að kjósa nýja menn í dóminn þegar búið væri að taka ákvörðun um að kalla dóm- inn saman og ákæra. Þingmannanefndin taldi ekki ástæðu til að breyta lögunum Bjarni sagði að þingmannanefnd- in, sem fjallaði um skýrslu rannsókn- arnefndar Alþingis, hefði komist að þeirri niðurstöðu að ekki væri tilefni til að breyta lögum um landsdóm og ráðherraábyrgð. Hann vitnaði í ræð- ur tveggja nefndarmanna en fram kom hjá þeim að nefndin hefði farið ítarlega yfir málið og komist að þeirri niðurstöðu að ekki þyrfti að gera breytingar á lögum um lands- dóm. Bjarni sagði að því mætti segja að ráðherrann kæmi nú með tillögu sem gengi þvert á vilja Alþingis og það eftir að þingið hefði tekið ákvörðun um að höfða mál á hendur fyrrverandi ráðherra. „Það er falskur hljómur í því að ráðherra skuli hafa afskipti af því eftir að ákært hefur verið,“ sagði Bjarni og bætti við að framkvæmda- valdið ætti ekki að vera að skipta sér af þessu máli. Það væri Alþingis að taka ákvörðun um málshöfðun og það ætti einnig að taka ákvörðun um hvort ástæða væri til að breyta lög- unum. Meginatriðið væri þó að það ætti ekki að breyta lögum um lands- dóm eftir á, þegar búið væri að taka ákvörðun um málshöfðun. „Ef Alþingi líkar ekki þetta frum- varp þá hafnar Alþingi frumvarp- inu,“ sagði Ögmundur. Orðalag var borið undir saksóknara Ögmundur sagði aðspurður að orðalag í einni grein frumvarpsins hefði verið borið undir saksóknara Alþingis áður en það var lagt fram. Frumvarpið hefði verið samið í dómsmála- og mannréttindaráðu- neytinu og byggðist það á tillögum sem forseti landsdóms sendi ráðu- neytinu í október. Sigurður Kári Kristjánsson sagði að það væri einsdæmi að þegar mað- ur væri borinn þungum sökum, eins og Geir H. Haarde, fyrrverandi for- sætisráðherra, kæmu þeir, sem dæmdu í málinu og sæktu það, að því að breyta málsmeðferðarreglum eft- ir að ákvörðun hefði verið tekin um að höfða málið. Fróðlegt væri að vita hvernig Mannréttindadómstóll Evr- ópu myndi líta á það. „Allt rangt við þetta frumvarp“  Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir harðlega frumvarp um landsdóm  Dómsmálaráðherra segir verið að tryggja að málsmeðferð samræmist mannréttindasáttmála Bjarni Benediktsson Ögmundur Jónasson Ráðherra viðskiptamála í Bandaríkj- unum, Gary Locke, hefur sent Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra, bréf þar sem hann gagnrýnir hvalveiðar Íslendinga og segir ekki vera markað fyrir afurð- irnar og veiðarnar því óþarfar. En hann segist einnig vonast eftir frek- ari viðræðum um hvalveiðarnar. Þess má geta að vísindanefnd Al- þjóðahvalveiðiráðsins, IWC, álítur veiðar Íslendinga sjálfbærar og hef- ur fallist á að Íslendingar veiði allt að 153 langreyðar á ári. Jón Bjarnason segir um markaðsmálin að þau séu ekki viðfangsefni ráðuneytisins held- ur þeirra sem veiði hvalina. „En af okkar hálfu erum við alveg tilbúin að skiptast á skoðunum við bandarísk stjórnvöld um þessi mál og munum að sjálfsögðu svara þessu bréfi,“ segir Jón. „Bæði ríkin leggja áherslu á sjálfbærar hvalveiðar, að því leyti hafa þau sameiginlega hags- muni. Það má segja að þarna sé ákveðin vísbending um að menn vilji halda öllum leiðum opnum. En hins vegar er líka vikið að þeirri gagnrýni sem þeir hafa áður sett fram. Ég held að við verðum stöðugt að benda á að okkar hvalveiðar eru sjálfbærar, byggðar á vísindaráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Veiðar okkar eru lögmætar og eins og fleiri ríki gerðum við á sínum tíma fyrir- vara við bann IWC. Það er athyglis- vert að í þessu bréfi þeirra er á viss- an hátt tekið undir það sjónarmið okkar að íslenski langreyðarstofninn sé í sjálfu sér ekki í neinni útrýming- arhættu sem við höfum reyndar fengið vísindalega staðfest. Enda gera Bandaríkjamenn í bréfinu ekki athugasemd við þann vísindalega bakgrunn sem stuðst er við.“ kjon@mbl.is Bandaríkjamenn vilja ræða hvalveiðar Íslendinga  Virðast samþykkja að íslenski lang- reyðarstofninn sé ekki í útrýmingarhættu Morgunblaðið/Kristinn Veiðin Langreyður skorin í hval- stöðinni í Hvalfirði. Kostnaður við sjúkraflutninga á milli heilbrigðisstofnana nam 815 milljónum króna á síðasta ári. Þetta kemur fram í skriflegu svari Guð- bjarts Hannessonar heilbrigðis- ráðherra við fyrirspurn Jóns Gunn- arssonar, Sjálfstæðisflokki, á þingi. Kostnaður nær til flutninga með sjúkrabílum, sjúkraflugvélum og í einstaka tilvikum þyrlum. Tæpur þriðjungur kostnaðarins er vegna sjúkraflugs, eða um 270 milljónir. Á flestum landsvæðum hefur þessi kostnaður aukist á árunum 2007- 2009, að Vestfjörðum undan- skildum. Mestur er kostnaðurinn á höfuð- borgarsvæðinu, eða um 383 millj- ónir kr. á síðasta ári, þar af 346 milljónir vegna Landspítalans. Á Norðurlandi nam kostnaðurinn í fyrra um 160 milljónum, þar af 113 milljónum vegna Sjúkrahússins á Akureyri. Á Suðurlandi var kostnaður við sjúkraflutninga um 100 milljónir á síðasta ári, 55 milljónir á Austur- landi, 50 milljónir á Vesturlandi, 43 milljónir á Suðurnesjum og 20 millj- ónir á Vestfjörðum. 815 milljónir króna í sjúkraflutninga á milli stofnana Átta dómarar í landsdómi voru kosnir á Alþingi árið 2005 og kjörtímabil þeirra rennur því út á næsta ári. Í frumvarpi dóms- málaráðherra er lagt til að sama regla gildi um dómara í lands- dómi og gildir um dómara í fé- lagsdómi, að þeir dómendur sem hafa byrjað meðferð máls skuli ljúka því þótt kjörtímabil þeirra sé á enda. Einnig er gert ráð fyrir að for- seti landsdóms taki ákvörðun um hæfi dómara til að sitja í landsdómi. Kjörtímabili lýkur 2011 DÓMARAR Í LANDSDÓMI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.