Morgunblaðið - 25.11.2010, Page 4

Morgunblaðið - 25.11.2010, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2010 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Samningaviðræður eru hafnar vegna endurnýjunar kjarasamninga í fiski- mjölsverksmiðjum. AFL Starfs- greinafélag á Austurlandi og Dríf- andi Stéttarfélag í Vestmannaeyjum standa saman að viðræðunum við Samtök atvinnulífsins. Sverrir Mar Albertsson, fram- kvæmdastjóri AFLs, segir að kröfu- gerð félaganna hafi verið kynnt við- semjendunum á fyrsta samninga- fundinum, sem haldinn var með milligöngu ríkissáttasemjara í liðinni viku. Semja fyrir 150-200 starfsmenn Kröfugerð félaganna gerir ráð fyrir 27% hækkun kauptaxta og er m.a. krafist desember- og orlofsupp- bótar á við það sem gerist í stóriðju- verum landsins. Að sögn Sverris er áhersla lögð á áframhald þróunar sem hófst árið 2006 að ósk SA í þá átt að samræma kjör í fiskimjölsverksmiðjum við þau kjör sem greidd eru í stóriðjuverk- smiðjum. Félögin semja fyrir 150 til 200 starfsmenn í flestum fiskimjölsverk- smiðjum landsins, það er að segja tvær verksmiðjur í Vestmannaeyj- um og verksmiðjurnar á Höfn, Fá- skrúðsfirði, Eskifirði, Neskaupstað, Seyðisfirði og Vopnafirði. Í umfjöllun á vefsíðu AFLs segir að félögin vilji með kröfugerð sinni leitast við að færa laun og önnur kjör í verksmiðjunum nær því umhverfi sem er í stóriðjuverunum enda sé á margan hátt um sambærileg störf að ræða. „Kröfugerðin er í samræmi við kjaramálaályktun AFLs en þar sagði m.a. „Kjaramálaráðstefna AFLs Starfsgreinafélags 2010 legg- ur áherslu á að í komandi kjara- samningum verði sótt af hörku í út- flutningsgrein[ar] sem nú njóta verulegs hagnaðar m.a. af skráningu gengis,““ segir þar. Telja sig eiga inni vegna gengisþróunar frá 2008 ,,Okkur finnst þetta vera eðlilegar kröfur miðað við að við erum að laga okkur að stóriðjuumhverfinu og einnig ef við horfum á útflutnings- verðmæti,“ segir Sverrir. „Ef við skoðum þetta með hliðsjón af gjaldmiðlinum má benda á að þeg- ar við sömdum á árinu 2008 vorum við að semja um 18 þúsund norskar krónur en í dag við erum með um 12 þúsund norskar krónur. Það er gríðarlegur afgangur miðað við kjarasamningana sem við gerðum 2008 og hann liggur í dag hjá at- vinnurekendunum. Við viljum fá eitt- hvað af þessu í okkar hlut.“ Krefjast 27% taxtahækkana  Kjaraviðræður eru byrjaðar vegna starfsmanna í fiskimjölsverksmiðjum  Vilja sambærileg kjör og í stóriðju  Ætla að sækja fast að útflutningsgreinum Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Bræðsla Lýsistankar á Vopnafirði. Debora Þórðardóttir frá Hvammstanga hélt upp á 100 ára afmæli sitt í gær. Ættingjar og vinir samfögnuðu henni þá á dvalar- og hjúkrunar- heimilinu Grund í Reykjavík. Debora fæddist á Ísafirði 24. nóvember 1910 en ólst upp á Hvammstanga. Hún varð símstjóri lýðveldisárið 1944 og póst- og símstjóri á Hvammstanga frá árinu 1962. Debora býr nú á Grund ásamt manni sínum Ásvaldi Bjarnasyni. Séra Garðar Þorsteinsson gaf þau saman í hjónaband 12. ágúst 1950 og áttu þau 60 ára brúðkaupsafmæli í sumar. 100 ára afmæli og 60 ár í hjónabandi á þessu ári Morgunblaðið/Kristinn Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís- lands, segir kosti þess að taka upp evru á Íslandi ekki jafn skýra og fyrir ári. Fram kom í frétt mbl.is að forsetinn hefði sagt blaðamanni Reuters-fréttastofunnar að fyrir rúmu ári hefði umræðan um rökin fyrir Evrópusambandsaðild á Ís- landi einkum snúist um að fjármála- markaðir hefðu þróast með þeim hætti að erfitt væri fyrir litla þjóð að halda úti sjálfstæðum gjaldmiðli. „En síðan höfum við séð hvert evruríkið á eftir öðru lenda í mikl- um vandræðum. Nú síðast það sem hefur gerst á Írlandi. Svo kostir þess að hafa annan gjaldmiðil eru orðnir óskýrari,“ sagði forsetinn í lauslegri þýðingu. „Evran er ekki skotheld formúla fyrir efnahags- uppgangi eins og Grikkland og Ír- land og önnur ríki upplifa nú,“ sagði forsetinn sem þakkaði gengis- lækkun krónunn- ar þann árangur sem náðst hefði í íslensku efnahags- lífi frá hruni. „Viðsnúningurinn í hagkerfinu hefur orðið fyrr og með öflugri hætti en búist var við fyrir tveimur árum vegna þess að útflutningsgeirinn, sjávarútvegur, landbúnaður og ferðaþjónusta hafa sterkara sam- keppnisforskot.“ Ætla má að ummælin veki athygli enda hefur talsvert verið fjallað um dræman stuðning við aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu á meðal Íslendinga í heimspressunni að undanförnu. Forsetinn vék einnig að litlum stuðningi við ESB-aðild á Íslandi. „Skoðanakannanir á síðustu mán- uðum hafa sýnt greinilega fram á að andstaðan við Evrópusambandsaðild hefur farið vaxandi. Fólk telur ekki að [ESB-aðild] sé úrslitaatriði. Hvort hún gæti haft ávinning í för með sér er annað mál.“ Ólafur Ragnar dregur kosti evrunnar í efa  Forseti Íslands segir krónuna hafa gagnast vel í kreppunni Ólafur Ragnar Grímsson Gamlar íslenskar fálkaorður ganga enn kaupum og sölum með- al safnara erlendis. Um síðustu helgi var sett af tveimur slíkum orðum boðið upp hjá uppboðshúsi í Osló. Fór önnur orðan á 1.850 norskar krónur, jafnvirði um 35 þúsund króna, og hin orðan fór á 2.500 norskar, eða um 47 þúsund íslenskar. Að sögn Magna R. Magnússonar safnara eru fálkaorðurnar jafnan eftirsóttar, líkt og sambærilegar medalíur fyrri tíma. Fyrir um ári greindi Morgunblaðið frá uppboði á fálkaorðum í Þýskalandi, en þær voru slegnar á mun hærra verði en þessar í Osló. Uppsett verð á stórriddarakrossi þar var um 270 þúsund krónur. Uppsett verð á annarri orðunni í Osló var 1.200 norskar krónur en lokaverð var 1.850 krónur. Fór hin orðan á uppsettu verði, 2.500 krónum norskum. Við verðið má bæta 18% þóknun seljandans. Báð- ar eru orðurnar frá lýðveldistím- anum, að sögn Magna, þ.e. frá því eftir 1944, sú dýrari stórridd- arakross. bjb@mbl.is Fálkaorður ganga kaup- um og sölum Karlmaður var fluttur á slysadeild í kjölfar áreksturs bifreiðar og rafknúins hjólastóls, eins konar rafskutlu, við gatnamót Sæbrautar og Holtavegar um klukkan tvö í gær. Maðurinn sem slasaðist ók rafskutlunni og var leið yfir Sæ- braut þegar bíll sem kom úr vest- urátt ók á hann. Talið er að maðurinn, sem að sögn lögreglunnar í Reykjavík er á níræðisaldri, fæddur 1922, hafi ekið yfir á rauðu ljósi í veg fyrir bílinn sem er af gerðinni Wolkswagen Polo. Maðurinn var fluttur meðvitundarlaus á slysa- deild Landspítalans og síðan á gjörgæsludeild og var líðan hans stöðug í gærkvöldi, að sögn vakt- hafandi læknis. Ökumann bílsins sakaði ekki. Maður á raf- skutlu slas- aðist í árekstri Heiðrún Villa, höfundur bókarinnar „Gerðu besta vininn betri“ hefur gefið út fyrsta íslenska hundaþjálfun- armynddiskinn. Diskurinn hefur fengið frábærar móttökur. HUNDANÁMSKEIÐ HEIM Í STOFU Jólagjöf hundaeigandans í ár! Fæst í öllum helstu verslunum landsins og á www.hundatjalfun.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.