Morgunblaðið - 25.11.2010, Page 19

Morgunblaðið - 25.11.2010, Page 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2010 Varðan Listaverki eftir Jóhann Eyfells, „Vörðunni“, hefur verið komið fyrir á strandstígnum við Sæbrautina. Jóhann fæddist í Reykjavík 1923 en hefur lengi búið vestanhafs, síðustu árin í Texas. Kristinn Þann 16. júní 2010 beindi Óli Björn Kára- son fyrirspurn til for- sætisráðherra um að- keypta þjónustu, ráðgjöf og sérverkefni á vegum ráðuneyta frá starfsmönnum fé- lagsvísindasviðs Há- skóla Íslands og/eða fé- laga þeirra. Ráðherra hefur tíu virka daga til að svara. Forsætisráð- herra svaraði 27. september. Svarið var athyglisvert þar sem ráðherra hélt því fram að það væri ekki hægt að svara spurningu þingmannsins sökum þess að ráðuneytin hefðu ekki lista yf- ir starfsfólk háskólanna og þar af leið- andi væri ekki hægt að svara fyr- irspurninni! Hér er augljóslega um að ræða fullkominn útúrsnúning enda vita ráðuneytin að sjálfsögðu hvaða háskólakennarar eru í vinnu hjá þeim í sérverkefnum. Að auki má nefna að starfsmannalistar háskólanna eru á vefnum! Hvað um það. Ég setti þess vegna fram fyrirspurn þar sem ég ítreka fyrirspurn Óla Björns og bendi á að ráðherra geti fengið upplýsingar um starfsmenn skólanna á vefnum. Jóhanna Sigurðardóttir hefur greini- lega ákveðið að líta fram hjá þeirri ábendingu, því hún sendi þinginu og undirrituðum bréf þar sem að hún til- kynnir að hún muni skrifa háskól- unum bréf og biðja um starfs- mannalista! Þar af leiðandi sé ekki hægt að svara fyrirspurninni fyrr en þær upplýsingar hafi skilað sér. Ég tók málið upp í þinginu og niðurstaðan er að þriðja fyrirspurnin um þetta mál er komin fram og enn er beðið eftir svari. Hvað er Jóhanna að fela? Augljóst er að forsætis- ráðherra leggur mikið á sig til að halda þessum upplýsingum frá almenn- ingi. Af hverju er það? Er ekki upplýsandi að vita fyrir hverja hinir svokall- aðir álitsgjafar hafa unnið? Er ekki upplýsandi að fá að vita fyrir hvaða stjórn- málaöfl „óháðir“ álitsgjafar starfa? Er það ekki í anda opins stjórnkerfis og gagnsæis? Nú eru álitsgjafarnir ekki allir alveg eins en þeir eiga það sam- eiginlegt að í orði leggja þeir mikla áherslu á fagleg vinnubrögð og opið, gagnsætt stjórnkerfi. Þeir hljóta að líða vítiskvalir vegna þessarar leyndarhyggju forsætisráðherra. Það er séríslenskt að álitsgjafar í háskól- um starfi jafnmikið fyrir stjórnmála- menn og stjórnmálaöfl og við upplifum hér á landi. Það væri fróðlegt að rann- saka það og kortleggja tengsl fræði- manna, fjölmiðlamanna og stjórnmál- anna. Spurningin er: Hver gæti gert það? Eftir Guðlaug Þór Þórðarson » Það er séríslenskt að álitsgjafar í há- skólum starfi jafnmikið fyrir stjórnmálamenn og stjórnmálaöfl og við upp- lifum hér á landi. Guðlaugur Þór Þórðarson Höfundur er alþingismaður. Leyndarmál Jóhönnu Nú í vikulokin er Ís- lendingum stefnt í kjörklefana í þriðja sinn á árinu. Rík- isstjórninni finnst þarfast að efna nú til rándýrrar kosningar til stjórnlagaþings, en þeirri furðusamkomu er ætlað að útbúa til- lögu að nýrri stjórn- arskrá, rétt eins og ekki séu nein brýnni verkefni til að sinna. Er auðvitað með ólíkindum að ríkisstjórn á krefjandi örlagatímum skuli helst ná samstöðu um dýr og óþörf mál sem þó eru líkleg til að vega að undirstöðum þjóðfélagsins og kljúfa þjóðina. Áður hafði rík- isstjórnin einbeitt sér að inn- göngubeiðni í Evrópusambandið og því að koma óviðkomandi er- lendum skuldum fallins einka- banka yfir á skattgreiðendur, en nú bætir hún árás á stjórnarskrá lýðveldisins á afrekaskrána. Auð- vitað verða fyrstu viðbrögð margra skynsamlega þenkjandi manna þau, að þeir neita að kjósa til samkomunnar. En gallinn við þau skiljanlegu viðbrögð er sá, að hinir munu samt kjósa og ekki væri gott ef þeir einir veldu þá sem endurskoða eiga stjórn- arskrána. Því er líklega illskást, úr því sem komið er, að menn mæti á kjörstað og standi við bakið á þeim fáu sem bjóða sig fram til þess að verja stjórnarskrána fyrir þeim herskara alþekktra örlagaþrasara sem nú sækja að þessum und- irstöðum landsins úr öllum áttum. Niðurstöðunum breytt En þeir sem ætla að mæta á kjörstað á laugardaginn sjá sér til stórrar undr- unar þegar þeir lesa lögin um stjórnlagaþingið, að til stendur að breyta kosn- ingaúrslitunum frá því sem kjósendur velja. Í 2. mgr. 14. gr. laga nr. 90/ 2010 um stjórnlagaþingið, þar sem fjallað er um úthlutun þingsæta, segir að hafi „frambjóðendur af öðru kyninu fengið úthlutað færri en tíu sætum eða sem nemur tveimur fimmtu allra þingsæta [skuli] úthluta sætum til þeirra frambjóðenda sem næstir eru í röðinni af því kyni, sé þá að finna, þangað til hlutfall þeirra [nemi] að minnsta kosti tveimur fimmtu allra fulltrúa. Heildartala þingfull- trúa [skuli] þó aldrei vera hærri en 31.“ Þetta þýðir með öðrum orð- um, að úrslitum kosninganna er í raun breytt eftir á, að því leyti að einstaklingar, sem kjósendur hafa ekki kosið á þingið, fá þar sæti allt að einu. Getur hæglega komið upp sú staða, að sæti á stjórnlaga- þinginu fái frambjóðendur með mun færri atkvæði en ýmsir þeirra sem ekki fá sæti! Þegar frambjóð- andi fær ekki þingsæti, en er með fleiri atkvæði en annar, sem þó fær þingsæti, og skýringin er sú að sá með mörgu atkvæðin er af röngu kyni en hinn af réttu, þá má færa sterk rök að því að þeim með fleiri atkvæðin sé mismunað vegna kynferðis síns. Og víkur þá sög- unni að plaggi nokkru sem ráð- herrar, álitsgjafar og Lands- samtök meinlokumanna á höfuðborgarsvæðinu segja einum rómi að sé úrelt: Í 1. mgr. 65. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands segir að allir menn skuli vera jafn- ir fyrir lögum og njóta mannrétt- inda án tillits til kynferðis eða ann- arra atriða. Í 2. mgr. sömu stjórnarskrárgreinar segir svo að konur og karlar skuli njóta jafns réttar í hvívetna. Kosningaúrslitin fara líklega til dómstóla Ef sú sennilega staða kemur upp, að einstaklingur nái ekki kjöri en þurfi að horfa upp á annan frambjóðanda með færri atkvæði skjótast fram fyrir sig vegna kyn- ferðis, hvað gerist þá? Er ekki rétt að gera ráð fyrir því að hann leiti réttar síns og láti reyna á fyrir dómstólum hvort þingsætaút- hlutun eftir kynferði standist stjórnarskrá? Eftir Sigríði Ásthildi Andersen » Getur hæglega komið upp sú staða, að sæti á stjórnlaga- þinginu fái frambjóð- endur með mun færri atkvæði en ýmsir þeirra sem ekki fá sæti! Sigríður Ásthildur Andersen Höfundur er héraðsdómslögmaður. „Vali þjóðarinnar“ verður breytt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.