Morgunblaðið - 25.11.2010, Page 39

Morgunblaðið - 25.11.2010, Page 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2010 HERRAKRINGLAN /DÖMU & HERRASMÁRALIND Ullarfrakki 25900,- Fullar verslanir af fallegum dömu og herrafatnaði til jólagjafa á góðu verði Söngkonan Rihanna siturekki auðum höndum, út erkomin fimmta hljóðvers-plata hennar síðan 2006 og ber hún nafnið Loud. Plata hennar sem kom út í fyrra, Rated R, var öll dökk og töff, tattú, gaddavír og bert hold. Þá var hún nýbúin að lenda í barsmíðum Chris Browns og platan hefur alltaf verið talin uppgjör við þá lífsreynslu, enda er hún full af reiði. Loud er öðruvísi og það sést strax á umslaginu sem er allt rómantískt, rautt og bleikt, blúndur og rósir. Enda fjalla textarnir um daður, ást, rómantík og kynlíf. Rihanna er snú- in aftur í leit að ást og hamingju. Platan inniheldur ellefu lög og er þetta mjög aðgengilegt danspopp, fer beina leið í útvarpið og dregur fólk út á dansgólfið. Fyrsta lagið, „S&M“, er sérstaklega grípandi og dansvænt, líka „Only Girl“. Rihanna getur orðið valið úr bestu lagahöf- undunum og eru öll lögin á plötunni sérstaklega samin fyrir hana. Laga- smíðarnar eru öflugar og söngurinn ekki síðri, Rihanna kann þetta. Loud er kynþokkafull plata, inni- heldur aðgengilegt og gott popp og með henni heldur Rihanna sér á toppnum, það er engin önnur popp- söngkona að fara að velta henni það- an á næstunni. Eðalpopp Rihanna Hún kann þetta stúlkan. Rihanna – Loud bbbbn INGVELDUR GEIRSDÓTTIR TÓNLIST Reuters Íinngangstexta í plötubæklingiThe Union segir Elton John aðLeon Russell hafi verið hansmesti áhrifavaldur í tónlist á seinni hluta sjöunda áratugarins og byrjun þess áttunda, og kemur það fáum á óvart sem þekkja til verka þessara manna frá þeim tíma, um margt eru þau lík. Russell og John sameinaðir, hvernig skyldi það nú hljóma? Spennandi hugmynd vissu- lega en útkoman veldur vonbrigðum. Það vantar alveg stuðið sem ein- kenndi þessa menn þegar þeir voru ungir og ferskir, nú er allt afskaplega rólegt og frekar leiðinlegt áheyrnar. Elton dettur í Disney-ballöðugírinn og nóg er af ballöðum á plötunni sem gleymast jafnóðum og þeim lýkur. Það er ekki að heyra að mik- ið fjör hafi verið í hljóðverinu, kannski bar Elton of mikla virðingu fyrir Rus- sell? Russell á þó ágæta spretti, upp- hafslagið er t.d. bráðgott með kunn- uglegum kvennabakröddum. Sá gamli er enn með’etta, eins og maður segir. Svalir? Elton John og Leon Russell í hljóðveri. Afraksturinn heldur slakur. Elton John/Leon Russell – The Union bbnnn HELGI SNÆR SIGURÐSSON TÓNLIST Meistari og lærisveinn Kanye West er með svostórar hreðjar að hannreiðir þær á arabískumgæðingum. Hann er svo hávaxinn að á höfði hans er teymi flugumferðarstjóra. Þegar hann rappar hrökkva skruggur af vörum hans og hagl af auga. Þar sem sæði hans fellur til jarðar sprettur upp óvígur her rímnamanna. Af tungu hans streymir sætleiki og römm beiskja, hið fyrra lífgar en síð- ara eyðir. Heyr hans máttuga orð! Fjölmiðlafígúran Kanye West er svo yfirþyrmandi að það er varla rúm fyrir listamanninn, fyrir rapp- arann magnaða, lagasmiðinn frá- bæra og upptökustjórann snjalla. Fyrir vikið gleyma menn því gjarn- an hvers hann er megnugur þar til það er rekið framan í nefið á þeim með látum eins og með þessari mögnuðu skífu. Á My Beautiful Dark Twisted Fantasy er allt í yfistærð, kórarnir risastórir, strengirnir þúsundfaldir, taktarnir ofurþungir, rímurnar lykl- aðar og snúnar. Öllu stýrir Kanye West meistaralega, hleður inn rödd- um og rafgíturum, bassadrunum og hljóðgervlakveini. Það er mikið und- ir í öllu, allt frá því Nicki Minaj kipp- ir okkur inn í raunveruleikann í upp- hafi – nú tekur alvaran við! ég meina ALVARAN! – og þar til Gil Scott Heron slær botninn í ævintýrið, eða kannski er rétt að kalla það martröð. Í heimi Kanye West lifir enginn vel og lengi, hvað þá í lukku. Allt í yfirstærð Meistarinn mikli Kanye West. My Beautiful Dark Twisted Fantasy - Kanye West bbbbb ÁRNI MATTHÍASSON TÓNLIST Það er alltaf veisla þegar JimBlack kemur í heimsóknog ekki var verra að fáChris Speed hingað aftur. Með þeim voru Oscar Noriega og Trevor Dunn. Hljómsveitin nefnist Endangered Blood og er nýbúin að gefa út sinn fyrsta disk og voru þetta fyrstu tónleikar í Evrópuferð sveit- arinnar. Allt frá upphafsverkinu til þess síðasta, númer 11, var leikur hljóm- sveitarinnar bæði kraftmikill og spennandi. Frjálsdjassinn, sem hræddi marga fyrir hálfri öld, lifir góðu lífi í agaðri og frjósamri tónlist þeirra félaga. Stundum finnst manni eins og þeir hafi gert þessa tónlist hlustendavænni, en staðreyndin er sú, að þeir eru að ýmsu leyti, sér- staklega ryþmískt, mun framsækn- ari en gömlu meistararnir með Orn- ette Coleman í broddi fylkingar. Það erum bara við sem höfum vanist músíkinni og hætt að sperra eyrun eins og forðum. Það mátti glöggt heyra er þeir léku Ornette Coleman-ópusinn „Faces And Places“ hversu vel þeim hefur tekist að gæða þennan stíl nýju lífi. Jim Black hefur að sjálf- sögðu upplifað rokkið og allan þann hrynheim er fylgdi í kjölfarið og Charles Moffett hljómar eilítið gam- aldags með Ornette miðað við Jim með Endangered Blood. Oscar lék að vísu ansi ornettískt í líðandi línu sinni, en skipti síðan yfir í ýlfrandi aylerisma í seinni hlutanum eins og oftar á tónleikunum. Hann er óhemju safamikill einleikari og á stundum með ryþmablústakta og ekki er hann síðri á bassaklarinettið. Chris er jafnan hægari og mel- ódískari, tóninn dálítið mattur en kraftmikill er við á. Trevor er fauta- fínn bassaleikari, flækir ekki lín- urnar, jarðbundinn í tóni og fellur vel að trommustíl Jims, sem er sí- breytilegur en þó ætíð persónulegur með þessu dásamlega sándi sem rekja má aftur til Big Sid og þeirra kappa. Sveitin spilaði einn Monkópus: „Epistrophy“. Verkið upphófst með þungri undiröldu en síðan skellti sveitin sér í káta sveiflu þar sem bassaklarinett Oscars markaði Monkpíanóið undir sóló Chris Speeds. Öll önnur lög voru eftir Chris, allt frá hinni líðandi riffuðu blúslínu „Plunge“ til lokastefsins ornettíska „Andrew’s Ditty Variation One“. Í „Rare“, sem minnti á gamalt rúss- neskt sígunaljóð, blés Oscar í bassa- klarinettið og svo voru fallegar ball- öður á dagskrá eins og „K“ og hin snilldarlega leikna „Iris“, sem minnti á kreppusöngvana amerísku. Trevor var flottur með boga. Að lok- um skal „Valyu“ getið. Frjáls inn- gangur og síðan haldið yfir Sævið- arsund. Firnafínt! Kraftmikið og fautaflott Risið í Tryggvagötu Endangered Blood bbbbm Chris Speed tenórsaxófón, Oscar Nor- iega altósaxófón og bassaklarinett, Tre- vor Dunn bassa og Jim Black trommur. Mánudagskvöldið 15.11. 2010. VERNHARÐUR LINNET TÓNLIST Firnafínt Endangered Blood.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.