Morgunblaðið - 01.12.2010, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 01.12.2010, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 1. D E S E M B E R 2 0 1 0  Stofnað 1913  281. tölublað  98. árgangur  JÓLASKRAUT OG SKRÚFUR SLÁ Í GEGN UNDIR ÁHRIFUM FRÁ SKOTUM OLIVIER SKOP- STÆLINGANNA KVADDUR BENNI HEMM HEMM 30 LESLIE NIELSEN 32SKÁLATÚN 10 Íslensk gjöf fyrir sælkera SÆLKERAOSTAKÖRFUR Kynnið ykkur úrvalið á ms.isms.is Spennandi leikur á www.jolamjolk.is dagar til jóla 23 Kristján Jónsson kjon@mbl.is Hanna Birna Kristjánsdóttir, leið- togi borgarstjórnarflokks sjálfstæð- ismanna, gagnrýnir meirihluta Besta flokksins og Samfylkingarinn- ar í Reykjavík fyrir að hækka útsvar og aðrar álögur. Aukin skattheimta breyti neyslumunstri fólks, það sé margsannað. „Sú fjárhæð, sem áætl- að er að ná með því að fara þá leið, næst því aldrei,“ segir Hanna Birna. Sigurður Bessason, formaður Efl- ingar stéttarfélags, óttast einnig að hærri skattar og álögur muni ýta undir samdrátt. Hann fagnar þó yf- Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, var spurður hvort hann óttaðist ekki að auknar álögur myndu ýta undir samdrátt. „Auðvitað höfum við áhyggjur af því hvernig fjölskyldur standa og þess vegna höfum við vandað mjög til samsetningar á þessum aðgerð- um,“ sagði Dagur. „Ef við hefðum ætlað að ná þessu öllu í hagræðingu þá hefðu margir þurft að missa vinn- una. Þess vegna finnst manni býsna djarft hjá fólki að fullyrða að hægt hefði verið að ná þessu öllu án þess að hreyfa gjaldskrá eða skatta.“ MVelferðin sögð í fyrirrúmi »4 irlýsingum borgarstjórnarmeirihlut- ans um að reynt verði að verja störf- in. Fram kom í gær að ekki hefði enn verið reiknað út hvaða áhrif hækk- anirnar myndu hafa á vísitöluna. Meiri skattheimta sögð auka samdrátt  Meirihlutinn í Reykjavík kveðst vilja vernda störfin Morgunblaðið/Eggert Kynning Jón Gnarr í ráðhúsinu í gær. Engir hlakka meira til jólanna en börn og í dag, 1. des- ember, hefst niðurtalningin fyrir alvöru. Börnin í 2. bekk í Laugarnesskóla hafa örugglega verið í jólaskapi þegar þau skreyttu piparkökur í fyrra- kvöld. Þótt glassúrinn færi stundum út fyrir var auð- velt að bjarga því. Morgunblaðið/Golli Niðurtalning að jólunum formlega hafin  Skuldir ríkissjóðs myndu vaxa um 2,2% af vergri landsframleiðslu yrði breytingartillaga meirihluta fjár- laganefndar við fjáraukalög sam- þykkt og fullnýtt. Samkvæmt tillög- unni fengi ríkissjóður heimild til að styrkja Íbúðalánasjóð um 33 millj- arða króna. Að sögn Oddnýjar Harðardóttur alþingismanns, formanns fjár- laganefndar, yrði þetta þannig í framkvæmd að ríkissjóður gæfi út skuldabréf, sem Íbúðalánasjóður myndi svo framvísa í Seðlabank- anum í endurhverfum viðskiptum. Bein kaup Seðlabankans á rík- isskuldabréfum eru óheimil og stuðla að verðbólgu, að því er segir í svari bankans við fyrirspurn Morg- unblaðsins. ornarnar@mbl.is »14 Skuldir ríkissjóðs vaxa um 2,2%  Andri Árnason hæstaréttarlög- maður var í gær skipaður verjandi Geirs H. Haarde fyrir landsdómi að beiðni Geirs. Fyrir rúmri viku gagnrýndi Geir vinnubrögð landsdóms harð- lega í bréfi til for- seta hans, m.a. fyrir töf á því að hon- um væri skipaður verjandi. Sú skýring var gefin að álitamál væri hvort Geir teldist ákærður þegar þingsályktunartillaga um máls- höfðun hafði verið samþykkt eða þegar saksóknari ákærði hann. Andri skipaður verjandi Geirs Andri Árnason  Meðal þess sem verið er að skoða, vegna lausna á fjár- hagsvanda heim- ilanna, er að auka vaxtabætur um sex milljarða króna. „Það er hafið yfir allan vafa í mínum huga að einfald- asta og skilvirkasta aðferðin er að gera þetta í gegnum vaxtabótakerf- ið; að lækka þannig vaxtakostnað hjá öllum þorra fólks,“ sagði Stein- grímur J. Sigfússon fjármálaráð- herra í gærkvöldi. » 12 Hugmyndir um að hækka vaxtabætur um sex milljarða Steingrímur J. Sigfússon Háskólamenn og fólk sem hefur starfað við fjölmiðla verður áberandi á stjórnlagaþingi, sem kemur saman í febrúar til að endurskoða stjórn- arskrána. Flest atkvæði í fyrsta sæti fékk Þorvaldur Gylfason prófessor, en 8,6% kjósenda settu hann í fyrsta sæti. Ekki er gefið upp hversu mörg atkvæði frambjóðendur fengu sam- tals. Næst á eftir honum kom Salvör Nordal heimspekingur með 3% at- kvæða í fyrsta sætið. Atkvæði dreifðust mjög mikið enda voru 522 frambjóðendur í kjöri. Aðeins þrír sem náðu kjöri á stjórnlagaþingið búa utan höf- uðborgarsvæðisins eða 12% þingfull- trúa en 37% landsmanna búa utan höfuðborgarsvæðisins. Yngsti þingfulltrúinn er 24 ára en sá elsti er sjötugur. »13 Þrír valdir af lands- byggðinni  8,6% fylgi í 1. sætið Morgunblaðið/Eggert Kjör Úrslitin kynnt á fundi í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.