Morgunblaðið - 01.12.2010, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2010
Einar Örn Gíslason
einarorn@mbl.is
Útsöluverð á eldsneyti hækkaði um-
talsvert í gær, en Skeljungur hækk-
aði verð á bensíni og dísilolíu um
fimm krónur á lítra. Hjá N1 og Olís
hækkaði verð ekki jafnmikið, eða um
fjórar krónur á lítra. Algengt lítra-
verð á 95 oktana bensíni er því á
bilinu 202 til 204 krónur. Verð á dís-
elolíu er áþekkt. Hækkanirnar í gær
eru raktar til hækkaðs heimsmark-
aðsverðs á eldsneyti undanfarið, sem
og styrkingar Bandaríkjadals gagn-
vart krónunni.
Hrikalegar hækkanir
Runólfur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra bifreiðaeig-
enda, segir ekki hægt að líta framhjá
verðþróun á mörkuðum, og lítið sé
hægt að gera við því. Hækkanirnar
séu eftir sem áður „hrikalegar“, ekki
síst í ljósi boðaðra skattahækkana
hins opinbera frá og með áramótum.
Bensín- og olíugjöld hækka þá um
4%, en þau voru einnig hækkuð um
síðastliðin áramót.
„Ein rökin fyrir fyrirhuguðum
hækkunum núna er að tekjuáætlun
fjárlaga frá því í fyrra hefur ekki
gengið eftir,“ segir Runólfur. Því sé
gripið á það ráð að hækka einfald-
lega þessa krónutöluskatta á ný.
Hlutur olíufélaga aukist
Í verðbólguspá greiningardeildar
Arion banka frá því um miðjan síð-
asta mánuð er bent á það að álagning
á eldsneyti hér á landi hefur hækkað
töluvert frá áramótum, sem ráða má
af því að verðbilið milli eldsneytis og
hráolíu jókst á síðari hluta ársins.
Hlutur olíufélaganna í hækkuðu
eldsneytisverði hafi með öðrum orð-
um aukist hraðar en verðið hefur
hækkað. „Heimsmarkaðsverð á hrá-
olíu hefur lækkað um 6% (mælt í
krónum) frá áramótum. Á sama tíma
hefur eldsneytisverð olíufélaganna
hækkað um 3%,“ segir í verðbólgu-
spá greiningardeildarinnar.
Frá birtingu spárinnar hefur
heimsmarkaðsverð á olíu hækkað
nokkuð, en að sama skapi hefur út-
söluverð eldsneytis verið hækkað í
tvígang.
Eldsneytisverð á hraðri uppleið
Verðbilið milli heimsmarkaðsverðs og
útsöluverðs jókst á síðari hluta ársins
Þróun bensínverðs og gengis Bandaríkjadals
Heimildir: Hagstofan og Seðlabanki Íslands
250
200
150
100
50
0
Verð í íslenskum krónum
Febrúar 1997 Nóvember 2010
205,07
112,4577,53
70,43
Bensín (95 oktan)
Gengi Bandaríkjadals
„Það sem við viljum sjá gerast er að
Gunnar sjái að sér og játi brot sín,
hann biðji konurnar fyrirgefningar,
segi af sér og leiti
sér hjálpar,“ segir
Ásta Knútsdóttir,
talskona kvenna
sem hafa sakað
Gunnar Þor-
steinsson í Kross-
inum um kynferð-
islega áreitni.
Í gær var haft
eftir Sigurbjörgu
Gunnarsdóttur,
dóttur Gunnars Þorsteinssonar og
málsvara safnaðarins, að um skipu-
lega rógsherferð gegn Gunnari væri
að ræða. Ásta vísar því á bug. „Það er
enginn fótur fyrir því,“ segir hún.
Ásta bætir við að málið hafi farið úr
þeirra höndum þegar Gunnar hafi
farið í fjölmiðla og talað um hóp
kvenna sem væri að ásaka hann. Kon-
urnar, sem hefðu hist, hefðu komið
hver úr sinni átt og aldrei ætlað sér
að fara með málið í fjölmiðla. Þær
hafi aðeins verið að deila reynslu
sinni, uppörva hver aðra og byrja að
vinna úr þessum gamla sársauka.
Sex konur hafa komið fram undir
nafni og sakað Gunnar um áreitni. Í
hópnum er einnig ein kona sem hefur
óskað nafnleyndar og vitnisburður
hennar hefur ekki verið birtur. Ásta
segir að ekki standi til að birta fleiri
vitnisburði nema Gunnar haldi áfram
skítkasti í fjölmiðlum. „Þá höldum við
áfram því við höfum engin önnur
vopn. Við höfum bara sannleikann að
vopni og við notum hann eins lengi og
við þurfum.“
Gunnar
játi og
segi af sér
Segir sannleikann
vera eina vopnið
Ásta Knútsdóttir
Kuldalegt var um að litast við Mývatn þegar
frostið var sem mest um helgina. Mikill raki var í
loftinu og hrímið safnaðist utan um hvönnina og
annan gróður við vatnið. Um leið var yfir Mý-
vatnssveitinni einhver jólalegur blær í upphafi
aðventunnar þegar geislar sólarinnar teygðu úr
sér á vatnsfletinum. Eftir helgina dró verulega
úr frostinu en samkvæmt veðurspám kólnar á
öllu landinu á ný næstu daga.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Sólargeislar á hrímaðar hvannir
Meðalniðurskurður fjárfram-
laga til heilbrigðisstofnana á
næsta ári verður 9,2%, eins og
fjárlög líta nú út í kjölfar end-
urskoðunar. Áður hafði verið
gert ráð fyrir 21,4% niður-
skurði að meðaltali, en þeim
áformum var mótmælt kröft-
uglega um land allt. Fjárlaga-
nefnd Alþingis hefur fjárlaga-
frumvarpið nú til umsagnar, en
vitað var að töluverðar breyt-
ingar yrðu gerðar milli umræðna. Í krónum talið
verður niðurskurðurinn á heilbrigðisstofnunum
dreginn saman um 1.700 milljónir, eða ríflega
helming. Miðað er við að hvergi þurfi að draga
saman um meira en 12%, en í sumum tilfellum
eykst niðurskurðurinn frá fyrri tillögum, til að
mynda hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands. Anna
Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður Guðbjarts
Hannessonar heilbrigðisráðherra, segir að ekki
hefði verið hægt að ná þessum breytingum fram
með „flatri“ endurskoðun.
Gert hafði verið ráð fyrir mestum niðurskurði á
Heilbrigðisstofnun Þingeyinga og Heilbrigðis-
stofnuninni á Sauðárkróki, á milli 30 og 40%, en
miðað við þær breytingar sem nú liggja fyrir
verður hann í báðum tilfellum 12%. Afgangi nið-
urskurðarins verður „fleytt áfram“ á fjárlagaárið
2012. einarorn@mbl.is
Meðalniðurskurður dreginn
saman um ríflega helming
Miðað við 12% þak á niðurskurð á næsta ári og afganginum náð fram árið 2012
Anna Sigrún
Baldursdóttir
Niðurskurður
» Á upphaflegum fjárlögum var gert ráð fyrir
því að skorið yrði niður um 3.041 milljón að
frátöldum verðlagsbreytingum.
» Milljónirnar 1.700 sem veita á aukalega til
heilbrigðisstofnana verða m.a. sóttar úr
framkvæmdasjóði aldraðra og úr safnliðum
sem til eru í heilbrigðisráðuneytinu.
» Það sem út af stendur, tæpur milljarður,
kemur síðan úr ríkissjóði.
6%
hækkun meðalverðs 95 oktana
bensíns frá nóvemberlokum 2009
7,5%
hækkun heimsmarkaðsverðs hrá-
olíu frá ársbyrjun til nóvemberloka
6,1%
veiking dollara gagnvart
krónu á árinu
‹ BENSÍNVERÐ ›
»
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
tók myndir af hraðakstursbrotum
239 ökumanna á Hafnarfjarðarvegi
í gær. Fylgst var með ökutækjum
sem var ekið Hafnarfjarðarveg í
norðausturátt, norðan við gatna-
mót við Álftanesveg.
Fylgst var með hraðanum í eina
klukkustund eftir hádegi. Þá var
864 ökutækjum ekið þar um.
Meðalhraði hinna brotlegu var 75
km/klst en þarna er 60 km há-
markshraði. Fjörutíu og þrír óku á
80 km hraða eða meira en sá sem
hraðast ók mældist á 111 km hraða.
239 teknir fyrir
hraðakstur