Morgunblaðið - 01.12.2010, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2010
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Við erum að vinna dagsdaglega mikið meira enþað handverk sem verð-ur á markaðinum. Húsa-
smiðjan er rosalega dugleg að láta
okkur fá verkefni og núna erum
við að telja skrúfur og setja í
poka,“ segir Júlía Adolfsdóttir
starfsmaður sem tók á móti okkur.
Hún sýndi okkur fyrst starfsem-
Jólaskraut og skrúfur
Það var í nægu að snúast á vinnustofum Skálatúns í Mosfellsbæ þegar blaðamað-
ur og ljósmyndari litu þangað í heimsókn í gær. Starfsmenn voru að undirbúa
jólamarkað sem verður í gróðurhúsinu á staðnum á morgun.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nóg að gera Málningarúllur settar saman og pakkaðar inn fyrir verslanir Húsasmiðjunnar.
Kort Þessi unga dama pakkaði inn merkispjöldum fyrir Kórund.
„Það er ein bók sem er sannarlega
mín uppáhaldsbók, þó þær séu marg-
ar sem ég hef dálæti á, þá er ein sem
er í sérstöku uppáhaldi. Það er
barnabókin Vökunætur II, Vetr-
arnætur og er eftir Eyjólf Guðmunds-
son frá Hvoli.
Bókin var gefin út 1947 og ég eign-
ast hana myndskreytta í gömlu út-
gáfunni sem unglingur og féll alveg
fyrir henni. Þetta eru minningar Eyj-
ólfs frá barnæsku á 19. öld, frá gamla
sveitasamfélaginu. Upplifun barnsins
af lífinu á heimilinu í stuttum köflum
og myndskreytt.
Svo vissi ég að það væri til eitt-
hvað sem hét Vökunætur I, þar sem
hann lýsir vökunóttunum yfir sum-
artímann, og komst yfir hana seinna
á fornbókasölu. Þetta eru mjög hug-
ljúfar sögur og það sem heillar mig er
hvað þetta er einlæg frásögn af upp-
lifun barnsins.
Þessar bækur voru svo endur-
útgefnar saman fyrir nokkrum árum
síðan en ekki
með mynd-
skreyting-
unum. Mér
finnst gamla
útgáfan fal-
legri en sú
nýrri enda
passa ég vel
upp á þau dýr-
mætu eintök
sem ég á.
Ég les alltaf húslestra heima hjá
mér á aðfangadagskvöld, og hef gert
það síðan ég fór að halda jól sjálf, og
þessi bók er gjarnan lesin. Þegar hún
var endurútgefin keypti ég svolítið af
henni og gaf börnum í kringum mig
til að bera út boðskapinn. Ég hef líka
gjarnan bent á hana fyrir þá sem eru
að leita að góðu lestrarefni fyrir jól.“
Jóna Simonía Bjarnadóttir, for-
stöðumaður Gamla sjúkrahússins,
Safnahússins, Eyrartún, Ísafirði.
Uppáhaldsbók Jónu Simoníu Bjarnadóttur
Morgunblaðið/Jónas Erlendssson
Núpsstaður Í uppáhaldsbókinni er sagt frá sveitalífinu á 19. öld.
Einlæg frásögn barnsins
Jóna Símonía
islandsbanki@islandsbanki.is
www.islandsbanki.is
Sími 440 4000
Fólk án atvinnu
fær frystingu
á húsnæðislánum
Ræddu við ráðgjafann þinn í útibúinu þínu um úrræði Íslandsbanka