Morgunblaðið - 01.12.2010, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 01.12.2010, Qupperneq 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2010 Ríkisstjórn Samfylk- ingar og VG hefur nú verið við völd í rúmt 1½ ár. En áður var hér minnihlutastjórn sömu flokka. Aðalverkefni ríkisstjórnarinnar hef- ur verið endurreisn ís- lensks efnahagslífs eft- ir hrun banka og fyrirtækja,sem varð hér haustið 2008. Mér finnst ríkisstjórninni hafa tekist nokkuð vel að endurreisa efnahags- lífið og þar með bankana. Vextir hafa lækkað mikið, verðbólgan er á hraðri niðurleið, atvinnuleysið er farið að minnka, góður afgangur er á vöru- skiptajöfnuðinum í stað mikils halla áður og endurreisn bankanna hefur tekist vel. Hins vegar er ég mjög óánægður með það hvernig rík- isstjórnin hefur haldið á velferð- armálunum. Félagshyggjumenn bundu vonir við, að ríkisstjórn jafn- aðarmanna mundi standa vörð um al- mannatryggingarnar og heilbrigð- iskerfið. En þær vonir hafa brugðist. Í velferðarmálum hefur rík- isstjórnin hagað sér eins og hrein íhaldsstjórn. Ríkisstjórnin lýsti því yfir við valdatöku sína, að hún ætlaði að koma hér á velferðarsamfélagi að norrænni fyrirmynd en það hafa reynst örgustu öfugmæli. Sársaukafullar aðgerðir í ríkisfjármálum Verkefni ríkisstjórnarinnar er erf- itt. Hún þarf að rétta af fjárhag rík- isins á 3-4 árum. Sjálfstæðisflokk- urinn og Framsókn bera höfuðábyrgð á bankahruninu með klaufalegri einkavæðingu bankanna og lélegri efnahagsstjórn.Tekjur rík- isins hríðféllu við efnahagshrunið 2008. Það kom í hlut núverandi stjórnarflokka að gera sársaukafullar aðgerðir í ríkisfjármálum. Það hefur verið gert bæði með skattahækk- unum og niðurskurði ríkisútgjalda. Ég tel að haldið hafi verið nokkuð vel á skattahækkunum. Þeim lægst laun- uðu hefur verið hlíft. Hins vegar hef- ur ekki tekist eins vel með niðurskurð ríkisútgjalda. Ríkisstjórnin lofaði að standa vörð um velferðarkerfið en hún hefur ekki staðið við það. Strax 1. júlí 2009 var ráðist á almannatryggingarnar og m.a. skornar niður bætur aldraðra og öryrkja. Gerði þáverandi félagsmála- ráðherra þetta með mjög skömmum fyrirvara. Kom það mjög illa við líf- eyrisþega, ekki hvað síst öryrkja. Ég fullyrði að það hefði mátt sleppa nið- urskurði í almannatryggingum. Þetta voru 4-5 milljarðar á ársgrundvelli eða svipuð upphæð og nam auknum og óvæntum tekjum ríkissjóðs vegna aukinna skerðinga tryggingabóta af völdum meiri fjármagnstekna lífeyr- isþega en reiknað hafði verið með. Árásin á kjör aldraðra og öryrkja var því óþörf. Laun hækka – lífeyrir lækkar Láglaunafólk á al- mennum vinnumarkaði hefur fengið 16% kaup- hækkun frá ársbyrjun 2009. Á sama tíma hefur lífeyrir aldraðra og ör- yrkja ekki hækkað um eina krónu. Raungildi lífeyris hefur því lækkað vegna verðbólgunnar. En láglaunafólk hefur getað varist verðbólgunni vegna þeirra launa- hækkana sem það hefur fengið. Hér gætir mikils misréttis og sennilega er hér um brot á jafnréttisákvæðum laga að ræða. Það var áður lögbundið að lífeyrir ætti að hækka í samræmi við hækkun launa láglaunafólks.Það er liðin tíð. Laun eru hækkuð en líf- eyrir rýrnar og ráðist er á kjör lífeyr- isþega. Þetta gerist á valdatíma fé- lagshyggjustjórnar. Lífeyrisþegar hafa ekki verkfalls- vopn. Þeir verða að treysta á að verkalýðshreyfingin gæti hagsmuna þeirra. Við gerð stöðugleikasáttmál- ans gleymdust aldraðir og öryrkjar. En nú vill verkalýðshreyfingin bæta úr því. Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ lýsti því yfir fyrir skömmu að við launahækkanir ætti lífeyrir lífeyr- isþega að hækka jafnmikið. Hjúkrunarrúmum aldraðra fækkað Ekki hefur tekist betur til í heil- brigðismálum en á sviði almanna- trygginga við niðurskurð útgjalda. Niðurskurður þar hefur verið mjög harkalegur og klaufalegur. Fjárlaga- frumvarpið fyrir árið 2011 var lagt fram með gífurlegum niðurskurði heilbrigðisstofnana. Var skorið svo heiftarlega niður að erfitt er að reka heilbrigðisstofnanir víða úti á landi eftir slíkan niðurskurð. M.a. var fækkað rúmum á hjúkrunarheimilum og hjúkrunardeildum, einkum á Ak- ureyri en það hefur verið stefnumál Samfylkingarinnar að fjölga slíkum rúmum. Hér var mjög klaufalega staðið að málum, þar eð ljóst var að ríkisstjórnin kæmist aldrei upp með svo harkalegan niðurskurð í heil- brigðisstofnunum úti á landi enda ekki skynsamlegt að ráðast í hann. Heilbrigðisþjónustan flokkast undir velferðarkerfið og því má segja að ríkisstjórnin hafi ekki aðeins lofað að standa vörð um almannatrygging- arnar heldur einnig um heilbrigð- iskerfið. Hún verður að standa við hvort tveggja, ef hún ætlar að sitja áfram. Ekki verður skilist við umfjöllun um ríkisstjórnina án þess að minnast á kvótakerfið og fyrningarleiðina. Allt bendir nú til þess að þetta stóra kosn- ingamál verði svikið. Jafnvel er nú rætt um að úthluta kvótahöfum (kvótakóngunum) veiðiheimildum til lengri tíma en áður, jafnvel 15-25 ára. Þetta er alger svívirða og mestu kosningasvik í sögu lýðveldisins, ef af verður. Ég veit ekki hver afstaða mín verður til Samfylkingarinnar, ef þessi svik verða framkvæmd. Ég trúi því ekki að svo verði og vona að stuðn- ingsmenn fyrningarleiðarinnar í þingflokki Samfylkingarinnar taki í taumana og afstýri stórslysi Ríkisstjórnin hefur brugðist í velferðarmálum Eftir Björgvin Guðmundsson Björgvin Guðmundsson » Félagshyggjumenn bundu vonir við, að ríkisstjórn jafnaðar- manna mundi standa vörð um almannatrygg- ingarnar og heilbrigð- iskerfið. Höf. er viðskiptafræðingur. - nýr auglýsingamiðill 569-1100 finnur@mbl.is Sveitarfélögin tóku við öllum rekstri grunnskóla frá ríkinu 1996, í upphafi lögðu þau mikinn metnað í að byggja upp grunn- skólastarfið bæði fag- lega og rekstrarlega og settu meira fjármagn í þetta verkefni en þau fengu með grunnskól- anum á sínum tíma frá ríkinu. Skólar voru einsetnir, nýjar skólabyggingar risu og allur aðbún- aður var byggður upp af faglegum metnaði. Þjónusta aukin til muna, s.s. skólamáltíðir í flestum skólum, frí- stundaheimili, félasstarf, skólalóðir endurbættar, tölvukostur skólanna byggður upp og svo má lengi telja, en hvert stefnum við nú? Allt frá 2005 hafa sum sveitarfélög gert skólum að skera niður þann rekstrarkostnað sem búið var að byggja upp og enn á að skera niður. Í fyrstu voru þetta minni háttar hag- ræðingar en síðustu tvö ár hefur t.d. bara í Reykjavík skólastjórum verið gert að skera niður kostnað við skólana um 13%. Skólastjórar hafa leitað leiða á þessum tíma til að minnka rekstrarkostnað á marg- víslegan hátt án þess að skerða lög- bundna grunnþjónustu. Það hefur m.a. þau áhrif að tölvukostur skól- anna er á mörgum stöðum orðinn úr sér genginn en samt eigum við að mennta nemendur fyrir 21. öldina þar sem margmiðlunin er og mun verða stærri og stærri þáttur í námi og lífi hins almenna borgara. Stjórn- unarkvóti hefur verið skorinn niður þannig að t.d. í Reykjavík hefur milli- stjórnendum fækkað um 16 á þessum tíma, verkefni og kröfur hafa þó ekki minnkað. Ný lög um grunnskóla hafa verið sett og ný aðalnámskrá er í burðar- liðnum þar sem enn frekari kröfur eru gerðar til skólastarfsins. Þá hafa flest sveitarfélög sett sér nýjar áherslur og stefnu í skólamálum eftir síðustu sveitarstjórnarkosningar þar sem á að efla og þróa enn frekar fag- legt skólastarf við hæfi hvers og eins nemanda og skóla án aðgreiningar. Verða þessar áherslur og stefnur nú hjóm eitt? Á sama tíma veifa sveitarstjórnarmenn OECD-skýrslunni og tala um að heildar- kostnaður við íslenska grunn- og framhalds- skóla sé hvergi hærri en á Íslandi. Í þeirri umræðu gleymist þó að nefna að allar nið- urstöður eru byggðar á tölum og útreikningum frá 2007 og niðurskurði síðustu tveggja ára. Einnig er það ekki nefnt að laun ís- lenskra kennara mælast miklu lægri en gengur og gerist í löndum OECD. Í samantekt Odds S. Jakobssonar, hagfræðings Kennarasambands Ís- lands, kemur fram að heildarkostn- aður Íslendinga vegna grunn- og framhaldsskóla er meiri, mældur sem hlutfall af vergri landsfram- leiðslu, en í öðrum löndum OECD. Á Íslandi mælist hann 5,1% af VLF en 3,6% að meðaltali í OECD- löndunum. Hann telur að það séu þrjár meginskýringar sem gefa má á þessum mun. Þær kristallast í aldri þjóðarinnar, íbúafjölda og metnaði hennar. Íslenska þjóðin er yngri en flestar aðrar þjóðir OECD. Hlutfall aldurshópsins 5 til 19 ára af heildar- mannfjölda landsins var 21,8% árin 2006 til 2007 en meðaltal OECD- ríkjanna var á sama tíma 18,8. Af þessu leiðir að ekki er óeðlilegt að heildarkostnaður Íslands vegna grunn- og framhaldsskóla sé meiri en að meðaltali í löndum OECD. Ég hvet bæði sveitarstjórnarmenn og skólamenn að kynna sér nánar sam- antekt Odds S. Jakobssonar sem er að finna á heimasíðu Kennara- sambandsins, ki.is Skólastjórafélag Íslands hélt aðal- fund á Selfossi 15. október 2010, þar voru m.a. eftirfarandi ályktanir ræddar og samþykktar: Á síðustu tveimur árum hefur rekstrarfé grunnskóla verið skorið harkalega niður. Víða er svo komið að ýmis nauðsynleg þjónusta við nemendur hefur minnkað. Í því árferði sem nú ríkir er mikilvægt að standa vörð um velferð nemenda og tryggja að ekki verði gengið á lögvarða hagsmuni þeirra. Í þessum fjárhagslegum þrengingum hafa sum sveitarfélög gripið til þess ráðs að sameina grunn-, leik- og tónlistarskóla í eina stofnun í hagræðingarskyni. Þess er krafist að slíkt sé ekki gert án vand- aðs undirbúnings þar sem þess er gætt að ekki halli á faglegt starf ein- stakra skóla og stjórn hverrar deild- ar í slíkum skóla sé ávallt í höndum fagmanns á viðkomandi sérsviði. Ég tel mikilvægt að við töpum ekki því faglega og metnaðarfulla starfi sem við höfum verið að byggja upp síðan sveitarfélögin tóku yfir grunnskól- ann 1996 með vanhugsuðum niður- skurði. Eftir tveggja ára niðurskurð getum við ekki meira án þess að skerða grunnþjónustu við nemendur og fækka störfum. Viljum við það? Aðrar þjóðir, s.s Finnar sem hafa lent í sambærilegum efnahagslegum þrengingum, hafa varað við því að skerða nám nemenda í grunn- og framhaldsskólum. Þá viljum við standa jafnfætis öðrum þjóðum þeg- ar kemur að árangri og gæðum í skólastarfi, hvernig förum við að því ef um áframhaldandi niðurskurð verður að ræða? Ég hvet menntamálaráðherra og sveitarfélögin til að standa vörð um menntun nemenda í grunn- og fram- haldsskólum landsins þrátt fyrir tímabundnar þrengingar og halda áfram að byggja upp faglega og metnaðarfulla menntastefnu í fram- kvæmd en ekki einungis í stefnu- mörkun. Höfum í huga að þeir nem- endur sem við erum að mennta um þessar mundir eiga eftir að stjórna þessu landi. Það er því betra að vanda sig því menntun nemenda í dag er lífeyrir framtíðarinnar! Menntun nemenda í dag er lífeyrir framtíðarinnar Eftir Svanhildi Maríu Ólafsdóttur Ólafsdóttur »Ég hvet mennta- málaráðherra og sveitarfélögin til að standa vörð um mennt- un nemenda í grunn- og framhaldsskólum lands- ins þrátt fyrir tíma- bundnar þrengingar … Svanhildur M. Ólafs- dóttir Höfundur er formaður Skólastjóra- félags Íslands og skólastjóri Korpu- skóla. Það eru nær tveir áratugir síðan Snæfríð- ur Njálsdóttir og Há- kon Gunnarsson hófu rekstur meðferð- arheimilis í Árbót. Áður höfðu þau verið beðin fyrir unglinga úr Kópa- vogi og Reykjavík og fiskisagan flaug. Þess vegna var lagt að þeim að taka á sig meiri ábyrgð. Þingmaður á góðum aldri gaf ég mér tíma til að veita meðferðarheim- ilinu í Árbót athygli. Þessi kynni urðu að vináttu milli okkar hjónanna. Þegar ég hugsa um það staðnæmist ég alltaf við einstaklinga sem ég hitti þar. Þeir fengu að kynnast daglegum störfum til sveita, þeim var sýnt traust, það þurfti að sinna skepnunum og gæsa- ungar villtust frá hreiðrinu. Lífið – ekki borgarlífið – gekk sinn gang. Í staðinn fyrir myrkur kom birta og yl- ur inn í sálartötrið. Atvik frá þessum tíma eru meðal minna kærustu minn- inga, einstök tilfinning um traust og hlýju án þess þó að hafa áður þekkst. Þegar fjölmiðlafárið stóð sem hæst nú á dögunum sagði þingeysk kona við mig: „Það má ekki taka af hjónunum í Árbót hvað þau hafa unnið gott starf fyrir marga.“ Auðvitað skiljum við að það er sárt að vera sendur á meðferð- arheimili. Því er eðlilegt, að unglingar, sem fyrir því verða, séu fullir mót- þróa í fyrstu og sumir sætta sig aldrei við það. Aðrir eru fúsir til sam- starfs og enn aðrir ná skjótum þroska. Ég þekki dæmi þess frá Árbót. Og sú minning gefur mér tilefni til bjartsýni á eðli manneskjunnar þrátt fyrir allt! Þess vegna þótti og þykir hjón- unum í Árbót og starfsmönnum þar vænt um að fá kveðjur eða heimsókn- ir frá þeim unglingum sem þar höfðu verið og spjarað sig þegar út í lífið var komið. „Það var eins konar uppbót fyrir okkur,“ sagði fyrrum starfs- maður við mig. Eitt er alveg skýrt og það hlýt ég að segja hér: Þeir sem hafa skuld- bundið sig gagnvart ríkinu til ákveð- inna verkefna og leggja undir eigur sínar og æru hljóta að krefjast sann- sýni og réttlætis á sínu framlagi. Það er sjálfsagt að ríkisendurskoðun fari ofan í alla pappíra allra þeirra, sem að málinu koma, hárra og lágra. Það verður líka að liggja fyrir sam- anburður á því hver sé kostnaðurinn við opinbert meðferðarheimili og einkarekið meðferðarheimili, hvert sé eftirlitið og hver árangurinn. Þessi grein er ekki skrifuð til að vekja deilur, heldur aðeins til að lýsa trausti á þeim vilja, sem hjónin í Ár- bót höfðu til góðra verka. Gamall þingmaður Þingeyinga, ráðherra og forseti Alþingis segi ég að síðustu: Mér svipar til Júlíusar Havsteens sýslumanns að því leyti að ég vil sættir fremur en málaferli. Og hvorugur okkar hefur einblínt á sýslu- eða kjördæmamörk þegar manneskjan er annars vegar. Ég get ekki orða bundist um Árbót Eftir Halldór Blöndal » Þeir sem hafa skuld- bundið sig gagnvart ríkinu til ákveðinna verkefna og leggja und- ir eigur sínar og æru hljóta að krefjast sann- sýni og réttlætis á sínu framlagi. Halldór Blöndal Höf. er fyrrverandi þingmaður Þingeyinga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.