Morgunblaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2010
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Kári Þormar tók í sumar við stöðu
dómorganista við Dómkirkjuna í
Reykjavík. Í kvöld klukkan 20 held-
ur hann orgeltónleika í kirkjunni í
tilefni þess að í dag, 1. desember,
er aldarfjórðungur liðinn síðan
Schuke-orgel Dómkirkjunnar var
vígt.
„Orgelið var vígt þennan dag ár-
ið 1985. Um leið og við höldum upp
á vígsluafmælið er vert að minna á
orgelsögu Dómkirkjunnar,“ segir
Kári. „Nú eru 170 ár síðan fyrsta
orgelið kom. Það er ekki mjög
langur tími ef miðað er við org-
elsögu Evrópu – en þetta er merki-
leg saga. Það hefur þótt mikill
áfangi, var fyrsta pípuorgelið sem
kom til Íslands. Eftir tónleikana
ætlum við að bjóða fólki að koma
upp á kirkjuloft og skoða leifarnar
af því.
Það er mikilvægt að minna á nið
aldanna, við finnum fyrir honum í
Dómkirkjunni.“
Kári segir að Schuke-orgelið sé
þriggja radda, mjög gott og kröft-
ugt hljóðfæri. „Barokkorgel,“ segir
hann.
Nýtt tónverk
Högna Egilssonar
Kári Þormar lauk kirkjutónlist-
arnámi frá Robert Schumann-
háskólanum í Düsseldorf í Þýska-
landi. Hann hefur haldið fjölda
orgeltónleika, bæði hér heima og
erlendis, og verið atkvæðamikill í
íslensku tónlistarlífi sem organisti,
píanóleikari og kórstjóri. Áður en
hann tók við starfi dómorganista
gegndi hann starfi forstöðumanns
Kirkju- og menningarmiðstöðv-
arinnar í Fjarðabyggð, auk þess að
vera organisti Eskifjarðarkirkju.
Þá hefur hann einnig verið org-
anisti í Fríkrikjunni og í Áskirkju.
„Það er meiri erill hér,“ segir
Kári þegar hann er spurður um
starf dómorganistans. Hann segir
það þó mikilvægan þátt í starfinu
að leika á tónleikum.
„Á þessum tónleikum kem ég í
fyrsta skipti formlega fram sem
dómorganisti á tónleikum og minni
um leið á þetta afmæli orgelsins.
Ég flyt á tónleikunum Tokkötu
sem Jón Nordal samdi í minningu
Páls Ísólfssonar, fyrrverandi dóm-
organista, en hún var frumflutt við
vígslu orgelsins. Einnig frumflyt ég
nýtt verk eftir 25 ára gamalt tón-
skáld, Högna Egilsson, sem margir
þekkja sem forsprakka hljómsveit-
arinnar Hjaltalín. Ég pantaði þetta
verk af honum,“ segir Kári. Hann
bætir við að hann viti ekki til þess
að Högni hafi áður skrifað verk
fyrir orgel.
„Það er kúnst að setja saman
orgelprógramm þannig að öllum
líki,“ segir hann síðan. „Stundum
setja menn sér svo háleit markmið
að þeir velja aðallega verk sem eru
fyrst og fremst fyrir aðra organista
að hlýða á.“ Kári brosir og bætir
við að verkin sjö sem hann flytji
séu vissulega með kjöt á beinunum
en þau séu líka áheyrileg og að-
gengileg, þar á meðal hin fræga
Tokkata og fúga í d-moll eftir J.S.
Bach.
„Sumir segja að þetta verk hefði
dugað til að gera nafn Bachs
ódauðlegt, en síðan er það svo
kaldhæðnislegt að þetta verk er að
öllum líkindum ekki eftir Bach,“
segir Kári. „Það er ekki til í hans
eigin skrift en mörg góð verk voru
á sínum tíma eignuð Bach. Oft er
talið að þetta verk sé eftir einn
nemanda hans.
Ég enda tónleikana síðan á
Introduktion og passacaglia í f-
moll, eftir Pál Ísólfsson. Það er
hans stærsta orgelverk.“
Á tónleikunum er Kári því með
hátt í þrjár aldir undir.
Nýr Dómkór
Auk þess að leika á orgel Dóm-
kirkjunnar stýrir Kári Dómkórn-
um. Hann segir að eftir andlát
Marteins H. Friðrikssonar, fyrr-
verandi dómorganista, í janúar síð-
astliðnum hafi gamli Dómkórinn
verið lagður af.
„Það er kominn nýr Dómkór, en
með mörgum kunnuglegum andlit-
um,“ segir Kári. „Kórinn fer stækk-
andi og síðan vinn ég með kammer-
kór líka og þeir munu báðir vera
með reglulega tónleika.“
170 ára orgelsaga
Aðgangur að tónleikum Kára í
kvöld er ókeypis. Að tónleikum
loknum er gestum, eins og fyrr seg-
ir, boðið að skoða og fræðast meira
um fyrsta pípuorgel Dómkirkjunnar
en leifar þess eru geymdar á
kirkjuloftinu. Þetta fyrsta orgel,
sem var fimm radda og með einu
hljómborði, var vígt fyrir 170 árum,
í júní 1840. Það orgel var tekið nið-
ur árið 1983 og var þá keypt stórt
kirkjuharmóníum. Almenn óánægja
var með það og 1904 var því keypt
14 radda pípuorgel frá Kaupmanna-
höfn.
Árið 1934 var enn keypt nýtt org-
el í Dómkirkjuna og var 26 raddir.
Þegar núverandi orgel, sem er 33
raddir, var keypt fór það gamla í
Reykholtskirkju í Borgarfirði. Það
var Þorsteinn Gunnarsson arkitekt
sem teiknaði útlit núverandi orgels,
þess sem var vígt fyrir 25 árum.
Niður aldanna
í Dómkirkjunni
Morgunblaðið/Eggert
Dómorganistinn „Það er kúnst að setja saman orgelprógramm þannig að
öllum líki,“ segir Kári Þormar. Hann var ráðinn dómorganisti í sumar.
Kári Þormar
dómorganisti leik-
ur á afmælistón-
leikum í kvöld
Í kvöld, miðvikudag, er handverks-
kaffi desembermánðar í Gerðu-
bergi. Þá mun Kristín Arngríms-
dóttir myndlistarkona kynna
jólalega klippimyndagerð. Kristínu
er lagið að galdra fram fegurstu
djásn með skærum og pappír einum
saman. Hún verður með ýmis sýn-
ishorn og veitir gestum leiðsögn í
einföldu klippi. Snjókorn og englar
eru meðal þess sem gestum býðst að
skapa og verður allur efniviður á
staðnum, gestum að kostnaðarlausu.
Handverkskaffið hefst kl. 20 og
stendur til kl. 22. Aðgangur ókeypis.
Jóladjásn í
Gerðubergi
Miðasala í Háskólabíói » Sími 545 2500 » www.sinfonia.is
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Petrenko stjórnar Mahler Fim. 02.12. kl. 19.30
Hljómsveitarstjóri: Vasily Petrenko
Franz Schubert: Ófullgerða sinfónían
Gustav Mahler: Sinfónía nr. 5
Aðventutónleikar Lau. 11.12. kl. 17.00 Örfá sæti laus
Hljómsveitarstjóri: Nicholas Kraemer
Einsöngvarar: Katherine Watson og James Gilchrist
Á aðventutónleikunum hljómar jólatónlist frá ýmsum
tímum í flutningi tveggja breskra stórsöngvara, þar sem
Bach, Händel, Corelli, Mozart og fleiri eiga sinn skerf.
Tónleikakynning Fim. 02.12. kl. 18.00 í Neskirkju
Við minnum á Vinafélagskynningu fyrir tónleika á
Kaffitorginu í Neskirkju kl. 18.00.
Árni Heimir Ingólfsson tónlistarstjóri SÍ kynnir
verkin. Allir velkomnir
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Ofviðrið (Stóra sviðið)
Mið 29/12 kl. 20:00 frums Fim 13/1 kl. 20:00 6.k Mið 26/1 kl. 20:00
Sun 2/1 kl. 20:00 2.k Þri 18/1 kl. 20:00 Sun 30/1 kl. 20:00 8.k
Lau 8/1 kl. 20:00 3.k Mið 19/1 kl. 20:00 Sun 6/2 kl. 20:00 9.k
Sun 9/1 kl. 20:00 4.k Fös 21/1 kl. 20:00 7.k Fim 10/2 kl. 20:00 10.k
Mið 12/1 kl. 20:00 5.k Þri 25/1 kl. 20:00
Ástir, átök og leiftrandi húmor
Fólkið í kjallaranum (Nýja svið)
Mið 1/12 kl. 20:00 23.k Fim 9/12 kl. 20:00 26.k Lau 11/12 kl. 19:00
Sun 5/12 kl. 20:00 24.k Fös 10/12 kl. 19:00 27.k Sun 12/12 kl. 20:00
Mið 8/12 kl. 20:00 25.k Fös 10/12 kl. 22:00
Sýningum lýkur í desember
Fjölskyldan (Stóra svið)
Fös 3/12 kl. 19:00 7.k Fim 30/12 kl. 19:00 Sun 23/1 kl. 19:00
Lau 4/12 kl. 19:00 8.k Fös 7/1 kl. 19:00
Lau 18/12 kl. 19:00 9.k Lau 15/1 kl. 19:00
"Stjörnuleikur sem endar með flugeldasýningu", BS, pressan.is
Jesús litli (Litla svið)
Mið 1/12 kl. 20:00 10.k Fim 9/12 kl. 20:00 15.k Lau 15/1 kl. 16:00 Ak.eyri
Fim 2/12 kl. 18:00 aukas Fös 10/12 kl. 19:00 aukas Lau 15/1 kl. 20:00 Ak.eyri
Fim 2/12 kl. 20:00 11.k Lau 11/12 kl. 19:00 aukas Sun 16/1 kl. 16:00 Ak.eyri
Fös 3/12 kl. 19:00 8.k Sun 12/12 kl. 20:00 16.k Sun 16/1 kl. 20:00 Ak.eyri
Fös 3/12 kl. 21:00 9.k Fim 16/12 kl. 20:00 Þri 18/1 kl. 20:00 Ak.eyri
Lau 4/12 kl. 19:00 12.k Lau 18/12 kl. 19:00 Mið 19/1 kl. 19:00 Ak.eyri
Lau 4/12 kl. 21:00 13.k Lau 18/12 kl. 21:00 Mið 19/1 kl. 21:00 Ak.eyri
Þri 7/12 kl. 20:00 aukas Mið 29/12 kl. 19:00 aukas Fim 20/1 kl. 19:00 Ak.eyri
Mið 8/12 kl. 20:00 14.k Fim 30/12 kl. 19:00 Fim 20/1 kl. 21:00 Ak.eyri
Sýningar 2/12 kl 18 og 7/12 kl 20 verða túlkaðar á táknmáli
Jesús litli - leikferð (Hamraborg)
Lau 15/1 kl. 16:00 Sun 16/1 kl. 20:00 Mið 19/1 kl. 21:00
Lau 15/1 kl. 20:00 Þri 18/1 kl. 21:00 Fim 20/1 kl. 19:00
Sun 16/1 kl. 16:00 Mið 19/1 kl. 19:00 Fim 20/1 kl. 21:00
Sýnt í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri
Faust (Stóra svið)
Fim 6/1 kl. 20:00 Sun 16/1 kl. 20:00
Fös 14/1 kl. 22:00 Fim 20/1 kl. 20:00
Aukasýningar á Íslandi vegna fjölda áskorana
Horn á höfði (Litla svið)
Lau 4/12 kl. 14:00 aukas Sun 12/12 kl. 14:00 aukas
Gríman 2010: Barnasýning ársins - síðustu sýningar
Ofviðrið – forsala hafin
GEFÐU GÓÐAR
STUNDIR
Gjafakort Þjóðleikhússins á hátíðartilboði!
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
G
JA
FA
KO
R
T
Þ
JÓ
Ð
LE
IK
H
Ú
S
S
IN
S
BALLIÐ Á
BESSASTÖÐUM
G
JA
FA
KO
R
T
Þ
JÓ
Ð
LE
IK
H
Ú
S
S
IN
S
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Skagfirska söngsveitin heldur jóla-
tónleika á morgun, fimmtudaginn
2. desember kl. 20, í Fella- og Hóla-
kirkju.
Ásamt Söngsveitinni kemur fram
hljómsveit Björns Thoroddsen en
stjórnandi kórsins er Renata Ivan.
Kórinn hélt á dögunum, 4. nóv-
ember síðastliðinn, 40 ára afmæl-
istónleika þannig að starfið stendur
með miklum blóma um þessar
mundir.
Á efnisskrá tónleikanna á morg-
un eru innlend og erlend jólalög,
klassísk sem dægurlög.
Jólatónleikar
söngsveitar
Á morgun, fimmtudagskvöldið 2. desember,
klukkan 20 halda þeir Garðar Cortes ten-
órsöngvari og sænski píanóleikarinn Ro-
bert Sund tónleika í Selinu á Stokkalæk.
Þeir hafa starfað reglulega saman og lagt
áherslu á flutning á þekktum og vinsælum
dægurlagaperlum. Saman hafa þeir gefið út
þrjá geisladiska með þekktum sönglögum
og negrasálmum. Á tónleikunum flytja þeir
dægurlagaperlur, jólalög, negrasálma og
sönglög.
Á föstudagskvöldið halda þau Kitty Ko-
váks píanóleikari og Balázs Stankowsky
fiðluleikari tónleika í Selinu. Þau eru ung-
versk og vel menntuð í tónlist í heimalandi
sínu en fluttu til Íslands árið 2006. Þau
starfa hér sem tónlistarkennarar og hafa
haldið allmarga tónleika saman, hér og er-
lendis. Á efnisskrá eru verk eftir Schubert
og Beethoven auk konsertfantasíu eftir
Igor Frolov um stef úr Porgy og Bess.
Miðapantanir í síma 864 5870.
Tvennir tónleikar í Selinu á Stokkalæk
Garðar Cortes