Morgunblaðið - 10.12.2010, Page 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 2010
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Labrador Retriever hvolpar.
Hreinræktaðir. Ættbókarfærðir HRFÍ.
Sprautaðir. Tilbúnir til afhendingar.
Upplýsingar í síma 695 9597 og í
síma 482 4010.
Jólagjöf fjölskyldunnar
11 vikna, ungverskar vizlur til sölu.
Örm. Ættbókarfærðir HRFÍ. Tilb. til af-
hendingar. Uppl. í síma 772 5350.
Fatnaður
Upphlutur og möttull til sölu
Stærð M-L. Metinn á 1 milljón - til-
boð óskast. Uppl. Í síma 8494588
milli kl. 17 og 19 föstudag til
mánudags.
Gisting
AKUREYRI
Höfum til leigu 50, 85 og 140 m²
sumarhús 5 km frá Akureyri, öll
með heitum potti og flottu útsýni yfir
Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir
á Akureyri. www.orlofshus.is,
Leó, s. 897- 5300.
Atvinnuhúsnæði
Fyrir heilbrigðisgeirann
Til leigu 11m² vinnuherbergi í miðbæ
Mosfellsbæjar, ásamt afnotum af:
Móttöku,steril, kaffiaðstöðu og snyrt-
ingu. Aðstaðan er vottuð af Heilb-
rigðiseftirliti. Verð pr. mán. kr. 40.000.
Uppl. Auður 893 8711.
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratugareynsla.
Höfum til sýnis fullbúin hús og einnig
á hinum ýmsu byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Tómstundir
Lampar með stækkunargleri í
úrvali. Gott verð.
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 5870600.
www.tomstundahusid.is
Til sölu
ÚR DÁNARBÚI: BRÚNA RÓSIN
8 manna danskt, handmálað matar-
og mokkastell frá Royal Copenhagen;
56 stykki. Höfðaleturs kaffisilfur; 14
stk. og fleiri gamlir munir. Uppl. sími
552 0326Ódýr blekhylki og tónerar í
HP, Dell, Brother, Canon og Epson.
Send samdægurs beint heim að
dyrum eða í vinnuna. S. 517 0150.
Sjá nánar á blekhylki.is
Frábært poolborð frá RILEY, 6 fet.
Verð kr. 76.400.
www.billiard.is
Suðurlandsbraut 10 (2h),
108 Reykjavík,
s.568 3920.
Auðvelt, þægilegt, flott,
Ódýrt!!! ...eftir þínu höfði.
www.prentlausnir.is
BÚÐU TIL ÞITT
DAGATAL
JÚLÍ 20
08
BÚÐU TIL ÞÍN
JÓLAKORT
Gleðileg jól!
Auðvelt, þægilegt, flott,
Ódýrt!!! ...eftir þínu höfði.
www.prentlausnir.is
Auðvelt, þægilegt, flott,
Ódýrt!!!...eftir þínu höfði.
www.prentlausnir.is
BÚÐU TIL ÞITT
MYNDA-
ALBÚM
Fótboltaborð Mini Kidz.
Verð kr. 10.900 m/vsk.
Ótrúlega skemmtilegt
fótboltaborð Frá Riley.
www.pingpong.is
Suðurlandsbraut 10 (2.h.),
S. 568 3920.
Mokkajakkar
Mokkakápur
Verslun
Trúlofunar- og giftingarhringar í
úrvali. Auk gullhringa eigum við m.a.
titanium og tungstenpör á fínu verði.
Sérsmíði, framleiðsla og viðgerðar-
þjónusta.
ERNA, Skipholti 3,
s. 5520775, www.erna.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi. Kaupi allt
gull, nýlegt, gamalt og illa
farið. Leitið til fagmanns og fáið góð
ráð. Uppl. á demantar.is, í síma
699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13 (við Austurvöll).
Verið velkomin.
Bílaþjónusta
Húsviðhald
Parket er okkar fag í 26 ár
Verið í góðum höndum
Notum eingöngu hágæða efni
Förum hvert á land sem er
FALLEG GÓLF ehf - Sími 898 1107
www.falleggolf.is - golfslipun@simnet.is
Þak og
utanhússklæðningar
og allt húsaviðhald
Ragnar V Sigurðsson ehf
Sími 892 8647.
✝ Björg ElísabetElísdóttir
fæddist 23. mars
1910 í Hólshúsum
Húsavík, Borg-
arfirði eystri, og
ólst þar upp og á
Seyðisfirði. Hún
lést á hjúkr-
unarheimilinu
Skjóli 4. desember
2010.
Foreldrar henn-
ar voru Elís Guð-
jónsson og Guð-
björg Gísladóttir.
Systkini Bjargar voru Þórhild-
ur, Guðrún Sigríður, Þórhildur,
Sigrún Ólafía, Guðrún Þórdís,
Gísli, Lukka, Óskar Júlíus og
Oddrún. Björg var síðust sem
kvaddi.
Björg Örlygsdóttir Husby, gift
Írisi Örnu Smáradóttur, Íris á
soninn Smára. c) Jóhann Pétur
Ölygsson Husby. d) Dóttir fædd
andvana 1975. e) Örlygur Ö. Ör-
lygsson, giftur Elínu M. Óladótt-
ur, eiga þau drengina Arnar
Már, Óla Þór og Sævar Inga. f)
Jón Ingi Örlygsson, sambýlis-
kona hans er Ágústa Guðrún
Ólafsdóttir, Jón Ingi á tvö börn
af fyrra sambandi þau Óskar
Marinó og Elísabetu Helgu,
Ágústa á svo Áslaugu Guðrúnu
og Ólöfu Huldu. 3) Ragnar M.
Óskarsson Husby, giftur Eddu
Baldvinsdóttur, börn þeirra eru
a) Guðrún B. Ragnarsdóttir,
sambýlismaður hennar er Ás-
mundur Ísak Jónsson, eiga þau
tvö börn. b) Baldvin Davíð
Husby. c) Linda Kristín Husby.
Björg bjó síðustu sex og hálfa
árið á Hjúkrunarheimilini Skjóli
þar sem hún lést.
Björg Elísabet verður jarð-
sungin frá Áskirkju í dag, 10.
desember 2010, og hefst athöfn-
in kl. 13.
Björg giftist 5.9.
1943 Óskari Ingi-
mari Husby, f.
29.10. 1918, d. 1.6.
1998. Foreldrar
hans voru Johann
og Ragnhild Husby
frá Þrándheimi í
Noregi. Systkini
Óskars voru 10 og
eru tvö þeirra á
lífi, Eling og Mar-
git. Börn Bjargar
og Óskars eru 1)
Reidar J. Ósk-
arsson Husby,
sambýliskona Kristín María
Bagguley, látin. 2) Þórdís S.
Óskarsdóttir Husby, gift Örlygi
R. Þorkelssyni, börn þeirra eru
a) Óskar I. Örlygsson, sambýlis-
maður hans er Robyn. b) Elísa
Nú er hún elsku besta amma mín
dáin. Síðasta skiptið sem ég sá hana
ömmu vissi ég að hún ætti ekki mikið
eftir. Hún var mikið veik þennan
dag. Amma var sérstök kona. Ég á
svo margar góðar minningar um
hana og afa. Þau voru bæði svo góð
og vildu allt fyrir alla gera. Afi dó
fyrir 12½ ári, það var mjög erfitt fyr-
ir ömmu. En Jesús hjálpaði henni í
gegnum sorgina. Annars hefði hún
ekki getað lifað. Þegar ég var að
alast upp, kom amma oft til okkar og
gisti í nokkra daga. Þá var gaman.
Hún söng barnasálma og bað með
okkur á kvöldin. Steikti kleinur, bak-
aði lummur, skonsur og pönnukökur.
Ég fór mikið með ömmu og afa. Ég
fór oft með þeim í kirkjuna þeirra,
Áskirkju, þar sem þau nutu þess að
koma. Sr. Árni Bergur og allt starfs-
fólkið var alltaf svo gott og hlýlegt.
Ég fór í heimsókn með ömmu og afa
til systkina ömmu og ættingja.
Seinna þegar afi keypti bíl fórum við
til Hveragerðis og Selfoss og margt
annað. Ég fór með ömmu og afa til
Seyðisfjarðar á hverju sumri í nokk-
ur ár til systur ömmu. Alltaf var
gaman að ferðast með ömmu og afa,
harmonikkumúsík oft á og mikil
gleði.
Amma var dugleg að vinna ýmsa
handavinnu, eftir að hún varð 67 ára
byrjaði hún að vinna mikið með leir,
sauma og mála dúka og svo mikið
annað sem ég hef ekki nafn yfir.
Amma var í handavinnu á Norður-
brún og Furugerði fyrst en svo bara
á Norðurbrún. Ef maður kom þegar
amma var í handavinnu þá bauð hún
manni sæti við borðið. Þetta var
hennar vinna. Amma prjónaði alltaf
sokka og vettlinga frá því hún var
ung. Það fengu börnin og barnabörn-
in og barnabarnabörn að njóta. Allt-
af gat maður komið til ömmu og
fengið sokka og vettlinga ef mann
vantaði. Amma var mjög hugulsöm,
hugsaði mikið um sín börn, barna-
börn og barnabarnabörn og ættingja
og vini. Amma bakaði alltaf, alltaf
voru til kökur hjá ömmu, eplakaka
og fleiri góðar kökur. Og þegar mað-
ur kom í heimsókn var maður alltaf
spurður: „Ertu svangur langar þig í
eitthvað?“ Amma eldaði góðan mat
og bakaði góðar kökur. Amma sagði
oft frá því þegar hún var að alast
upp. Það var ekki auðveldur tími.
Þegar fólk var að ferðast þurfti að
fara á hestum yfir kaldar ár og fjöll.
Og hún sagði frá systkinum sínum og
foreldrum sem henni þótti mikið
vænt um. Amma var alltaf nægju-
söm með allt sem hún átti. Það hefur
verið gott veganesti fyrir mig. Ég er
svo þakklátur fyrir ömmu.
Takk, elsku amma mín, að þú
fannst og varst alltaf til fyrir mig,
fjölskylduna og vini. Minningin um
þig og afa mun alltaf lifa. Elsku
mamma og pabbi, takk fyrir allt sem
þið hafið gert fyrir ömmu. Amma var
mjög þakklát fyrir allt sem þið gerð-
uð fyrir hana. Hún talaði um það.
Eins vil ég segja takk til allra ann-
arra sem hafa hjálpað ömmu.
Í Matt. 11:28 til 30 stendur: „Kom-
ið til mín, öll þér sem erfiðið og
þunga eruð hlaðin, og ég mín veita
yður hvíld. Takið á yður mitt ok og
lærið af mér því að ég er hógvær og
af hjarta lítillátur og þá munuð þér
finna hvíld sálum yðar. Því að mitt ok
er ljúft og byrði mín létt.“
Blessuð sé minning þín, elsku
amma mín. Hvíl í friði.
Þinn dóttursonur,
Pétur.
Björg Elísabet
Elísdóttir
HINSTA KVEÐJA
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Elsku amma sofðu rótt.
Óskar, Elísa, Pétur, Örlygur,
Jón Ingi, og fjölskyldur.
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson)
Hjartans þakkir til starfs-
fólks hjúkrunarheimilisins
Skjóls fyrir frábæra umönnun
og guð blessi störf ykkar.
Reidar, Þórdís, Ragnar og
fjölskyldur.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Pétur og Hörður
Akureyrarmeistarar
Þriðjudaginn 7. desember fór
fram lokakvöldið í Akureyrarmótinu
í tvímenningi 2010 en 18 pör tóku
þátt. Pétur og Hörður höfðu góða
forystu eftir þrjú kvöld og voru enn
öruggir á toppnum eftir fjórða
kvöldið þó aðrir hafi reynt að sækja á
þá. Þetta varð lokastaðan:
Pétur Guðjónss. - Hörður Blöndal 60,8%
Stefán Vilhjálmss. - Örlygur Örlygss. 57,8%
Ævar Ármannss. - Árni Bjarnas. 55,3%
Stefán Sveinbjss. - Kristj. Þorsteinss. 54,2%
Grettir Frímannss. - Stefán Ragnarss.54,1%
Efstu pör 4. kvöldið:
Gylfi Pálsson - Helgi Steinsson 59,6%
Grettir Frímannss. - Stefán Ragnarss.58,3%
Frímann Stefánss. - Reynir Helgason 58,1%
Næstu tvö þriðjudagskvöld verður
spilaður Hangikjötstvímenningur
Norðlenska þar sem betra skor gild-
ir svo ekki er nauðsynlegt að spila
bæði kvöldin.
Tvímenningur hjá Miðviku-
dagsklúbbnum og Suður-
nesjamönnum
Sl. miðvikudag var reiknaður sam-
eiginlega út tvímenningur hjá Mið-
vikudagsklúbbnum og bridsfélögun-
um á Suðurnesjum. Spiluð voru
sömu spil í báðum klúbbunum og úr-
slit sameinuð að spilamennsku lok-
inni.
Þátttökupörin voru 44 og sigruðu
Guðný Guðjónsdóttir og Hrafnhildur
Skúladóttir örugglega.
Lokastaðan:
Guðný Guðjónsd. - Hrafnh. Skúlad. 63,2%
Garðar Garðarss. - Gunnl. Sævarss. 58,5%
Leifur Aðalstss. - Þórhallur Tryggvas. 58,1%
Sigríður Eyjólfsd. - Grethe Iversen 56,7%
Arnór Ragnarss. - Svavar Jenssen 56,5%
Guðrún Jóhannesd. - Soffía Daníelsd. 56,2%
Ekki hallar á milli félaga því af 6
efstu pörum koma 3 frá hvoru.