Morgunblaðið - 18.12.2010, Síða 1
L A U G A R D A G U R 1 8. D E S E M B E R 2 0 1 0
Stofnað 1913 296. tölublað 98. árgangur
MÖRG FIÐRILDI Í
MAGANUM OG ÖR
HJARTSLÁTTUR
GERÐUR
UM GERÐI
OFVIÐRIÐ
RÍÐUR Á AÐ
HALDA EWING-
OIL SAMAN
SUNNUDAGSMOGGINN AF ÚTVARPI 64JÓLAGLEÐI RIMASKÓLA 20
Hanna Birna Kristjánsdóttir, for-
seti borgarstjórnar, segir að sam-
starfið við meirihlutann sem ræður
borginni hafi ekki þróast með þeim
hætti sem hún hefði viljað sjá.
„Verði ekki tekin ákveðnari
skref í þessari sameiginlegu tilraun
til aukins samstarfs og verði það
ekki aukið eða formgert frekar á
nýju ári, þá hafa forsendur auðvit-
að breyst með þeim hætti að við
hljótum að endurskoða það og um
leið hlýt ég að íhuga hvort rétt sé
að ég starfi áfram sem forseti,“ seg-
ir Hanna Birna í viðtali í sunnu-
dagsblaði Morgunblaðsins. „Því er
það auðvitað spurning hvort þessi
tilraun okkar vari lengur en til eins
árs, eins og um var samið.“
Hlýt að íhuga að
hætta sem forseti
borgarstjórnar
Morgunblaðið/Golli
Hanna Birna Samstarfið þarf að breytast.
Harka og óbil-
girni einkennir
framkomu ESA og
Evrópusambands-
ins varðandi bann á
notkun fosfata við
framleiðslu á salt-
fiski, að mati Ein-
ars K. Guðfinns-
sonar alþingis-
manns. Hann segist
óttast að vinnsla á fiski flytjist úr
landi, störfum fækki og verðmæta-
sköpun minnki í kjölfar bannsins.
Aukefnanefnd ESB er með málið
til skoðunar, en að sögn Einars er
talið að það geti tekið allt næsta ár
að fá endanlegt svar um hvort efnið
verður leyft. Líklegt er að ESA
sendi hingað eftirlitsmenn í byrjun
næsta árs til að kanna hvort fram-
leiðendur hafi ekki allir hætt notk-
un fosfata. MAST mun einnig fylgj-
ast með málinu. »14
Óttast fækkun
starfa í fiskvinnslu
Einar K.
Guðfinnsson
dagar til jóla
6
Skyrgámur
kemur í kvöld
www.jolamjolk.is
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Snjóflóðahætta var hvergi á byggðu
bóli hér á landi í gærkvöldi, að mati
sérfræðinga Veðurstofu Íslands.
Ástandið verður metið aftur þegar
birtir í dag og sést til fjalla.
Veðurfræðingur sem var á vakt í
gærkvöldi sagði að nokkrir þekktir
snjóflóðastaðir við vegi á norðan-
verðu landinu gætu verið varhuga-
verðir og viðbúið að snjóflóð féllu á
einhverja þeirra í nótt.
Lögreglan á Húsavík varaði við
snjóflóðahættu í Dalsmynni í
Fnjóskadal í gær og var veginum
lokað þess vegna. Vegurinn um Vík-
urskarð lokaðist vegna ófærðar í
gær og þá fór umferð að aukast um
Dalsmynni. Leiðinni var því lokað til
öryggis. Veðurstofan nefndi einnig
Siglufjarðarveg og Ólafsfjarðarmúla
varðandi mögulega snjóflóðahættu.
Óveðrið sem geisaði víða um land í
gær og í fyrrinótt gekk víðast hvar
niður þegar leið á gærdaginn. Búist
var við að áfram drægi úr veðrinu í
nótt.
Björgunarsveitarfólk hafði í nógu
að snúast í gær við að aðstoða fólk í
ófærð og hemja hluti sem voru að
fjúka. Mjög hægðist um hjá björg-
unarsveitum um kvöldmat í gær.
MFengu mörg óveðursútköll »2
Morgunblaðið/RAX
Gufunes Gamla varðskipið Þór slitnaði frá bryggju í óveðrinu og rak upp á grynningar þar sem það strandaði.
Óveður gerði víða usla
Varað við snjóflóðahættu við vegi
Björgunarsveitir höfðu í nógu að snúast
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Akureyri Foreldrar voru beðnir að sækja börnin vegna veðursins.
Lögfræðingar sem Morg-
unblaðið hefur rætt við telja að
hvorki neyðarlögin né annað í ís-
lenskum lagabókstaf komi í veg
fyrir þá lausn á Icesave-deilunni
sem almennir kröfuhafar kynntu
stjórnvöldum í vor og sagt hefur
verið frá í blaðinu. Tillagan felur
meðal annars í sér að íslenska ríkið
myndi losna undan allri ábyrgð
vegna Icesave-skuldbindinga. Hins
vegar hefur verið haft eftir fjöl-
miðlafulltrúa fjármálaráðuneyt-
isins að hugmyndir kröfuhafanna
stangist á við hugmyndina á bak
við neyðarlögin. » 28
Tillaga almennra
kröfuhafa stenst lög
Jónas Margeir Ingólfsson
jonasmargeir@mbl.is
Efnahags- og skattanefnd Alþingis
leggur m.a. til að heimild fyrirtækja
til að taka gengistryggð lán verði
felld niður. Gert er ráð fyrir því að í
dag verði samþykkt frumvarp til
laga um vexti og verðtryggingu sem
fjallar m.a. um uppgjör gengis-
tryggðra lána. „Þetta verður núna
að lögum, það er stefnan,“ segir
Magnús Orri Schram, þingmaður
Samfylkingarinnar, sem situr í efna-
hags- og skattanefnd.
„Staða fyrirtækjanna verður
því tekin eftir áramót þar sem við
förum heildstætt yfir stöðu þeirra
og lánamöguleika. Fyrirtækin verða
tekin mjög kerfisbundið fyrir. Þau
litlu og meðalstóru fyrirtæki sem
tóku gengistryggð lán munu fá úr-
lausn sinna mála inni í bankakerf-
inu,“ segir Magnús Orri.
Meirihluti Alþingis stefnir að
því að ljúka þingstörfum í dag og
taka jólahlé. „Við stefnum að því að
ljúka þinginu á morgun. Það tekur
auðvitað einhvern tíma að ræða
þessi mál en það er sameiginlegur
vilji formanna allra þingflokka að
við náum að ljúka þessu á morgun,“
sagði Þórunn Sveinbjarnardóttir,
formaður þingflokks Samfylking-
arinnar, í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi.
Meðal þeirra mála sem gert er
ráð fyrir að afgreiða í gegnum þing-
ið og gera að lögum í dag eru nokk-
ur frumvörp um hækkanir og breyt-
ingar á skattlagningu og ráðstafanir
í ríkisfjármálum.
Heimild fyrirtækja til töku
gengislána felld niður
Stefnt að því að gera gengislánafrumvarp að lögum í dag
Mál sem á að afgreiða
» Ráðstafanir í ríkisfjár-
málum.
» Vörugjald af ökutækjum,
eldsneyti o.fl.
» Sérstakur skattur á fjár-
málafyrirtæki.