Morgunblaðið - 18.12.2010, Síða 6

Morgunblaðið - 18.12.2010, Síða 6
Tap á rekstri Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs nam 38,6 milljónum króna á árinu 2009, samkvæmt ársreikningi, sem flokkurinn hefur skilað til Ríkisendurskoðunar. Alls fékk flokkurinn rúma 1 millj- ón króna í styrki frá fyrirtækjum. Hæstu styrkirnir voru frá Högum og Icelandair Group, 300 þúsund krónur frá hvoru fyrirtæki. Fé- lagsgjöld skiluðu flokknum 27,2 milljóna króna tekjum. Tap var einnig á rekstri Borg- arahreyfingarinnar á síðasta ári, eða sem nam rúmlega 6,7 millj- ónum króna. Flokkurinn fékk 850 þúsund krónur í styrki frá fyr- irtækjum, þann hæsta frá Atlants- olíu eða 300 þúsund krónur. Þá námu framlög einstaklinga 832 þús- und krónum. Tap hjá stjórnmála- flokkunum  Hæstu styrkir VG frá Högum og Icelandair Upphæð óinnheimtra fjársekta, sem dómstólar hafa dæmt fólk til að greiða, nam rúmlega 2,92 millj- örðum króna nú í nóvember. Um er að ræða sektir, sem hafa vararefs- ingu á bak við sig. Þetta kemur fram í svari dóms- málaráðherra á Alþingi við fyr- irspurn Vigdísar Hauksdóttur, þing- manns Framsóknarflokksins. Þar kemur einnig fram, að frá því að fangelsið í Bitru var opnað í sum- ar og til 15. nóvember hafi fésektir að fjárhæð 4.357.637 krónur verið afskrifaðar. Þetta séu allt sektir þar sem upprunaleg fyrningardagsetn- ing var fyrir tveimur árum en fyrn- ing var framlengd um tvö ár. Ráðherra segir ýmsar ástæður á bak við það að sektirnar fyrnast, t.d. finnist einstaklingar ekki, þeir séu fluttir af landinu eða þeim hafi verið vísað brott af landinu. Fram kemur að engar merkjanlegar breytingar hafi orðið á innheimtu fésekta við opnun fangelsisins að Bitru. Þegar fangelsið var opnað stóð til að taka frá 5 afplánunarrými í kerfinu svo hægt væri að boða einstaklinga til afplánunar vararefsingar fésekta. Óinnheimtar sektir ríflega 1,9 milljarðar FRÉTTASKÝRING Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Ríkisstjórnin stendur veikari eftir þetta en er kannski ekki í bráðri lífs- hættu,“ segir Birgir Guðmundsson, stjórnmálafræðingur við Háskólann á Akureyri, við Morgunblaðið um stöðu ríkisstjórnarinnar eftir at- kvæðagreiðsluna á Alþingi á fimmtudag þar sem þrír þingmenn Vinstri-grænna sátu hjá við af- greiðslu fjárlagafrumvarpsins; þau Lilja Mósesdóttir, Atli Gíslason og Ásmundur Einar Daðason. Fjárlögin voru samþykkt með 32 atkvæðum, eða eins naumum meiri- hluta og hægt er. Hafa þremenning- arnir í VG tilheyrt „órólegu deild- inni“ svonefndu innan þingflokksins, ásamt Ögmundi Jón- assyni og Guðfríði Lilju Grétars- dóttur. Ögmundur greiddi atkvæði með frumvarpinu en einn viðmæl- enda blaðsins orðaði það svo að búið væri að „temja“ Ögmund. Er þann- ig talið að hann muni samþykkja nýja Icesave-samninginn. Guðfríður Lilja er í fæðingarorlofi og óvíst hvenær hún kemur aftur til starfa á þingi. Velta má fyrir sér hvort at- kvæði hennar hefði fallið eins og hjá varamanni hennar á þingi, Ólafi Þór Gunnarssyni, en viðmælendur telja líklegt að hún fylgi frekar Ögmundi að málum. Í umræðum á Alþingi í gær kom fram í máli Össurar Skarphéðins- sonar utanríkisráðherra að stjórn- arþingmenn yrðu að vera tilbúnir að verja stjórnina falli og styðja fjár- lagafrumvarp hennar. „Ef einhverj- ir einstaklingar gera það ekki þá hljóta þeir að velta því fyrir sér hvar í heiminum þeir eru staddir, en þeir verða að gera það upp við sig sjálf- ir,“ sagði Össur á Alþingi en fyrir ut- an stjórnarráðshúsið lét hann hafa eftir sér í samtali við RÚV að hjá- seta þingmanna VG væri að hluta til vantraustsyfirlýsing á ríkisstjórn- ina. Á sama stað var Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, spurður hvort einhver eftirmál yrðu og svar hans var: „Við skulum sjá til.“ Ummælin bera því glöggt vitni að þungt andrúmsloft ríkir á stjórnar- heimilinu og fullkomin óvissa um hvernig ríkisstjórninni tekst að ná öðrum stórum málum í gegn á þingi, eins og t.d. Icesave. Andstaða þremenninganna í VG er sögð bein afleiðing af nýlegum flokksstjórnarfundi flokksins, þar sem fram kom hörð gagnrýni al- mennra flokksmanna á forystuna. Einn félagi í VG orðaði það svo að ef aðeins ein skoðun ætti að vera uppi í flokknum væri illa komið fyrir hon- um. Taldi hann afstöðu Lilju, Atla og Ásmundar einfaldlega endurspegla vilja stórs hluta flokksmanna. Þá hefur þeim „grýlum“ verið haldið að órólegu deildinni innan VG að gera þurfi allt til að halda vinstristjórn- inni saman, þannig að Sjálfstæðis- flokkurinn komist ekki til valda á ný. Endurtekur sagan sig? Birgir Guðmundsson segist telja að ríkisstjórnin geti þrátt fyrir veik- an meirihluta staðist vantrauststil- lögu en muni eiga mjög erfitt með að koma stórum málum áfram eins og Icesave og málum tengdum ESB- aðild. Birgir segir atkvæðagreiðsl- una sýna vel hvað ágreiningur í bak- landi VG er djúpur. „Margir hjarta- hreinir hugsjónamenn eru ekki tilbúnir í málamiðlunarpólitík sem ríkisstjórnarþátttaka felur í sér.“ Hann bendir jafnframt á að veðrabrigði á vinnumarkaðnum framundan geti reynst stjórnarsam- starfinu erfið. Allt frá árinu 1956 hafi vinstristjórnir allar strandað á málum er snerta efnahagsmál, vinnumarkaðinn og velferðarmál og tæpast náð að sitja heilt kjörtímabil. En skyldi sagan þá endurtaka sig varðandi þessa vinstristjórn? Birgir telur ekki miklar líkur á því, ríkis- stjórnin sé lífseig og muni líklega halda velli. „En það verður ekki átakalaust og það verða miklar flug- eldasýningar.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Vinstri-grænir Lilja Mósesdóttir á þingflokksfundi VG á meðan allt lék í lyndi en hún hefur ekki verið sátt við flokksformanninn að undanförnu. Veik en ekki í lífshættu  Þungt andrúmsloft á ríkisstjórnarheimilinu eftir nauma atkvæðagreiðslu um fjárlögin  Afstaða þriggja þingmanna VG sögð endurspegla vilja flokksmanna 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2010 ÞAÐ REDDAST Svalasta ævisagan! Sveinn Sigurbjarnarson lítur um öxl og sögurnar flæða fram: Fyndnar, magnaðar, óhugnanlegar. holabok.is/holar@holabok.is 3. prentun komin í ve rslanir Jónas Margeir Ingólfsson jonasmargeir@mbl.is Strætó bs. hefur ákveðið að hækka gjaldskrá sína. Fram- lög sveitarfélaganna hafa lækkað um 5% á milli ára en fargjaldatekjur Strætó hafa rýrnað að raunvirði um helming frá árinu 2001. Félagið finnur sig því knúið til að grípa til gjaldskrárhækkunar. Hækkunin tekur gildi 3. janúar. Í fréttatilkynningu frá Strætó segir að fargjöld muni hækka á bilinu 5%-25%. Tímabilskort munu hækka um 14,8% en minnst hækkun verður á 20 miða kortum barna. Börn munu ekki lengur geta keypt staka ferð á 100 kr. en áfram munu bjóðast sérstök 20 miða kort. Staðgreiðugjald mun hækka úr 280 kr. í 350 kr. Þá mun afsláttur eldri borgara miðast við 70 ára aldur í stað 67 ára. Strætó hækkar fargjöld á bilinu 5%-25% á næsta ári  Tekur gildi 3. jan.  Stakt gjald fer úr 280 kr. í 350 kr. Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs., kveðst ekki eiga von á því að notkun almennings- samgangna á höfuðborgarsvæðinu minnki í kjölfar gjaldskrárhækkana. „Nei, við eigum ekki von á því. Hækkanir fyrir þá sem nota strætó að staðaldri og reglubundið eru ekki svo miklar. Bara rétt um 14%. Fyrir börn og ungmenni eru þetta 5%. Þetta eru langstærstu notendur strætó. Fyrir þann hóp hækkum við þetta ekki mikið,“ segir Reynir. Þá bendir hann á að miðað við gjaldskrár strætó í nágrannalöndum sé hækkunin ekki veruleg. 5% hækkun fyrir börn FRAMKVÆMDASTJÓRI STRÆTÓ BS. Reynir Jónsson Orðrómur um aðkomu Framsókn- arflokksins að ríkisstjórn Sam- fylkingar og Vinstri-grænna hef- ur enn komist á kreik en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins, segir ekkert hæft í þeim sögusögnum. Ekki hafi verið bankað á dyr fram- sóknarmanna eftir atkvæða- greiðsluna um fjárlögin á fimmtudag. Sigmundur telur lík- legt að stjórnin haldi velli en það velti þó á þeim þingmönnum VG sem tilheyrt hafa órólegu deild- inni. „Maður hefur oft séð uppá- komur hjá ríkisstjórninni sem hefðu leitt til þess undir venju- legum kringumstæðum að hún færi frá en þessi ríkisstjórn virð- ist ekki lúta þeim óskrifuðu reglum og legg- ur ofurkapp á að halda völd- um. Einhver þrjóska er uppi um að hafa hlutina óbreytta, jafn- vel þó að ekk- ert gangi,“ segir Sigmundur og telur vænlegast að mynduð verði þjóðstjórn, með aðkomu allra flokka á Alþingi, um tiltekin verk- efni í ákveðinn tíma. „Þetta gengur ekki lengur svona, landið er á margan hátt stjórnlaust og þarf starfhæfa ríkisstjórn.“ Ekki á leið í ríkisstjórnina FORMAÐUR FRAMSÓKNARFLOKKSINS Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.