Morgunblaðið - 18.12.2010, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2010
PRUFUTÍMINN
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Guðmundur sagði að þegarfólk mætti í fyrsta skipti ástaðinn byrjaði það á loft-rifflinum og færi svo yfir í
skammbyssuna. Ég fékk að prófa
báðar tegundir. Ég hafði aldrei
handfjatlað byssu fyrir þennan tíma
og ekki haft nokkurn áhuga á því.
Salurinn SR í Egilshöll er
langsum og borðlengja yfir hann
þversum, bak við hana eru nokkrar
skotbrautir. Staðið er fyrir framan
borðið og miðað á lítið pappaspjald
með skotskífu á. Spjaldið er hægt að
færa til og frá eftir vírabraut með
stýristöng sem er við hverja skot-
stöð á borðinu.
Fékk tíu í fyrstu
Guðmundur lét mig byrja á að
skjóta úr rifflinum sitjandi, sagði
það betra til að ég næði að átta mig á
tækinu, annars væri vanalega staðið.
Riffillinn er knúinn af lofti og
sendir kúluna út á skotmarkið á 175
km hraða svo það er eins gott að
vera ekki fyrir.
Ég hélt fyrst að ég fengi að
skjóta á spjald með útlínum af karli
eins og oft sést í löggumyndunum en
svo er nú ekki, um hefðbundna
skotskífu er að ræða. Best er að
hitta á miðjupunktinn á spjaldinu og
er það tía. Ég efaðist mikið um að
nokkur maður gæti hitt á þennan
litla punkt úr þessari fjarlægð en
annað kom nú á daginn.
Ég sat á ská með riffilinn og
hélt honum þétt að mér með skeftið
alveg upp að öxlinni. Svarti punkt-
urinn á skotspjaldinu átti að vera
inni í framsigtinu, þ.e það átti að
miða á skotmarkið, og svo var bara
að skjóta með smá hvelli. Í fyrsta
skoti hitti ég alveg við tíuna og ætl-
aði ekki að trúa þessari byrj-
endaheppni. Guðmundur sagði að
Skammarleg með skamm-
byssu, rosaleg með riffil
Ég sá fyrir mér niðursuðudósir sem stillt væri upp á
gamla tunnu, kaktusa og kúlheit og dró því fram kú-
rekagallann til að mæta í prufutíma í skotfimi hjá Skot-
félagi Reykjavíkur. Aðstaða félagsins var þó ekki í villta
vestrinu heldur í kjallara Egilshallarinnar. Þar tók Guð-
mundur Kr. Gíslason, framkvæmdastjóri félagsins, á
móti mér. Hann er ekki frændi Clint Eastwood.
Morgunblaðið/Golli
Skotskífan Fyrsta skot blaðamanns úr rifflinum fór nánast í miðjuna.
Skammbyssan Gleraugun eru notuð til að hjálpa til við að finna rétta
punktinn. Leppi er fyrir annað augað og glerið fyrir hinu eykur skerpuna,
en það er með linsu sem hægt er að stilla. Hver og einn lætur sérsmíða gler-
ið fyrir sig. Gott er að nota þau ef augun eru orðin þreytt.
Á picnik.com er hægt að gleyma sér
lengi við að breyta ljósmyndunum sín-
um. Síðan er sett upp á einfaldan og
aðgengilegan hátt og það besta er að
flest sem er í boði á henni er gjald-
frjálst. Vilji maður fá aðgang að öllu,
sem síðan hefur upp á að bjóða, kost-
ar það aðeins um 250 kr. á mánuði.
Þetta er afar auðvelt. Maður hleður
einfaldlega upp myndinni sem maður
vill breyta og svo hefst maður handa.
Til að byrja með getur maður fjarlægt
rauð augu, „kroppað“ myndina og
snúið henni á alla vegu. Að því loknu
tekur það skemmtilega við. Hægt er
að fjarlægja bólur, óþarfa glans og
hrukkur, nota „airbrush“, skerpa aug-
un og ýkja lit þeirra, gera tennur
hvítari o.fl. Svo er hægt að gera mynd-
ina svarthvíta eða brúntóna, gera
hana kornótta eða mýkja hana, setja á
hana sixtís-blæ og svo má lengi telja.
Hægt er að skrifa texta inn á myndina,
setja utan um hana ramma o.fl.
Þetta er skemmtileg síða fyrir þá
sem hafa alltaf viljað leika sér með
myndir en ekki lagt í að læra á Photo-
shop.
Vefsíðan www.picnik.com
Morgunblaðið/Þorkell
Myndir breytt-
ar og bættar
„Þetta byrjaði allt vegna þess að ég
gat ekki hugsað mér að hafa dóttur
mína í nærfötum sem á stóð að hún
væri „eign þvottahúsanna“ þegar
ég lá með hana á fæðingardeildinni,
svo ég bjó til bol handa henni þar
sem stóð stórum stöfum inni í
þvottahúsamerkinu að hún væri
eign okkar foreldranna,“ segir Erna
Arnardóttir grafískur hönnuður og
hlær en hún á og rekur vefversl-
unina alltmerkilegt.is. Þar fást
bæði flíkur og hlutir með sérmerkt-
um áletrunum og myndum.
„Frá því ég sérhannaði þennan
bol á nýfædda fóttur mína fyrir
fjórum árum þá hefur þetta heldur
betur undið upp á sig. Ég byrjaði að
gera barnasamfellurnar í stofunni
heima en núna hef ég fært mig út í
bílskúr þar sem ég er með aðstöðu
til að taka á móti fólki og sýna því
vörurnar. Úrvalið hefur aukist jafnt
og þétt og núna er ég með um þrjú
hundruð hluti, allskonar skemmti-
legar vörur, flestar sem hægt er að
sérmerkja. Vinsælastar hafa verið
barnasamfellur og náttföt með
uppáhaldsbæninni, en bollarnir,
púslin og svunturnar sækja í sig
veðrið. Á svuntunum getur til dæm-
is staðið: „Ég elda bara góðan
Tíska
Bænir á bolum
og besta
mamma á
svuntum
Eitt af því sem gerir aðventuna svo
skemmtilega er upplestur höfunda úr
bókum sínum á hinum og þessum
stöðum um land allt. Þannig er hægt
að fá smá innsýn í bækurnar, um
hvað þær eru og hvort maður hafi
áhuga á að lesa þær eða gefa ein-
hverjum í jólagjöf. Svo er líka bara
gaman að hlusta á höfundana sjálfa
lesa, því tækifæri til þess gefst ekki
nema á þessum eina tíma ársins. Ef
maður á sér uppáhaldshöfund þá er
ekki hægt að láta framhjá sér fara að
sjá og heyra hann/hana lesa. Gaman
er að rölta á milli bókabúða og ganga
úr skugga um hverjir lesa hvar.
Endilega…
…hlustið á
upplestur
Hlusta Börn vilja láta lesa fyrir sig.
GJAFAKORT | landsbankinn.is | 410 4000NB
I
h
f.
(L
a
n
d
s
b
a
n
k
in
n
),
k
t
.
4
7
1
0
0
8
-
0
2
8
0
.
Ein gjöf sem hentar öllum
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
4
18
8
Gjafakort Landsbankans er greiðslukort sem býður upp á að gefandinn ákveði upphæðina
og viðtakandinn velji gjöfina. Gjafakortið er viðskiptavinum að kostnaðarlausu til áramóta.
Þú færð gjafakortið í næsta útibúi Landsbankans.