Morgunblaðið - 18.12.2010, Page 18
Hólabraut 18 Örn Þór Þorbjörnsson skipstjóri á heiðurinn af þessum glæsilegu jólaskreytingum.
ÚR BÆJARLÍFINU
Albert Eymundsson
Höfn í Hornafirði
Á aðventunni hefur verið ein-
staklega milt veður og fagurt þar til
þessi hvellur kom nú í vikunni.
Kirkjusókn hefur verið með ágætum
og á það jafnt við um unga sem aldna.
Hornfirðingar eru almennt duglegir
að skreyta hús sín og umhverfi. At-
hyglisverðasta skreytingin undan-
farin ár hefur verið á Hólabraut 18 á
Höfn. Heiðurinn af skreytingunni á
Örn Þór Þorbjörnsson skipstjóri sem
frekar vill titla sig „jólaskreyt-
ingameistara“ í dag. Skreytingin er
einkar falleg og smekkleg eins og
myndin sýnir.
Jólatónleikar Karlakórs Horna-
fjarðar í Hafnarkirkju síðasta sunnu-
dag í aðventu eru alltaf hátíðlegir. Á
tónleikunum koma fram fimm kórar:
Karlakórinn, Kvennakórinn, Sam-
kórinn, Gleðigjafar, kór aldraðra, og
Barnakórinn og auk þess Stakir jak-
ar; tvöfaldur kvartett hljóðfæraleik-
ara og nemenda úr tónskólanum. Öll
innkoma af tónleikunum rennur
óskipt til góðgerðarmála. Í lok tón-
leikanna sameinast allir kórarnir og
hljóðfæraleikarar og flytja sálminn
Heims um ból. Áheyrendur hrífast
með og taka vel undir. Þetta loka-
atriði er einstök stund í huga margra
og eftir tónleikana finnst fólki jólin
vera gengin í garð.
Heimamarkaður í Miðbæ og
Nýheimum er fastur þáttur í und-
irbúningi hátíðarinnar og skapar sér-
staka stemningu. Eins og nafnið gef-
ur til kynna er fyrst og fremst boðið
upp á framleiðslu úr héraði. Á mark-
aðnum er fjölbreytt framboð af úr-
valsmatvælum og flottu handverki.
Jökulsárlón á Breiðamerkur-
sandi og umhverfi þess er óþrjótandi
viðfangsefni atvinnu- og áhuga-
ljósmyndara. Út eru komnar tvær
áhugaverðar bækur eftir „heimafólk“
um þessa einstöku náttúruperlu,
„Jökulsárlón árið um kring“ eftir
Þorvarð Árnason, forstöðumann Há-
skólasetursins á Hornafirði, og „Ís-
sýnir“ eftir Klaus Kretzer í Skafta-
felli.
Góð staða sveitarsjóðs lýsir sér í
framlagðri fjárhagsáætlun bæjar-
stjórnar. Þar kemur fram að hagstæð
skuldastaða skapar sveitarfélaginu
sterka stöðu í þessu árferði en áætl-
unin gerir ráð fyrir 90 m.kr. afgangi
sveitarsjóðs.
Meistari í jólaskreytingum
Ljósmynd/Runólfur Hauksson
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2010
Morgunblaðið birtir fram til jóla upplýsingar um einhverja þeirra
viðburða sem eru á dagskrá vítt og breitt um landið.
6 dagar til jóla
Útibú Íslandsbanka á Reykjavíkur-
svæðinu, á Akureyri og í Reykja-
nesbæ hafa ákveðið að styrkja
starfsemi Fjölskylduhjálpar Íslands
um sem nemur 10 milljónum króna
fyrir jólin. Styrkurinn rennur beint
til kaupa á nauðsynjavöru fyrir
skjólstæðinga Fjölskylduhjálp-
arinnar á þessum svæðum. Björn
Sveinsson, útibússtjóri Íslands-
banka á Kirkjusandi, afhenti
fulltrúum Fjölskylduhjálparinnar
styrkinn fyrir hönd útibúa bankans
á Reykjavíkursvæðinu. Ásgerður
Jóna Flosadóttir, formaður Fjöl-
skylduhjálpar Íslands, segir styrk-
ina vera eins og himnasendingu og
koma sér ákaflega vel. Þetta sé
hæsti styrkur sem Fjölskylduhjálp
Íslands hefur borist frá stofnun
samtakanna árið 2003.
Hæsti styrkur í sögu Fjölskylduhjálpar
Gjöf Björn Sveinsson, Ásgerður Jóna
Flosadóttir og Þórunn K. Matthíasdóttir.
Til að vera viss um að jóla-
pakkar og jólakort innan-
lands skili sér fyrir jól er
mánudagurinn 20. desember
nk. síðasti öruggi skiladagur,
segir í tilkynningu frá Póst-
inum.
Þessar dagsetningar eru
mikilvægar til þess að send-
ingarnar skili sér fyrir jólin.
Pósturinn tekur að sjálfsögðu
á móti jólapósti eftir 20. desember en öruggast er að senda pakkana og
kortin fyrir ofangreindar dagsetningar.
Á öllum pósthúsum landsins er tekið á móti jólapóstinum en til að auka
þjónustu fyrir jólin eru opin jólapósthús í Kringlunni, Smáralind og á Gler-
ártorgi á Akureyri. Afgreiðslutími pósthúsanna fylgir afgreiðslutíma
verslunarmiðstöðvanna.
Allar nánari upplýsingar um síðustu skiladaga, staðsetningu pósthúsa,
afgreiðslutíma og þjónustu Póstsins er að finna á www.postur.is.
Seinasti skiladagur fyrir jólapóst
Um þessar mundir er haldin jóla-
sýning í Þjóðarbókhlöðunni undir
yfirskriftinni „Jólin í samfélaginu -
samfélagið í jólunum“. Sýningar
eru opnar á afgreiðslutíma safns-
ins. Allir eru velkomnir og er að-
gangur ókeypis.
Á sýningunni má sjá hve jólaboð-
skapurinn fær mismunandi vægi á
forsíðum dagblaða á aðfangadag á
mismunandi tímum. Forsíður dag-
blaðanna eru gjörólíkar forsíðum
Æskunnar en þar á bæ er jólaboð-
skapurinn í hávegum hafður hvern-
ig sem pólitísku vindarnir blása.
Barnablaðið Æskan á sem sagt sinn
stað á sýningunni, allt frá því að
það var gefið út í litlu svarthvítu
broti við upphaf síðustu aldar til
fagurlega skreyttra og litríka for-
síðna á 5. og 6. áratugnum. Einnig
eru á sýningunni jólabarnabækur
frá ýmsum tímum.
Jólin Bókfræði-jólatré, skreyttu spakmæl-
um, hefur verið komið fyrir í safninu.
Jólasýning í Þjóð-
arbókhlöðunni
Í dag, laugardag, verður jólapakka-
skákmót Hellis haldið í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Mótið hefst kl. 13 og
er ókeypis á það. Mótið er fyrir
börn og unglinga og fer nú fram í
fjórtánda skipti. Skráning er á
heimasíðu Hellis. Nú þegar eru um
160 keppendur skráðir til leiks.
Keppt verður í fimm flokkum:
flokki fæddra 1995-1997, flokki
fæddra 1998-99, flokki fæddra
2000-2001 og flokki fæddra 2002 og
síðar og peðaskák fyrir þau yngstu.
Jólapakkar eru í verðlaun fyrir
þrjú efstu sætin í hverjum aldurs-
flokki, bæði fyrir drengi og stúlkur.
Auk þess verður happdrætti um
þrjá jólapakka í hverjum aldurs-
flokki fyrir sig.
Jólapakkaskákmót í
Ráðhúsi Reykjavíkur
Það styttist í jólin og um þessa helgi er síðasta
tækifærið til að heimsækja jólaþorpið í Hafn-
arfirði að degi til en einnig verða Þorláks-
messutónleikar að kveldi. Það er því um að
gera að drífa sig í þorpið og skoða jólavarn-
ing í jólahúsunum, gæða sér á kakói og kök-
um og njóta fjörugrar skemmtidagskrár. Op-
ið er frá kl. 13-18 báða dagana og eru allir
velkomnir.
Meðal tónlistaratriða á laugardeginum
verða Friðrik Dór, Nóri, Ívar Helgason, og hljómsveitin Luxon Theory. Flutt
verða leikatriði úr Dísu Ljósálfi og úr jólaskralli Grallaraleikhússins og lesið
upp úr barnabókum.
Á sunnudeginum kl. 15 verður svo slegið upp jólaballi með Gunna og Felix.
Þá munu Leiklistarhópur Flensborgarskólans og Leikfélag Hafnarfjarðar
standa fyrir leikatriðum og Ari Eldjárn sér um að skemmta þorpurum.
Síðasta tækifæri til að skoða jólaþorpið
Í dag kl. 15:00 hefst Jólapakkarall
MS og Miðborgarinnar okkar. Gaml-
ir og nýir mjólkurbílar hlaðnir
syngjandi jólasveinum leggja þá af
stað frá Hlemmtorgi niður Lauga-
veg að Ingólfstorgi og safna pökkum
handa þeim sem minnst eiga í vænd-
um. Kl. 16:00 halda bílarnir síðan frá
Hallgrímskirkju niður Skólavörðu-
stíg að Lækjartorgi. Pökkunum sem
safnast verður síðan skipt í tvennt
og munu Fjölskylduhjálpin og
Mæðrastyrksnefnd skipta á milli sín
pökkunum kl. 17:30 í Jólabænum á
Hljómalindarreit.
Jólasveinar safna
gjöfum í miðbænum
STOFNAÐ 1971 RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • www.sm.is Á ÍSLANDI
NÝTT Á ÍSLANDI
ÓDÝR
OG VÖNDUÐ
GPS TÆKI MEÐ
INNBYGGÐU
GÖTUKORTI
AF ÍSLANDI OG
VESTUR-EVRÓPU
VERÐ 19.990
KYNNINGARTILBOÐ
VERÐ 24.990
KYNNINGARTILBOÐ
VERÐ 39.990
KYNNINGARTILBOÐ
Navigon 20EASY
3,5" snertiskjár
Navigon 40EASY
4,3" snertiskjár og Sightseeing möguleiki
Navigon 70PLUS
5,0" snertiskjár og hreyfiskynjari fyrir valmyndir
MyRoutes
Snertiskjár og raddleiðsögn.
Götukort af Íslandi og Vestur-Evrópu.
MyRoutes möguleikinn gefur þér þrjár
mismunandi leiðir til að komast á
áfangastað og muninn á þeim.
Active Lane
Tækið sýnir nákvæmlega
á hvaða akrein þú skalt
vera þegar ekið er.
Point Of Interest
Sýnir þér áhugaverða staði.
TMC
Tækið lætur vita hvar vega-
framkvæmdir eru og velur
betri leiðir eftir því (virkar
ekki á Íslandi). Tækið tilbúið til
notkunar með kortum og öllu.
32
1