Morgunblaðið - 18.12.2010, Síða 41
oft þegar mamma og pabbi þurftu
að skreppa. Við fórum líka oft í ferð-
ir. Það var skemmtilegt að fara með
þér í Mývatnssveit á sumrin. Það
var líka gaman að fara með þér til
Húsavíkur. Ég elska líka húsið þitt.
Í hvert skipti sem ég kom til þín fór
ég alltaf að telja fingurbjargirnar
þínar sem voru fleiri en 300 þegar
ég taldi þær síðast, minnir mig. Ég
fór líka að skoða albúmin þín með
fullt af gömlum myndum sem voru
mjög fyndnar.
Þegar þú áttir afmæli fórum við
krakkarnir í leik þar sem einn átti
að vera hann og sá átti að velja hlut
og lýsa honum, hvernig hann var á
litinn og hvort hann var kringlóttur
eða ferhyrndur og svo áttu hinir
krakkarnir að leita að hlutnum. Ég á
eftir að sakna þín, Sísa, og ég mun
aldrei gleyma þér.
Það skiptir ekki
máli hve lengi
þú lifir
heldur hve vel.
(Publius Syrus.)
Þín frænka og nafna,
Sigrún Kjartansdóttir.
„Hæ gella.“ Þessi tvö orð fékk ég
alltaf að heyra þegar við hittumst.
Þú varst alltaf í góðu skapi og svo
sátt með lífið. Alltaf þegar ég sá þig
varstu annaðhvort nýkomin úr
klippingu eða búin að kaupa þér ein-
hver ný föt og allt þar á milli. Það
var alltaf eitthvað nýtt og ferskt við
þig. Ég sé þig fyrir mér sitja uppi í
litla sófanum hennar ömmu með
fæturna setta til hliðar og þú með
vatnsglas og oftast varasalvann þér
við hlið. Þú sagðir ekki mikið en
skaust einhverjum staðreyndum að
af og til. Mér þykir ótrúlega vænt
um stundina uppi á sjúkrahúsi um
daginn þegar við mamma og Bella
áttum rosalega gott og notalegt
spjall langt fram á nótt og þú
straukst hárið þitt allan tímann eins
og prinsessa. Þar sem þið voruð að
rifja upp gamla góða tíma og við töl-
uðum um þegar þú gafst mér Ása
apa veturinn sem þú passaðir mig
þegar mamma var í skólanum og
mamma sagðist vera búin að sauma
alla útlimina og eyrun á hann aftur
og aftur, enda var ég með hann
hvert sem ég fór. Nú situr Ási api
uppi á hillu hjá mér og minnir mig á
þig.
Þú varst svo góð og umhyggju-
söm, komst oft inn í herbergi til mín
bara til að spjalla þegar þú varst hér
í matarboðum og spurðir mig alltaf
hvað ég ætti eiginlega mikið af ilm-
vötnum og dóti. Ég man líka hvað ég
dáðist alltaf að töskunum þínum og
ég dýrkaði myndasögurnar sem
voru í hillunni í svefnherberginu
þínu. Það var líka svo notalegt að
gleyma sér við að skoða allt flotta og
uppraðaða dótið þitt sem var örugg-
lega þúsund talsins. Það verður
skrítið að engin Sísa birtist hér allt í
einu með fullan karamellupoka til að
gefa mér og Sigrúnu. Þér fannst
ekki nóg að gefa mér, Sigrúnu og
Ólafi Inga bara jólagjöf, heldur
langaði þig að gefa okkur líka Þor-
láksmessugjöf, svo gjafmild varstu.
Þú varst alltaf „stóra barnið“ eins og
þú orðaðir það, sem sat aftur í með
okkur Sigrúnu og spjallaði við okkur
í aftursætinu.
Ég mun aldrei gleyma Sísu
frænku, það er sko eitt víst. Takk
fyrir allar frábæru stundirnar sem
við áttum saman, elsku besta frænk-
an mín.
Ingunn Embla Kjartansdóttir
MINNINGAR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2010
likkistur.is
Íslenskar kistur og krossar.
Hagstæð verð. Sími 892 4605
✝
Konan mín elskuleg,
ÁSLAUG ÁRNADÓTTIR,
Vesturgötu 42,
Reykjavík,
sem andaðist mánudaginn 13. desember,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 21. desember kl. 13.00.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna,
Agnar Ludvigsson.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
EINARS HAFSTEINS GUÐMUNDSSONAR
skipstjóra,
Reykjanesvegi 10, Njarðvík.
Guð gefi ykkur gleðileg jól.
Ása Lúðvíksdóttir,
Sólveig Einarsdóttir, Gunnar Már Eðvarðsson,
Magnús Einarsson, Salvör Jóhannesdóttir,
Gísli Einarsson, Kolbrún Sigurðardóttir,
Guðrún Einarsdóttir, Árni Blandon Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts
eiginmanns míns, föður, afa og tengdaföður,
SIGURÐAR SIGURÐARSONAR
vígslubiskups,
Skálholti.
Arndís Jónsdóttir,
Stefanía Sigurðardóttir,
Sigurður Edgar, Dagbjört og Sigríður Pála,
Jón Magnús Sigurðarson, Sigurþóra Hauksdóttir.
✝
Bróðir okkar,
JÓN S. HALLGRÍMSSON,
Sæviðarsundi 11,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Áskirkju mánudaginn
20. desember kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Blindra-
félagið.
Þórarinn Hallgrímsson,
Helgi Hallgrímsson
og fjölskyldur.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÞORBJARGAR GÍSLADÓTTUR,
Droplaugarstöðum,
Reykjavík.
Guðný Sigurðardóttir, Gísli Heimir Sigurðsson,
Helgi Máni Sigurðsson,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
HALLDÓRA BJARNEY ÞORSTEINSDÓTTIR,
Gógó,
Lyngholti 13,
Reykjanesbæ,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
föstudaginn 10. desember, verður jarðsungin frá
Keflavíkurkirkju mánudaginn 20. desember
kl. 14.00.
Haraldur Hafsteinn Ólafsson,
Þorsteinn Haraldsson, Jan Haraldsson,
Guðmundur Sighvatsson,
Sigrún Haraldsdóttir, Björn Oddgeirsson,
Ólöf Haraldsdóttir, Ásgeir Þórisson,
Sigurður Halldór Haraldsson, Steinunn Una Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær sambýlismaður, faðir, tengdafaðir, vinur
og afi,
GUNNAR TRAUSTI ÞÓRÐARSON,
Sundlaugavegi 8,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju þriðjudag-
inn 21. desember kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabba-
meinsfélagið.
Lilja Þórarinsdóttir,
Salóme Halldóra Gunnarsdóttir, Úlfar Þórðarson,
Jón Birgir Gunnarsson, Edda Svanhildur Holmberg,
Baldur Smári Gunnarsson, Ingveldur Oddný Jónsdóttir,
Tryggvi Þór Ágústsson, Vera Björk Ísaksdóttir,
Anna María Ágústsdóttir, Vilhjálmur Árni Ingibergsson,
Elísabet Ósk Ágústsdóttir, Sigmundur Helgi Brink
og barnabörn.
✝
Okkar ástkæra,
GUÐNÝ GÍSLADÓTTIR
frá Hnappavöllum í Öræfum,
síðar Sogni í Kjós,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði, miðvikudaginn
15. desember.
Útförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðni K. Elíasson.
✝
Móðir okkar,
ÞURÍÐUR RAGNA JÓHANNESDÓTTIR,
Bragagötu 22a,
andaðist miðvikudaginn 15. desember á
Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Klausturhólum, Kir-
kjubæjarklaustri. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Ólafur Jóhann Björnsson,
Gísli Halldór Magnússon
og fjölskyldur.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
VALBORGAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Tungufelli,
Breiðdal.
Jón Björgólfsson, Dagný Sverrisdóttir,
Guðmundur Björgólfsson, Unnur Björgvinsdóttir,
Grétar Björgólfsson, Svandís Ingólfsdóttir,
Fjóla Ólöf Karlsdóttir
og fjölskyldur.
✝
Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi,
SIGURÐUR ELÍAS ÞORSTEINSSON,
varð bráðkvaddur mánudaginn 13. desember.
Útförin fer fram í kyrrþey.
Guðrún Þorsteinsdóttir,
Haraldur Þorsteinsson, Hulda Sigurðardóttir
og frændsystkinin.