Morgunblaðið - 18.12.2010, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 18.12.2010, Qupperneq 43
MINNINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2010 Okkur langar að minnast góðs vinar, vinar sem við kynnt- umst fyrir um 12 ár- um. Erlingur var sundþjálfari hjá íþróttafélagi fatl- aðra í Reykjavík ásamt mörgum öðrum störfum sem hann stundaði samhliða sundkennslu og æfingum fyrir fatlað sundfólk. Hann kenndi syni okkar að synda ásamt Halldóri Sævari og Jóni Heiðari sem voru þjálfarar líka hjá ÍFR á þeim tíma. Það má segja að sundið hafi skipað mikinn sess hjá Erlingi því alltaf var hann á bakkanum sama hvernig viðraði og hann stjórnaði sínu liði með góðri hendi og var alltaf léttur í lund. Við fórum margar keppnisferðir til Svíþjóðar saman og var alltaf gaman í þessum ferðum því að Jó- hann sonur hans mætti alltaf til að vera með hópnum og þeir tveir voru alltaf með léttleikann og gaman- málin í fyrirrúmi. Erlingur og Hrafnhildur kona hans áttu saman sumarhús á Snæfellsnesi og í eitt sinn sem við fórum framhjá hjá þeim í norðan roki þá var sagt við Erling í gamni í sundinu að við hefðum nú séð brúna útidyrahurð fjúka framhjá okkur, en hann var alltaf með svarið tilbúið; nei það var ekki mín hurð, þetta hefur verið hurð nágrannans. Alltaf var hann með góðar sögur á bakkanum og alltaf komu góðir brandarar með líka hjá honum og sá síðasti sem hann sagði mér var Good Year. Yngri sonur okkar tók Erling og gerði hann að sínum afa í Reykja- vík því að honum fannst svo skrítið að eiga ekki afa líka í Reykjavík eins og að eiga afa úti á landi og var oft gaman að sjá pjakkinn hlaup- andi á eftir honum á sundlaugar- bakkanum í rauðum bol, bláum stuttbuxum og svo í inniskóm til að geta verið alveg eins og hann, svona hljóp hann alltaf með og fannst svo fúlt að fá ekki að vera alltaf á bakkanum með honum og skipa fyrir. Okkur finnst núna að best sé að Erlingur Þráinn Jóhannsson ✝ Erlingur ÞráinnJóhannsson fædd- ist í Reykjavík 10.10. 1944. Hann lést á líknardeild Landspít- alans 27.11. 2010. Útför Erlings fór fram frá Bústaða- kirkju 6. desember 2010. hugsa sér að Erlingur hafi bara verið á sun- dæfingu með sínu liði og að hann hafi verið í lauginni með þeim og synt yfir laugina í spretti og að seinna meir munum við öll hin sem eftir erum ná honum á bakkanum hinum megin ein- hvern daginn. Hrafnhildur, Jó- hann og Lise, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð og megi guð vera hjá ykkur á þessum erfiða tíma sem nú er. Haukur, Hrafnhildur, Vignir Gunnar og Arnar Ingi. Nú hefur hann Erlingur eða Elli þjálfi eins og ég kallaði hann, kvatt þetta líf, og vil ég þakka honum allt sem hann gerði fyrir mig. Ég var bara sjö ára þegar ég byrjaði að æfa með Í.F.R., lítil og feimin. Elli var þjálfari minn og hann losnaði ekki við mig eftir það. Ég var eitt af börnunum hans Ella. Við fórum saman á mörg sundmót, á Evrópu- meistaramót, heims- og Ólympíu- mót. Ella get ég þakkað fyrir góðan árangur minn í sundi. Hann studdi mig og hvatti áfram, gladdist með mér þegar vel gekk og taldi í mig kjark ef ég náði ekki því takmarki sem ég vildi. Hann var góður vinur og félagi og frábær þjálfari. Ég minnist þess alltaf þegar Elli og Hrafnhildur komu til Aþenu árið 2004 alveg óvænt, að horfa á Ól- ympíumót fatlaðra. Það var alveg yndislegt og gladdi mig sérstaklega og ég vona að hann hafi verið hreykinn af mér þá. Það verður skrýtið að hitta hann ekki í Engjaselinu fyrir jólin, eins og er búið að vera hefð í mörg ár, og drekka heitt súkkulaði og með- læti, en ég veit að Hrafnhildur verður þar. Nú ætlaði ég að sýna þér nýjasta afrekið mitt, hana litlu dóttur mína, en kannski færðu að kíkja niður til okkar og ég veit að þú ert stoltur af mér. Elsku Hrafnhildur, Jóhann, Lise og aðrir ættingjar, Guð veri með ykkur. Kæri Erlingur hvíl þú í friði. Guð blessi þig. Kristín Rós Hákonardóttir. Alvöru blómabúð Allar skreytingar unnar af fagfólki Kransar • Krossar • Kistuskreytingar Sími: 553 1099 • Fax: 568 4499 Heimasíða: www.blomabud.is Netfang: blomabud@blomabud.is ✝ Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu við fráfall eiginmanns míns, föður, tengda- föður, afa og langafa, HILMARS FRIÐRIKS GUÐJÓNSSONAR, Efstalandi 24. Megið þið öll eiga gleðileg jól og gæfuríkt komandi ár. Guðrún Guðmundsdóttir, Halldór Gunnar Hilmarsson, Eysteinn Smári Hilmarsson, Óskar Árni Hilmarsson, Emil Hilmarsson, Björgvin Hilmarsson, Guðný Hilmarsdóttir, Aldís Hilmarsdóttir og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HERMANNS STEFÁNSSONAR, Vallargerði 2c, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks Lyfjadeildar 1, Sjúkrahúsi Akureyrar og Rúnarbræðra. Guð blessi ykkur öll. Kristín Friðbjarnardóttir, Ólafur Ingi Hermannsson, Bjarnheiður Ragnarsdóttir, Eva Hermannsdóttir, Einar Jóhannsson, Atli Hermannsson, Ingibjörg Róbertsdóttir, afa- og langafabörn. ✝ Sendum innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, ÓSKARS MAGNÚSSONAR. Færum starfsfólki á Heilbrigðisstofnuninni Patreks- firði sérstakar þakkir fyrir góða umönnun. Bára Jónsdóttir, Þorbjörg Lilja Óskarsdóttir, Magnús B. Óskarsson, Rakel Óskarsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu vegna andláts eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, RAGNARS GUÐMUNDSSONAR, Hraunbæ 111, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Með óskum um gleðileg jól, Friðgerður Þórðardóttir, Logi Ragnarsson, Jóhanna Steingrímsdóttir, Valur Ragnarsson, Sigríður Björnsdóttir, Halla Hrund, Ingunn Ýr, Vaka, Haukur Steinn og Freyja. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, THEÓDÓRS EÐVARÐS MAGNÚSSONAR, Asparfelli 2, Reykjavík. Magnús Eðvarð Theódórsson, Katrín Jóna Theódórsdóttir, Hrönn Theódórsdóttir, Matthías Harðarson, Guðjón Theódórsson, Ellen Ólafsdóttir, Steindór Rafn Theódórsson, Brynja Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTBJARGAR BENEDIKTSDÓTTUR, Naustahlein 7, Garðabæ. Hörður Hjartarson, Benedikt Harðarson, Una Björk Harðardóttir, Pétur Hansson, Hörður Harðarson, Guðrún Hrund Sigurðardóttir, Brynjar Harðarson, Guðrún Árnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför okkar elskulega föður, tengdaföður og afa, ALEXANDERS ALEXANDERSSONAR, Melalind 8, áður Holtagerði 62, Kópavogi. Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól. Hjördís Alexandersdóttir, Guðmundur Jón Jónsson, Bára Alexandersdóttir, Þórarinn Hjálmarsson, Erla Alexandersdóttir, Sigurður Jón Ragnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts elsku móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÚLLU ÞORMAR GEIRSDÓTTUR ÁRDAL, Lindarsíðu 2, Akureyri. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á Eini- og Grenihlíð, dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, fyrir einstaka umönnun. Kristín Árdal, Friðrik Jósepsson, Geir Árdal, Margrét Bjarnadóttir, Tómas Árdal, Selma Hjörvarsdóttir, Páll Hallfreður Árdal, Ólöf Kristín Stefánsdóttir, Álfheiður Árdal og barnabörn. ✝ Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og stuðning við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, GUÐNA ÞÓRARINS VALDIMARSSONAR, Hamrahlíð 21, Vopnafirði. Ásta Ólafsdóttir, Valdimar Guðnason, Droplaug Guðnadóttir, Kristján Geirsson, Páll Guðnason, Guðrún Anna Guðnadóttir, Sigurjón Haukur Hauksson, Baldvin, Birkir, Anna Björk, Ásta Mekkín, Guðlaug Marín, Signý Malín, Guðni Þór, Haukur, Valdimar Orri.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.