Morgunblaðið - 18.12.2010, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2010
Nordiska ministerrådet i Köpenhamn söker
seniorrådgivare till NDPC sekretariatet
koordinator till avdelningen för kultur och resurser
Vi erbjuder spännande jobb och en god arbetsmiljö med
kollegor från hela Norden samt goda utvecklingsmöjligheter.
Vi förväntar oss att du har relevant utbildning och erfarenhet från
administrativt arbete.
Ansökningsfrist för tjänsterna är måndagen den 17 januari 2011.
För mera information om tjänsterna, se www.norden.org
Nordiska ministerrådet är en aktiv internationell samarbetspartner
och profilerar sig särskilt inom forskning och innovation, klimat och
miljö samt välfärd och kultur.
Ved Stranden 18
DK-1061 Köpenhamn K
Um starfið:
• Forstjóri OR stýrir daglegum rekstri fyrirtækisins og gætir jafnvægis
milli samfélagslegra, fjárhagslegra og umhverfislegra sjónarmiða.
• Forstjóri hrindir í framkvæmd stefnu fyrirtækisins og framtíðarsýn.
• Forstjóri ber ábyrgð á áætlanagerð, eftirfylgni áætlana,
gæðastjórnun, fjármálastjórnun, þekkingar- og starfsmannastjórnun.
• Forstjóri ber ábyrgð á framkvæmdum á vegum OR og að umgengni
við auðlindir sé samkvæmt viðmiðum um sjálfbæra þróun.
• Forstjóri ber ábyrgð á samskiptum við viðskiptavini, starfsmenn,
lánastofnanir og aðra hagsmunaaðila.
• Forstjóri fer með eignarhluti OR í dótturfélögum og hlutdeildarfélögum
samkvæmt ákvörðun stjórnar.
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á framhaldsstigi sem nýtist í starfinu.
• Reynsla úr yfirstjórn í stóru fyrirtæki eða stofnun er mjög æskileg.
• Leiðtoga- og stjórnunarhæfileikar auk færni í að móta
og innleiða framtíðarsýn.
• Hæfni í að styðja öflugan hóp samstarfsmanna til ábyrgðar og
nýta hæfileika allra starfsmanna með samráði og upplýsingaflæði.
• Þekking á sviði fjármála og fjármögnunar fyrirtækja, reynsla
af flókinni samningagerð og stýringu áhættu.
• Samskipta- og tjáskiptahæfileikar, greiningarhæfni, metnaður,
frumkvæði og heilindi.
www.or.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
52
80
9
12
/1
0
Forstjóri
Orkuveitu Reykjavíkur
Orkuveita Reykjavíkur auglýsir laust til umsóknar starf forstjóra.
Leitað er að reyndum leiðtoga sem hefur áhuga á að nýta hæfileika sína í þágu mikilvægrar almannaþjónustu.
Áhersluatriði í starfi forstjóra næstu misserin eru fjárhagsleg endurskipulagning
og fjárhagslegt jafnvægi, stefnumótun og endurskoðun á innri ferlum og stjórnun.
Launakjör taka mið af úrskurðum kjararáðs um laun í sambærilegum störfum. Nánari upplýsingar um starfið gefur Skúli Waldorff starfsmannastjóri
(sími: 516 6000, netfang: skuli.waldorff@or.is). Umsóknum skal skilað til Orkuveitu Reykjavíkur á netfangið umsokn@or.is í síðasta lagi 4. janúar 2011.
Allar fyrirspurnir og umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Einstaklingar af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið. Hæfnisnefnd mun
meta umsækjendur með faglegu hæfnismati og gera tillögu til stjórnar OR. Sjá nánar um ráðningarferlið á www.or.is.
Orkuveita Reykjavíkur er þjónustufyrirtæki sem veitir íbúum og atvinnulífi grunnþjónustu með veitu- og virkjanarekstri og tryggir öruggan aðgang að heitu og köldu vatni
og rafmagni, auk fráveitu og gagnaveitu. Orkuveita Reykjavíkur er sameignarfyrirtæki þriggja sveitarfélaga á suðvesturhorni Íslands og þjónar um 200.000 notendum.
Hlutverk Orkuveitu Reykjavíkur er að tryggja á hagkvæman og sjálfbæran hátt lífsgæði og hæfni samfélagsins.
Grunngildi OR eru virðing, hagsýni, heiðarleiki, eldmóður, traust og sveigjanleiki. www.or.is
Fiskeldi
Fiskeldisstöðin Laxeyri ehf. óskar eftir að ráða
fiskeldisfræðing eða mann með áhuga á fisk-
eldi. Laxeyri er staðsett í 60 km fjarlægð frá
Borgarnesi og sérhæfir sig í framleiðslu á
náttúrulegum laxaseiðum til sleppingar í ár
og vötn.
Umsækjendur sendi upplýsingar og ferilskrá á
netfangið laxeyri@emax.is.
Afleysingamaður á
leigubifreið
óskast strax. Verður að vera handhafi skírteinis
Vegagerðarinnar. Bifreiðin (MB E240) er í af-
greiðslu hjá BSR. Upplýsingar í síma 897 2123. SJÚKRAHÚSIÐ VOGUR
Sjúkraliðar
Viljum ráða sjúkraliða í 60% starf. Vaktavinna.
Upplýsingar veitir Þóra Björnsdóttir
hjúkrunarforstjóri á staðnum og í síma
824 7615,
netfang: thora@saa.is.
Starfið felst í samskiptum og þjónustu við nemendur og
kennara tölvunarfræðideildar, ásamt umsjón með ýmsum
viðburðum á vegum deildarinnar. Verkefnastjórinn ber
ábyrgð á samskiptum við nemendur í grunnnámi, en
starfar einnig náið með starfsfólki deildarinnar og ýmsum
stoðdeildum innan HR.
Leitað er að einstaklingi með háskólapróf, mjög góða
tölvukunnáttu og samskiptahæfileika, skipulögð
og sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og hæfni til að
forgangsraða, góða færni í íslensku og ensku og
brennandi áhuga á að stuðla að enn betra náms-
umhverfi í tæknigreinum innan HR.
Umsóknir skulu sendar á netfangið appl@ru.is
fyrir 28. desember, og skulu innihalda kynningarbréf,
starfsferilskrá, mynd og upplýsingar um umsagnaraðila.
Nánari upplýsingar veitir Kristine Helen Falgren
skrifstofustjóri (kristine@hr.is).
VERKEFNASTJÓRI
HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK AUGLÝSIR
EFTIR VERKEFNASTJÓRA GRUNNNÁMS
Í TÖLVUNARFRÆÐIDEILD
www.hr.is