Morgunblaðið - 18.12.2010, Síða 55
MENNING 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2010
Stórsveit Reykjavíkur heldur
sína árlegu jólatónleika á
morgun, sunnudag, kl. 16 í
Ráðhúsi Reykjavíkur.
Flutt verður fjölbreytt dag-
skrá jólatónlistar í djassút-
setningum, innlendum og er-
lendum, nýjum og gömlum.
Stjórnandi á þessum tón-
leikum verður Samúel J. Sam-
úelsson, en hann hefur einnig
útsett hluta efnisskrárinnar.
Einsöngvari og sérstakur gestur stórsveitarinnar
verður söngvarinn Helgi Björnsson. Aðgangur að
er ókeypis og öllum heimill á meðan húsrúm leyf-
ir. Fólki er bent á að mæta tímanlega því aðsókn
hefur verið mikil á jólatónleikana undanfarin ár.
Tónlist
Jólatónleikar
Stórsveitarinnar
Samúel J.
Samúelsson
Kammerhópurinn Camer-
arctica heldur sína árlegu
kertaljósatónleika í kirkjum nú
rétt fyrir jólin. Kópurinn hefur
leikið ljúfa tónlist eftir Mozart
við kertaljós í 18 ár.
Leikin verða tvö verk, kvin-
tett fyrir klarínettu og strengi
eftir Franz Krommer og
strengjakvintett W.A. Moz-
arts. Að venju lýkur tónleik-
unum með jólasálmi Mozarts
„Í dag er glatt í döprum hjörtum“.
Tónleikarnir verða í Kópavogskirkju á sunnu-
dagskvöldið kl. 22.30, í Hafnarfjarðarkirkju á
mánudag kl. 21, í Garðakirkju á þriðjudag kl. 21
og í Dómkirkjunni í Reykjavík kl. 21.
Tónlist
Mozart við
kertaljós í kirkjum
Kammerhópurinn
Camerarctica
Á morgun, sunnudag, verður
fjölbreytileg aðventudagskrá í
Þjóðminjasafninu. Kl. 11 kem-
ur Skyrgámur í heimsókn. Kl.
12 les Iðunn Steinsdóttir upp
úr bókinni sinni Jólasveinarnir
sem hefur nýlega verið endur-
útgefin. Kl. 13 heldur dr. Terry
Gunnell, prófessor í þjóðfræði
við HÍ, erindi í fyrirlestrarsal
um íslenska jólasiði í aldanna
rás, frá heiðnum goðum til hrekkjóttra íslenskra
jólasveina. Fyrirlesturinn er á ensku og veitingar
í boði The English-Speaking Union á Íslandi. Kl.
14 verður Einar Falur Ingólfsson síðan með leið-
sögn um sýningu sína, Sögustaðir - Í fótspor W.G.
Collingwoods, og áritar samnefnda bók.
Aðventudagskrá
Sagt frá jólasvein-
um og Sögustöðum
Terry Gunnell
Ung hjón og vinkona þeirraleggja út á Jökulfirði tilað standsetja hús á Hest-eyri. Á Ísafirði starfar
geðlæknir á áþekkum aldri en hann
missti son sinn ungan þremur árum
fyrr. Undarlegir atburðir fara svo í
gang á Hesteyrinni, sömuleiðis hjá
geðlækninum og spennan og allt-
umlykjandi óróleikinn stigmagnast
með hverjum kaflanum.
Svo ég klúðri nú ekki sögunni fyr-
ir þeim mörgu
sem eiga eftir að
lesa hana, sé mið
tekið af sölutölum,
læt ég þetta
nægja um sögu-
þráðinn. Farsæld
Yrsu Sigurð-
ardóttur sem
spennuhöfundar
er vel skiljanleg út frá þessari bók
þar sem henni er lagið að byggja
upp spennu, kann öll trixin í bókinni
að því er virðist.
Sögurnar tvær fá sinn kaflann til
skiptis og enda þeir einatt með hár-
rísandi setningum. Stíll Yrsu er hóf-
stilltur og norm-miðaður ef svo
mætti segja, tilþrifalítill í raun og
það útskýrir hina miklu velgengni
hennar, líkt og með hann Arnald
okkar. Erfið og flókin orð er ekki að
finna, textinn rúllar snurðulaust
áfram eins og kvikmyndahandrit og
afþreyingin því alger. Yrsu eru hins
vegar mislagðar hendur þegar daðr-
að er við skáldgyðjuna, hátimbraðar
setningar ná ekki tilætluðum áhrif-
um heldur verða kauðskar í staðinn.
Henni tekst hins vegar vel upp þeg-
ar gægst er í sálarlíf persónanna,
hliðarvangaveltur um eðli vinátt-
unnar, trausts og ábyrgðar eru
býsna glúrnar á köflum.
Ég fann a.m.k. fimm innslátt-
arvillur, sem er allt of mikið fyrir
höfund sem er kominn þetta langt.
Ragnar Helgi Ólafsson á skilið lof
fyrir einkar áhrifaríka bókarkápu. Í
bókarlok fannst mér eins og nokkrir
endar væru lausir en meðan á lestr-
inum stóð klóraði maður sér reglu-
bundið í hausnum og fletti áfjáður
áfram. Áhrifin við lesturinn, það sem
skiptir á endanum höfuðmáli, voru
því mestanpart eins og til er ætlast.
Fortíðin eltir þig uppi að lokum
Morgunblaðið/Ernir
Yrsa Sigurðardóttir „Alltumlykjandi óróleikinn stigmagnast.“
Ég man þig
bbbmn
Eftir Yrsu Sigurðardóttur.
Veröld 2010. 317 bls.
ARNAR EGGERT
THORODDSEN
BÆKUR
Jólatónleikar Kammersveitar
Reykjavíkur verða í Áskirkju á
morgun, sunnudag, klukkan 17.
Jólatónleikar Kammersveit-
arinnar hafa lengi notið mikilla vin-
sælda en hefð er fyrir því að leikin sé
hátíðleg tónlist frá barokk-
tímabilinu.
Í ár hljómar tónlist eftir Carl Phil-
ipp Emanuel Bach á jólatónleik-
unum, en tónlist þess afkastamikla
Bach-sonar heyrist sjaldan leikin á
Íslandi. Tvær af sinfóníum hans eru
á efnisskrá tónleikanna, auk Flautu-
konserts í G-dúr þar sem Melkorka
Ólafsdóttir er í hlutverki einleikara
og Sellókonserts í A-dúr þar sem
einleikshlutverkið er í höndum Mar-
grétar Árnadóttur.
Konsermeistari Kammersveit-
arinnar er Una Sveinbjarnardóttir,
en spænski sembalsnillingurinn Jav-
ier Núñes stjórnar frá sembalnum.
Verk eftir
C.P. Bach
Jólatónleikar
Kammersveitarinnar
Kammersveit Reyjavíkur Sveitin á
æfingu fyrir jólatónleikana.
Hátíðartónar verða í Salnum á
morgun, sunnudag, klukkan 16,
þegar Skólakór Kársness kemur í
hús. Kórinn, undir stjórn Þórunnar
Björnsdóttur, kemur gestum í jóla-
skap og syngur falleg jólalög. Sér-
stakir gestir eru Sigrún Hjálmtýs-
dóttir og Vallagerðisbræður.
Jólatónar
Skólakórs
Aðalhlutverkið er
reyndar fyrir kven-
mann en Sandra Bullock
hafði verið ráðin í það...61
»
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Í nýrri bók um Jónas E. Svafár,
skáld og myndlistarmann, sem lést
fyrir sex árum, eru birtar allar ljóða-
bækur hans með myndskreytingum
og er ætlunin að varpa ljósi á feril
skáldsins, sem þó vann stöðugt í sín-
um texta og myndheimi, meðal ann-
ars með athyglisverðri endurvinnslu
á ljóðunum.
Jónas er eftirminnilegur mörgum;
sem skáld sem byrjaði að gefa út á
þeim tíma þegar deilur um atóm-
skáldskap stóðu sem hæst, en þó
kannski einkum fyrir að teljast kyn-
legur kvistur, óreglumaður sem
samfélagið útskúfaði.
Hjálmar Sveinsson er annar að-
standenda forlagsins Omdurmans
sem gefur út bókina Jónas E. Svafár
– Ljóð og myndir. Hann segist hafa
séð fyrir nokkrum misserum sýn-
ingu sem Ingólfur Arnarson mynd-
listarmaður setti upp í Hoffmanns-
galleríi í Reykjavíkurakademíunni,
með myndum Jónasar. „Á svipuðum
tíma var ég með í höndunum verk
sem Elías Mar gaf mér, frumútgáfu
bókarinnar Það blæðir úr morguns-
árinu. Ég gerði mér þá grein fyrir
því að Jónas væri ekki bara þræl-
skemmtilegt og flott ljóðskáld, held-
ur væri hann líka áhugaverður
myndlistarmaður,“ segir Hjálmar.
„Mér fannst þetta vera óskrifaður
kafli í íslenskri menningarsögu og sá
fyrir mér að gera mætti fallega bók
með heildarsafni ljóða og mynda
Jónasar.
Þegar ég fór að skoða hann betur
fannst mér hann hafa verið settur út
í horn sem eins konar Gísli á Upp-
sölum íslenskrar ljóðlistar. Íslend-
ingar hafa gaman af sérkennilegum
mönnum en mér fannst það ekki
sanngjarnt gagnvart Jónasi. Hann
er frábært ljóðskáld og merkilegur
hönnuður og myndlistarmaður.“
Það kann að hafa blindað sýn sam-
tímamanna Jónasar á verkin að þeir
þekktu hann yfirleitt sem útigangs-
mann.
„Hann var óreglumaður og bak
við það er ákveðin harmsaga; Jónas
lenti í slysi sem ungur maður og það
breytti karakter hans. Í sögu hans
er eins og óreglan yfirgnæfi allt ann-
að.
Stundum getur maðurinn
þvælst fyrir listaverkunum.
Þetta er kimi af íslenskri
menningarsögu sem er
merkilegur og Omdurman-
forlagið sinnir,“ segir Hjálm-
ar og boðar nýja bók í vor:
„Það er saga sem Elías Mar
skrifaði af Þórði Sigtryggs-
syni en handritið hefur
verið hálfgerð goð-
sögn,“ segir hann.
Þrælskemmtilegt ljóðskáld
og flottur myndlistarmaður
Allar ljóðabæk-
ur Jónasar E.
Svafár prentaðar í
nýrri bók
Ljóð og myndir Opna úr handgerðri útgáfu Jónasar E. Svafárs af ljóðabók-
inni Það blæðir úr morgunsárinu. Hann felldi bókina ofan í ljósmyndabók.
Bókin Jónas E. Svafár - Ljóð
og myndir er komin út hjá
bókaforlaginu Omdúrman. Í
bókinni er heildarsafn ljóða og
teikninga Jónasar, sem fædd-
ist árið 1925 og lést 2004.
Þröstur Helgason er ritstjóri
og skrifar formála en Ingólfur
Arnarson myndlistarmaður
skrifar um myndverk Jónasar.
Hér birtast fimm bækur
Jónasar E. Svafárs, mynd-
skreyttar af honum sjálfum:
Það blæðir úr morgunsárinu,
Geislavirkt tungl, Klettabelti
fjallkonunnar, Stækkunargler
undir smásjá og Sjöstjarnan í
meyjarmerkinu.
Jónas þótti oft á skjön við
aðra. Í formála segir Þröstur
m.a.: „Óhætt er að halda því
fram að Jónas hafi verið úti á
jaðrinum, ekki bara samfélags-
lega heldur einnig meðal
skálda, jafnvel at-
ómskáldanna sem þó
voru sér á parti í ís-
lenskum bók-
menntaheimi.“
Höskuldur Harri
Gylfason hannar
bókina, eins og fyrri
bækur Omdúrman,
um Elías Mar, Megas
og Rósku.
Var úti á
jaðrinum
BÓK UM JÓNAS E. SVAFÁR
Nýstofnaður Kammerkór Dóm-
kirkjunnar heldur jólatónleika í
Dómkirkjunni annað kvöld, sunnu-
dag, og hefjast þeir klukkan 21.
Á efnisskrá eru jólalög eftir ís-
lensk og erlend tónskáld.
Stjórnandi er Kári Þormar.
Nýstofnaður
Kammerkór
Jónas E. Svafár