Morgunblaðið - 20.12.2010, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2010
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
TímaritiðÞjóðmálhefur al-
gjöra sérstöðu á
sínu sviði og vekur
útgáfa þess jafnan
mikinn áhuga og er
það mjög að verðleikum. Í nýj-
asta hefti þess eru þrjár burð-
argreinar. Greinarnar eru úr
ólíkum áttum en prýðilegar all-
ar og mjög forvitnilegar. Ragn-
hildur Kolka gerir grein fyrir
skrifum Theodore Dalrymple
sem sumir telja snjallasta rit-
gerðarhöfund á enskri tungu
síðan George Orwell. Hann
hefur fjallað með óvenjulegum
hætti um hnignun vestrænna
velferðarríkja og hvernig
væntingar um að ríkisvald
megni allra vanda að leysa hafi
gert illt verra.
Ólöf Nordal alþingismaður
fjallar um hið óskiljanlega óða-
got við breytingar á stjórn-
arskrá sem afsakað er með
óljósri tengingu við banka-
hrunið og Gústaf Níelsson birt-
ir fróðlega og ýtarlega úttekt á
baráttu íslenskra stjórnvalda
fyrir sæti í Öryggisráðinu og
varpar nýju ljósi á málið.
Stjórnmálalegir rétttrún-
aðarmenn láta sjálfsagt þessar
greinar fram hjá sér fara og
það er skynsamlegt af þeim.
Björn Bjarnason fjallar á af-
gerandi hátt um virðingarleysi
þeirra sem síst skyldi fyrir lög-
um og rétti og viðrar meðal
annars athyglisverð sjónarmið
vegna fyrirhugaðrar lands-
dómsmeðferðar.
Þá fjallar Björn
um landflótta og
stjórnlagaþing og
þær ógöngur sem
viðvarandi gjald-
eyrishöft hafa,
enda studdi Björn þau á þingi
sem skammtíma neyð-
arráðstöfun. Í því sambandi má
benda á að þegar Seðlabankinn
lætur í té hagfellda gengisspá
til að undirstrika útreikninga
um sem minnstan kostnað við
þriðja Icesave-samninginn er
augljóst að bankinn gengur út
frá því að gjaldeyrishöftin
standi að minnsta kosti fram
yfir árið 2016. Ella gengur spá
bankans alls ekki upp.
Þá skrifar Bergþór Ólason
pistil um Ríkisútvarpið og
rannsóknarskýrsluna og er sú
lýsing á framgöngu ríkisfjöl-
miðilsins við birtingu Rann-
sóknarskýrslu Alþingis með
miklum ólíkindum. Dæmin sem
pistlahöfundurinn dregur fram
eru lyginni líkust, þótt þeir
sem halda þessari ríkisstofnun
uppi með fjárframlögum, nauð-
ugir viljugir séu orðnir ýmsu
vanir. Er augljóst af þessum
dæmum sem pistlahöfund-
urinn vekur máls á og reyndar
svo mörgum öðrum sem upp
hafa komið á síðustu árum að
núverandi útvarpsstjóri lítur
verkefni sitt og skyldur mjög
sérstökum augum. Skal þó
hvergi úr því dregið að út-
varpsstjórinn er prýðilegur
þulur.
Það er fengur að
frísklegum skrifum í
vönduðum tímaritum
á borð við Þjóðmál}
Vekjandi efni
Í fréttum Stöðvar2 fyrir helgi var
rætt við Stefán
Ólafsson, prófess-
or í félagsvís-
indadeild og for-
mann stjórnar
Tryggingastofn-
unar. Tilefnið var að þriggja
barna móðir þótti hafa háar
bætur, en hún væri með fjögur
hundruð þúsund krónur til ráð-
stöfunar á mánuði. Um þetta
sagði Stefán: „Það er þannig
og hefur verið þannig lengi í ís-
lenska velferðarkerfinu að það
hefur verið reynt að gera vel
við foreldra barna, sérstaklega
einstæða foreldra, þannig að
erfiðar aðstæður bitni ekki um
of á börnunum.“
Stefán hefur á liðnum árum
átt afar greiðan aðgang að
fréttastofum ljósvakamiðlanna
með sjónarmið sín og þeim sem
hafa hlýtt á þau sjónarmið
hlýtur að hafa krossbrugðið að
heyra þessi nýju viðhorf hans.
Á meðan kaupmáttur fór vax-
andi hér á landi og skattar
voru lækkaðir var
Stefán í sérstakri
herferð til að
reyna að sannfæra
fólk um að skattar
hefðu í raun hækk-
að og að velferð-
arkerfið væri
handónýtt. Nú telur hann
skyndilega að velferðarkerfið
styðji vel við þá sem mest
þurfa á að halda og að svo hafi
verið lengi.
Þessu til viðbótar hafa erindi
hans um auknar skattbyrðar á
almenning horfið úr fjöl-
miðlum, enda er Samfylkingin
nú komin til valda og nú er í
raun verið að hækka skatta.
Athygli vekur að á sama
tíma og þessi kúvending verð-
ur hjá Stefáni Ólafssyni stend-
ur Jóhanna Sigurðardóttir,
formaður Samfylkingarinnar
og forsætisráðherra, í hörðum
deilum við Guðlaug Þór Þórð-
arson alþingismann um hvort
hún sé að fela greiðslur til
nokkurra aðila, þeirra á meðal
Stefáns.
Stefán Ólafsson
kvartar ekki lengur
undan sköttum og
hampar nú velferð-
arkerfinu}
Kúvending pólitísks prófessors
J
ólatréð mitt væri ekki vænlegur
kandídat í keppni um stílhrein og
smart jólatré. Í slíkri keppni mundi
það líklega verma eitt af botnsæt-
unum. Hugsanlega myndi það
hreppa verðlaun sem vinsælasta jólatréð,
kannski yrði það valið jólatréð með fegursta
fótinn, vænlegustu könglana eða bústnustu
greinarnar.
En tréð mitt er svo skynsamt, að því myndi
aldrei detta önnur eins firra í hug og að keppa
í útliti. Eigendum trésins (því tré eru ekki
sjálfráða) myndi heldur aldrei detta í hug að
skrá tréð sitt í slíka keppni. Þeir vita betur en
að láta tréð sitt keppa í fegurð við önnur tré.
Enda þykir hverjum sitt tré fagurt.
Á aðventu birtast gjarnan viðtöl við af-
skaplega smekklegt fólk í hinum ýmsu jóla-
blöðum. Orðið jólaþema ber þar iðulega á góma. „Jóla-
þemað í ár er gyllt / silfurlitað / fjólublátt / appelsínugult
/ svart.“ Við það síðastnefnda setur mig hljóða því svart
þykir mér langt frá því að vera jólalegur litur.
Fyrir þá sem ekki vita snýst jólaþema um að skreyta
heimilið sitt í tilteknum lit. „Í ár er þemað hjá mér fjólu-
blátt. Allt skrautið og allar seríurnar eru fjólubláar.
Glassúrinn á piparkökunum er fjólublár og við erum öll
búin að fá okkur fjólublá jólaföt.“ Gott ef ekki slær fjólu-
bláum bjarma á hamborgarhrygginn og hangiketið.
Skapast neyðarástand á svo stílhreinu heimili dirfist
leikskólabarn að koma heim með jólaföndur sem er ekki
fjólublátt? Er því (jólaföndrinu en ekki
barninu) þá stungið inn í skáp hið snarasta,
vegna þess að það stingur í stúf við litaþema
ársins í ár?
Svari þessu þeir sem svarað geta. Því ég
hef aldrei nokkurn tímann náð svo langt í
jólaskreytingaþróunarsögunni að geta gumað
af því að vera með jólalitaþema.
Í ár prýða eftirfarandi gersemar jólatréð
mitt: Ýmislegt föndur dætranna, fánar land-
anna sem fjölskyldan hefur búið í, eldgamalt
jólaskraut frá ömmu minni og afa (framleitt
fyrir tíma plastsins og er því MJÖG brothætt
og aldrei of oft áréttað við fólk sem þarf endi-
lega að handfjatla alla skapaða hluti), dýrlegt
föndur frá aldraðri og listfengri frú og pakka-
skraut sem var geymt frá því á jólunum í
fyrra, því það þótti frekar flott.
Þarna er ekkert litaþema á ferð, nema kannski einna
helst regnbogaþemað, sem stendur reyndar fyrir svo
ótal margt og fallegt í mannlífinu.
Á toppnum trónir stjarna og dæturnar skiptast á um
að fá að setja hana á toppinn. Nákvæmar skrár eru
haldnar um þann viðburð.
Annars ætla ég að prófa að vera með jólaþema í ár.
Inntak þemans er að hafa það sem allra best á jólunum
með sem allra minnstri fyrirhöfn. Það er nefnilega vel
hægt að halda jól án þess að ramba á barmi taugaáfalls.
Er ekki einhver mótsögn í því að tala um stress í sama
mund og talað er um gleði og frið?
Anna Lilja
Þórisdóttir
Pistill
Jólatré í stofu stendur
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
FRÉTTASKÝRING
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
S
ælla er að gefa en þiggja,
segir máltækið, og á lík-
lega sjaldan betur við en
um jólin þegar náunga-
kærleikurinn nær há-
marki hjá landsmönnum. Fjölmörg
góðgerðarsamtök og líknarfélög reiða
sig á framlög fyrirtækja og ein-
staklinga allt árið um kring en líklega
aldrei meira en í aðdraganda jólanna.
En hve mörg eru þessi samtök og
hvað fá þau mikla fjármuni til sín?
Heildarupphæðir liggja ekki ná-
kvæmlega fyrir en samkvæmt
sænskri rannsókn er talið að þriðji
geirinn svonefndi sé um 4% af vergri
þjóðarframleiðslu þar í landi. Talið er
að hlutfallið geti verið svipað hér á
landi, sem jafngildir um 60 millj-
örðum króna miðað við þjóðarfram-
leiðslu síðasta árs. Til þeirrar veltu
heyra m.a. framlög til samtaka og
stofnana frá hinu opinbera, fyrir-
tækjum og einstaklingum, jólaaðstoð
til hjálparstofnana og sala á flug-
eldum, lottói og happdrætti.
Fræðasetur þriðja geirans, sem
nýverið tók til starfa innan Háskóla
Íslands í samstarfi við Almannaheill –
Samtök þriðja geirans, er að kort-
leggja þennan geira samfélagsins og
meta efnahagsleg áhrif kreppunnar á
hann. Þriðji geirinn samanstendur af
samtökum og stofnunum sem starfa
utan hins opinbera og einkageirans,
einkum með sjálfboðaliðastarfi og eru
ekki rekin í hagnaðarskyni. Hafa
rannsóknir sýnt að um 40% Íslend-
inga sinna sjálfboðaliðastarfi með ein-
hverjum hætti og er það svipað hlut-
fall og hjá öðrum Norðurlanda-
þjóðum.
Náungakærleikur landans hefur
t.d. komið vel í ljós þegar efnt er til
fjársöfnunar til styrktar ákveðnu
málefni í beinni útsendingu sjón-
varpsstöðvanna. Þá hafa safnast tugir
og hundruð milljóna króna.
Um 150 félagasamtök
Almannaheill voru stofnuð árið
2008 og hafa samtökin 19 aðildarfélög
innan sinna vébanda. Góðgerðar- og
líknarfélög eru hins vegar mun fleiri.
Er talið að félagasamtök í velferðar-
þjónustu séu upp undir 150, þ.e. sam-
tök sem hafa greitt einhver laun en
reitt sig að öðru leyti á starf sjálf-
boðaliða.
Bergur Ólafsson, verkefnisstjóri
hjá Almannaheillum, segir samtökin
hafa það á stefnuskrá sinni að fjölga
aðildarfélögum. Helstu baráttumál
samtakanna eru þau að skattalögum
verði breytt á þann hátt að almanna-
heillafélög og sjálfseignarstofnanir
verði undanþegin erfðafjárskatti og
að einstaklingum og lögaðilum verði
heimilað að draga gjafir til félaga og
samtaka frá tekjuskattsstofni. Sam-
kvæmt núverandi skattalögum má
draga framlög lögaðila til viður-
kenndra góðgerðarsamtaka og
líknarfélaga frá skatti, en þó ekki fyr-
ir meira en 0,5% af tekjum rekstr-
arársins.
Þá vilja samtökin að heildar-
löggjöf verði sett um starfsemi
frjálsra félagasamtaka, réttindi
þeirra og skyldur. Velferðarráðherra
hefur á borði sínu skýrslu sem nýlega
var skilað til hans, þar sem lagt er
mat á mikilvægi þess að setja heildar-
löggjöf um starfsemi samtaka og
sjálfseignarstofnana. Bergur
segir mjög brýnt að búa til
einhvern lagaramma um
starfsemi þriðja geirans.
„Eftir að kreppan skall á
hefur eftirspurn eftir þjón-
ustu þriðja geirans aukist, á
sama tíma og erfiðara er
fyrir þessi samtök að
afla sér fjár. Gera
þarf þessi samtök
starfhæfari.“
Þriðji geirinn veltir
tugum milljarða
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Styrktarsöfnun Rauði kross Íslands er með stærstu hjálparsamtökum
landsins og stendur árlega fyrir söfnuninni Göngum til góðs.
Steinunn Hrafnsdóttir, dósent
við félagsráðgjafardeild HÍ og
annar tveggja forstöðumanna
Fræðaseturs þriðja geirans,
segir skorta mikið á upplýs-
ingar um umfang og veltu
þriðja geirans og þau Ómar H.
Kristmundsson, prófessor við
stjórnmálafræðideild HÍ, séu
einmitt að vinna í því, m.a. um
hvað fólk leggur mikið til til
þessara samtaka. Þau Ómar
skoðuðu einnig áhrif krepp-
unnar á tekjur félagasamtaka í
velferðarþjónustu og komust
m.a. að því að frá 2008 til
loka árs 2009 breytt-
ust tekjur samtak-
anna ekki mikið en
tekjusamsetningin
breyttist. Minna hefði
komið frá hinu op-
inbera og fyrirtækjum
en jafnvel meira frá ein-
staklingum. Framlög hins
opinbera gætu lækkað
enn meir á næsta ári.
Kortleggur
geirann
FRÆÐASETUR STARFANDI
Steinunn
Hrafnsdóttir