Morgunblaðið - 21.01.2011, Blaðsíða 34
34 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2011
Sudoku
Frumstig
4 9 6 1 3
5 9 4
1 2 6 5 7 9
3 7 1 4 9 6
2
3
5
1 5 4 2
3
1 5 8 2
5
7 3 1 2
5 2 3 7
5 8
4
3 1 9
2 9 1 8
8 9 2
8 1
4 9
2 4
3 6 5
1 7 4
5 8
6 7
8 4 3
9 7 1 5 6 2
4 7 2 1 8 6 9 5 3
1 3 6 5 9 7 4 2 8
8 9 5 4 2 3 6 1 7
9 2 8 6 1 5 3 7 4
3 1 4 9 7 2 5 8 6
5 6 7 8 3 4 2 9 1
2 4 9 7 6 1 8 3 5
6 8 1 3 5 9 7 4 2
7 5 3 2 4 8 1 6 9
6 7 8 9 1 4 2 5 3
4 3 1 5 7 2 6 9 8
2 5 9 8 6 3 7 4 1
1 2 6 3 9 5 8 7 4
8 9 7 6 4 1 3 2 5
3 4 5 2 8 7 1 6 9
7 6 4 1 5 8 9 3 2
5 1 3 7 2 9 4 8 6
9 8 2 4 3 6 5 1 7
2 7 4 5 8 6 9 1 3
5 6 3 2 9 1 7 4 8
9 8 1 7 4 3 2 5 6
1 2 5 9 6 7 8 3 4
8 9 7 4 3 5 1 6 2
4 3 6 1 2 8 5 7 9
7 4 2 3 5 9 6 8 1
6 1 9 8 7 4 3 2 5
3 5 8 6 1 2 4 9 7
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 21. janúar, 21. dag-
ur ársins 2011
Orð dagsins: Ég er Drottinn, Guð yð-
ar, lifið eftir boðorðum mínum og
haldið lög mín og breytið eftir þeim.
(Esk. 20, 20.)
Enn einu sinni heillar íslenskalandsliðið í handbolta lands-
menn og enn einu sinni fá strákarnir
okkar þjóðina til þess að gleyma basl-
inu og brauðstritinu um stund. Gleði-
stundirnar eru reyndar svo margar
að margir landsmenn eru tilbúnir að
styðja strákana okkar eins og kostur
er. Allt fyrir ánægjuna.
x x x
En það er önnur hlið á málinu.Rekstur Handknattleiks-
sambands Íslands kostar um 150
milljónir á ári og þar af fara um 80 til
90 milljónir í landsliðin. Fram kom í
gær að framlag afrekssjóðs ÍSÍ til
HSÍ er 8,5 milljónir í ár og þar af 7
milljónir til styrktar karlalandslið-
inu. Í fyrra fékk karlalandsliðið 10
milljóna kr. styrk. „Íslenskt afreks-
íþróttafólk eru mikilvægar fyr-
irmyndir fyrir íslenska æsku og þjóð-
félagið í heild sinni. Þegar vel gengur
styðja Íslendingar vel við sína
fremstu íþróttamenn en þegar á móti
blæs er stutt í gagnrýnisraddir,“ seg-
ir m.a. í tilkynningu ÍSÍ.
Framlag ríkisins til afrekssjóðs
ÍSÍ er 24,7 milljónir í ár, um 157 þús-
und evrur, en það var 30 milljónir
2006, sem þá jafngilti tæplega 400
þúsund evrum. Það kostar að halda
úti afreksfólki í íþróttum og það er
undir stjórnvöldum komið hvort Ís-
land verður áfram með á meðal
þeirra bestu.
x x x
Ljóst er að sú ákvörðun 365 miðlaum að sýna flesta leiki frá
heimsmeistarakeppninni í handbolta
í læstri dagskrá Stöðvar 2 Sport hef-
ur mælst illa fyrir hjá handboltaunn-
endum, sem eru ekki áskrifendur að
stöðinni eða ná ekki útsendingum
hennar eins og sjómenn úti á sjó.
Aðrir hafa ekki látið þetta á sig fá
heldur keypt aðgang að stöðinni.
Ekki liggur fyrir hvað margir en séu
þeir 20.000 til 25.000 er lágmarks-
hagnaðurinn um 100 milljónir. Aug-
lýsingar borga örugglega allan
kostnað og vel það. Í ljósi aðstæðna
væri vel til fundið hjá 365 miðlum að
láta HSÍ njóta a.m.k. 50% hagnaðar-
ins og tilkynna framlagið sem allra
fyrst. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 flatt, 4 í vondu
skapi, 7 holduga, 8 fim, 9 ill-
menni, 11 ósaði, 13 góðgæti,
14 aðgangsfrekur, 15 í fjósi,
17 áflog, 20 bókstafur, 22
öflug, 23 alkóhólistar, 24
koma í veg fyrir, 25 týni.
Lóðrétt | 1 róar, 2 snjó-
komunni, 3 sárabindi, 4
datt, 5 hljóðfæri, 6 úr-
komu, 10 guð, 12 húsdýr,
13 rösk, 15 streyma, 16
daunn, 18 refsa, 19 lag-
vopn, 20 skortur, 21 nöldur
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 geldingur, 8 ofnar, 9 tunga, 10 kút, 11 fiðla, 13
aurar, 15 svaðs, 18 Samar, 21 kát, 22 Engey, 23 akrar, 24
hildingur.
Lóðrétt: 2 ennið, 3 dýrka, 4 nátta, 5 unnur, 6 golf, 7 saur,
12 lið, 14 una, 15 slen, 16 angri, 17 skyld, 18 stafn, 19
myrtu, 20 rýrt.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. c3 d5 4. e5
Rc6 5. d4 Db6 6. a3 a5 7. Bd3 Bd7
8. Bc2 Da6 9. Be3 Rge7 10. Rg5
Rf5 11. g4 Rxe3 12. fxe3 Be7 13.
Rxh7 Db6 14. b3 Bh4+ 15. Kf1
cxd4 16. cxd4 Hc8 17. Kg2
Staðan kom upp í annarri deild
Íslandsmóts skákfélaga en fyrri
hluti mótsins fór fram í Rimaskóla
sl. október. Magnús Pálmi Örn-
ólfsson (2175) hafði svart gegn Jó-
hanni Ingvarssyni (2135). 17…
Rxe5! 18. dxe5 Dxe3 hvítum er nú
allar bjargir bannaðar. 19. Hf1. 19.
Rd2 Df2+ 20. Kh3 Hc3+ og hvítur
gafst upp. Magnús teflir fyrir b-
sveit Taflfélags Bolungarvíkur.
Hún er í öðru sæti 2. deildarinnar
með 18 1/2 vinning en Skákfélagið
Mátar trónir á toppnum með 20
vinninga.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Danskur spilabakki. S-NS.
Norður
♠Á8
♥K764
♦Á5
♣ÁG1053
Vestur Austur
♠G1092 ♠D653
♥ÁG10983 ♥2
♦106 ♦G982
♣7 ♣9842
Suður
♠K74
♥D5
♦KD743
♣KD6
Suður spilar 6G.
Suður opnar á grandi (15-17) og
vestur gýtur augunum snöggt á spila-
bakkann. Þar stendur skrifað dauf-
grænum stöfum að A-V séu „uden fare-
zonen“. Danskur spilabakki. Vestur
lætur þá eftir sér að segja 3♥ á sexlit-
inn. Sú framhleypni verður til þess að
norður skoðar spilabakkann vandlega
og les eins og vestur áður að A-V séu
utan hættu, en N-S hins vegar „i fare-
zonen“. Skrifað með rauðu. Norður
nennir þá ekki að eltast við prakkarann
í vestur og stekkur í 6G. Hvernig á suð-
ur að spila með ♠G út?
Hann mátar í tveimur leikjum: Tek-
ur á ♠K heima og spilar ♥5 að kóngn-
um í blindum, sem vestur verður að
dúkka. Það er fyrri leikurinn. Sá síðari
felst í því að spila tíglinum fjórum sinn-
um. Austur má fá slag á tígul, því sam-
bandið í hjarta er rofið.
21. janúar 1918
Mesta frost hér á landi, –38° C,
mældist á Grímsstöðum og
Möðrudal á Fjöllum. Þessi vet-
ur hefur verið nefndur frosta-
veturinn mikli.
21. janúar 1918
Mesta frost í Reykjavík, –24,5°
C, mældist þennan dag, en
logn var og bjartviðri. Gengið
var út í Viðey á ís, fuglar frusu
fastir í vök á Skerjafirði og
barnaskólinn var lokaður í
nokkra daga.
21. janúar 1922
Tarzan birtist í fyrsta sinn á
íslensku sem neðanmálssaga í
Alþýðublaðinu. Þremur árum
síðar var kvikmynd eftir sögu
Edgars Rice Burroughs sýnd í
Nýja bíói.
21. janúar 1925
Ofsaveður var í Reykjavík.
Þök fuku af nokkrum húsum
og „mátti heita óstætt á götum
bæjarins um langa hríð“, sagði
í Morgunblaðinu. Þá gerði
mesta flóð sem orðið hafði
sunnanlands og vestan í eina
öld og brotnuðu hús og bátar í
Grindavík og sjóvarnargarður
við Eyrarbakka eyðilagðist.
21. janúar 1959
Deleríum búbónis, „söngva-
leikur“ eftir Jónas og Jón
Múla Árnasyni, var frum-
sýndur hjá Leikfélagi Reykja-
víkur. Hann var sýndur alls
150 sinnum.
21. janúar 1976
Atli Heimir Sveinsson hlaut
tónlistarverðlaun Norð-
urlandaráðs, fyrstur Íslend-
inga. Þau voru afhent 1. mars.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, blaðamaður á
Fréttatímanum, er svo önnum kafin að hún var
nær búin að gleyma afmælisdeginum sem er í dag.
„Ég man ekki neitt en það er ekki aldurinn heldur
öll þessi litlu börn og óléttan sem stela minninu,“
segir hún. Bætir svo við að veislan frestist um eitt
ár vegna óléttunnar en hún haldi upp á daginn
með því að fara í innflutningspartí hjá vinafólki.
Hún segist hafa hugleitt að mæta með kerti og
köku sem á standi „Til hamingju með afmælið
Gunnhildur!“ Gera þannig innflutningspartíið að
eigin afmælisveislu. „Þau vita reyndar ekki enn af
þessu, en þetta er í alvarlegri skoðun.“
Hjónin Gunnhildur og Björn Friðrik Brynjólfsson keyptu sér ný-
lega hús í Kópavogi og eru að innrétta þar íbúð í frístundum. Þau eiga
tvö ung börn, Margréti Örnu þriggja ára frá 11. janúar og Gunnar
Björn sem verður tveggja ára 29. júlí. Gunnhildur segist eiginlega
aldrei hafa haldið upp á afmælið en hafi gert það á hverfiskránni fyrir
fimm árum. „Það var æðislegt. Það komu svo margir og það var svo
skemmtileg stemning, alveg eins og gott ball úti á landi. Þá ákvað ég
að halda líka upp á 35 ára afmælið.“ steinthor@mbl.is
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir 35 ára
Mætir með skreytta köku
Flóðogfjara
21. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 1.08 0,2 7.17 4,4 13.38 0,1 19.42 4,0 10.41 16.38
Ísafjörður 3.15 0,0 9.14 2,4 15.48 -0,1 21.42 2,0 11.08 16.20
Siglufjörður 5.24 0,1 11.41 1,3 18.03 -0,1 10.52 16.02
Djúpivogur 4.37 2,2 10.50 0,1 16.48 2,0 22.58 -0,1 10.16 16.02
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er hætt við að þú verðir svikin/n
í dag. Hópvinna ætti að ganga sérlega vel
næstu mánuði. Skuldbindingar hverfa ekki
eins og fyrir töfra.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Matur er mannsins megin en of mikið
má af öllu gera svo gættu hófs í hvívetna.
Rausnarskapur þinn er til fyrirmyndar, en
hefur þú virkilega ráð á þessu?
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Svo virðist sem þér hafi tekist að
finna það form, sem hentar þér best í leik og
starfi. Hafðu augu og eyru opin svo þú missir
ekki af neinu.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Vinir þínir og börn gera ólíkar kröfur
til þín og því er eins og þú sért á milli tveggja
elda í dag. Varastu að fara yfir strikið í fé-
lagsstörfunum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Smekkur þinn fellur eins og flís við rass
fólksins í kringum þig. Að gera sitt besta er
allt sem beðið er um.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú átt ekki alltaf að fá þínu fram-
gengt, en samt ansi oft. Samvinna gengur að
óskum, enda ertu móttækileg/ur fyrir kröf-
um og þörfum annarra núna.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Gerðu það sem þú getur til að brjóta
upp rútínuna í dag. Kannski þú finnir til
afbrýðisemi eða eigingirni í fyrsta skipti á
ævinni?
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Samband er líklega byggt á
draumum og hillingum. Hindranir virðast úr
vegi og beina brautin framundan.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Reyndu að forðast að eyða of
miklum peningum þótt útsölur séu í gangi.
Hugsaðu áður en þú talar og gakktu úr
skugga um að þú sért ekki að fara úr öskunni
í eldinn.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Gættu þess að ganga ekki á rétt
annarra þótt þú keppir að vissu marki. Hag-
aðu þér vel.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Allt samstarf byggist á sam-
komulagi og málamiðlunum. Vertu umburð-
arlynd/ur, engum líkar að vera berskjaldaður.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þegar þér er alveg sama verður til-
veran léttari. Hvers vegna þarf að minna þig
á að þú átt ættingja sem heyra aldrei í þér?
Stjörnuspá
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is