Morgunblaðið - 21.01.2011, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 21.01.2011, Blaðsíða 44
Flott par Alex segir erfitt að lýsa því hvað heillar mest við dansinn en segir því fylgja mikið frelsi að fá að ferðast um heiminn og dansa fyrir fólk. Núverandi dansfélagi hans er hin kanadíska Virginie Primeau. Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Síðastliðinn þriðjudag náði hinn 18 ára gamli Alex Freyr Gunnarsson þeim merkilega árangri að lenda í 6. sæti á UK Open-mótinu í samkvæm- isdönsum. Mótið er eitt þriggja stærstu dansmót- anna í Bretlandi en í ár voru 180 pör skráð til leiks og keppt í tveimur flokkum, atvinnu- og áhuga- manna. Alex og dansfélagi hans, hin kanadíska Virginie Primeau, kepptu í flokki áhugamanna en voru langyngst þeirra keppanda sem lentu í efstu sætum. Alex og Virginie hafa aðeins dansað saman í fjóra mánuði en hafa þegar unnið nokkur mót og titla, m.a. Norður-Ameríkutitlana, bæði í flokki fullorðinna og unglinga. „Við kynntumst í Þýskalandi og ákváðum þar að dansa saman. Til þess að það gæti orðið þurfti ég að flytja til hennar til Kanada,“ segir Alex sem býr hjá fjölskyldu Virginie. Ásamt því að æfa dansinn 45 klukkustundir á viku stundar hann fjarnám við Fjölbrautaskólann í Garðabæ en þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann flytur utan til að geta dansað við ákveðinn félaga. „Ég flutti fyrst út til Úkraínu þegar ég var í 8. bekk. Svo þegar ég var í 10. bekk flutti ég til Danmerkur en kom heim til að taka samræmdu prófin,“ segir Alex. Honum hefur allt- af gengið vel í skóla þrátt fyrir að dansinn geri miklar kröfur til tíma hans en hann og Virginie ferðast nú um heiminn og taka þátt í hinum ýmsu keppnum og mótum. Stefnir á atvinnumennskuna Þrátt fyrir að vera lítið heima á Íslandi er Alex ennþá í Dansfélagi Hafnarfjarðar sem hann segir mjög gott félag. Hann segir þó lítið gert hér heima fyrir dansara sem stefna á atvinnumennskuna og nefnir sem dæmi að í Bandaríkjunum og Asíu sé litið á dansinn sem alvöruíþrótt og tiltölulega auð- velt sé að fá styrki og hafa atvinnu af dansinum. Þau Virginie stefna á fyrsta sætið í Blackpool í maí og ætla sér síðan að ná í Kanadatitlana þar á eftir. Almennt segir hann þó að mikilvægast sé að halda áfram að ná framförum og að staðna ekki í dansinum. „Í raun og veru gæti ég keppt sem at- vinnumaður í dag en það sem maður gerir í sam- kvæmisdönsunum er að skapa sér nafn fyrst og færa sig síðan upp í atvinnumannaflokkinn.“ Hann segist eiga foreldrum sínum mikið að þakka enda séu þau aðalstuðningsmenn hans. Að sjálfsögðu finnist þeim erfitt að hafa hann ekki meira heima „en í staðinn næ ég þessum góða ár- angri og það er ekki hægt að biðja um meira“. Ekki hægt að biðja um meira  Lenti í sjötta sæti á stórmóti í samkvæmisdönsum  Langyngstu keppend- urnir sem náðu í fyrstu sætin  Ferðast um heiminn og stefnir á atvinnumennsku FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 21. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318 1. Týnd stúlka finnst eftir 23 ár 2. Norðmenn kjöldregnir 3. Grínast með Íslendinga 4. Staðfestir handtökur »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  William gamli Shakespeare ríður röftum nú um stundir í íslensku leik- húsi. Orri Páll Ormarsson veltir Of- viðrinu fyrir sér í pistli og þeirri ólíku upplifun sem fólk kann að hafa af leikhúslífinu. »39 Veltir vöngum yfir Ofviðrinu  Elvar Örn Frið- riksson er best þekktur sem söngvari hinnar stórgóðu sveitar Perla og óhætt að segja að þar fari sannkallaður lát- únsbarki. Hann heldur tónleika á Rósenberg í kvöld ásamt hljómsveit sem er m.a. skipuð félögum hans úr nefndri sveit. Herlegheitin hefjast stundvíslega kl. 21.00. Elvar Örn með tón- leika á Rósenberg  Tónlistarmaðurinn Bjartmar Guð- laugsson kemur fram með hljómsveit sinni Bergrisunum á tónleikastaðn- um Sódóma Reykjavík annað kvöld og hefjast tónleikarnir kl. 23. Berg- risana skipa Júlíus Guðmundsson á bassa, Birkir Rafn Gíslason á gítar, Egill Örn Rafns- son á tromm- ur og Halldór Warén á hljómborð. Bjartmar og Berg- risarnir á Sódómu Á laugardag Suðvestlæg átt, yfirleitt 8-15 m/s. Milt veður og rigning eða súld vest- anlands en þurrt að mestu austantil. Á sunnudag Suðvestan eða vestanátt, yfirleitt 5-10 m/s. Rigning en þurrt að mestu norðaustantil. Áfram milt í veðri. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Rigning, fyrst sunnan- og vestantil, en úrkomulítið norðan- og austanlands. Dregur úr vindi og úrkomu í kvöld, fyrst sunnantil. Hiti 2 til 7 stig. VEÐUR „Ég kann ljómandi vel við mig hérna og það er eins og ég hafi aldrei farið,“ sagði Kefl- víkingurinn Magnús Þór Gunn- arsson, sem nýgenginn er til liðs við sitt gamla félag eftir að hafa leikið með Njarðvík. Hann átti ljómandi leik í gærkvöld þegar Keflvík- ingar lögðu Stjörnuna 102:92 í skemmtilegum leik í úrvalsdeildinni í körfubolta í Garðabæ. »4 Það er eins og ég hafi aldrei farið „Við ætluðum okkur alltaf að keyra mjög stíft á Norðmennina og það skil- aði sér á síðustu tíu mín- útunum. Ég held að þeir hafi verið búnir á því á lokakafla leiks- ins en það var einnig hluti af okkar áætl- unum,“ sagði Guð- mundur Þ. Guð- mundsson landsliðsþjálfari eftir glæsilegan sig- ur á Noregi. »2 Keyrslan skilaði sér á síðustu tíu mínútunum „Þetta var stóri leikurinn í riðlinum og ég held að við höfum sýnt að við erum betri en Norðmenn. Við erum einfaldlega komnir á það góðan stall en nú taka við þrír alvöruleikir í milli- riðlinum. Þá mætum við þremur þjóð- um sem allar eru betri en þær þjóðir sem við mættum í riðlinum,“ sagði markvörðurinn Björgvin Páll Gúst- avsson. »1 Sýndum að við erum betri en Norðmenn ÍÞRÓTTIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.