Morgunblaðið - 21.01.2011, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2011
✝ Vigdís Val-gerður Eiríks-
dóttir fæddist í
Gunnarshólma,
Eyrarbakka 1. jan-
úar 1926. Hún lést
á Landspítala í
Fossvogi 11. janúar
2011. Foreldrar
hennar voru Guð-
rún Ásmunds-
dóttir, húsmóðir,
frá Efra-Apavatni,
f. 11.8. 1883, d.
10.6. 1958, og Ei-
ríkur Gíslason, tré-
smíðameistari, frá Bitru í Flóa, f.
19.11. 1869, d. 24.7. 1942. Al-
systkini Vigdísar, sem öll eru lát-
in, voru Elín, Gísli, Ingunn, Ingi-
gerður, Ásdís, Guðrún Ása og
Guðbjörg. Börn systra Vigdísar,
sem ólust upp með henni, voru
Eiríkur Bragason, sem er látinn,
og Jóhanna Halldórsdóttir.
Árið 1947 giftist Vigdís Sig-
urði Hinriki Matthíassyni, kaup-
manni í Reykjavík, f. 24.9. 1924,
d. 17.7. 1977. Þau áttu eftirtalin
þrjú börn: 1) Ásta Guðrún Sig-
urðardóttir, f. 8.12. 1948, gift
Árna Ísakssyni, f. 26.11. 1943.
Börn þeirra eru: a) Sigurður
Hinrik Teitsson, f. 19.3. 1968,
a) Matthías, f. 23.1. 1979, kvænt-
ur Yuko Motoyanagi, f. 15.1.
1978. Þau eiga eina dóttur,
Kiönu Lilju. b) Eiríkur Valur, f.
22.1. 1984, unnusta Þóra Ein-
arsdóttir, f. 24.4. 1986. c) Sig-
urður Gísli, f. 23.2. 1987, unnusta
Ágústa Björk Bergsveinsdóttir,
f. 27.4. 1987.
Vigdís ólst upp í foreldra-
húsum á Eyrarbakka fram yfir
16 ára aldur en flutti þá og starf-
aði um skamma hríð í Hvera-
gerði. Síðan lá leiðin til Reykja-
víkur þar sem hún stundaði
verslunarstörf. Þar hitti hún til-
vonandi eiginmann sinn, Sigurð
Hinrik Matthíasson, og giftu þau
sig árið 1947. Árið 1951 stofnuðu
hjónin matvöruverslunina Víði
og ráku um áratugaskeið, fyrst á
Fjölnisvegi 2, þar sem þau
bjuggu einnig á efri hæð. Árið
1965 opnuðu þau nútímalega
kjörbúð í Starmýri 2, sem þau
ráku þar til Sigurður lést árið
1977, en þá hélt Vigdís áfram
rekstrinum ásamt sonum sínum.
Síðan bættust við fleiri verslanir,
sem voru reknar undir merkjum
Víðis. Eftir dvölina á Fjölnisvegi
bjó fjölskyldan á Otrateigi 32 í
þrjú ár en flutti 1961 í Hvassa-
leiti 153. Um 1970 reistu þau sér
hús í Austurgerði 9, þar sem þau
áttu fallegt heimili. Síðar flutti
Vigdís í Árskóga 8, þar sem hún
undi sér vel til hinsta dags.
Útför Vigdísar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 21. janúar
2011, og hefst athöfnin kl. 15.
kvæntur Önnu
Björgu Jónsdóttur,
f. 23.4. 1968. Þau
eiga þrjár dætur,
Söndru Mjöll, Ástu
Guðrúnu og Sigdísi
Lind. b) Ragnheið-
ur, f. 3.12. 1971,
unnusti Snorri
Karlsson, f. 12.1.
1968. c) Eiríkur, f.
27. 5 1975, kvænt-
ur Auði Ósk Emils-
dóttur, f. 9.2. 1977.
Þau eiga þrjár
dætur, Ásdísi Ósk,
Lilju og Anítu Hrönn. 2) Matt-
hías Sigurðsson, f. 13.7. 1952,
kvæntur Selmu Skúladóttur, f.
3.4. 1951. Börn þeirra eru: a)
Ragnhildur, f. 19.10. 1971, gift
Leifi Arasyni, f. 5.9. 1971. Þau
eiga tvö börn, Ara og Selmu. b)
Sigurður Vignir, f. 17.7. 1976,
kvæntur Eddu Rún Ragn-
arsdóttur, f. 4.3. 1976. Þau eiga
tvo syni, Bjarka og Matthías. c)
Davíð, f. 3.1. 1981, unnusta Rut
Skúladóttir, f. 2.11. 1985. d) Vig-
dís, f. 11.5. 1990, unnusti Eyjólf-
ur Þorsteinsson, f. 2.7. 1983. 3)
Eiríkur Sigurðsson, f. 26.10.
1955, kvæntur Helgu Gísladótt-
ur, f. 17.8. 1957. Börn þeirra eru:
Elsku mamma mín.
Þegar ég kveð þig og minnist þín
er mér efst í huga þakklæti og virð-
ing. Þú hefur nú kvatt okkur ástvini
þína en það sem eftir lifir er kær-
leikurinn, umhyggjan og gjafmildin,
sem þú gafst börnunum þínum,
barnabörnum og öllum afkomend-
um. Þú varst mjög trúuð og baðst
fyrir okkur öllum frá fyrstu tíð, sem
hefur gefið okkur góða tilfinningu.
Minningarnar streyma til mín um
æsku okkar systkinanna, en þið
pabbi voruð einstaklega samhent
hjón og vinnan og börnin ykkar að-
aláhugamál.Við systkinin vorum
með ykkur í vinnunni frá unga aldri
og því var fjölskyldan mikið saman.
Þið brýnduð fyrir okkur mikilvægi
þess að vera góð hvort við annað og
standa saman í lífsins ólgusjó. Við
áttum góða og gleðiríka æsku á
Fjölnisveginum, þar sem við bjugg-
um fyrir ofan litlu verslunina okkar,
Víði. Í versluninni vorum við systk-
inin tekin með í að hjálpa við fjöl-
breytileg störf svo sem að afgreiða,
mala kaffi, moka kartöflum í poka,
sendast með vörur eða jafnvel að
skjótast í banka. Þetta mikla traust
ykkar til okkar systkinanna hefur
kennt okkur að hafa ríka ábyrgð-
artilfinningu.
Dugnaður og framsýni ykkar
pabba var einstök og því unnuð þið
marga sigra í lífinu. Ykkur tókst að
byggja ykkur fallegt raðhús á Otra-
teig og í minningunni eyddi fjöl-
skyldan þar öllum frítíma meðan á
byggingunni stóð. Og mikil var
gleðin, þegar við fluttum í nýja hús-
ið þótt það væri ekki fullbúið en þá
var ég tíu ára. Síðan fylgduð þið
draumum ykkar fast eftir og byggð-
uð myndarlegt hús undir verslunina
í Starmýri 2 og síðar glæsilegt hús í
Austurgerði.
Elsku mamma mín, ég vil þakka
þér fyrir alla hjálpina, þegar ég átti
hann Sigga minn í miðju
hárgreiðslunáminu. Þú gerðir mér
kleift að klára námið með því að
annast ömmustrákinn þinn. Siggi
minn var mikill sólargeisli í tilveru
ykkar pabba og ég veit að miklir
kærleikar hafa verið á milli þín og
Sigga míns alla tíð.
Það var hræðilegt áfall og sorg
þegar pabbi féll svo snögglega frá
árið 1977 og mikil umskipti fyrir þig
að verða ein, því þið voruð svo sam-
hent og alltaf saman í öllu.
Þegar þú varðst 85 ára nú um
áramótin fannst okkur það ótrúlegt,
þar sem okkur fannst þú aldrei
verða gömul. Þú hafðir ótrúlega
gott minni, fylgdist vel með öllu hjá
okkur og barnabörnunum. Þú hélst
áfram að vera pjöttuð, vildir alltaf
vera fín og með fallegt hárið. Einnig
alltaf jafn lifandi og áhugasöm að
fara eitthvað með okkur, ef við
hringdum, oft með stuttum fyrir-
vara. Og þá varst þú ekki lengi að
hafa þig til.
Ég vil sérstaklega þakka þér fyr-
ir ferðirnar tvær sem við fórum
saman á Eyrarbakka nú í sumar og
haust. Þá varst þú í essinu þínu,
sagðir mér margt og naust þess að
fara á æskustöðvarnar.
En nú ert þú móðir mín, barnið
sem lék sér við ströndina í æsku,
búin að kveðja okkur og ég þakka
fyrir allt og allt og ég þakka guði
fyrir góða móður.
Þín dóttir,
Ásta.
Elsku Vigga tengdamóðir mín er
farin. Við söknum hennar sárt. Hún
var mikil dugnaðarkona, vann með
eiginmanni sínum við rekstur mat-
vöruverslunar þeirra frá upphafi
ásamt því að ala upp þrjú börn
þeirra og hugsa um heimilið á þeim
tímum sem þægindi nútímans voru
ekki til staðar.
Hún varð ung ekkja, aðeins 51
árs, og var það mikið áfall. Hún var
mjög góð mamma, tengdamamma,
amma og langamma, öll börn hænd-
ust að henni og alltaf var hún til í að
spjalla við þau, syngja og kenna.
Hún var listakokkur og alltaf gott
að heimsækja hana, hrifnust var
hún af íslenskum mat, t.d. kjötsúpu,
rabarbaragrautnum og ekki síst
pönnsunum sem hún var fræg fyrir,
sem hún færði okkur í öllum
veislum og krakkar á öllum aldri
elskuðu.
Hún var mjög trúuð og er án efa
búin að hitta Sigga sinn aftur. Hún
var alltaf jákvæð, einstaklega dug-
leg, göngugarpur og hugsaði vel um
heilsuna. Hún átti langa og góða
ævi sem við þökkum fyrir að hafa
deilt með henni.
Takk fyrir okkur elsku Vigdís
Valgerður, guð veri með þér.
Helga Gísladóttir.
Elsku Vigga mín.
Það er erfitt að trúa því að þessi
illvígi sjúkdómur, sem fór svo leynt,
skuli nú þegar hafa kallað þig burt
frá okkur. Á slíkum tímum verður
manni hugsað til liðinna ánægju-
stunda, bæði hér og erlendis. Sér-
staklega eru minnisstæðar ferðirnar
í sólina bæði með ykkur Sigga til
Mallorka 1976 og síðar til Flórída
1981 og Kanarí 1999. Þú hafði ein-
stakt yndi af því að vera í sól og ég
þekki fáa, sem aðlöguðust henni
jafn vel og þú. Þú hafðir einstak
yndi af því að ferðast með fjölskyld-
unni enda varst þú einn aðalhvata-
maður að Flórídaferðinni, sem farin
var í tilefni fermingar Sigga elsta
barnabarnsins. Þú bauðst einnig
stórfjölskyldunni að dvelja með þér
í leiguíbúð í Austur-Englandi sum-
arið 1985, sem allir þáðu með þökk-
um, þótt menn dveldu þar á mis-
munandi tímum. Einnig bauðst þú
elstu barnabörnunum að fara með
þér á enskuskóla í Bretlandi, sem
þau höfðu mikið gaman af. Þannig
var stórfjölskyldan alltaf númer eitt
á undan öllum öðrum.
Manngæska þín var einstök og þú
varst alltaf tilbúin til hjálpar. Þar
voruð þið hjónin samtaka meðan
Sigurður lifði og um það geta marg-
ir vitnað, sem nutu ykkar gjafmildi.
Þú barst mikla umhyggju fyrir
þeim, sem sjúkir voru, og virtist
þannig hafa eðlislæga hjúkrunar-
hæfileika.
Þótt þú hafir ekki farið varhluta
af veikindum á langri ævi verður
varla annað sagt en að þú hafir ver-
ið tiltölulega heilsuhraust og verið
dugleg að fara allra þinna ferða. Þú
varst dugleg að keyra bílinn þinn
fram að áttræðisaldri og hafðir
mikla ánægju af að vera frjáls og
geta skotist hvert á land sem var
eða milli staða í Reykjavík. Ófáar
voru gönguferðirnar frá heimili þínu
í Árskógum í Mjóddina ýmist til
innkaupa eða til að fá sér kaffi með
ættingjum eða vinum í bakaríinu.
Svo hafðir þú einstakt dálæti á
kyrrðarstundum í Breiðholtskirkju
og þar varst þú gestur í hverju mið-
vikudagshádegi.
Það er ánægjulegt að minnast
allra ferðanna til æskustöðva þinna
á Eyrarbakka, en á þeim höfðu þið
hjónin sérstakt dálæti. Það var mik-
il framsýni þegar þið Sigurður
keyptuð Gunnarshólmann, til að
nýta til sumardvalar fyrir fjölskyld-
una, enda vilduð þið hvergi annars
staðar vera í fríum ykkar og börn,
tengdabörn og barnabörn nutu góðs
af. Þótt þetta athvarf væri síðar
selt, veit ég að þú hefur fylgst af
áhuga með þeim endurbótum, sem
gerðar hafa verið á þessu vandaða
timburhúsi sem faðir þinn teiknaði
og byggði frá grunni.
Einnig eru minnisstæðar sam-
verustundirnar í afmælinu þínu á
nýársdag en það var nánast árlegur
viðburður í þau 40 ár, sem ég hef
þekkt þig. Þar var alla tíð veitt af
miklum myndarskap og sérstaklega
voru pönnukökurnar góðar að öðru
ólöstuðu. Tvö stórafmæli voru hald-
in í Árskógasalnum og það þriðja
átti að halda helgina áður en þú yf-
irgafst þennan heim.
Ég vil ljúka þessum orðum með
því að þakka þér fyrir samfylgdina í
40 ár og megi guð blessa minningu
þína um ókomin ár.
Þinn tengdasonur,
Árni.
Elsku Vigga. Kynni okkar Viggu
hófust þegar Matti kynnti mig fyrir
foreldrum sínum, ég þá ung að ár-
um. Það fór ekki á milli mála að
þessi glæsilega kona tók vel á móti
mér og hafði góða nærveru og átti
eftir að vera stór hluti af mínu lífi.
Þú varst engum lík, gefandi, hafðir
gaman af söng, hafðir gott lag á
börnum og varst ávallt með hugann
hjá fólkinu þínu. Þú varst úrræða-
góð og hægt að leita til þín hvenær
sem var og ávallt tilbúin að gefa góð
ráð.
Ég dáðist að þér hvað þú varst
dugleg að búa ein öll þessi ár eftir
að þú misstir Sigga þinn. Ég á þér
margt að þakka fyrir þau frábæru
ár sem við áttum saman og þú
hjálpaðir okkur með börnin á meðan
ég fór að vinna eftir að litla Vigdís
kom í heiminn. Það voru góðar
stundir sem börnin aldrei gleyma og
minnast allt sitt líf, því þau fengu að
njóta umhyggju þinnar og hlýju. Þú
varst alltaf heima þegar þau komu
úr skólanum til að hlúa að þeim.
Margar góðar ferðir áttum við
saman, hvort sem við fórum til út-
landa eða ferðuðumst hér innan-
lands, sem þér fannst skemmtileg-
ast. Fara með þér austur fyrir fjall
og heyra þig lýsa litunum í um-
hverfinu og telja upp fjöllin, segja
frá kirkjunum sem faðir þinn tók
þátt í að byggja. Þetta umhverfi
þekktir þú best allra. Oft þegar við
sóttum hestamót komst þú með
okkur að fylgjast með krökkunum
keppa og það fór ekki á milli mála
hjá Viggu ömmu hvaða hestur var
fallegastur og hvaða knapi sæti
hestinn best því hún stóð alltaf með
sínu fólki, en svona var Vigga
amma.
Mörg áramót höfum við fjölskyld-
an verið saman og þú með okkur.
Eftir miðnætti komu vinir og kunn-
ingjar barna okkar og tóku þátt í af-
mælissöng Viggu ömmu því hún var
fædd á nýársdag. Hún dásamaði
unga fólkið á eftir. Þetta árið var
þín sárt saknað þar sem heilsa þín
leyfði ekki að þú gætir notið stund-
arinnar með okkur. Amma Vigga
var ávallt mætt með myndavélina
sína þegar uppákomur voru í fjöl-
skyldunni og ekki leið á löngu þar
til við fengum myndir í umslagi sem
geyma góðar minningar.
Nú kveð ég þig elsku Vigdís mín
og óska þér góðrar ferðar til lands-
ins þar sem Sigurður bíður þín. Með
innilegri þökk og virðingu kveð ég
þig elsku Vigdís tengdamóðir mín.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Þín
Selma.
Elsku amma Vigga. Ég kveð þig
með góðar minningar um samveru
okkar sem ég ætíð geymi.
Uppáhaldsárstíminn þinn var sum-
arið, og þá var oft gaman að fara
með þér í blómagarða og kaffihús,
þar sem þú fékkst þér alltaf í það
minnsta þrjá kaffibolla og við töl-
uðum um allt milli himins og jarðar.
Á yngri árum mínum keyrðum
við oft austur til að fara í sund í
Hveragerði og á Eyrarbakka í
göngutúra, þér leið vel þar. Þér
fannst alltaf mjög gaman að keyra
og vera úti í náttúrunni. Þú söngst
oft krummavísur við háttatíma þeg-
ar ég svaf heima hjá þér. Pönnsur,
te og hunang í Austurgerði.
Það var erfitt að horfa á það þeg-
ar þú veiktist fyrir nokkrum árum,
en þú komst þér úr þeim veikindum
enn sterkari og ákveðin í því að tak-
ast á við lífið eina ferðina enn.
Það var gaman að heyra hvað þér
fannst um ýmsa hluti, þú talaðir
aldrei um slæma hluti og reyndir
alltaf að horfa á björtu hliðarnar, en
varst með sterkar skoðanir á ýmsu.
Síðustu minningarnar okkar eru
frá kvöldinu sem við fórum öll sam-
an á jólahlaðborð. Eftir það vildi
Kiana mín endilega að við keyrðum
þig heim, og hélt í höndina á þér all-
an tímann og vildi ekki sleppa þér,
það var einstakt. Ég fór með þér
inn og sagði bless í síðasta sinn.
Ekki bjóst ég við því.
Þú vinkaðir bless og ég vinkaði á
móti.
Bless elsku amma mín, takk fyrir
að vera alltaf góð við mig og okkur.
Við vitum að Guð og englarnir
passa þig, hvíldu vel við hlið afa.
Við söknum þín.
Vigdís Valgerður
Eiríksdóttir
HINSTA KVEÐJA
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Kær vinkona er kvödd.
Innilegar samúðarkveðjur
til Ástu, Eiríks, Matta, Sigga
og fjölskyldna þeirra.
Ingibjörg Ragnarsdóttir.
✝
Hjartkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
KRISTJÁN BJÖRGVINSSON,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu Neskaupstað að
morgni þriðjudagsins 18. janúar.
Jarðarför fer fram frá Reyðarfjarðarkirkju þriðju-
daginn 25. janúar kl. 14.00.
Þuríður Kristín Guðlaugsdóttir,
Hjördís Sigurðardóttir, Sigurður Blöndal,
Guðlaugur Kristjánsson, Albertina Rosa Brodthagen,
Björgvin Kristjánsson, Elfa Kristín Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi,
HAFSTEINN SIGTRYGGSSON,
Mosfelli,
Ólafsvík,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands Akra-
nesi, þriðjudaginn 11. janúar, verður jarðsunginn
frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 22. janúar
kl. 14.00.
Sveinbjörn Sigtryggsson,
Bjarný Sigtryggsdóttir, Ríkarð Magnússon
og aðrir aðstandendur.