Morgunblaðið - 21.01.2011, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 21.01.2011, Blaðsíða 9
Í fyrradag var haldinn stofn- fundur Samtaka heilbrigðisiðn- aðarins. Samtökin munu starfa sem starfsgreinahópur innan Samtaka iðnaðarins. Stofnfélagar eru á annan tug fyrirtækja, bæði öflug tæknifyr- irtæki sem og smærri fyrirtæki. Á stofnfundinum var kosin fimm manna stjórn. Formaður var kosin Perla Björk Egils- dóttir hjá SagaMedica. Með- stjórnendur voru kosnir Svein- björn Höskuldsson hjá Nox Medical, Jón Valgeirsson hjá Ac- tavis, Árni Þór Árnason hjá Ox- ymap og Garðar Þorvarðsson hjá Medical Algorithms. Vara- menn í stjórn voru kosnir Börk- ur Arnviðarson hjá ARTIC Se- quentia og Þorvaldur Ingvarsson hjá Össuri. Ný Samtök heilbrigðisiðnaðarins stofnuð. Ný samtök stofnuð BAKSVIÐ Andri Karl andri@mbl.is Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins á hendur níu einstaklingum sem ákærðir voru fyrir árás á Alþingi 8. desember 2008 lauk fyrir Héraðs- dómi Reykjavíkur síðdegis í gær. Lauk henni með munnlegum mál- flutningi þar sem ýmislegt athygl- isvert kom fram, m.a. að verjendur vilja skella skuldinni á starfsmenn Alþingis, þ.e. að þeir hafi skapað það ástand sem myndaðist. Athygli vakti einnig að settur saksóknari nýtti sér ekki tíma til andsvara eftir málflutn- ing verjenda. Áður en að verjendum kom flutti Lára V. Júlíusdóttir, settur rík- issaksóknari, ræðu sína. Hún sagði að umræddan dag hefði 30-40 manna hópur staðið að mótmælum og ekki hefði verið um friðsamleg mótmæli að ræða. Hópurinn hefði ruðst inn í Alþingishúsið með ógnandi fram- komu, ógnað og veist að þingvörðum og lögreglu með ofríki og ofbeldi. Um hefði verið að ræða árás á Alþingi. Að mati ákæruvaldsins var um að ræða þaulskipulagða árás á Al- þingi þar sem einstaklingum var gef- ið hlutverk á fundi í Iðnó klukkan 15. Um tíu mínútum síðar mættu fyrstu menn úr hópnum. Lára sagði ljóst að einum úr hópnum, Þór Sigurðssyni, hefði verið fengið það hlutverk að halda inngangi að Alþingi opnum. Á sama tíma hefði annar, Andri Leó Lemarquis, haldið þingverði þeim sem opnaði dyrnar þannig að hann gat ekki kallað eftir hjálp. Hópurinn hefði þá ruðst inn og margir hulið andlit sín. Lára sagði níumenningana, og hópinn allan, hafa ráðist í sameiningu að Alþingi til að trufla störf þess og hindra að þingfundur færi fram. Um skipulagt brot hefði verið að ræða og öryggi Alþingis hætta búin. Hún krafðist refsingar og fann fátt til refsilækkunar en fremur refsihækk- unar. Í löglegum erindagjörðum Verjendur fóru allir fram á að skjól- stæðingar sínir yrðu sýknaðir af öll- um kröfum. Án þess að fara yfir rök þessa í einstökum atriðum skal horft á heildarmyndina. Ragnar Að- alsteinsson, verjandi fjögurra sak- borninga, sagði málið pólitískt og á það reyndi hvort dómstólar væru í raun síðasta vígi almennings gegn öflugum öflum eins og ríkisvaldinu. Ragnar orðaði það svo að um þrjátíu einstaklingar hefðu mætt í þinghúsið. Í fyrstu hefðu þeir verið boðnir velkomnir enda engin ákvörð- un sem lá fyrir um að þingpallar væru lokaðir. Þá hefði það gerst að einn þingvarða reyndi að hindra heimsókn gestanna, en Ragnar sagði að þeir hefðu verið þar í löglegum er- indagjörðum. Það hefði verið þá sem ástandið versnaði og það snögglega. Yfirmað- ur þingvarða ýtti á neyðarhnapp og sendi út árásarboð til lögreglu. Túlk- un lögreglu hefði verið sú að vopn- aðir menn væru að ráðast inn í Al- þingishúsið. Því hefðu allir tiltækir lögreglumenn verið sendir að þing- húsinu og árásarboðin skýrðu þann mikla æsing sem var meðal þeirra. „Alþingis er sök fyrir að hafa sent út röng boð,“ sagði Ragnar. Langt úr fyrir valdsvið Ragnar og síðar aðrir verjendur sögðu einnig að þingverðir hefðu far- ið langt út fyrir valdsvið sitt. Þeirra hlutverk væri að miðla upplýsingum en þarna hefðu þeir reynt að stöðva fullkomlega lögmæta heimsókn ein- staklinga á þingpallana. Og ekki nóg með það heldur hefðu þeir veist að þessum einstaklingum. Þá hefðu þeir sent út röng boð til lögreglu þannig að gífurleg ringulreið myndaðist í þinghúsinu og uppnám hjá lög- reglumönnum, en enginn þeirra vissi hver stýrði aðgerðum á vettvangi. Þeir hefðu hagað störfum sínum líkt og raunverulega hefði verið ráðist á Alþingi. Rannsókn ábótavant Brynjar Níelsson, verjandi tveggja sakborninga, benti á að settur rík- issaksóknari hefði spurt alla ákærðu hver tilgangur ferðarinnar í Alþing- ishúsið hefði verið. Brynjar sagði spurninguna setta fram vegna þess að ekki hefði verið upplýst um til- ganginn. Sumir hefðu svarað því til að þeir hefðu ætlað á þingpalla og láta skoðun sína í ljós, láta í sér heyra. „En það er ákært fyrir brot gegn Alþingi,“ sagði Brynjar og bætti við að hann skildi ekkert í þess- ari ákæru. Þá benti hann á að ekki hefði verið upplýst hvernig Alþingi var hætta búin, hvernig sjálfræði þess var ógnað. Áður hafði Tryggvi Agn- arsson, verjandi tveggja sakborn- inga, bent á að lögregla hefði rann- sakað málið líkt og það væri ekkert sérstaklega alvarlegt. Og Ragnar benti á að þessi atriði hefðu aldrei komið til rannsóknar hjá lögreglu. Jafnframt sagði Brynjar að búið væri að snúa öllu á haus, enginn níu- menninga hefði veist að þingvörðum eða lögreglu heldur væri því öfugt farið. Sakborningar hefðu verið þarna í friðsamlegum tilgangi. Fundu þingvörðum Alþingis allt til foráttu  Verjendur sögðu starfsmenn þingsins bera alla ábyrgð Morgunblaðið/Árni Sæberg Héraðsdómur Setið var í hverju einasta sæti hverja einustu mínútu á meðan aðalmeðferðinni stóð. Og ávallt biðu stuðningsmenn fyrir utan. Ákæran » Allir eru sakborningar ákærðir fyrir brot gegn Alþingi, brot gegn valdstjórninni, al- mannafriði og allsherjarreglu og húsbrot. » Brotin frömdu þeir með því að hafa í heimildarleysi ruðst inn í Alþingishúsið við Austurvöll meðan á þingfundi stóð. » Þannig rufu þeir friðhelgi Alþingis og starfsfrið auk þess sem öryggi Alþingis var hætta búin. FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2011 Í dag, föstudag, kl. 12-13:30 standa Fræðasetur þriðja geirans og Almannaheill fyrir málstofu undir heitinu „Matarúthlutanir: Núverandi staða og framtíðarsýn“. Málstofan fer fram í ráðstefnusal Radisson SAS (Hótels Sögu) við Hagatorg í Reykjavík í ráð- stefnusal Harvard-1. Alls munu fimm framsögumenn taka til máls en að því loknu verða pallborðsumræður. Í tilkynningu segir að þúsundir manna hafi fengið úthlutaðan mat í desember sl. Vegna umfangsins hafi myndast langar biðraðir þar sem fólk þarf að bíða klukku- stundum saman. Talið er að hvergi annars staðar á Norð- urlöndunum þurfi fólk að standa í biðröðum til að fá úthlutuð mat- væli í poka. Hádegismál- stofa um matar- úthlutanir MARK er ný miðstöð marg- breytileika- og kynjarannsókna á félagsvísindasviði Háskóla Ís- lands. Í dag kl. 15.30 verður haldið opnunarmálþing í stofu 101 í Odda. Flutt verða sjö erindi. Málstofustjóri er Hanna Björg Sigurjónsdóttir. Málþingið er öllum opið. Ný miðstöð STUTT Bæjarlind 6, sími 554 7030 Eddufelli 2, sími 557 1730 www.rita.is Útsala Enn meiri verðlækkun Verð áður: Verð nú: Toppar 9.900 kr. 2.000 kr. Toppar 5.900 kr. 2.000 kr. Bolero 9.900 kr. 2.000 kr. Bolero 7.900 kr. 2.000 kr. Mussa 4.900 kr. 1.900 kr. bolir 8.900 kr. 2.000 kr. bolir 6.900 kr. 2.000 kr. Gerið góð kaup á útsölunni Verðdæmi: Útsala Nýtt kortatímabil Opið 11-18 virka daga, 11-15 laugard. Hæðasmára 4 – Í sama húsi og Bílaapótek fyrir ofan Smáralind Símar 555 7355 og 553 7355 30-60% afsláttur af völdum vörum Á SKÍÐI FYRIR AUSTAN - Flug, skíðapassi og gisting á Icelandair Hótel Héraði Egilsstöðum >> Flogið til Egilsstaða á fimmtudegi. >> Skíðapassi á skíðasvæðið Stafdal, Seyðisfirði. >> Tilboðsverð á flugi og gistingu janúar – apríl 2011.25.700 kr. Bókaðu hjá hópadeild í síma 570 3075 eða hopadeild@flugfelag.is Verð frá á mann í tveggja manna herbergi. mbl.is smáauglýsingar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.