Morgunblaðið - 21.01.2011, Blaðsíða 40
Það eru engar smá söng-konur sem fara með aðal-hlutverkin í kvikmyndinniBurlesque og spennandi
að fá að sjá þær Cher og Christinu
Aquilera saman í kvikmynd.
Kannski sérstaklega spennandi að
sjá hvernig Aquilera myndi pluma
sig sem leikkona. Burlesque er
söngva- og dansmynd sem hlaut ný-
verið þrjár tilnefningar til Golden
Globe-verðlauna, m.a. sem besta
mynd ársins. Í kvikmyndinni segir
frá Ali (Christina Aquilera) sem er
ung sveitastúlka með mikla rödd og
munninn fyrir neðan nefið. Hún
ákveður að flýja vosbúðina og
óvissa framtíð og elta drauma sína
til Los Angeles þar sem hún rekst á
Burlesque-klúbbinn. Eigandi hans
er Tess (Cher) en hún berst í bökk-
um fyrir rekstri klúbbsins þar sem
reksturinn stefnir í gjaldþrot og
litlu má muna að staðnum verði lok-
að. Eftir nokkurt þref fær Ali Tess
til að ráða sig sem dansari í klúbb-
inn þar sem föngulegar stúlkur
sýna djörf dansatriði að burlesque-
sið. Ali fær síðan enn betra tæki-
færi til að sanna sig og verður loks
aðalstjarna Burlesque-klúbbsins.
Inn í atburðarásina fléttast síðan
drama á milli dansaranna og ást-
arævintýri Ali við samstarfsfélaga
sinn sem blómstrar smám saman.
Sagan sjálf er eins og gengur í slík-
um kvikmyndum, frekar þunn og
allt endar vel. En umgjörðin öll er
sérstaklega skemmtileg fyrir augað
og lyftistöng myndarinnar. Bún-
ingar dansaranna eru glæsilegir og
dansatriðin sjálf kröftug og fá mann
næstum til að rísa úr sætinu og
dansa með. Tvö slík atriði skera sig
sérstaklega úr en þar fær rödd
Aquilera að njóta sín til fulls og
minna atriðin á að horfa á nokkur af
flottustu tónlistarmyndböndum
söngkonunnar. Þær söngkonurnar
leika báðar ágætlega en helst er
óþægilegt að horfa á efri vör Cher
sem varla hreyfist þegar hún talar.
Annars er kvikmyndin hið mesta
augnayndi og hressandi nú í svart-
asta skammdeginu.
Hið mesta augnayndi
Smárabíó, Haskólabíó,
Borgarbíó
Burlesque
bbbmn
Leikstjórn og handrit: Steve Antin.
Aðalleikarar: Cher, Christina Agui-
lera og Alan Cumming. Bandaríkin,
2010. 120 mínútur.
MARÍA
ÓLAFSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Glamúrgellur Cher og Christina Aguilera í hlutverkum sínum.
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2011
Bob Dylan hefur gert samning við
bókaútgáfuna Simon & Schuster
um að skrifa sex bækur. Dylan
mun skrifa tvær bækur, sem verða
framhald af æviminningum hans,
Chronicles: Volume One, sem
komu út 2004. Þriðja bókin verður
byggð á útvarpsþáttum Dylans á
stöðinni Sirius XM. Ekki er ljóst
um hvað hinar þrjár bækurnar
eiga að fjalla.
Chronicles: Volume One vakti
mikla athygli þegar bókin kom út
og fékk góða dóma.
Dylan gerir
bókasamning
Rithöfundur Dylan skrifar bækur.
SÝND Í EGILSHÖLL
„BREATHTAKING“ - THE PEOPLE
HHHHH
MYND SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ Í BÍÓ
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA
SÝND Í EGILSHÖLL OG KEFLAVÍK
SÝND Í EGILSHÖLL OG SELFOSSISÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SPENNANDI ÆVINTÝRI SEM FÆR ÞIG TIL AÐ GRENJA ÚR HLÁTRI.
FRÁBÆR TEIKNIMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA.
HHHHH
„SKEMMTILEG, FYNDINN OG SPENNANDI”
- S.V BOXOFFICE MAGAZINE
SPARBÍÓ 3D á allar sýningar merktar með grænu950 kr..
Í 3DSÝND MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI LÖGIN ER BROTIN ÞEIM TIL BJARGAR
SETH ROGEN JAY CHOU
CHRISTOPH WALTZ
AND CAMERON DIAZ
KLOVN - THE MOVIE kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 14 HEREAFTER kl. 5:30 - 8 - 10:40 12
KLOVN - THE MOVIE kl. 8 - 10:20 VIP MEGAMIND 3D ísl. tal kl. 3:40 L
ÆVINTÝRALEGUR FLÓTTI ísl. tal kl. 3:403D - 5:503D L HARRY POTTER kl. 8 10
ROKLAND kl. 5:40 - 8 - 10:20 12 LIFE AS WE KNOW IT kl. 10:40 L
YOU AGAIN kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 L
/ ÁLFABAKKA
ÆVINTÝRALEGUR FLÓTTI 3D ísl. tal kl. 3:30 - 5:45 L GULLIVER'S TRAVELS 3D kl. 3:30 - 5:45 L
THE GREEN HORNET 3D kl. 5 - 8 - 10:40 12 HEREAFTER kl. 8 12
KLOVN - THE MOVIE kl. 5:45 - 8 - 10:15 14 TRON: LEGACY 3D kl. 10:40 10
ROKLAND kl. 8 - 10:30 12 MEGAMIND 3D ísl. tal kl. 3:30 L
/ EGILSHÖLL