Morgunblaðið - 09.02.2011, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2011
www.noatun.is
Fermingarveislur
Nánari upplýsingar á noatun.is eða í næstu Nóatúns verslun.
1990
KR./MANN
VERÐ FRÁ
AÐEINS
FRÉTTASKÝRING
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Neysluviðmiðin eru aðeins grunn-
ur til að byrja að byggja á. Þetta er
ekki endanlegt mat á neysluþörf.
Þá byggjast viðmiðin á miðgildi en
ekki meðaltali og grunar mig að
þau geti verið hærri. Viðmiðin sýna
hvað kjör öryrkja eru fáránlega
lág,“ segir Guðmundur Magnússon,
formaður Öryrkjabandalags Ís-
lands, spurður um neysluviðmið
velferðarráðuneytisins.
Vilja raunhæfar heildartölur
„Þetta höfum við vitað. Undan-
farin tvenn áramót hefði átt að
hækka bætur í takt við vísitölu um
20 til 25%. Neysluviðmiðin munu
því hafa bein áhrif á baráttu okkar.
Við munum styðjast við viðmiðin
og á næstunni greina hvað það er
sem þau taka ekki með í reikning-
inn. Við teljum að það sé ýmislegt
sem vantar í viðmiðin til þess að
þau endurspegli raunhæfar tölur.
Staðan er mjög alvarleg. Við vit-
um af mörgum sem þyrftu að sækja
um mataraðstoð en gera það ekki
stoltsins vegna. Þeim finnst það of
niðurlægjandi.“
– Munu viðmiðin gagnast ykkur í
kjaraviðræðum við stjórnvöld?
„Já. Ég held að það sé alveg
ljóst. Á næstu vikum og mánuðum
munum við birta skýrslur um
ástandið. Sú fyrsta er um fátækt og
örorku á Íslandi og kemur út 25.
febrúar. Það eru átakatímar fram-
undan. Það er alveg klárt mál.“
Skortir fé til framfærslu
Ásgerður Jóna Flosadóttir, for-
maður Fjölskylduhjálpar Íslands,
tekur undir að viðmiðin undirstriki
að tekjulágir hópa eigi erfitt með
að framfleyta sér.
„Það gefur augaleið að staðan er
grafalvarleg. Það hefur verið
kristaltært í okkar huga að fólk
hefur verið með alltof litla peninga
til að framfleyta þér. Grunnviðmið
fyrir einstakling á höfuðborgar-
svæðinu í eigin húsnæði er 292.000
krónur, að teknu tilliti til bifreiða-
og ferðakostnaðar. Það er langur
vegur frá því að fólk sem kemur til
okkar hafi haft svo miklar tekjur.
Ég tel að þessi upphæð fari mjög
nærri lagi til þess að fólk geti notið
þeirra lífsgæða sem við teljum okk-
ur öll þurfa á hverjum tíma.
Það er algengt að fólk sé að
borga á annað hundrað þúsund í
húsaleigu. Það má ekkert út af
bera, ef viðkomandi rekur bíl og
svo framvegis, til að fólk eigi í
erfiðleikum með að lifa eðlilegu
lífi.“
Mismunun í samfélaginu
Ásgerður Jóna telur að skort
hafi á umræðu um þá gjá sem sé að
myndast í lífskjörum almennings.
„Það var mikið rætt um launa-
og kynjajafnrétti á ráðstefnu vel-
ferðarráðuneytisins um daginn.
Eftir því sem ég kemst næst var
ekki talað um þá miklu lífskjara-
mismunun sem er á Íslandi. Þá á ég
við að það var ekki tekið á þeim
mikla mun sem er á lífsgæðum.
Konur og karlar sem hafa sömu
laun í lægstu launaþrepunum fara
á mis við mörg sjálfsögð lífsgæði.
Þau fara á mis við að geta vaknað á
morgnana án þess að hafa áhyggj-
ur, endalausar fjárhagsáhyggjur.
Margt af þessu fólki er heilsulítið.
Það býr við stöðuga örvæntingu.
Við erum að horfa upp á atvinnu-
laust fólk sem er búið að selja allt
sem það getur verið án til þess að
eiga fyrir nauðþurftum.“
Fundað um fátækt
Ljóst er að umræðu um viðmiðin
er ekki lokið og má nefna að
Landssamband framsóknarkvenna
stendur fyrir opnum pallborðsum-
ræðum á Hressingarskálanum ann-
að kvöld en þar verður hagsmuna-
aðilum boðið að taka þátt í
umræðum um grunnframfærslu og
neysluviðmið.
Morgunblaðið/Ernir
Styrkur Mat er úthlutað fyrir jólin, m.a. hjá Mæðrastyrksnefnd. Formaður Fjölskylduhjálpar Íslands segir tekjulága hópa eiga erfitt með að framleyta sér.
„Átakatímar framundan“
Formaður Öryrkjabandalags Íslands segir neysluviðmið vopn í baráttunni
Vill 20-25% hærri bótagreiðslur Fólk selur húsbúnað til að eiga fyrir mat
Mörg fljót hafa runnið til sjávar í ís-
lenskum stjórnmálum síðan Jó-
hanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra tók hús á Fjölskylduhjálpinni
miðvikudaginn 6. desember 2007 en
hún var þá ráðherra félagsmála.
Við það tilefni spurði blaðamaður
Morgunblaðsins Jóhönnu út í að-
gerðir stjórnvalda vegna aukinnar
fátæktar í landinu og svaraði hún því
þá til að vandamálið væri fjölþætt.
Var jafnframt haft eftir henni að
brýnt væri að ríkið og sveitarfélögin
ynnu saman að málinu. Framfærslu-
kostnaður væri of mikill miðað við
tekjur lægstu launahópa og það yrði
að leysa í kjarasamningum.
Tillögurnar settar í forgang
Síðan sagði Jóhanna orðrétt:
„Nefndir hafa verið starfandi við
að skoða heildarlausnir á málefnum
fátækra, m.a. á vegum ASÍ, og það
liggja fyrir tillögur í ráðuneytinu um
hvernig beri að taka á málinu.
Fljótlega verður sett á fót nefnd,
sem fer yfir tillögurnar og leggur til
hvernig best er að forgangsraða og
bæta stöðu þessara hópa. Neyðin er
því miður alltof mikil í okkar velferð-
arsamfélagi og það verður að taka á
henni með ýmsum hætti,“ sagði hún.
Sem fyrr segir hefur margt breyst
í þjóðfélaginu síðan í árslok 2007 og
má nefna að í desember það ár
mældist atvinnuleysi 0,8%, miðað við
um 8% nú. Þá hafa þúsundir flust af
landi eftir að harðna fór á dalnum.
Nefnd átti
að leysa
vandann
Jóhanna vildi taka á
framfærslukostnaði
Fjölskylduhjálpin Jóhanna ræðir
málin við Ásgerði Jónu árið 2007.
Morgunblaðið/Sverrir
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Mikil óvissa er um hvaða stefnu kjara-
viðræðurnar munu taka. Þrátt fyrir
einstaka fundi eru eiginlegar viðræður
um endurnýjun kjarasamninga hvergi
komnar á skrið. Flestir bíða eftir að
hreyfing komist á almenna vinnu-
markaðinn. „Það er þung undiralda,“
sagði einn af forystumönnum í viðræð-
unum í gær.
Fátt bendir til annars en að verkfall
hefjist í fiskimjölsverksmiðjum á
þriðjudaginn og aðgerðarhópur samn-
inganefndar Starfsgreinasambands-
ins fundaði í gær um aðgerðir til að
knýja á um gerð samninga.
Samtök atvinnulífsins hafa átt fundi
með fulltrúum einstakra landssam-
banda, að sögn Vilhjálms Egilssonar,
framkvæmdastjóra SA. „Við erum að
reyna að leita að hugmyndum um
hvernig við getum haldið áfram,“ segir
hann. Samtökin bíða eftir hvað ríkis-
stjórnin ætlar að gera varðandi stjórn-
kerfi fiskveiða en viðræður um sam-
ræmda launastefnu sigldu í strand í
seinasta mánuði vegna þess máls. Vil-
hjálmur segir að beðið sé eftir því
hvort ríkisstjórnin ætli að draga þenn-
an tappa úr með einhverjum hætti.
Sjávarútvegsráðherra boðaði á dögun-
um frumvarp um stjórnkerfi fiskveiða
en enn bólar ekkert á því. „Við höfum
talið að það þurfi að koma þessu sem
allra fyrst í umferð svo hægt verði að
fara að ræða efnislega um þetta mál,“
segir Vilhjálmur.
SA og samninganefndir iðnaðar-
mannafélaganna hafa hist nokkrum
sinnum og þar eru skoðaðir mögu-
leikar á gerð skammtímasamninga,
þótt SA leggi enn allt kapp á samninga
til þriggja ára. Þorbjörn Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Samiðnar,
segir að menn séu að þreifa á mögu-
leikum á gerð skammtímasamninga.
Vikan verði nýtt í að skoða ýmsar út-
færslur.
Ekki eftir miklu að slægjast
Gunnar Björnsson, formaður samn-
inganefndar ríkisins, segir viðræður
við starfsmenn hjá ríkinu fara rólega
af stað. Ríkið þarf að semja við mikinn
fjölda félaga því lausir kjarasamning-
ar á þeim vettvangi eru 56 talsins.
Ekki er eftir miklum kauphækkunum
að slægjast hjá ríkinu við núverandi
aðstæður. Þá gagnast skammtíma-
samningar lítið frá sjónarhóli ríkisins,
að sögn hans.
SA bíða eftir að ríkis-
stjórnin losi tappann
Hægagangur, óvissa og þung undiralda á vinnumarkaði
„Þetta mun aðeins efla okkur.
Viðmiðin sýna að ef við hefðum
tekjur í takt við þau, þá neydd-
umst við ekki til að skera niður
læknaþjónustu, lyfjakostnað og
aðrar nauðsynjar. Fólk getur ekki
veitt sér neitt. Mér sýnist stjórn-
völd stefna að því að senda 30%
þjóðarinnar í biðröð eftir mat,“
segir Guðmundur Ingi Kristins-
son, talsmaður Bótar, spurður um
nýju neysluviðmiðin. „Fólk er að
hringja í mig hálfgrátandi og
spyrja hvort við getum hjálpað
því. Það er neyðarástand. Fólk
kemur til mín
skelfingu lostið
vegna þess að
það á ekki fyrir
mat þegar það
er búið að gera
upp húsaleig-
una. Það fer
beint í raðir
eftir ókeypis
mat. Þeir sem
úthluta mat eru á margan hátt að
bjarga stjórninni. Því er ótrúlegt
að heyra stjórnina og borgina
gagnrýna aðstoðina.“
„Geta ekki veitt sér neitt“
TALSMAÐUR BÓTAR SEGIR FÓLK GRÁTANDI AF ÖRVINGLAN
Guðmundur Ingi
Kristinsson