Morgunblaðið - 09.02.2011, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 09.02.2011, Qupperneq 11
Fyrsta námskeiðið í vetur hjá Einari heitir „Áður en þú smellir af staf- rænni mynd“ og er fyrir byrjendur sem og aðeins lengra komna. Um námskeiðið segir: „Mikilvægt er að gera sér grein fyrir því að verkferill við vinnslu stafrænna mynda hefst áður en smellt er af. Ýmis atriði varðandi lýs- ingu, gæði, stillingar myndavéla, skráasniða og fleira er upphafið að því verkferli sem framundan er; – að gera góða mynd. Í stærðfræði lærum við samlagningu og frádrátt áður en við lærum margföldun og deilingu. Það sama á við um stafræna ljósmyndun, – við þurfum í upphafi að læra og skilja grunnlögmál stafrænna ljós- mynda áður en lengra er haldið. Til dæmis velja rétt minniskort, formatera kort, myndvinnsla í myndavélinni; hver er hún, hvenær og hvað skiptir máli í still- ingum á myndavélum, hvað er Raw- skráasnið, ISO-kjörstilling, white balance, white balance-viðmið, skilja histo- grams, lýsing fyrir stafrænar myndir og hámark upplýsinga, 16 og 8 bit, fílterar, vinnuum- hverfi og afrit.“ Næsta námskeið er kynning á ADOBE LIGHTROOM þar sem farið verður yfir grunnvirkni, skipulag og stillingar. Áður en þú smellir af stafrænni mynd NÁMSKEIÐIN Litríkar Ljósmynd eftir Einar sem hann hefur unnið með. Hann kennir meðal annars svona myndvinnslu. myndabóka og annað sem ég kann að finna áhuga fyrir,“ segir Einar en hann kennir hjá Cinema 2, fyrir ofan Kaffi Haiti við Reykjavíkur- höfn. Einar sérhæfir sig einnig í við- gerðum á gömlum ljósmyndum. „Frá október fram í nóvember er ég að gera við gamlar myndir og hlusta á tónlist sem á við hverju sinni. Oft er það blues, eða klassík þegar ég þarf að vinna fín smáat- riði. Þegar þeirri törn líkur fer ég að tína til efni um nýjungar sem hlaðist hafa upp hjá mér og end- urmennta mig. Til þess að hafa ákveðna svipu á þessari menntun set ég mér upp þessi innlendu námskeið en oft er besta leiðin til að læra hluti að kenna þá.“ Allt um námskeiðin sem Einar býður upp á má sjá undir „Vornám- skeið 2011“ á vefsíðunni www.focusonnature.is DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2011 „Ég held að ég sé komin með uppáhaldið mitt, það er Lucy McRae. Það eru í rauninni hún og lína sem hún hefur gert sem heitir LucyAndBart sem eru hún og Bart Hess. Hún kallar sig líkamsarkitekt og þetta er ekki tíska held- ur listaverk og arkitektúr á líkamann. Þetta er nokkuð sem mér finnst alveg nýtt; það er mikið pælt í smáatriðum, lit- um og nýjum formum. Svo er notað mikið af efnum og formum sem eru ekki vanalega sett á líkamann, t.d. froða, nælur, viður og blöðrur. Hún semsagt stökkbreytir lík- amanum í eitthvað nýtt, eins og hún búi til ævintýri eða sögu á líkamann,“ segir Ninna Þórarinsdóttir hönnuður beðin að segja frá uppáhaldshönnuðinum sínum. „Ég og Lucy bjuggum á sama tíma í Amsterdam fyrir um tveimur árum og ég uppgötvaði hana þá, við vorum í sama vinahópnum þar. Lucy er ævintýraleg, hugmyndarík og leikglöð. Hún vinnur mikið fyrir mynd- bönd og innsetningar og gerði síðast eitthvað fyrir tónlistarkonuna Robin, Lucy er sístækkandi nafn.“ Uppáhaldshönnuður Ninnu Þórarinsdóttur Hugmyndarík og leikglöð Ninna Þórarinsdóttir Ninna heldur fyrirlestur í Opna listaháskólanum á fimmtudaginn, 10. febrúar, kl. 12.05 í Skipholti 1, stofu 113. Ninna útskrifaðist með BA-gráðu í hönnun frá Design Academy Eindhoven úr deildinni Man and Identity árið 2006. Fyrirlest- urinn verður um námið og hvernig hún fékk að vaxa og vinna sem ein- staklingur með áhuga á mörgum vinnuaðferðum hönnunar. Froskur? Hönnun eftir LucyAndBart sem Ninna hrífst af. Vorið Þetta módel átti Íris Dögg Asare Helgadóttir sem sigraði í fantasíu flokki nema. Fallegt Negl- urnar hjá Írisi voru blómlegar. Undirbúin Una undirbýr módelið sitt sem var hið glæsilegasta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.