Morgunblaðið - 09.02.2011, Síða 23

Morgunblaðið - 09.02.2011, Síða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2011 Elsku amma mín. Ég sakna þín svo sárt, ég man þegar ég var yngri og við mamma bjuggum hjá þér tímabundið þegar afi dó. Þá skreið ég oft upp í til þín þegar mamma var farin að vinna og þú kenndir mér að hekla og prjóna. Við lágum stundum uppi í rúminu þínu til hádegis eða bara þangað til það komu gestir. Svo þegar þú flutt- Þórhildur Sigurðardóttir ✝ Þórhildur Sigurð-ardóttir hár- greiðslumeistari fæddist á Litla- Melstað í Reykjavík 10. júlí 1927. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 23. des- ember 2010. Útför Þórhildar fór fram frá Safn- aðarheimilinu í Sand- gerði, 29. desember 2010. ir í Miðhús kom ég oft til þín með teikning- arnar mínar því þú hafðir svo gaman af að skoða þær, við föndr- uðum alltaf eitthvað saman. Þú varst ein af þeim fáu sem ég gat talað við, og oft þegar mér leið illa kom ég til þín og þú vissir alltaf hvað væri best að gera. Þú dáðist oft að því hversu sterk ég var og þegar pabbi dó þá kom ég ekki eins oft til þín og ég var vön, ég vildi ekki að þú sæir að ég væri engan veginn eins sterk og þú hélst að ég væri. Þú grést með mér og vildir allt fyrir mig gera, innst inni vissi ég að þú værir að fara frá okkur, og ég var svo hrædd um að ég yrði of vön því að koma til þín og tala við þig þegar mér leið illa og ég var svo hrædd við að missa þig, þá hefði ég engan til að tala við, þar sem pabbi væri farinn. Ég var svo hrædd við að þurfa að ganga í gegn- um þetta allt aftur, og í staðinn fyrir að nota tímann sem ég hafði ennþá með þér þá lokaði ég mig frá þér til að þurfa ekki ganga í gegnum þetta allt aftur. En í seinasta skiptið sem ég sá þig sá ég svo eftir því að hafa ekki komið oftar til þín, þú lást inni á spítala og varst svo veik. Þá fyrst gerði ég mér grein fyrir því að þú værir að fara fyrir fullt og allt. Ég settist hjá þér og horfði bara á þig og trúði ekki að þú værir að fara frá mér. Ég vildi ekki trúa því að ég væri að fara að missa þig. Af hverju þurftir þú að fara? Hvernig myndi allt verða þegar þú værir farin? Hvern myndi ég tala við þegar mér liði illa? Þú gast alltaf gefið mér svör við öllum mínum spurningum. Á aðfangadag varstu alltaf hjá okkur en þessi jól voru tómleg. Eng- in amma við borðið og enginn pabbi til að heimsækja eftir matinn. Elsku amma mín, ég sakna þín svo innilega mikið, vildi óska þess að þú værir hjá okkur ennþá. Þín ömmustelpa, Dagný Lind. Amma okkar er lát- in og er sárt saknað. Heimsóknir okkar til Íslands frá heimalönd- um okkar, Englandi og Danmörku, verða aldrei samar, þegar hennar nýtur ekki lengur við. Hjartagæska hennar var einstök og gestrisnin aðdáunarverð. Sýnin af henni opn- Gyða Jónsdóttir ✝ Gyða Jónsdóttirfæddist á Sauð- árkróki 4. ágúst 1924. Hún lést á líknardeild Landakotsspítala 17. janúar 2011. Útför Gyðu fór fram frá Bústaða- kirkju 27. janúar 2011. andi dyrnar með breiðu brosi á andlit- inu og bjóðandi upp á heita drykki og pönnu- kökur líður okkur aldrei úr minni. Alltaf vorum við hjartanlega velkomnir, enda hafði hún sérstakt lag á að láta okkur líða eins og heima hjá okkur – og þá gilti einu, hvort við litum inn til hennar í spjall og kaffisopa, eða hvort heimsóknin átti að standa vikum sam- an. Alltaf var hún viðræðugóð. Hún var ekki bara góð til að hlusta, opin og áhugasöm um hagi okkar og fram- tíðaráform, heldur var hún líka sjálf gædd góðri frásagnargáfu. Bæði í hverdagslegu spjalli um hvað á daga okkar hafði drifið síðan síðast, og einnig sagði hún okkur fúslega af sjálfri sér og löngu lífi sínu. Sérstak- lega heillandi voru frásagnir af ferða- lögum hennar og bernsku. Hún hafði lifað gífurlegar breytingar og búið við aðstæður gjörólíkar uppvexti okkar, sem erfitt getur verið okkar kynslóð að gera sér í hugarlund, þannig að uppfræðandi var hún líka. Amma var sterk kona, sem lifað hafði og sigrast á margri raun. Að lokum þurru kraftarnir, en styrkur hennar mun lifa í minningum okkar allra, sem þekktum hana og elskuð- um. Amma, við munum alltaf minnast þín. Við munum hugsa til þín með að- dáun og minningin um þig mun veita okkur gleði og huggun um ókomna tíð. Kaare Ó. Stark, Kjartan Þór Óttarsson, Samuel Hjalti Bringsberg. Yndislega ættarjörð, ástarkveðju heyr þú mína, þakkarklökkva kveðjugjörð, kveð ég líf þitt, móðir jörð. Móðir bæði mild og hörð, mig þú tak í arma þína. Yndislega ættarjörð, ástarkveðju heyr þú mína. Fagra, dýra móðir mín minnar vöggu griðastaður nú er lífsins dagur dvín, dýra, kæra fóstra mín, búðu um mig við brjóstin þín. Bý ég þar um eilífð glaður. Fagra, dýra móðir mín, minnar vöggu griðastaður. (Sigurður Jónsson.) Þinn sonur, Magnús. Fallegan vetrardag í Reykjavík kvaddi amma mín þennan heim. Elsa amma var einstök kona sem ólst upp í Vatnsdal á bænum Flögu, tók þar seinna við búi foreldra sinna en ákvað að flytja til borgarinnar Elsa Lyng Magnúsdóttir ✝ Elsa Lyng Magn-úsdóttir frá Flögu í Vatnsdal fæddist 15. desember 1917. Hún lést á Droplaug- arstöðum 11. janúar 2011. Elsa var jarðsungin frá Fossvogskapellu í Reykjavík 25. janúar 2011. þegar hún var um miðjan aldur. Þegar til Reykjavíkur kom einkenndist líf hennar af ferðalögum og áhuga á handverki. Var hún því sveita- kona og heimskona í senn. Minning mín um ömmu er minning um konu sem var mikill fagurkeri og náttúru- unnandi. Hún helgaði skógrækt í Vatnsdal mörgum sumrum, en þar átti hún fallegan reit sem kall- aður er Vinaminni. Þar gekk hún um landið og skoðaði blómin og trén. Þegar rigndi var spilað, lagðir kaplar og gripið til handavinnu. Eft- ir ömmu liggur handverk sem er ómetanlegt. Á milli þess að vera í sveitinni og Reykjavík ferðaðist hún mikið. Fékk ég að upplifa eina af ferðum hennar þegar ég var á fermingar- aldri. Sú ferð er mér dýrmæt og lærdómsrík. Að fá að ferðast með ömmu sinni og skoða fallega náttúru og handverk reyndi dálítið á þol- inmæðina hjá unglingi en amma hafði lag á því að leysa hlutina frið- samlega. Amma var ávallt hlédræg kona en heimssýn hennar og skoð- anir voru sterkar og maður bar mikla virðingu fyrir þeim. En húm- oristi var hún mikill sem kom sterkt í ljós þegar hún var að fá upphring- ingar frá ungum piltum sem ætluðu að hringja í nöfnu hennar. Nefndi hún við mig að hinn kurteisasti pilt- ur hefði hringt í sig og spurt eftir Elsu Lyng og svaraði hún að sú væri en væri helst til gömul fyrir hann! Þakkaði hún honum bara fyrir hringinguna og sagðist hafa haft gaman af. Einnig bárust bréf til ömmu sem áttu að sjálfsögðu að berast til nöfnu hennar en fannst henni þetta allt saman bara mjög skemmtilegt. Hef ég ávallt borið stolt nafn ömmu minnar. Amma var alltaf vel til fara og með fallegan varalit. Heimili hennar var hlýlegt með miklu handverki sem maður dáðist að. Hjá ömmu voru alltaf rólegheit og spjallað und- ir góðu kaffi. Þegar amma varð 90 ára flutti hún á Droplaugarstaði. Þakka ég þeim sem þar vinna fyrir að hafa hugsað vel um ömmu mína. Þegar við héldum upp á 93 ára af- mælið hennar í desember var mikið spjallað og naut amma þess að vera með langömmubörnunum sínum. Heyrn hennar var byrjuð að dala mikið en það var nóg að leggja lítinn lófa í hönd hennar og sá maður hvað það kom í stað allra heimsins orða. Einnig er notalegt að hugsa til þess að amma náði að njóta jólanna með okkur í faðmi ástvina. Ég kveð ömmu mína með mikilli ást, virðingu og lærdóm á lífinu og veit í hjarta mínu hvað hún var sátt að kveðja þetta líf. Ég trúi því að nú sé amma umvafin ástvinum sem fallnir eru frá og fremst í þeim hópi er systir mín hún Margrét. Hún og amma voru alltaf miklar vinkonur og það var sárt fyrir ömmu þegar hún féll frá. Hugsa ég nú til endur- funda þeirra þar sem amma getur leitt ljúfa hendi systur minnar og gengið saman sælar og sáttar. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. (Ásmundur Eiríksson) Elsa Lyng Magnúsdóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ÞORFINNUR VALDIMARSSON, Löngumýri 21, Selfossi, lést á heimili sínu að morgni miðvikudagsins 2. febrúar. Útför hans fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 12. febrúar kl. 11.00. Margrét Lúðvígsdóttir, Þór Þorfinnsson, Hrefna Egilsdóttir, Ástríður Þorfinnsdóttir, Lúðvíg Lúther Þorfinnsson, Silja S. Þorsteinsdóttir og barnabörn. ✝ Móðursystir okkar og mágkona, ÞORBJÖRG ANDRÉSDÓTTIR, Bólstaðarhlíð 44, Reykjavík, sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn 31. janúar, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 10. febrúar kl. 13.00. Andrés Svavarsson, Kristín Svava Svavarsdóttir, Guðni Birgir Svavarsson, Rannveig Beiter, Svavar Guðnason og fjölskyldur. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir, afi og langafi okkar, EYSTEINN ÓSKAR EINARSSON bókbindari, Furugrund 70, sem lést þriðjudaginn 1. febrúar á hjúkrunarheim- ilinu Sunnuhlíð, verður jarðsunginn frá Neskirkju föstudaginn 11. febrúar kl. 15.00. Sigríður Sörensdóttir, Úlfar Eysteinsson, Björn Eysteinsson, Bryndís Eysteinsdóttir, Hildur Eysteinsdóttir, Ólöf Edda Eysteinsdóttir, Hulda Mary Breiðfjörð, Heiðar Pétur Breiðfjörð, Pálmar Breiðfjörð og fjölskyldur. ✝ Við þökkum sýnda samúð og hlýju við andlát elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, HJÁLMARS ÞORLEIFSSONAR, Áshamri 31, sem lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja laugardaginn 22. janúar. Sérstakar þakkir eru til starfsfólks Heilbrigðisstofn- unar Vestmannaeyja fyrir góða umönnun. Kristín Björnsdóttir, Inga Hjálmarsdóttir, Júlíus V. Óskarsson, Ólafur Hjálmarsson, Sigríður Anna Einarsdóttir, Þorleifur Hjálmarsson, Sigurdís Harpa Arnarsdóttir, Soffía Birna Hjálmarsdóttir, Þorvaldur Ásgeirsson og barnabörn. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HERBERT GRÄNZ málarameistari, Mánavegi 4, Selfossi, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju föstudaginn 11. febrúar og hefst athöfnin kl. 13.30. Erla Jakobsdóttir, Rúnar Jakob Gränz, Eygló Lilja Gränz, Viðar Bjarnason, Emilía Björk Gränz, Gísli Árni Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.