Morgunblaðið - 09.02.2011, Side 25

Morgunblaðið - 09.02.2011, Side 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2011 Ég er orðlaus. Hvað skrifar maður um fal- lega, yndislega, glaða, góða, skemmtilega og hlýja bróður sinn sem fallinn er nú frá okkur öllum sem elskuðum hann svo heitt, í blóma lífsins. Ég gæti skrifað heila bók um hann Sigurjón minn, bara ekki núna þar sem ég skil ekki hvernig lífið getur verið svona sárt. Samt er eitt sem ég veit, og það er að ég er svo yfir mig þakklát fyrir að hafa fengið að taka þátt í lífi hans frá því við vorum þriggja ára. Sig- urjón var einstök manneskja í alla staði. Hann lét alltaf öllum líða vel í kringum sig. Með fallega brosinu sínu, stríðni og glettni kveikti hann í hjarta manns gleði og fögnuð á sinn einstaka hátt. Allt sem hann tók sér fyrir hendur gerði hann vel, og tón- listin átti hug hans allan. Hann var tónlistarmaður í húð og hár og fyrir níu árum sneri hann sér alfarið að tónlistinni með dyggum stuðningi frá sinni heittelskuðu Þórunni. Hann var bara rétt að byrja. Maðurinn sem hafði svo mikið að gefa af sér með fal- legri rödd sinni og hæfileikum. Elsku stórkostlegi Sigurjón minn. Ég þakka fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman og ég mun ylja mér við minningarnar um ljúfan og yndislegan bróður sem ég var svo lánsöm að fá að eiga hlut í. Ég mun sakna þín alla tíð, það er stórt tóm í hjarta mínu sem verður ekki aftur fyllt. Ég mun vaka yfir börnum þínum. Ég elska þig. Þín systir, Nína Dögg. Það er laugardagskvöld í Breið- holtinu. Eldri kona með hrokkið hár tekur af sér gula gúmmíhanska og skellir þeim í eldhúsvaskinn. Hún lít- ur upp í átt að eldhúsklukku á veggn- um. Tíminn líður hratt. Hún flýtir sér að ísskápnum og tekur út disk umvafinn plasti. Hellir sér vatni í glas og rýkur út úr eldhúsinu og inn í stofu. Hún kemur sér vel fyrir í nú- tímalegum leðurklæddum ruggustól með þægilegum fótstuðningi. Hún teygir sig eftir sjónvarpsfjarstýringu og beinir henni í átt að túbusjónvarp- inu sínu sem vill ekki fara í gang. Hún rís upp og bölvar þeim sem áttu að vera löngu búnir að lagfæra þetta fyrir hana. Hnappnum er þrýst inn, kveikiþráðarhljóð heyrist og mynd birtist fljótlega á skjánum. Konan kemur sér aftur fyrir í ruggustólnum og tekur upp plastvafða diskinn þar sem hún er með nýlega smurt brauð. Meðan hún gæðir sér á brauðinu hefst upphafstef þáttarins Bingó Lottó. Hún herpist öll saman, lítur í átt að glerskápnum við hlið sér þar sem fjölskyldumyndir og postulíns- safnið geymist og krossleggur fing- ur. Ingvi Hrafn er mættur á skjáinn. „Já, verið velkomin í þáttinn, í kvöld Sigurjón Brink ✝ Sigurjón Brinkfæddist í Reykja- vík 29. ágúst 1974. Hann varð bráð- kvaddur á heimili sínu í Garðabæ 17. janúar 2011. Útför Sigurjóns fór fram frá Grafarvogs- kirkju 27. janúar 2011. erum við með ótrúleg- ustu vinninga í boði.“ Konan fylgist stjörf með ferðum Ingva á skjánum. „Nú er kom- ið að því, við ætlum að hringja í vinningshafa lukkuleiksins. Það eru ýmsir veglegir vinn- ingar í boði og ég bið ykkur sem sitjið heima fyrir að vera tilbúin ef síminn skyldi hringja.“ Fótstuðningurinn leggst saman og síðan inn í ruggustólinn. Hún er komin í viðbragðsstöðu. Spegilmynd sjónvarpsins varpast í gleraugunum. Ingvi Hrafn í hægum skrefum og með sérkennilega djúpa rödd. Allt virðist gerast löturhægt. Sími hringir og konan þýtur í átt að forstofuholi. Hún kastar sér að símaskenknum og tekur upp símann í hvelli. „Já, halló“. Konan reynir hvað hún getur að leika sig rólega. „Já, góða kvöldið, Kristín Aðalheiður Óskarsdóttir. Ert það þú?“ „Já,“ svarar konan. „Komdu sæl og bless- uð. Ingvi Hrafn heiti ég og hringi úr sjónvarpsþættinum Bingó Lottó. Þú hefur …“ Kristín grípur fljótlega inn í „Guð minn góður vann ég, ég trúi þessu ekki“. „Nei, en þú verður að gera það því þú hefur unnið ferð fyrir tvo til Benidorm.“ Kristín stekkur hæð sína af gleði þrátt fyrir háan ald- ur. „Vann ég, vann ég í alvörunni, ég trúi þessu ekki hvenær get ég farið, hverjum á ég að bjóða með?“ „Amma, amma“, kunnugleg rödd heyrist á hinum enda línunnar, „Þetta er ég, Sjonni.“ Núna eru þau saman. Hún hefur tekið á móti honum með opnum örm- um og mun hugsa um hann á þessum nýja stað. Ætli þau liggi ekki á ströndinni á Benidorm eftir að hafa slædað sér niður Waterslide saman. Sigurjón, bróðir minn, verður allt- af hjá mér. Ég finn fyrir honum núna. Ég veit að hann mun halda áfram að vernda mig og passa eins og stóra bróður einum er lagið. Ég mun ávallt elska þig, elsku bróðir. Árni Filippusson. Við viljum minnast Sjonna vinar okkar og skólabróður með örfáum orðum. Sjonni var mikill gleðigjafi og skemmst er að minnast endurfunda 7́4 árgangs Seljaskóla sl. september þar sem við áttum góðar stundir sam- an. Sjonni, þín verður sárt saknað. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Fjölskyldu Sjonna sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Skólasystur úr Seljaskóla, Áslaug, Berglind, Elsa, Elín Sjöfn, Erna María, Fríða Dóra, Guðbjörg, Ingibjörg Ásta, Ragnheiður Mjöll, Soffía, Sólveig og Telma. Rödd Sjonna Brink er skyndilega þögnuð á öldum ljósvakans. Harm okkar berum við í hljóði, orðlaus yfir þessu sviplega og sorglega fráfalli. Það var fyrir nokkrum árum síðan sem söngvarinn, lagahöfundurinn og skemmtikrafturinn Sigurjón Brink bættist í hóp útvarpsmanna okkar. Það er óhætt að segja að hann hafi verið dáður af hlustendum sínum og samstarfsfólki enda sjarmatröll með einstaklega þægilega nærveru, hlýr og góður drengur. Ætíð var Sjonni boðinn og búinn að skemmta fólki og sjálfum sér í leiðinni, þess nutum við oft. Hann sem átti svo mikið eftir kveður á sama tíma og vinsælasta sönglag hans á ferlinum hljómar ótt og títt dag hvern. „Tíminn æðir áfram enn“ segir í laginu og þannig er það víst, en fátækari erum við að fá ekki meiri tíma með hæfileikamanninum Sigurjóni Brink. Tónlist hans og söngur mun fylgja okkur um ókomna tíð og við samstarfsfólk hans erum þakklát fyrir tímann sem við fengum með honum. Fjölskyldu hans, börn- um, ættingjum og vinahópnum stóra færum við okkar innilegustu samúð- arkveðjur. F.h. vinnufélaga hjá 365 miðlum, Pálmi Guðmundsson. Það var glaðlegur og brosmildur jafnaldri okkar sem mætti til náms í Seljaskóla þegar skóli var settur haust eitt í lok níunda áratugarins. Þetta var Sigurjón Brink, eða Sjonni eins og við kölluðum hann öll. Það sem alla tíð hefur einkennt 1974-árganginn í Seljaskóla sem út- skrifaðist þaðan árið 1990 er gríðar- leg samstaða, samkennd og órjúfan- leg vináttubönd sem halda enn í dag og eru órjúfanlegur þáttur æskunnar, þar sem margir eignast sína lífstíð- arvini. Fráfall Sjonna er okkur öllum þungbær og mikill harmur því ekki eru nema nokkrir mánuðir síðan þessi sami árgangur hittist allur á ný eftir tvo áratugi frá útskrift og gerði sér glaðan dag og treysti vinaböndin enn frekar. Sjonni var einn af þeim einstak- lingum sem eiga afar auðvelt með að eignast nýja vini, opinn, hress og sí- brosandi. Við sem þekktum Sjonna sáum snemma og fljótt í hvaða átt hugur hans stefndi; á svið lista, tón- listar og sköpunar, enda voru fáir með jafngott viðbragð á að munda gítarinn og hefja upp raust ef á annað borð var rætt um söng og gítarspil í sömu setningunni. Það sást mjög glöggt þegar árgangurinn hittist nú í vor. Ekki var gítarinn langt undan og kyrjaðir voru nokkrir slagarar úr for- tíðinni af stórum kór undir forsöng Sjonna svo glumdi í salnum. Sjonni var alla tíð mjög virkur þátt- takandi í miklu og blómlegu félagslífi skólans, hvort sem var á sviði tónlist- ar eða annarra starfa. Það átti svo síðar eftir að vinda upp á sig er grunnskóla lauk og stofnuð var hljómsveitin In Bloom sem öll var skipuð einstaklingum og æskuvinum úr Seljaskóla og átti sér marga og dygga aðdáendur úr röðum nemenda sem annarra. Við skólabræður og -systur Sjonna fylgdumst öll stolt með honum þegar hann var kominn til starfa á opinberum vettvangi, hvort sem var á tónlistar- eða leik- sviðinu. Um feril Sjonna þarf ekki að fjölyrða, Sjonni var búinn að koma sér í fremstu röð söngvara hérlendis og starfaði meðal þeirra bestu og fær- ustu á því sviði. Með þessum fáu orðum viljum við minnast vinar okkar Sigurjóns Brink. Stórt skarð hefur verið höggvið í okk- ar raðir, skarð sem aldrei verður fyllt. Við vottum eiginkonu, börnum, fjölskyldu, vinum og aðstandendum Sjonna okkar dýpstu samúð. Minningin um góðan og traustan vin lifir áfram í hug okkar allra og hjarta um alla eilífð. F.h. stjórnar endurfunda nem- enda Seljaskóla árgangs 1974, Ólafur Guðlaugsson. Elsku Sjonni Mér finnst þetta svo ósanngjarnt, þú ert farinn, fyrirvaralaust. Ég sá þig síðast á sviðinu í Aust- urbæ og þú hvíslaðir að mér að þú ætlaðir að læða þér út því þú værir með gigg. Ég kvaddi þig og blikkaði en vissi ekki þá að ég myndi aldrei njóta þess að vera með þér aftur. Þú varst svo kátur og fullur af lífi, með lag í úrslitum Söngvakeppninnar og allt í lukkunnar standi. En svo var þér kippt burt frá yndislegri fjöl- skyldu og vinum. Þú varst gleðigjafi, það hrifust all- ir af þér, þú varst góður sögumaður með húmorinn í lagi og svo gífurleg- ur hæfileikamaður í tónlist. Ég þakka fyrir að hafa kynnst þér og fengið að eiga tíma með þér. Ég mun sakna þín, elsku vinur. Minning þín lifir í brjósti mér, takk fyrir allar góðu stundirnar. Elsku Þórunn og fjölskylda, ég sendi ykkur öllum innilegar samúð- arkveðjur. Jóhann G. Jóhanns- son og fjölskylda. Elsku Þórunn, Aron, Kristín María, Haukur Örn og Róbert Hrafn. Til minningar um elsku Sjonna. Í dimmum skugga af löngu liðnum vetri mitt ljóð til þín var árum saman grafið. Svo ungur varstu, er hvarfstu út á haf- ið hugljúfur, glæstur, öllum drengjum betri. Og því varð allt svo hljótt við helfregn þína sem hefði klökkur gígjustrengur brost- ið. Og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið, sem hugsar til þín alla daga sína. En meðan árin þreyta hjörtu hinna, sem horfðu eftir þér í sárum trega, þá blómgast enn, og blómgast ævinlega, þitt bjarta vor í hugum vina þinna. Og skín ei ljúfast ævi þeirri yfir, sem ung á morgni lífsins staðar nemur, og eilíflega, óháð því, sem kemur, í æsku sinnar tignu fegurð lifir? Sem sjálfur Drottinn mildum lófum lyki um lífsins perlu í gullnu augnabliki – (Tómas Guðmundsson.) Megi Sigurjón Brink hvíla í friði. Ykkar vinir, Vilborg Edda, Valgeir Matthías, Stefanía Sól og Brynhildur Dís. Sjonni Brink. Nafnið þitt vekur minningar um bjarta brosið þitt og lífsgleðina sem þú heillaðir alla með. Við erum þakklátir fyrir að hafa fengið að kynnast þér og starfa með þér, einstökum höfðingja, fagmanni, félaga og gleðigjafa. Við strákarnir í hljómsveitinni Von munum alla tíð minnast stund- anna sem við áttum með þér enda frábær félagi með gott lífsviðhorf. Sjonni, þú gafst okkur svo mikið og gafst okkur hlut í metnaði þínum. Þú varst fyrirmyndargaur, hraust- legur, snyrtilegur með endalausa út- geislun sem hreif alla með. Þú sýndir öllum virðingu og skilning, hversu langt sem aðdáendur þínir gengu þá hafðir þú alltaf skilning og þolin- mæði. Gott dæmi um það er þegar við spiluðum á Húsavík fyrir fullu húsi í miklum troðningi. Í látunum færðu alla mannþvöguna á þig, dett- ur aftur fyrir þig og liggur flatur á sviðinu með gítarinn í fanginu en stendur bara upp og brosir, aftur skömmu seinna færðu ölduna á þig og míkrófóninn í andlitið, en þú gafst ekki upp, nei þetta var bara ekkert mál, svolítið vont en bara eðlilegt að taka því með breitt bros á vör. Því- líkur karakter og ljúfmenni. Sjonni, kannski framkvæmum við þína hug- mynd fyrir Von, sem þú laumaðir að mér. Hver veit, þótt hún hafi reyndar átt að vera fyrir okkur alla. Fjölskylda Sjonna var honum greinilega alltaf efst í huga og sam- vera með Þórunni hans og börnunum verðmæt. Megi bjartar minningar lifa með ykkur og styrkja í ykkar mikla missi, hugur okkar er hjá ykk- ur. Þín verður sárt saknað á svo mörgum stöðum og ekki síst á Króknum þar sem þú varst dáður. Þín orð um að þið strákarnir þyrftuð bara að kaupa ykkur íbúð á Krókn- um, þið kæmuð svo oft að heimsækja okkur á Kaffi Krók og Mælifell, renna í gegnum hugann. Þú og vinir þínir hafið verið svo duglegir að sinna okkur og aðdáendum ykkar á Króknum. Megir þú hvíla í friði, elsku Sjonni. Sigurpáll (Siggi Doddi) og Kristín Elfa. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Dýrahald Labrador Retriever svartir Erum orðnir 6 mánaða og húsvanir. Ættbókarfærðir HRFÍ. Sprautaðir. Örmerktir. Nótt á kr. 190 þús. og Mökkur og Nóri á kr. 160 þús. Uppl. í síma 695 9597 og 482 4010. Óska eftir Kaupi gamla mynt og seðla Óska eftir að kaupa gamla mynt eða seðla. Stór og smá myntsöfn. Kaupi einnig gullmynt og minnispeninga frá Seðlabankanum. Hafið samband í síma 825 1016. KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum gull til að smíða úr. Spörum gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. BílaþjónustaHúsviðhald Þak og utanhússklæðningar, gler og gluggaskipti. og allt húsaviðhald Ragnar V Sigurðsson ehf Sími 892 8647. ✝ Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem veittu okkur stuðning, vináttu og samúð við andlát og útför elsku eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður og afa, ÓLA G. JÓHANNSSONAR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki gjörgæslu- deildar Landspítalans fyrir þeirra kærleiksríka starf. Lilja Sigurðardóttir, Örn Ólason, Christina Nielsen, Sigurður Ólason, Áshildur Hlín Valtýsdóttir, Hjördís Óladóttir, Björn L. Þórisson, Hrefna Óladóttir, Sverrir Gestsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.