Morgunblaðið - 09.02.2011, Page 29

Morgunblaðið - 09.02.2011, Page 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2011 Sinfóníuhljómsveit Íslandstókst á við nokkra helstutónjöfra 20. aldarinnar átónleikum sínum sl. fimmtu- dagskvöld undir yfirskriftinni Stríð og friður. Áherslan var á austanverða Evrópu og var riðið á vaðið með Harmljóði Pendereckis. Verkið er samið fyrir strengja- hljóðfæri eingöngu en samt sem áður er hljóðheimurinn mjög fjölbreyttur. Hljóðfærunum er beitt sem slag- verkshljóðfærum á stundum, mikið um glissandó og þétta kvarttóna- klasa. Verkið hlaut ekki núverandi nafn sitt fyrr en eftir frumflutning þess en eigi að síður var tengingin við Hiroshima allt að því áþreifanleg. Með hæfilegu ímyndunarafli mátti heyra skerandi tóna loftvarnarflauta, þungan flugvéladyn, ærandi spreng- ingar, snark í eldi, brak í bognandi málmi og kvein fórnarlambanna. Þessari afdráttarlausu og sterku mynd var vel komið til skila af Brönn- iman og strengjasveitinni. Fiðlukonsert Sjostakovitsj var saminn um miðja síðustu öld þegar staða nútímalista var hvað erfiðust undir járnhæl stalínismans. Sjosta- kovitsj hafði verið gerður brottrækur frá kennslustörfum við háskólana í Moskvu og Leníngrad og fjöldi verka hans var á bannlista stjórnvalda. Frumflutningur verksins varð því ekki að veruleika fyrr er eftir dauða Stalíns, árið 1955. Verkið er í fjórum þáttum og tekur um 35 mínútur í flutningi, einkar fjölskrúðug tónsmíð. Hér skiptast á draumkennd nætur- ljóð, afkáralegir dansar og hröð scherzó, sem sveitin gerði skil í frá- bærum leik. Einleikarinn, Ari Þór Vilhjálmsson, kemur úr röðum hljóm- sveitarinnar og var hann stjarna kvöldsins að öðrum ólöstuðum. Fal- leg ljóðræn túlkun í hægu köflunum, geysikröftugur leikur í þeim hraðari og kadensan var stórkostleg, teflt á tæpasta vað í hraða og túlkun og allt gekk upp. Enda risu tónleikagestir úr sætum og hylltu Ara Þór með dynj- andi lófataki. Stórglæsileg frammi- staða! Eftir hlé bættust loks trompetar og básúnur í hópinn þegar tekist var á við hljómsveitarkonsert Lutos- lawskis. Í þessu tónlistarformi reynir mjög á einstaka hljóðfæraleikara og hljóðfærahópa þar sem allir fá að láta ljós sitt skína í krefjandi einleiks- og samleiksstrófum. Tónlistarform þetta varð mjög vinsælt á tuttugustu öldinni þegar gæði tónlistarflutnings jukust stórum skrefum með stórauk- inni tónlistarmenntun. Best þekkti hljómsveitarkonsertinn kom úr penna Bartóks og mátti heyra greini- legan skyldleika við hann á köflum. Það var ekki komið að tómum kof- unum hjá hljóðfæraleikurum Sinfón- íuhljómsveitar Íslands þetta kvöldið, allir stóðu sig með mikilli prýði undir glæsistjórn Baldurs Brönnimans og kórónuðu þessa frábæru kvöldstund. Stórglæsileg frammistaða! Háskólabíó Sinfóníuhljómsveit Íslandsbbbbm Krzysztof Penderecki: Harmljóð fyrir fórnarlömb Hiroshima, Dmitríj Sjos- takovitsj: Konsert fyrir fiðlu og hljóm- sveit op. 77/99, Witold Lutoslawski: Konsert fyrir hljómsveit. Ari Þór Vil- hjálmsson fiðla. Sinfóníuhljómsveit Ís- lands. Stjórnandi: Baldur Brönniman. Fimmtudaginn 3. febrúar kl.19:30. SNORRI VALSSON TÓNLIST Morgunblaðið/Árni Sæberg Ari Þór Vilhjálmsson „Falleg ljóðræn túlkun í hægu köflunum, geysikröft- ugur leikur í þeim hraðari og kadensan var stórkostleg...“ segir í dómnum. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Aðgengi að mörgum helstu lista- söfnum Bandaríkjanna og Evrópu breyttist verulega í síðustu viku. Nú þurfa áhugamenn um myndlist ekki lengur að bíða í röð við inngang safnanna eða vera stuggað á brott af ábúðarmiklum öryggisverði ef menn vilja reka nefið upp að málverkum til að rýna í smáatriði. Menn þurfa í rauninni ekki lengur að fljúga til annarra landa til að rýna í meistara- verkin. Þau eru komin á netið, með öllum sínum smáatriðum í boði Go- ogle (www.artproject.gom) og list- unnendur geta legið yfir verkunum eins lengi og þeir kjósa. Undirbúningur þessarar vefgátt- ar inn í þau 17 söfn, sem taka þátt í þessum fyrsta áfanga, hefur staðið í nokkur ár. Þetta eru mörg helstu listasöfn heimsins, eins og Metropo- litan og MoMA í New York, Uffizi í Flórens, National Gallery og Tate í London, Rijksmuseum og Van Gogh-safnið í Amsterdam og Hermitage í Pétursborg, en einnig minni söfn á borð við Frick Collect- ion í New York og Kampa-safnið í Prag. Önnur söfn og liststofnanir, þar á meðal Louvre í París og Prado í Madríd, munu bíða átekta og fylgj- ast með hvernig tekst til hjá þessum 17, áður en þau opna dyr sínar í gegnum Google. Rýnt í smáatriði listaverkanna Gestum á netinu er boðið að ganga um sali safnanna, snúa sér þar í hringi, bakka frá eða fara nær – og að fræðast um safnakostinn. Þótt áhorfandinn hafi salina fyrir sig er ferðalagið vissulega ekki hnökralaust og augljóst að vefurinn er enn í þróun. Þá eru flest verkin aðeins skoðanleg í lítilli upplausn. Hins vegar opnast þarna margir forvitnilegir heimar og einstakur aðgangur að völdum lykilverkum í hverju safni. Söfnin hafa valið ákveðin mynd- verk, tíu til fimmtíu verk hvert, sem hægt er að skoða niður í minnstu pensilför. Það gefur tækifæri til að læra margt um tækni og nálgun listamannanna, og bera jafnvel sam- an vinnubrögð. Heillandi er þannig að skoða smátriði eins og hvernig Bosch hefur breytt fingrum manns- ins lengst til vinstri í verkinu Krist- ur hæddur sem er í National Mu- seum í London, að rýna í notkun Caravaggios á háljósum í augum og húðtónum í Medúsu í Uffizi-safninu eða að skoða alla hlutina og bréf- snifsin sem er að finna í portretti Hans Holbeins af kaupmanninum Georg Gisze frá árinu 1532, en það er að finna í Gemäldegalerie. Áhersla á verk fyrri alda Gestir sem stíga inn í söfnin á netinu undrast margir hverjir hvaða verkum er slegið upp en ástæðan fyrir því snýst um höfundar- og birtingarrétt. Í The New York Tim- es er haft eftir yfirmanni hjá MoMA, að þau 17 verk sem safnið veitir fullkominn aðgang að, séu val- in því þau veki engar slíkar spurn- ignar um birtingarrétt, eins og raunin er með mörg nýrri mynd- verk. Því er áherslan oftast á verk fyrri alda í þessum netsýningum safnanna. Gengið um stærstu listasöfnin í tölvunni  Google býður net- notendum að rýna í listaverk 17 safna Í nærmynd Málverk eftir Hieronymus Bosch, Kristur hæddur, í National Gallery í London. Hér er rýnt í andlit Krists í verki sem var málað um 1500. Óp-hópurinn heldur tónleika í Saln- um í Kópavogi í dag, miðvikudag, klukkan 18. Í hópnum eru sjö ungir söngvarar sem hafa haslað sér völl með nærri 20 tónleikum á einu og hálfu ári. Á tónleikunum leitast fé- lagar hópsins, auk Antoníu Hevesi píanóleikara, við að færa tónleika- formið eins nærri óperuforminu og unnt er, með leikrænum flutningi atriða úr óperum eftir Bellini, Biz- et, Donizetti, Gershwin, Mozart og Tsjaikovskí. Þungt og létt í bland Tilgangurinn með starfsemi Óp- hópsins er að auka samvinnu söngv- aranna og gera þeim kleift að flytja samsöngsatriði úr óperum. Tón- leikagestir geta búist við leiknum atriðum úr óperum auk þess sem flytjendur segjast ýja að búningum og sviðsetningu eins og hægt er. Að þessu sinni samanstendur efn- isskráin af atriðum úr mjög vel þekktum óperum sem og öðrum minna þekktum. Meðal annars má nefna atriði úr Carmen eftir Bizet, Normu eftir Bellini, La Favorita eftir Donizetti og svo er farið nær nútímanum í Porgy og Bess eftir Gershwin. Lofað er þungu og léttu efni í bland, einhverju fyrir alla. Óp-hópurinn með leik- ræna tónleika í dag Óp-hópurinn Söngvararnir sjö og Antonía Hevesi píanóleikari. Verk eftir Ásgrím Jónsson frá árinu 1905 var slegið kaupanda á tæplega 5,2 milljónir króna, með gjöldum, á fyrri hluta listmuna- uppboðs Gallerís Foldar í fyrrakvöld. Seinni hluti uppboðsins var í gærkvöldi. Fjöldi fólks sótti uppboðið og fékkst hæsta verðið fyrir fyrrnefnt verk sem Ásgrímur málaði í Vestmannaeyjum. Var þetta tölu- vert yfir matsverði, sem var 3,5 milljónir. Þá seldist verk eftir Kristínu Jónsdóttur fyrir 1,2 milljónir króna, sem var matsverð, og verk eftir Jóhannes S. Kjarval á 2,2, millj- ónir, sem var rétt yfir matsverði. Mörg önnur verk seldust yfir matsverði. Ásgrímsverk selt fyrir rúmar fimm milljónir Seldist Verk Ásgríms Jóns- sonar af Eyjafjallajökli frá Vestmannaeyjum. 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið) Þri 22/2 kl. 20:00 forsýn Mið 2/3 kl. 20:00 Sun 6/3 kl. 20:00 Mið 23/2 kl. 20:00 forsýn Fös 4/3 kl. 19:00 Mið 9/3 kl. 20:00 Fim 24/2 kl. 20:00 forsýn Fös 4/3 kl. 22:00 Fös 11/3 kl. 19:00 Fös 25/2 kl. 20:00 frumsýn Lau 5/3 kl. 19:00 Fös 11/3 kl. 22:00 Lau 26/2 kl. 19:00 Lau 5/3 kl. 22:00 Mið 16/3 kl. 20:00 Forsalan hefst í dag kl 10! Ofviðrið (Stóra sviðið) Fim 10/2 kl. 20:00 10.k Sun 20/2 kl. 20:00 Fim 10/3 kl. 20:00 Fim 17/2 kl. 20:00 7.k Fim 3/3 kl. 20:00 Sun 13/3 kl. 20:00 Ástir, átök og leiftrandi húmor Fjölskyldan (Stóra svið) Fös 11/2 kl. 19:00 aukasýn Lau 12/3 kl. 19:00 aukasýn Fim 31/3 kl. 19:00 lokasýn Lau 19/2 kl. 19:00 aukasýn Sun 20/3 kl. 19:00 aukasýn Sun 27/2 kl. 19:00 aukasýn Sun 27/3 kl. 19:00 aukasýn Aukasýningar í mars vegna mikillar eftirspurnar Faust (Stóra svið) Lau 12/2 kl. 20:00 aukasýn Sun 13/2 kl. 20:00 aukasýn Fös 18/2 kl. 20:00 lokasýn Síðustu sýningar! Elsku Barn (Nýja Sviðið) Mið 9/2 kl. 20:00 Mið 16/2 kl. 20:00 Sun 20/2 kl. 20:00 lokasýn Fim 10/2 kl. 20:00 Fim 17/2 kl. 20:00 Sýningum lýkur í febrúar! Afinn (Litla sviðið) Fös 11/2 kl. 19:00 Fim 17/2 kl. 20:00 Sun 20/2 kl. 20:00 Lau 12/2 kl. 19:00 Fös 18/2 kl. 19:00 Sun 27/2 kl. 20:00 Sun 13/2 kl. 20:00 Lau 19/2 kl. 19:00 Óumflýjanlegt framhald Pabbans Nýdönsk í nánd (Litla svið) Mið 9/2 kl. 20:00 frumsýn Mið 23/2 kl. 20:00 4.k Fös 25/2 kl. 22:00 Fim 10/2 kl. 20:00 2.k Fim 24/2 kl. 20:00 5.k Mið 16/2 kl. 20:00 3.k Fös 25/2 kl. 20:00 6.k Sáldrandi brjáli sem aldrei fyrr Skoppa og Skrítla á tímaflakki (Litla svið) Lau 12/2 kl. 14:00 Lau 19/2 kl. 14:00 Lau 26/2 kl. 14:00 Sun 13/2 kl. 14:00 Sun 20/2 kl. 14:00 Sun 27/2 kl. 14:00 Bestu vinkonur allra barna Nýdönsk í nánd – frumsýnt í kvöld! ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ 551 1200 / leikhusid.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.