Morgunblaðið - 09.02.2011, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 09.02.2011, Qupperneq 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2011 AF SJÓNVARPI Davíð Roach Gunnarsson drg@hi.is Sjónvarpsþættirnir BoardwalkEmpire sem Stöð 2 munfrumsýna 20. febrúar eru eitt skýrasta dæmið um hvernig sjón- varpsþættir hafa undanfarin tíu ár verið að færast nær og nær bestu kvikmyndum, bæði í fram- leiðslugæðum og listrænum metn- aði. Martin Scorsese, einn merkasti leikstjóri síðari hluta 20. aldarinnar, er einn af framleiðendum þáttanna og leikstýrir upphafsþættinum. Hann kostaði 18 milljónir dollara í framleiðslu og ber útlit hans þess glöggt vitni, glæsileg leikmynd og búningar, herskari af statistum og kvikmyndataka í hæsta gæðaflokki.    Serían hefst árið 1920 í AtlanticCity, kvöldið áður en allsherjar áfengisbann verður sett á í landinu. Aðalpersóna þáttanna, Nucky Thomson, sem leikinn er af hinum sjarmerandi ófríða Steve Buscemi, er bæði vinsæll stjórnmálamaður og mafíósi sem tekur sinn toll af öllu því vændi og fjárhættuspili sem stundað er í bænum. Á þessu kvöldi heldur hann hjartnæma ræðu í bind- indishreyfingu kvenna og fer síðan strax á eftir á fund með öðrum glæpaforingjum til að leggja á ráðin um smygl og framleiðslu á nú ólög- legu áfengi.    Einn af meginpunktum þátt-anna er hvernig bannárin í Bandaríkjunum skutu rótum undir skipulagða glæpastarfsemi. Eftir að áfengi var bannað fór verðið úr 25 sentum fyrir einn drykk upp í þrjá dollara, en þá jókst einnig harkan í undirheimunum. Eins og bílstjóri Nucky Thomson segir við hann: „You can’t be half a gangster any- more.“ Sögufrægum persónum úr glæpasögunni bregður fyrir eins og Arnold Rothstein, Lucky Luciano og ungum Al Capone. Handrit og kar- aktersköpun þáttanna er með því allra besta sem greinarhöfundur hefur séð í sjónvarpi og persóna Nucky í meðförum Buscemi er álíka flókin og margþætt og Rubick- teningur. Hann er hvort tveggja í senn fyrirmyndarborgari (alltént í augum annarra) og glæpaforingi og þessar andstæður tvinnar hann, eins undarlega og það kann að hljóma, saman í öllum ákvörðunum sem hann tekur.    Handbragð Scorsese á upp-hafsþættinum er greinilegt og sumar barsenur minna óneitanlega á Goodfellas eða Casino. Þeim sem leikstýra seinni þáttum fer síðan vel úr hendi að ná sama tón og settur var í upphafi. Boardwalk Empire er gríðarlega metnaðarfull framleiðsla hjá HBO-kapalstöðinni en upphaf þeirrar sjónvarpsbyltingar sem nú er í gangi má rekja til Sopranos- þátta HBO. Terrence Winter, skap- ari þáttanna, á einmitt rætur sínar að rekja til Sopranos en hann starf- aði sem handritshöfundur við ser- íuna líkt og skapari þáttanna Mad Men sem einnig eru á toppi sjón- varpsfjallsins um þessar mundir. Buscemi glímir við bannárin »Handbragð Scor-sese á upphafsþætt- inum er greinilegt og sumar barsenur minna óneitanlega á Goodfellas eða Casino. Metnaðarfullt Steve Buscemi í einum þátta Boardwalk Empire sem framleiddir eru af HBO-kapalstöðinni. Höfundur er meistaranemi í blaða- og fréttamennsku. Gagnrýnandi Washington Post, Peter Marks, fer afar hörðum orðum um dýrasta söngleik allra tíma, Spider-Man: Turn Off the Dark, sem forsýndur hefur verið á Broadway í New York og segir í fyrirsögn að enga ofurkrafta þurfi til að þefa uppi þá fýlubombu. Þrátt fyrir að 65 milljónum dollara hafi ver- ið eytt í uppfærsluna sé hún afar misheppnuð og leikstjóri verks- ins hafi gleymt nokkrum mikil- vægum atriðum, þ.e. söguþræði með samhengi, bærilegri tónlist og sviðsmyndum sem hægt sé að notast við. Tónlistin, eftir U2- mennina Bono og The Edge, sé laus við allan persónuleika og sviðsmyndirnar kæfi hana. Gagnrýnandi segir þó þá sem njóta þess að horfa á leikara í latex- göllum fá eitthvað fyrir sinn snúð. Fýlubomba á Broadway Lói Veggspjald söngleikjarins við anddyri Foxwood Theatre í New York. Óhöpp hafa verið tíð á æfingum á honum. Reuters Forsprakki hljómsveitarinnar Arctic Mon- keys, Alex Turner, mun senda frá sér sína fyrstu sólóplötu 14. mars næstkomandi. Á plötunni verður að finna órafmagnaðar upp- tökur af lögum sem hann samdi fyrir kvik- myndina Submarine en sú mynd sló í gegn á síðustu Sundance-hátíð og hefur rýnir breska dagblaðsins Guardian farið fögrum orðum um tónsmíðar Turners fyrir þá kvikmynd. Framleiðandi plötunnar, eða pródúsent eins og það er kallað í tónlistarheimum, er James Ford úr Simian Mobile Disco. Einu hljóðfærin sem notast var við eru píanó og kassagítar. Turner hefur áður samið tónlist við verk leikstjóra myndarinnar, Richard Ayoade, en sá hefur leikstýrt tveimur tónlist- armyndböndum fyrir Arctic Monkeys og tón- leikamyndinni At the Apollo. Af Arctic Mon- keys er það að frétta að hljómsveitin er að vinna að fjórðu breiðskífu sinni í samstarfi við Ford. Turner með sólóplötu Kafbátur Á væntanlegri plötu Turners verð- ur tónlist úr kvikmyndinni Submarine. BLACK SWAN KL. 5.40 - 8 - 10.30 16 BLACK SWAN LÚXUS KL. 5.40 - 8 - 10.30 16 MÚMÍNÁLFARNIR 3D KL. 3.40 L THE DILEMMA KL. 5.30 - 8 - 10.30 L THE GREEN HORNET 3D KL. 3.30 - 5.25 - 8 - 10.35 12 ALFA OG ÓMEGA 3D KL. 3.30 L THE TOURIST KL. 8 - 10.20 12 GULLIVER´S TRAVELS 3D KL. 3.30 - 5.50 L BLACK SWAN KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 LONDON BOULEVARD KL. 8 - 10.10 16 THE FIGHTER KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 BURLESQUE KL. 8 - 10.30 L GAURAGANGUR KL. 5.50 7 BARA HÚSMÓÐIR* KL. 6 ENSKUR TEXTI L *SÝND ÁFRAM Í NOKKRA DAGA SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ BORGARBÍÓ 5% 5%NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS T.V. - KVIKMYNDIR.IS B. I., KVIKMYNDIR.COM -H.S.S.,MBL THE DILEMMA KL. 8 L MÚMÍNÁLFARNIR 3D KL. 6 L DEVIL KL. 8 - 10.10 16 THE GREEN HORNET 3D KL. 10.10 12 ALFA OG ÓMEGA 2D KL. 6 L ÍSLENSKT TAL Í 3-D -H.S.S., MBL LAUGARÁSBÍÓ Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum Sýningartímar ÞRÆLMÖGNUÐ SPENNUMYND FRÁ ÓSKARS- VERÐLAUNAHAFANUM WILLIAM MONAHAN, HANDRITSHÖFUNDI “THE DEPARTED” THE FIGHTER Sýnd kl. 5:40, 8 og 10:20 LITTLE FOCKERS Sýnd kl. 8 og 10 LONDON BOULEVARD Sýnd kl. 8 og 10:10 MÚMMÍNÁLFARNIR 3D Sýnd kl. 6 ísl. tal ALFA OG ÓMEGA 2D Sýnd kl. 6 ísl. tal -bara lúxus sími 553 2075 Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.