Morgunblaðið - 09.02.2011, Qupperneq 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2011
Kvikmyndin London Bou-levard er harðsoðin íanda bæði breskra glæp-onamynda frá því um
1970 og blómaskeiðs-rökkurmynda
frá Hollywood í kringum miðja síð-
ustu öld. Sagan segir af nýfrjálsa
fanganum Mitchell (Colin Farrell)
sem hefur einsett sér að lenda aldr-
ei aftur á bak við lás og slá. Hann
ræður sig því í vinnu sem þúsund-
þjalasmið og lífvörð kvikmynda-
stjörnunnar Charlotte (Keira Knig-
htley). Hún býr á óðali í London
ásamt einskonar bryta að nafni Jor-
dan (David Thewlis) sem er at-
vinnulaus leikari og mikill bóhem.
Þetta er vænleg uppskrift að góðri
mynd en útkoman er áferðarfögur
mynd, byggð á meingölluðu hand-
riti. Það má segja að hér bregðist
krosstré sem önnur tré því að hand-
ritshöfundurinn William Monaham
hlaut Óskarsverðlaun fyrir hand-
ritið að The Departed árið 2007.
Þetta er jafnframt leikstjórn-
arfrumraun Monahams og tekst
honum ágætlega til í því hlutverki.
Myndin er prýðisvel leikin enda
skartar hún fantagóðum breskum
kempum í helstu aukahlutverkum.
Einnig má lofa tæknilega vinnslu
myndarinnar. Kvikmyndataka, leik-
mynd og klipping eru óaðfinnanleg
og tónlistin er sérlega vel heppnuð.
Frumsamda tónlistin minnir á
gamla tíma og á völdum stöðum
óma fágæt rokklög sem hnykkja á
tilvísuninni í breskar glæp-
onamyndir á borð við Perfomance
(1970) og Get Carter (1971). Eins og
sést á titlinum og því sem hér hefur
verið reifað af frásögninni vísar
myndin einnig í rökkurmyndina
Sunset Boulevard (1950). Róm-
antíkin sem á að neista milli að-
alpersónanna í London Boulevard
er þó allt annað en sannfærandi.
Þessi rómantík gæti hæglega
verið áhugaverð þar sem stöðug
ógn stafar af sjálfhverfum stjörnu-
lífsstíl Charlotte og válegri glæpa-
fortíð Mitchells en tilhugalíf að-
alhetjanna fær ekki nógu mikið rúm
í frásögninni til að ná að verða sann-
færandi. Of margir aukaþræðir
glepja huga áhorfenda. Mitchell
eyðir til dæmis mestum tíma mynd-
arinnar með fyrrverandi glæpa-
félaga sínum Billy (Ben Chaplin). Í
gegnum Billy kemst Mitchell í kast
við hrottalegan glæpakóng (Ray
Winstone) en það hefur afdrifaríkar
afleiðingar. Mitchell reynir enn
fremur að hefna dauða annars vinar
síns, ásamt því að hafa hemil á
flaumósa snarklikkaðri systur sinni
sem er á augljósri leið til glötunar.
Allar þessar persónur eru vel leikn-
ar en þær fá ekki tækifæri til að
þróast neitt því að söguþræðirnir
eru of margir.
Eini ljóður myndarinnar er sem
sagt hið meingallaða handrit. Það
hefði farið betur á því að þétta frá-
sögnina með því að kafa dýpra í
færri þræði. Handritið er aðlögun á
samnefndri skáldsögu frá 2001 og
hugsanlega liggur hundurinn þar
grafinn. Það er ómögulegt að aðlaga
alla þætti heillar skáldsögu í 100
mínútna frásagnarkvikmynd. Það
sem bjargar London Boulevard frá
því að vera algjört klúður er hin
áferðarfagra tæknilega vinnsla og
sterkur leikur.
Svo bregðast krosstré …
Háskólabíó, Laugarásbíó
London Boulevard bbbnn
Leikstjórn og handrit: William Monahan.
Aðalhlutverk: Colin Farrell, Keira
Knightley, David Thewlis og Ray Win-
stone. 103 mín. Bretland, 2010.
HJÖRDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Misheppnað par Rómantíkin sem á að neista milli Colin Farrell og Keiru Knightley er allt annað en sannfærandi
því að handrit myndarinnar er meingallað, að mati gagnrýnanda. Hér sést Farrell við fjölda mynda af Knightley.
Ég var svo lánsamur að þegar ég
eignaðist mitt fyrsta barn rataði
mynddiskur með teiknimynd um
Múmínálfana inn í fátæklegt barna-
myndasafnið okkar. Hann fékk því
að snúast linnulítið um í DVD-
spilaranum, en raddsetjarar þess-
ara ágætu teiknimynda eru bara
tveir, Kristján Franklín Magnús og
Sigrún Edda Björnsdóttir. Seinna
eignuðumst við allt þetta teikni-
myndasafn og ég get kinnroðalaust
lýst því yfir að ég kann mín Múm-
ínfræði upp á tíu.
Ævintýri Múmínálfanna eru vel
þekkt á Norðurlöndum og þeir og
þeirra slekti eiga ríkan sess í hjört-
um ungra sem aldinna. Virðingar-
sessinn virðist treystast með ár-
unum en kanónur eins og Stellan
Skarsgård, Peter Stormare og
Mads Mikkelsen sjá um upp-
runalegu talsetninguna. Í íslensku
talsetningunni sér Sigurjón Kjart-
ansson t.a.m. um múmínpabba og
Hemúlinn, Jón Gnarr sér um Snúð
og titillagið er eftir hana Björk okk-
ar.
Í þessari nýjustu mynd er að
mestu stuðst við svokallaðan hreyfi-
myndastíl eða „stop-motion“-tækni.
Útlitið er því viljandi gamaldags,
álfarnir samsettir úr útklipptum
spjöldum að því er virðist og áferð-
in sem næst fram er í senn draum-
kennd og róandi. Líkt og í tilfelli
téðra teiknimynda er framvindan
þægilega súrrealísk; ungviðið situr
sem stjarft á meðan við sem erum
komin í álnir getum notið þess að
nema spekina frá búddistanum
Snúði eða brosað að tuðinu í hinum
sérlundaða Hemúl. Þrívíddarvinkill-
inn á þessari mynd var mér hins
vegar hulinn og algerlega óþarfur.
En myndin stendur undir sér; flott
nálgun við þessar sígildu sögur og
hressandi mótvægi við hraðann og
lætin í Disney/Pixar-myndunum.
Smárabíó/Laugarásbíó/
Borgarbíó
Múmínálfarnir og halastjarnan 3D
bbbmn
Leikstjóri: Maria Lindberg. Byggt á sögu
Tove Jansson. 75 mín. Finnland, 2010.
Ævintýri Múmínsnáðinn og Snorkstelpan í vandræðum.
Dulúð og dásemdir í Múmínlandi
ARNAR EGGERT
THORODDSEN
KVIKMYNDIR
FRANK OG CASPER MUNU FÁ ÞIG
TIL AÐ GRENJA ÚR HLÁTRI.
FYNDNASTA MYND SEM KOMIÐ
HEFUR Í BÍÓ LENGI
HHHHH
- POLITIKEN
HHHHH
- EKSTRA BLADET
HHHH
- H.S.S - MBL
M A T T D A M O N
HHHH
„ÞETTA ER MYND FYRIR
GÁFAÐ FÓLK SEM ER
NÁTTÚRULEGA FOR-
VITIÐ UM HVAÐ GERIST
ÞEGAR YFIR MÓÐUNA
MIKLU ER KOMIÐ.“
- ROGER EBERT
HHHH
-THE HOLLYWOOD REPORTER
H E R E A F T E R
NÝJASTA MEISTARVERK CLINT EASTWOOD
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL,
KRINGLUNNI OG AKUREYRISÝND Í ÁLFABAKKA
FBL. - F.B.
HHHH
MBL. - H.S.
HHHH
ERU FRÁBÆRAR Í ÞESSARI
BRÁÐFYNDNU GAMANMYND
MARGT GETUR FARIÐ ÚRSKEIÐIS
ÞEGAR GAMLAR ÓVINKONUR ÚR
FRAMHALDSKÓLANUM HITTAST Á NÝ
H.S. - MORGUNBLAÐIÐ
HHHH
Þ.Þ. - FRÉTTATÍMINN
HHH
SÝND Í KRINGLUNNI
Í 3D
LÖGIN ERU BROTIN
ÞEIM TIL BJARGAR
SETH ROGEN JAY CHOU
CHRISTOPH WALTZ
AND CAMERON DIAZ
SÝND Í EGILSHÖLL OG KEFLAVÍK
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI
SPENNANDI ÆVINTÝRI SEM FÆR ÞIG TIL AÐ GRENJA ÚR HLÁTRI.
FRÁBÆR TEIKNIMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA.
HHHHH
„SKEMMTILEG, FYNDINN
OG SPENNANDI“
- S.V BOXOFFICE MAGAZINE
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG AKUREYRI
HHHH
„TANGLED ER POTTÞÉTT OG
VEL HEPPNUÐ AFÞREYING“
A.E.T. - MORGUNBLAÐIÐ
GAGNRÝNENDUR OG
ÁHORFENDUR UM ALLAN
HEIM ERU SAMMÁLA UM AÐ THE KING'S
SPEECH SÉ EIN BESTA OG SKEMMTILEGASTA
MYND SEM KOMIÐ HEFUR Í ÁRARAÐIR
SÝND Í EGILSHÖLL
40 ÞÚSUND SKELLIHLÆGJANDI
ÁHORFENDUR!
BESTI LEIKSTJÓRI – TOM HOOPER
BESTI LEIKARI Í AÐALHLUTVERKI – COLIN FIRTH
BESTI LEIKARI Í AUKAHLUTVERKI – GEOFFREY RUSH
BESTA LEIKKONA Í AUKAHLUTVERKI – HELENA CARTER12
TILNEFNINGAR
TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
BESTA MYND
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
EMPIRE
HHHHH
BOXOFFICE MAGAZINE
HHHHH
„MYNDIN ER Í ALLA STAÐI STÓRBROTIN
OG STENDUR FYLLILEGA UNDIR LOFINU
SEM Á HANA HEFUR VERIÐ BORIÐ.“
„TÓLF ÓSKARSTILNEFNINGAR SEM
GERIR HANA AÐ MEST TILNEFNDU MYND
ÁRSINS. ÞAÐ KEMUR EKKI Á ÓVART.“
- H.S. - MBL.IS
HHHHH
„ÓGLEYMANLEG MYND SEM ÆTTI
AÐ GETA HÖFÐAÐ TIL ALLRA.
BJÓDDU ÖMMU OG AFA MEÐ,
OG UNGLINGNUM LÍKA.“
- H.V.A. - FBL.
HHHHH
FRÁ JAMES CAMERON
SEM FÆRÐI OKKUR TITANIC OG AVATAR
,
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
ATH. NÚMERUÐ SÆ
TI
Í KRINGLUNNI
ATH. NÚMERUÐ SÆ
TI
Í KRINGLUNNI
MIÐASALA Á WWW.SAMBIO.IS
SANCTUM 3D kl. 5:40 - 8 - 10:20 14
THE KING'S SPEECH kl. 5:30 - 8 - 10:30 L
THE KING'S SPEECH kl. 5:30 - 8 - 10:30 VIP
KLOVN - THE MOVIE kl. 5:50 - 8 - 10:20 14
ROKLAND kl. 5:40 - 8 - 10:20 12
ÆVINTÝRALEGUR FLÓTTI 3D kl. 5:50 ísl. tal L
HEREAFTER kl. 8 12
HARRY POTTER kl. 10:30 síðustu sýningar 10
/ ÁLFABAKKA
SANCTUM 3D kl. 5:30 - 8 - 10:30 14
THE KING'S SPEECH kl. 5:30 - 8 - 10:30 L
ÆVINTÝRALEGUR FLÓTTI 3D kl. 5:30 ísl. tal L
THE DILEMMA kl. 8 - 10:30 L
KLOVN - THE MOVIE kl. 8 14
THE GREEN HORNET 3D kl. 10:15 12
ROKLAND kl. 5:30 12
SANCTUM 3D kl. 8:20 - 10:40 14
THE KING'S SPEECH kl. 5:50 - 8 - 10:30 L
KLOVN - THE MOVIE kl. 10:20 14
ÆVINTÝRALEGUR FLÓTTI 3D kl. 5:50 ísl. tal L
YOU AGAIN kl. 5:50 - 8 L
SANCTUM 3D kl. 8 - 10:20 14
THE KING'S SPEECH kl. 5:40 L
KLOVN - THE MOVIE kl. 6 - 8 14
ROKLAND kl. 10:20 12
THE GREEN HORNET kl. 8 - 10:20 12
ROÐLAUST OG BEINLAUST kl. 8 - 9 stuttmynd L
DEVIL kl. 10:10 16
/ EGILSHÖLL
/ KRINGLUNNI
/ AKUREYRI
/ KEFLAVÍK
/ SELFOSSI
NÆSTI SÝNINGARD. FÖS
TUDAGUR][