Morgunblaðið - 19.04.2011, Síða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 2011
Í kvöld kl. 20
verður opnuð í
Listasafni
Kópavogs,
Gerðarsafni,
yfirlitssýning á
verkum mynd-
listarkonunnar
Barböru Árna-
son, í tilefni af
aldarafmæli
hennar. Sýn-
ingarstjóri er forstöðumaður safns-
ins, Guðbjörg Kristjánsdóttir. Sýn-
ingin verður í öllum sölum safnsins
en það er Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, sem opnar hana.
Yfir 250 verk eftir listakonuna
verða til sýnis auk fjölda mynd-
skreyttra bóka, jóla- og tækifær-
iskorta, jólamerkja og fleira sem
Barbara hefur skreytt. Mörg verk-
anna á sýningunni eru í einkaeigu
og hafa aldrei áður komið fyrir al-
menningssjónir.
Um sýninguna og Barböru segir í
tilkynningu: „Barbara Árnason er
fædd og uppalin á Englandi og lauk
þar listnámi. Hún var fengin til að
myndskreyta endursagnir úr Ís-
lendingasögunum skömmu eftir að
hún lauk námi og kveikti það í
henni áhuga á landi og þjóð. Hún
hélt til Íslands árið 1936 og reynd-
ist það mikil örlagaferð í hennar
lífi. Hún kynntist Magnúsi Á. Árna-
syni, myndhöggvara og málara, og
gengu þau í hjónaband 1937. Sama
ár fluttist hún til Íslands.
Á neðri hæð Gerðarsafns eru
verk eftir Barböru sem sýna hvern-
ig henni tókst að ná undraverðum
tökum á hinni ofurnákvæmu og
vandasömu tækni tréstungunnar.
Barbara lagði með tréstungunum
grunninn að íslenskri þrykklist og
telst meðal brautryðjenda á því
sviði hér á landi.
Í vestursal eru vatnslitamyndir
eftir Barböru en þær eru m.a. vitn-
isburður um þær byggðir Íslands
sem hún heimsótti ásamt eig-
inmanni sínum á árunum 1937 til
1975. Síðustu vatnslitamyndirnar
málaði hún á Þingvöllum sumarið
áður en hún lést. Þá málaði hún
barnamyndir, sem urðu mjög eft-
irsóttar, sem og myndir af dýrum
og villi- og stofublómum.
Í austursal má m.a. sjá verk sem
Barbara vann úr lopa. Til þessara
verka teljast bæði veggteppi og
tískuvara. Lopaverk Barböru eru
eitt af því frumlegasta sem lagt hef-
ur verið af mörkum til íslenskrar
vefjarlistar á síðustu öld. Hún sýndi
þau margsinnis í París og seldi vel.“
Aldarafmæli
Barböru
Árnason
100 ár Eitt verka Barböru Árnason
sem sjá má á yfirlitssýningunni.
Yfirlitssýning
opnuð í öllum
sölum Gerðarsafns
Guðbjörg
Kristjánsdóttir
Konfúsíusarstofnunin Norður-
ljós sýnir í dag kínversku
heimildarmyndina Á valdi for-
tíðarinnar, í stofu 132 í Öskju,
Háskóla Íslands, kl. 17.30-
18.30. Í myndinni segir af ung-
um manni, Bing. Skilnaður for-
eldra hans tekur mikið á hann
og hann ákveður að grennslast
fyrir um hvað olli honum en or-
sökin virðist tengjast Menn-
ingarbyltingunni. Hann heldur
með föður sínum og unnustu hans í 12.000 kíló-
metra ferðalag og verður á því margs fróðari um
orsakir skilnaðarins. Myndin er frá árinu 2008 og
leikstjóri eða höfundur hennar Chao Gan.
Sýningin er öllum opin og ókeypis.
Kvikmyndir
Á valdi fortíðarinn-
ar sýnd í Öskju
Chao
Gan
Sextett sænsku söngkonunnar
Isabel Sörling heldur tónleika í
kvöld kl. 20 í Norræna húsinu, í
samvinnu við Jazzhátíð
Reykjavíkur og Nordjazz með
stuðningi Tónlistarskóla FÍH.
Sörling og hljómsveit hennar
fóru með sigur af hólmi í nor-
rænu djasskeppninni Young
Nordic Jazz Comets í fyrra í
Finnlandi og eru meðlimir nú á
tónleikaferð um Norðurlöndin.
Auk sextettsins koma fram á tónleikunum í kvöld
tvær ungar íslenskar söngkonur, Unnur Birna
Björnsdóttir og Anna María Björnsdóttir. Þær
eru báðar um það bil að ljúka söngnámi við Tón-
listarskóla FÍH.
Tónlist
Sextett Sörling,
Unnur og Anna
Isabel
Sörling
Leikfélagið Hugleikur frum-
sýndi fyrir helgi nýtt íslenskt
leikrit eftir Árna Hjartarson
sem nefnist Einkamál.is, í
húsnæði leikfélagsins á Eyj-
arslóð 9. Leikstjórar eru
Hulda B. Hákonardóttir og
Þorgeir Tryggvason. Einka-
mál.is er dramatískur fjöl-
skyldugamanleikur um sam-
tímafjölskyldu í heima-
tilbúnum vanda. Hvað gerir
barnelskur karl þegar hann kemst að því að
einkasonur hans og tengdadóttir hafa ákveðið að
eignast ekki börn? Verkið verður sýnt í kvöld kl.
20 og á sama tíma 26. og 27. apríl, 1., 3. og 6. maí.
Nánari upplýsingar má finna á hugleikur.is.
Leiklist
Hugleikur sýnir
Einkamál.is
Þorgeir
Tryggvason
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Síðustu hádegistónleikar vetrarins
hjá Íslensku óperunni hefjast kl.
12.15 í dag og verða drottningar og
draugar áberandi á þeim. Á efnis-
skránni eru aríur og samsöngvar úr
ýmsum verkum og má þar nefna
Aidu, Spaðadrottninguna, Don Pas-
quale, Don Giovanni, My Fair Lady
og Óperudrauginn. Gestasöngvari er
Maríus Sverrisson en auk hans koma
fram Bragi Jónsson, Bylgja Dís
Gunnarsdóttir, Erla Björg Káradótt-
ir, Hlynur Andri Elsuson, Hörn
Hrafnsdóttir, Jóhanna Héðinsdóttir
og Natalía Druzin Halldórsdóttir
ásamt Antoníu Hevesí píanóleikara.
Um sviðsetningu sér bassasöngv-
arinn Bjarni Thor Kristinsson og
mun hún vera hans fyrsta í Íslensku
óperunni.
Létt og skemmtilegt
„Þetta verða mjög léttir og
skemmtilegir tónleikar, aðaláherslan
er á létt efni. Þetta er allt frá drama-
tískri óperu yfir í léttan söngleik og
allt þar á milli,“ segir Maríus, gesta-
söngvari á tónleikunum, um efnis-
skrána. „Þetta er sett létt á svið,
þetta er leikið en samt ekki eins og
leiksýning beint, létt sviðsett myndi
ég segja. Það gerir hann Bjarni,
hann sér um það. Það er mjög gaman
að hitta hann aftur, við lærðum sam-
an í Vín á sama tíma.“
– Þetta er hans fyrsta sviðsetning í
Íslensku óperunni, hvernig er að
vera undir stjórn Bjarna?
„Þetta er búið að vera alveg frá-
bært, mjög skemmtilegt og gaman að
vinna með kollegum að svona hlut-
um. Hann hefur náttúrlega mikla
reynslu, hefur unnið með mörgum
frábærum leikstjórum úti og veit al-
veg hvernig á að gera svona. Mér
finnst þetta virka bara vel.“
Maríus segir að söngvararnir verði
ekki í búningum en muni þó ramma
allt saman inn með smekklegum
klæðnaði. Maríus segist ekki hafa
unnið áður með neinum söngvaranna
sem koma fram á tónleikunum, þeir
séu margir ungir og upprennandi og
ekki síður spennandi fyrir fólk að fá
að heyra í þeim.
Rómantísk lög
– Hvaða lög syngur þú á tónleik-
unum?
„Ég er að syngja einn dúett
og eina aríu úr Don Giovanni
og dúett Raoul og Christine úr
Phantom of the Opera, „That’s
All I ask of You“, það ættu
nú flestir að þekkja það.
Svo syng ég lag úr My Fa-
ir Lady, „On the Street
Where You Live“. Þann-
ig að ég er með róm-
antísku lögin, svolítið.“
– Eru þetta lög sem þú
hefur sungið áður á sviði?
„Já, söngleikjalögin hef ég
sungið bæði áður og Raoul söng ég í
uppfærslu í Þýskalandi, í svona
„greatest hits of music“-sýningu.
Fyrsta sýningin sem ég var í á Ís-
landi var My Fair Lady, þegar ég var
að byrja, var bara 18 ára eða þar um
bil. Svo hef ég fengið ýmis tækifæri
til að syngja þetta úti,“ svarar Mar-
íus en hann er lýrískur baritónn.
Hann segir lögin úr Don Giovanni
hins vegar eitthvað nýtt og spenn-
andi fyrir hann að takast á við, hann
hafi sungið létta klassík áður og væri
til í að gera meira af því. Lögin henti
rödd hans vel.
„Við ferðumst víða, þetta verður
svolítil heimsreisa. Við erum þarna í
París, London og Egyptalandi, þetta
er svona ferð um heiminn í tónum,“
segir Maríus að lokum um tón-
leikana.
Heimshorna á milli í hádeginu
Morgunblaðið/Ómar
Létt Antonia Hevesí, Maríus og Bjarni Thor á æfingu í síðustu viku. Það var létt yfir þeim enda áherslan lögð á skemmtilega efnisskrá.
Fiðlukonsert kvölds-
ins var sá fimmti sem
Mozart samdi á aðeins átta
mánaða tímabili árið 1775
29
»
Maríus H. Sverrisson nam söng og
leiklist í Vínarborg, New York og
Hamborg og býr bæði í Þýskalandi
og á Íslandi. Hann hefur tekið
þátt í fjölda leiksýninga víða um
Evrópu, m.a. í Sound of Music,
Kiss me Kate, La Cage aux fol-
les, Mosees, Cabaret, Blood
Brothers, Sweeney Todd og
Space Dream. Maríus
hefur m.a. sungið við
opnunarhátíð Potsda-
mer Platz í Berlín og
komið fram sem ein-
söngvari í Berliner
Friedrickstadt Palast,
Schillertheater,
Admiralspalast og í sjónvarps-
þættinum Wetten Das. Hann hefur
einnig farið með aðalhlutverkið í
söngleiknum Titanic og fór með
sönghlutverk í sýningunni Apas-
sionata 2009-10. Í Zürich stofnaði
hann ásamt félögum sínum leik-
hópinn Schnabeltheater og frum-
flutti hann söngleikinn Der Kobold
König eftir Maríus og Eric Müller á
síðasta ári. Maríus hefur einnig
komið fram sem einsöngvari og
leikari erlendis og á Íslandi, m.a.
með Sinfóníuhljómsveit Íslands og
í Íslensku óperunni, í Þjóðleikhús-
inu, Borgarleikhúsinu og með
Frostrósum.
Sjóaður í söngleikjum
ÚR FERILSKRÁNNI
Draugur Andrew
Lloyd Webber, höfundur
söngleiksins Phantom
of the Opera.
Síðustu hádegistónleikar Íslensku óperunnar verða haldnir í dag Aríur og samsöngvar
úr verkum á borð við Aidu, Don Giovanni og Óperudrauginn eru á efnisskránni
www.opera.is